Morgunblaðið - 01.12.1991, Blaðsíða 16
M,ORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. DESIyMBER 1991
NALAR LEITAfl
í HEYSTAKKI
ar, en það reyndist vera 14 dögum
áður en sprengjutilræðið í breið-
þotunni var framið. Viðskiptavin-
urinn í fataverzluninni Mary’s
House var sannanlega einn af
starfsmönnum líbýsku leyniþjón-
ustunnar, el-Mikrahi að nafni, en
hann hafði þá búið á gistihúsi einu
þar skammt frá.
Litli græni málmhlutinn leiddi
rannsóknarsérfræðingana á vit
fyrirtækis eins í Zúrich, sem heitir
Meister und Bollier (Mebo), en það
Sönnunargagn til sýnis í Washington: Fjórar milljónir einstakra hluta úr flakinu fundust.
Löndin fyrir botni Miðjarðar-
hafs hafa um árabil verið hijáð
af sífelldum stríðsátökum og alls-
kyns hermdarverkum, en málin
hafa þó tekið að þróast nokkuð í
friðsamlegri átt að undanförnu.
Nú vofir hins vegar yfir þessum
heimshluta að verða skyndilega á
nýjan leik vettvangur meiri
ókyrrðar og nýrra stríðsaðgerða.
í Hvíta húsinu hafa hefndarað-
gerðir þegar verið til umræðu fyr-
ir „þennan viðbjóðslega glæp gegn
mannkyninu”. Þá hefur Bandaríkj-
aforseti jafnvel íhugað að grípa
til vissra hernaðaraðgerða gegn
eyðimerkurríki Gaddafís. Tals-
maður bandarísku stjómarinnar,
Marlin Fitzwater, lét svo unr
mælt fyrir skemmstu, að „við úti-
lokum engin af þeim úrræðum sem
til greina gætu komið.”
BðHDIN BERASI
1D GADDAFI
Maghrebínski bedúínapilturinn,
Múammar el-Gaddafi, hefur þann-
ig aftur öðlast það hlutverk, sem
hann gegndi hér áður fyrr í forset-
atíð Ronalds Reagans, þ.e.a.s. sem
morðhundur og hinn versti níðing-
ur sem ber ábyrgð á öllum þeim
ódæðum sem framin eru í heimin-
um.
Eftir sprengjuárás hermdar-
verkamanna á dansstaðinn „la
Belle” í Berlín, þar sem m.a. marg-
ir bandarískir hermenn létu lífið,
lét Reagan forseti gera loftárás á
aðalstöðvar Gaddafis í Trípólis í
aprflmánuði 1986 í hefndarskyni
fyrir það ódæði líbýskra hryðju-
verkamanna. Líbýski einræðis-
herrann slapp lifandi, en 16 mán-
aða gömul stjúpdóttir hans fórst
í þeirri loftárás. Aðeins fáum dög-
um, áður en valdatímabili Reagans
forseta lauk, eða í janúar 1989,
skutu bandarískar orrustuflugvél-
ar niður tvær líbýskar herflugvél-
ar, og Washington hafði uppi
hótanir um að láta aftur gera loft-
árásir á staði í Líbýu, af því að
Bandaríkjamenn höfðu þá komist
á snoðir um starfrækslu eiturgas-
verksmiðju í eyðimörkinni,
skammt frá bænum Rabita. Að-
eins nokkrum vikum áður hafði
áðurnefnd breiðþota Pan-Americ-
an flugfélagsins sprungið í tætlur
yfir Lockerbie. Sýrlendingar, íran-
ir og hryðjuverkasamtök Pa-
lestínumanna voru fljótlega grun-
hvíla þreytta fætur
Wlcanders
£2. Kork-O'Plast
Korkflísar er barnaleikur
að þrífa
££ ánila 29, Mílatani, sírI 319(1
P. ÞORGRÍMSSON & CO
Höfóar til
.fólks í öllum
starfsgreinum!
uð um að standa að baki því ód-
æði - en lengi vel beindist grunur-
inn hins vegar alls ekki að Líbýu-
mönnum.
En núna virðist þetta illræmda
glæpamál loks vera leyst, en þetta
telst einn hinn blóðugasti harm-
leikur í allri sögu farþegaflugs í
heiminum. Það er álit sérfræðinga
á sviði öryggismála í Lundúnum,
að rannsóknin í sambandi við Loc-
kerbieflugslysið sé „langsamlega
umfangsmesta rannsóknaraðgerð
sem nokkurn tíma hefur verið
framkvæmd í gjörvallri sögu glæp-
arannsókna”.
Ein minnsta lögreglustöðin í
Bretlandi, „Dumfries and
Galloway Constabulary” vann að
rannsókn málsins í samvinnu við
risavaxnar stofnanir á borð við
bandarísku alríkislögregluna, FBI,
og bandarísku leyniþjónustuna,
CIA. Hermenn úr brezka land-
hemum, flota og flugher skriðu á
fjórum fótum um heiðalönd og
fenjaflóa, um 2.200 ferkílómetra
landsvæði, og höfðu upp úr krafs-
inu alls um fjórar milljónir ein-
stakra hluta, allt frá afrifnum
mannsfingri og niður í örsmáar
málmflísar úr flugvélinni. Vitnis-
burður 15.000 manna var skráður,
20.000 nöfn voru tekin til at-
hugunar, 180.000 hlutir rannsak-
■aðir á rannsóknastofum sem
sönnunargögn í málinu. Kostnað-
urinn við rannsóknaraðgerðirnar
nam um 17 milljónum punda eða
um 1,7 milljarði ísl. króna.
Það voru tveir örlitlir hlutir af
öllum þeim fjölda hluta úr sundur-
tættri vélinni, sem að lokum leiddu
rannsóknarsérfræðingana á slóð
tilræðismannanna:
• sviðin pjatla úr buxum.
• grænt málmbrot úr rofa-
hring, minna en fingurnögl - en
einasta vísbendingin um kveikju-
búnað sprengjunnar.
FRÁBÆR
NÁKVÆMNISVINNA
Buxurnar reyndust vera af
gerðinni „Yorkie”, tegundamúmer
1705, og þær höfðu verið í kopar-
litu Samsonite-ferðatöskunni, sem
sprengjan hafði líka verið falin í.
Skozki lögregluforinginn Harry
Bell hafði uppi á verzluninni á
Miðjarðarhafseyjunni Möltu, þar
sem buxurnar höfðu verið keypt-
framleiðir rafeindastýrðan tíma-
stillibúnað. Við rannsókn á málm-
brotum höfðu sérfræðingarnir
komizt að raun um, að vítisvélin
hlyti að hafa verið falin í útvarps-
og segulbandstæki af gerðinni
Toshiba. Sérfræðingur í réttar-
læknisfræði, Alan Feraday, hjá
Konunglegu vopnarannsókna- og
þróunarstofnunni í Kent-héraði,
rakti lið fyrir lið í áralöngu púsluf-
öndri í hvaða gámi ferðataskan
hafði verið um borð í vélinni. Því
næst færði hann sönnur á, að hinn
banvæni flutningur hefði verið
settur um borð í Frankfurt am
Main en ekki á Heathrowflugvelli
eins og þýzk yfirvöld hafa viljað
vera láta til þess að firra sig allri
ábyrgð. Tilræðið hafði verið meira
en þtjú ár í undirbúningi og hvergi
horft í kostnað við þau launráð,
og brezki sérfræðingurinn á sviði
hermdarverka, Paul Wilkinson
prófessor, segist sannfærður um,
að hryðjuverk sem hafi verið und-
irbúið af þvílíkri smásmygli, geti
einungis hafa verið framkvæmt
samkvæmt fyrirmælum frá æðstu
stöðum - frá Gaddafi ofursta.
LANGTÍMAÁÆTLUN
Til þess að torvelda mönnum
að rekja slóðina, hafði þetta til-
ræði verið skipulagt á stöðum sem
eru í fleiri en einu landi: Frá Líbýu,
Möltu, Sviss og í austur-þýzka
alþýðulýðveldinu sem þá var og
hét.
Þegar árið 1985 hafði núver-
andi samgöngumálaráðherra
Líbýu, Iss el-Din el-Hanschiri,
keypt timastilli (en þá er hægt að
stilla á tímalengd sem nemur frá
99 sekúndum og allt upp í 999
daga) hjá fyrirtækinu Mebo AG í
Zúrich. Á fyrra árshelmingi 1986
voru líbýsku leyniþjónustumenn-
irnir við prófanir á kveikjubúnaði
og sprengiefni í æfingabúðum hjá
bænum Sabha í Líbýu. Árið 1988
komu þeir plastsprengiefni fyrir á
allmörgum stöðum samtímis, þar
á meðal á skrifstofu Líbýsk-arab-
íska flugfélagsins og í líbýsku
menningarmiðstöðinni á Möltu.
Þá hófst viðbragðstíminn fyrir
framkvæmd ódæðisins. í byijun
desember náðu hermdarverka-
JOLATILBOÐ
dagana 2.-7. desember
Stærðir: 28-38
Tilboðsverð
aðeins kr. 3.880,-
★ Leður
★ Leðurfóðraðir
★ Sterkir ★ Þægilegir
★ Svartir ★ Grófur sóli
Póstsendum
Skóverslun Kópavogs
Hamraborg 3, sími 41754
mennimir sér í merkimiða á ferða-
tösku á Möltu og keyptu í áður-
nefndri maltneskri fataverzlun
buxur, tweedjakka og ungbama-
samfesting - en samfestingnum
vöfðu þeir utan um segulbands-
sprengjuna sem þeir létu ofan í
ferðatöskuna.
El-Mikrahi var útbúinn með
falsað vegabréf og gisti þannig
dulbúinn á Hótel Holiday Inn í
maltneska sjávarbænum Sliema^
21. desember sendi hann svö
ferðatöskuna með sprengjuna
falda í segulbandstækinu flugleiðis
til Frankfurt og var taskan flutt
með flugfélaginu Air Malta, vél
merktri KM 18. Enginn veitti því
eftirtekt, að ferðataskan tilheyrði
engum af farþegunum. Tíma-
stillarnir voru settir á þann veg
og merkimiðarnir á ferðatöskunni
þannig útfylltir, að tryggt var, að
taskan yrði sett um borð í flugvél-
ina frá Pan-American, flug nr.
103A við umhleðslu farangurs á
flugvellinum í Frankfurt, en þaðan
átti bandaríska vélin að fljúga til
Lundúna. Frá Lundúnum áttu far-
þegarnir með Pan-Am flugi 103A
að fljúga áfram áleiðis til New
York með breiðþotu frá sama flug-
féiagi.
GADDAFI
ORDINN GÆTNARI
Að rannsókn Locerbie-ódæðis-
ins skyidi þannig hafa leitt til þess,
að sekt Líbýumanna þyki sönnuð,
kemur sér raunar einkar vel fyrir
stjórnvöld í Washington með tilliti
til heimspólitískra kringumstæðna
um þess^r mundir. Ástæðan er sú,
að þær þjóðir sem áður lágu undir
grun um að hafa staðið að þessu
fólskuverki, þ.e. Sýrlendingar og
Palestínumenn, gegna núna mikil-
vægu hlutverki í friðaráætlun
Bandaríkjamanna í löndunum fyrir
botni Miðjarðarhafs. Hefðu þessar
þjóðir orðið sannar að sök á Lock-
erbie-sprengjutilræðinu, sem
brezki utanríkisráðherrann Dou-
glas Hurd hefur kallað fjöldamorð,
þá hefði sú vitneskja getað sett
strik í reikninginn varðandi
samningaumleitanir um frið í lönd-
unum fyrir botni Miðjarðarhafs,
en fyrsta skrefið í átt til slíkra
samninga var stigið í Madrid fyrir
nokkrum vikum.
Nú er eftir að sjá, hvort Bush
Bandaríkjaforseti láti sitja við hót-
anir einar um hefndaraðgerðir
gegn Líbýumönnum eða hvort
bandaríska þjóðin vænti þess af
forseta sínum, að hann láti til skar-
ar skríða og hefni ódæðisins á
svipaðan hátt og Reagan forseti
gerði á sínum tíma. Vinsældir
Bush forseta virðast fara síminnk-
andi, og á hann því úr vöndu að
ráða um þessar mundir.
Trípólis útvarpið lék hergöngu-
lög og hermannasöngva klukku-
stundum saman, sendinefnd Líbýu
hjá Sameinuðu þjóðunum bar fram
formleg mótmæli gegn ásökunum
unl að líbýskir aðilar hefðu staðið
að „hinu hörmulega atviki við
Lockerbie”, og talsmaður líbýsku
stjómarinnar hvatti þjóðina til að
halda ró sinni: „Við munum ekki
fremur en hingað til beygja okkur
fyrir þandarísku heimsvaldasinn-
unum og hinum zíonísku hjálpar-
kokkum þeirra.”
En Gaddafi hefur líka lagt sig
nokkuð fram að undanförnu við
að reita ekki Bandaríkjamenn
frekar til reiði, og er ætlun hans
að vinna með því tíma og svigrúm
í algírska sjónvarpinu kom hann
fram með þá tillögu, að Alþjóða-
dómstóllinn í Den Haag ætti að
skera úr um það, hver bæri
ábyrgðina á Lockerbie-tilræðinu:
„Ég vil, að þetta vandamál verði
leyst á löglegan hátt. Það á að
leiða hina ákærðu fyrir rétt og
láta þá sjálfa halda uppi vörnum
fyrir sig.”
Þýtt og endursagt úr Der
Spiegel.