Morgunblaðið - 01.12.1991, Side 20

Morgunblaðið - 01.12.1991, Side 20
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUpAgUJ? 1. pESE^BER }991 FRIÐRIK SOPHUSSON FJÁRMÁLARÁÐHERRA: eftir Ólaf Þ. Stephensen FRIÐRIK Sophusson fjármála- ráðherra var nýkominn af ríkis- stjórnarfundi þegar Morgunblað- ið ræddi við hann á föstudaginn. Þar var ákveðið að standa við fyrri markmið um að halda fjár- lagahallanum innan við fjóra milljarða króna án skattahækk- ana, þrátt fyrir afturkipp í fisk- veiðum og frestun álversfram- kvæmda. Erfitt verkefni þar fyrir fjármálaráðherrann. Friðrik var á leiðinni á annan fund; þing- flokksfund Sjálfstæðisflokksins, þar sem búizt var við að allt yrði í háalofti vegna deilna flokks- formannsins og eins þingmanna. Annar vandi þar fyrir varafor- mann Sjálfstæðisfíokksins. Frið- rik Sophusson hefur með höndum ýmis vandasöm verkefni, sem hann ræðir hér á eftir. Nú stefnir hallinn á ríkissjóði í 10,4 milljarða á árinu í stað 4,1 sem gert var ráð fyrir í fjárlögum. Þýðir þetta ekki að eitthvað hef- ur farið úrskeiðis í stjórn ríkisíjármála hjá þessari ríkisstjórn? „Þegar fjárlögin voru samþykkt var gert ráð fyrir fjögurra milljarða halla í ár. Lánsfjárlög voru hins veg- ar ekki afgreidd fyrr en í vor, og í þeim voru alls kyns heimildir og samþykktir, sem gengu út á að auka hallann. Þegar á fyrstu mánuðum ársins var þess vegna ljóst að hallinn yrði umtalsvert meiri en fjárlögin gerðu ráð fyrir, og það hefur smám saman verið að koma í ljós hvað fjár- lög þessa árs eru óraunhæf. Þau eru kannski gott dæmi um það hvernig kosningabarátta verður efnahags- vandamál, vegna þeirra lausataka sem verða í efnahagsmálum og eink- um ríkisfjármálum, þegar kosningar standa fyrir dyrum. Ég get nefnt sem dæmi um óraunsæið að þegar ríkisstjórnin tók við, var okkur sagt að það vantaði 300-400 milljónir í Lánasjóð íslenzkra námsmanna. Þegar dæmið var gert upp, kom í ljós að það vantaði heilan milljarð! I fjáraukalögunum koma svo inn hækkanir, sem beinlínis má rekja til kosninganna, á borð við kaup á húsi Sláturfélags Suðurlands, sem kost- aði 700 milljónir króna.” — Þegar þið komuð að í lok apríl, einsettuð þið ykkur að spara sex milljarða í ríkisrekstrinum. Þegar upp er staðið, kemur í Ijós að þið spöruðuð ekki nema tvo'og hálfan. Sýnir það ekki að þótt nýja ríkis- stjórnin hafi farið af stað með stór loforð, gengur henni ekkert betur að halda utan um skattpeningana okkar en fyrri stjórnum? „Sannleikurinn er sá að flest af því, sem við ætluðum okkur að spara, náðist fram. Þetta tókst að langmestu leyti, en það sem gerðist var að ný tilefni til hækkana komu upp á borðið, til dæmis fjárþörf Lánasjóðsins. Eins hækkuðu útflutn- ingsuppbætur á landbúnaðarafurðir um fleiri hundruð milljónir ogþað, sem ef til vill vegur þyngst, er að lán til húsnæðismála hækkuðu langt umfram það, sem ætlunin var, vegna ákvarðana sem lágu fyrir áður en stjórnarskipti urðu.” — Hallarekstur ríkissjóðs hefur verið fjármagnaður með yfirdrætti í Seðlabankanum, sem er kominn í ellefu milljarða króna. Verður hann réttur af öðru vísi en með erlendri lántöku? Er ekki ósigur fyrir þig að þurfa að taka erlent lán fyrir hallan- um? m síðustu áramót var tekið erlent lán og yfirdrátturinn í Seðla- bankanum greiddur með því. Þetta var gert þrátt fyrir sífelldar yfirlýsingar þáverandi fjármálaráð- herra um að engin erlend lán hefðu verið tekin. Strax í maí á þessu ári var yfirdrátturinn í Seðlabankanum kominn í um tíu milljarða, og hefur haldizt í því horfi síðan. Sé sala ríkis- verðbréfa fyrstu fjóra mánuði ársins borin saman við söluna á sama tíma í fyrra, kemur í ljós að hún var 6,7 milljörðum minni í ár. Með öðrum orðum var stórkostlegt útstreymi úr ríkissjóði, af því að vextirnir á þeim voru langt fyrir neðan það, sem markaðurinn viðurkenndi. Eitt af fyrstu verkum ríkisstjórnarinnar var því að hækka vextina og koma í veg fyrir áframhaldandi útstreymi úr ríkissjóði. Við höfum ekki náð æski- legu marki, en við höfum stöðvað útstreymið og bætt stöðuna. Til marks um það get ég bent á að í maí var talið að nýr spamaður hér- lendis yrði 24 milljarðar á árinu, en nú er talið að hann verði 30 milljarð- ar, sem má rekja fyrst og fremst til aðgerða ríkisstjórnarinnar. Árang- urinn er líka að koma í ljós á sein- ustu mánuðum með minnkandi inn- flutningi. Vegna hallans á yfirstandandi ári verðum við að taka erlent lán upp á 12-13 milljarða. Það er ekki hægt að fá nýtt lánsfé innanlands. Okkur var ljóst strax frá byijun að við gætum aldrei komizt hjá því að taka erlent lán, þannig að það ætti ekki að koma nokkmm manni á óvart. Takmarkið er það að draga úr er- Iendri lántöku, en égtel augljóst að það takist ekki heldur á næsta ári vegna þess afturkipps, sem fyrirsjá- anlegur er í efnahagslífinu.” — Þegar þú mæltir fyrir fjárlaga- frumvarpinu sagðir þú að nauðsyn- legt væri að lækka vextina á láns- fjármarkaði. Baráttan við vextina gengur hægt og bankastjórar segja að þeir ráði ekki vöxtunum; ríkið verði að ganga á undan Ert þú tilbú- inn að lækka vextina á ríkisskuida- bréfum og ríkisvíxlum? „Það er alveg rétt að stærstu lán- takendur á markaðnum em annars vegar opinberir aðilar og hins vegar heimilin. Atvinnureksturinn tekur hins vegar sáralítil ný lán. Mikil lánsíjárþörf fyrrgreindu aðilanna heldur uppi vaxtastiginu. Hún er vegna umframeyðslu og stafar af því að bæði opinberir aðilar og ein- staklingar eyða um efni fram. Það er þess vegna rétt að til þess að ná. niður raunvöxtum þurfa þessir aðilar að draga verulega úr eyðslunni. Við höfum lækkað vexti af ríkisvíxlum fullkomlega í takt við lækkun á vöxt- um í bankakerfinu. Til þess hins vegar að lækka raunvexti á ríkis- skuldabréfum þarf meira að koma til. Til þess þarf að draga úr lánsfjár- þörf ríkisins. Við höfum sett okkur það markmið að á næsta ári taki opinberir aðilar innan við 24 millj- arða í lán, en á þessu ári má reikna með að þeir taki til sín 36 milljarða. — Hvernig metur þú stöðu fjár- lagafrumvarpsins í þinginu? Sumir segja að þegar upp verði staðið, muni hallinn á íjárlögum næsta árs verða um níu milljarðar, sem væri nú ekki beinlínis í samræmi við lof- orðin um að ganga á uppsafnaðan halla ríkissjóðs. „í vor einsettum við okkur að fjár- lagahallinn yrði innan við fjóra millj- arða á næsta ári, án þess að skattar yrðu hækkaðir. Fráþeim tíma hafa tvö áföll dunið yfir. I fyrsta lagi var tekin sú ákvörðun að draga mjög úr fiskveiðum á næsta ári og í öðru lagi hefur álversframkvæmdum ver- ið frestað. Áhrif þessa á ríkissjóð þýða um það bil þriggja milljarða tap. Þessa dagana erum við þess vegna að fást við það að lækka út- gjöld ríkisins umfram það, sem við áttum von á. Á fundi sínum í morg- un [föstudag] ítrekaði ríkisstjórnin að hún ætlaði sér að ná markmið- inu, sem hún setti sér síðastliðið vor. Þetta þýðir að ijárlaganefndin og ríkisstjórnin munu á næstu dög- um þurfa að fara yfir öll útgjalda- áformin og finna leiðir til að lækka þau í samræmi við þann afturkipp, sem er í efnahagslífinu. Eg legg mjög þunga áherzlu á að langsamlega stærsta efnahags- aðgerðin, sem ríkisstjórnin getur gripið til, er að styrkja ríkisfjármálin og fylgja þessarí stefnu sinni eftir. Ef við ætlum að ná niður vöxtum og halda stöðugleika í efnahagslífinu til að vetja þá, sem verst eru settir og lægst hafa launin, eigum við að- eins einn möguleika. Það er að draga úr útgjöldum ríkisins og koma verð- bólgunni niður fyrir það, sem hingað til hefur þekkzt hér á landi; tvö til þijú prósentustig. Þess vegna er af- greiðsla fjárlaganna — og láns- fjárlaganna líka — langþýðingar- mesti hluti þeirra aðgerða, sem ríkis- stjórnin stendur nú frammi fyrir. Hér hefur myndazt vítahringur í efnahags- og atvinnumálum. Opin- berir aðilar eyða um efni fram. Það þýðir að eftirspurn eftir lánsfjár- magni hefur aukizt. Þessi eftirspurn hefur síðan leitt til hærri vaxta. Háir vextir bitna á atvinnufyrirtækj- um og valda þeim erfiðleikum. Þau hafa síðan farið fram á fjárhagslega aðstoð úr hendi ríkisvaldsins, sem hefur svarað með því að sækja sér nýtt lánsfé, sem veldur nýrri eftir- spum, ennþá hærri vöxtum og þann- ig heldur hringurinn áfram. Þennan vítahring verður að ijúfa. Skynsam- legasta efnahagsráðstöfun ríkis- stjórnarinnar hlýtur þess vegna að vera að draga saman ríkisútgjöldin og koma í veg fyrir að ríkisvaldið og opinberir aðilar standi að of mik- illi eftirspurn eftir lánsfjármagni. í staðinn þarf að skapa svigrúm fyrir atvinnulífíð með því að lækka vexti. Þessar aðgerðir, sem verið er að ræða um þessa dagana, mega ekki undir nokkrum kringumstæðum verða til þess að tefla í tvísýnu markmiðinu um stöðugleika. Þær mega ekki verða til þess að færa vandann yfir á ríkissjóð, því að í slíku felst engin lækning. Þess vegna reyn- ir nú á ríkisstjórnina og ég tel að afgreiðsla fjárlaga sé prófsteinn á það, hvort ríkisstjóminni sé alvara þegar hún lýsir því yfir að hún vilji viðhalda stöðugleika í landinu.” — Hvar er þá líklegt að skorið verði niður, umfram það sem þegar er orðið? Við þurfum að ná niður útgjöldun- um um rúma þijá milljarða í viðbót. Það er alveg ljóst að það verður ekki gert án þess að lækka launakostnað ríkisins. Launafúlgan í fjárlögunum er 33 til 34 milljarðar, um 70% af almennum rekstrarkostn- aði ríkisins. Þegar þjóðartekjur lækka um tæplega 6%, hlýtur það að hafa áhrif á útgjöld ríkisins, ekki sízt á launin, sem eru svo stór hluti af ríkisútgjöldunum. Nú er verið að kanna leiðir til að draga úr yfirvinnu opinberra starfsmanna og við getum gert ráð fyrir því að á næsta ári _ verði að fækka starfsmönnum. Ég bendi á að bankarnir hafa verið að fækka fólki, og uppsagnir standa fyrir dyrum hjá bygginga- og þjón- ustufyrirtækjum. Það verður varla hægt að ná tilætluðum árangri í ríkiskerfinu án fækkunar starfs- 'manna. Svo einfalt er það." — Þarf með öðrum orðum að segja upp ríkisstarfsmörínum? „Auðveldast væri að fækka með því að ráða ekki í þær stöður, sem losna, heldur færa til innan kerfis- ins. Ef það dugar ekki til, verðum við eins og aðrir að segja upp fólki.” . — Á undanförnum dögum og vik- um hafa menn velt því fyrir sér hvort sú samheldni og eindrægni sé í stjórnarliðinu, sem dugi til að koma í gegn hörðum aðgerðum eins og þeim, sem þú ert að lýsa. Það virðist ekki sízt hrikta í stoðum innan þingliðs Sjálfstæðisflokksins. For- sætisráðherra hefur opinberlega staðið í illskeyttum deilum við Matt- hías Bjarnason og Inga Björn Al- bertsson. Þegar upp kemur viðkvæm staða í EES-málum, talar sjávarút- vegsráðherrann á skjön við forsætis- og utanríkisráðherra. Þorsteinn Páls- son leggur líka fram efnahagsað- gerðir fyrir sjávarútveginn, sem virð- ast ekki hluti af heildarpakka ríkis- stjórnarinnar eða Sjálfstæðisflokks- ins. Hvað segir varaformaður Sjálf- - stæðisflokksins um þetta? Stjórnarsamstarfið og stjórnar- stefnan eru ennþá á þroska- skeiði, eins og eðlilegt er. Ég held að eldskírn stjórnarinnar muni eiga sér stað við fjárlagaafgreiðsl- una og í kjarasamningum. Ef stjórn- in kemst klakklaust í gegnum þetta, tel ég að samstarfíð geti gengið vel upp frá því. Á hinn bóginn hafa ný þingsköp leitt til þess að menn eru að reyna á nýtt kerfi í þinginu. Menn eru að móta samskiptareglur stjórnar og stjórnarandstöðu og reyna að komast eins langt og þeir geta í upphafi til að móta reglurnar sér í vil.” — Varla eru stjórnarmyndunar- viðræður í gangi innan þingliðs Sjálfstæðisflokksins? Eru menn líka þar að láta reyna á, hversu langt þeir komast hver með annan? „Já — mér sýnist nokkuð augljóst að það geta gífurleg átök átt sér stað þegar verið er að breyta um stefnu, eins og við erum vissulega að gera. Þegar við verðum fyrir ytri áföllum og verðum að draga saman seglin, er eðlilegt að hrikti í innviðun stjórnarflokkanna." — SumirsegjaaðforystuSjálf- stæðisflokksins skorti eindrægni. „Menn verða að gera sér grein fyrir hversu mikilvægt það er fyrir ríkisstjórnina í heild að hafa frum- kvæði og forystu um þær aðgerðir, sem þarf að grípa til, á þeim tíma sem við teljum æskilegan. Það hefur þess vegna óheppileg áhrif ef fram koma ótímabærar tillögur um að- gerðir fyrir einstakar atvinnugrein- ar, án þess að það sé liður í heildar- aðgerðum. Það er líka afar nauðsyn- legt í þessari stöðu að ríkisstjórnin og aðilar vinnumarkaðarins séu sam- ferða í athöfnum sínum og allir beri ábyrgð á niðurstöðunni. Skilyrði þess að slíkt sé hægt, er að menn þjófstarti ekki.”

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.