Morgunblaðið - 01.12.1991, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 01.12.1991, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. DESÉMBER 1991 % Johihn: 11Ai.i-.nix I iLvrrt' SllDUKSKAlITSI.ANDII): ÞjÓDGARDllK KDA KYDII.AND? Opna úr bókinni, þar sem fjallaó er um Suðurskautslandið. Uppþomað vatn. Aralvatn var eitt sinn Jjórða steersta stöðu- vatn i heimi. En á síðasta aldarfjórðungi hefur meira en helm- ingurinn aj 681.000ferkilómetra svceði þess breyst í saltsléttur og auðn. Að lifa af í loftmengun. voni helgispjöll að óhreinka tæra lind eða fagra á, ekki af því að þær veittu innblástur og fagurfræðilega full- nægingu, heldur vegna þess að þær voru náttúruleg uppspretta gjafa drottins sem líf þeirra byggðist á. Mengun er hins vegar aðferð nútím- ans til að lýsa þessu sama ferli. Hluti af þessari mengun blasir við augum allra: Froða við árbakka, olíu- brák á yflrborði tjamar, lækir sem eru morandi í rusli og óþverra. En stór hluti hennar er ósýnilegur. Stöðuvötn sem mengast hafa af súru regni geta enn verið fögur á að líta en undir yfirborðinu eru þau lífvana. Rányrkja hafsins Illu heilli er lýsingunni á mengun vatnakerfis okkar ekki þar með lok- ið. Höf okkar, tjarnir og ár geyma feikilega fjölbreytni mismunandi tegunda sem margar hveijar hafa öldum saman séð mannkyninu fyrir nærandi fæðu. Ekkert ógnaði þess- ari varanlegu fæðuuppsprettu fyrr en á 19. öldinni.þegar stærri veiði- skip og aukin veiðitækni tóku að höggva alvarleg skörð í stofna eftir- sóttustu tegundanna. Ætar tegundir hafa orðið fyrir gegndarlausri ofveiði hins iðnvædda manns, allt frá stærstu hvölum úthafsins til minnstu lindýra í ferskvatni. Fá dæmi um þetta eru skýrari en það sem bandaríski vistfræðingurinn Garrett Hardin kallaði „harmleik sameignarinnar”. Af ótta við að verða undir í samkeppninni finnst engum fiskimanni hann geta haldið aftur af sér; hann reynir því að fá sem allra mest í sinn hlut. Þetta hefur leitt til hvers umhverfísslyssins af öðru sem valdið hafa gífurlegum (og að mestu óþörfum) mannlegum þjáningum vegna atvihnumissis og versnandi lífsafkomu. Hreint vatn: Þverrandi auðlind Enn er tvennt ótalið sem þegar er farið að hafa alvarleg áhrif á líf milljóna manna: Skortur á drykkj- arhæfu vatni og hreinn og beinn vatnsskortur. Ohugnanlega hátt hlutfall af sjúkdómum og ótímabær- um dauðsföllum í löndum Þriðja heimsins á rætur að rekja til meng- aðs drykkjarvatns. Áætlað er að dag- lega deyi 25.000 manns af því að drekka mengað drykkjarvatn. Árið 1980 hófu Sameinuðu þjóðirnar al- þjóðlegt átak undir kjörorðinu „Hreint vatn og viðunandi hreinlæt- isaðstaða handa öllum fyrir árið 1990”. Þótt milljónum væri séð fyrir hæfu drykkjarvatni dró aukin fólksfjöiguni víða úr ábatanum. Nokkurn veginn sama hlutfall íbúa heims bjó við skort á hreinu vatni og hreinlætisaðstöðu í lok áratugarins og í upphafi hans. í Þriðja heiminum er skorturinn ekki á vatninu sjálfu heldur skortir samkennd, réttlæti og fjárframlög frá auðugu ríkjunum í norðri. Reynd- ar er vel hugsanlegt að það verði ríkin í norðri sem fínna fyrst allra fyrir afleiðingum af raunverulegum vatnsskorti vegna hinnar gegndar- lausu sóunar. Nú er talið að þurft hefði að verja 80 milljónum bandaríkjadala á hveij- um degi allan áratuginn til að ná því marki sem Sameinuðu þjóðirnar settu sér árið 1980. Það virðist feiki- leg fjárfúlga en með hliðsjón af því að Bretar eru nú að íhuga að veija um 26.000 milljónum sterlingspunda (50.000 milljónum bandaríkjadala) til úrbóta í vatnsveitu- og umhverfis- málum heima fyrir, er augljóst að unnt hefði verið að afla þess fjár. Þetta ósamræmi í fjárfestingum rennir stoðum undir þá almennu trú að allt tal um „verndun umhverfis- ins” leiði aðeins til aðgerða í hinum auðugu iðnaðarríkjum og auki þá'nn- ig hið geigvænlega djúp sem stað- fest er milli norðurs og suðurs. Enginn blettur er óhulturfyrir mengun og eyðingu Fjallgarðar eru ímynd stöðugleik- ans í augum flestra jarðarbúa. Æva- gamalt bergið og fannhvítar snæ- breiðurnar virðast hafnar yfir það hversdagslega, ósnortnar af þeim spjöllum sem nútíma iðnaður og landbúnaður hefur valdið niðri á sléttlendinu. En ekki er allt sem sýn- ist. Fjöll ná yfir um 40% af yfirborði jarðar, og þar býr einn tíundi íbúa hnattarins. Flestir aðrir jarðarbúar, sem halda sig við láglendið, sækja vatn, orku, hvíld og innblástur til fjallanna. Margslunginn smáheimur í dölum og hátt og lágt í hlíðum geymir ótrúlega fjölbreytni sjald- gæfra dýra- og plöntutegunda. Ekki er minna vert um ólík og sérstæð menningarviðhorf fólksins sem býr á þessum afskekktu og einangruðu stöðum. Margar þeirra 300 milljóna, sem tilheyra þjóðflokka- og ætt- bálkasamfélögum jarðar, búa í fjöll- um, oft utan við áhrifasvið stórvelda og fjölmiðla. Hlutverk fjalla í vistkerfi jarðar er mjög mikilvægt, þó að skammt sé frá því menn gerðu sér það fylli- lega ljóst. Þau eru uppistaðan í kuldahvolfinu, snæviþöktum svæð- um hnattarins sem endurkast hita út í geiminn; ^iessi „endurskins- hæfni” veldur því að jörðin ofhitnar ekki. Yfirborð sjávar ræðst af bráðn- un jökulíss, en meginhluti hans er læstur iðrum Suðurskautslandsirs — hálendustu álfu heims. Þáttur skóga í að taka við gróðurhúsalofttegund- um úr andrúmsloftinu verður aldrei ofmetinn, og skógar eru flestir í fjallahéruðum. Loks má ekki gleyma að vatnsbúskapur jarðar er mjög -Áiáður fjöllum; þau eru eins og vold- ugir vatnsturnar sem miðla af forða sínum út í árnar. Þaðan fáum við svo vatn til orku, hreinlætisaðgerða, iðnaðar og heimilisnota. Hálendi í /uettu Alvarleg ógn steðjar að mörgum stærstu fjallgörðum heims um þessar mundir. Yfir helmingur skóga í iðn- ríkjunum er að deyja vegna mengun- ar og þurrka. Timburvinnsla og bú- seta veldur mikilli skógareyðingu í Himalaja- og Andesfjöllunum. Og við höfum séð í sjónvarpi hvernig há- lendi Eþíópíu er að breytast í eyði- mörk. Landeyðing og gífurleg vatns- \ flóð eru meðal afleiðinga slíkrar eyð- ingar, eins og kom fram nýlega í náttúruhamförunum í Bangladesh, þegar mestur hluti landsins fór und- ir vatn. Loftslagsbreytingar vegna gróð- urhúsaáhrifa valda nú auknum þrýst- ingi. Monsúnrigningar eru til dæmis orðnar svo tíðar að vafasamt er að nokkur skógur geti haldið þeim í skefjum. Hlýnandi loftslag kann að vera ástæðan fyrir því að það brotn- ar úr íshellunni á vestanverðu Suður- skautslandinu. Sumir sérfræðingar telja að það geti hækkað sjávarborð um 5-6 metra — 20 sinnum meira en nú er áætlað — þegar klumpar á stærð við Belgíu losna frá megin- landsísnum. Bráðnun sífrera á Norð- urskautssvæðinu hleypir geysimiklu metani út í andrúmsloftið, þar sem meira en nóg er fyrir, og skapar skilyrði fyrir snjóflóð og skriðuföll. Fjallavötn, sem urðu til með eðlileg- um hætti fyrir þúsundum ára, geta fengið framrás og valdið auknu álagi á stíflur. Víða eru stíflur líka í stöð- ugri hættu vegna jarðskjálfta. Hugum að eigin umhverfi Allt frá því snemma á sjöunda áratugnum hefur vistfræðinga grun- að að tíminn væri að renna út. Ekki hafði verið hlustað á mörg fyrri við- vörunarorð þeirra undir því vafasama yfirskini að tæknin ætti svar við hverjum vanda. Enginn hörgull er að vísu á tækniferðum, og við verðum að treysta á þær í framtíðinni. En mestu skiptir, hvernig þeim er beitt á sviði félags- og stjórnmála. Við vitum nú að löngu áður en olían gengur til þurrðar eða dýrmæt hráefni iðnaðarins eru orðin illfáan- leg verður megingrundvölluriniytmd- ir lífríki jarðar (hreint loft, ferskt vatn, og jarðvegur og skógar sem endurnýjast af sjálfu sér) hruninn eða óbætanlega skemmdur, ef við breytum ekki um lifnaðarhætti. Áð baki hveijum umhverfisvanda liggja ástæður sem eiga sér rætur í stjórnmálum, efnahagsmálum og andlegu viðhorfi manna. Þetta að- greinir græna hreyfingu nútímans frá umhverfíssinnum fyrri ára; hafa verður góða yfirsýn yfir alla þætti stjórnkerfisins og á alþjóðavettvangi, ef árangur á að nást í baráttunni fyrir verndun lífríkisins. Gerum mikið úr litlu Ef við ætlum að ná einhvers kon- ar sáttum milli framagirni okkar og þeirra takmarkana sem pláneta setur okkur, verðum við að beina kröftum okkar í annan farveg. Satt best að segja getum við nýtt auðlindir jarðar- innar miklu betur með því að breyta Um starfshætti og gera mikið úr litlu. Og við þurfum að snúa okkur í enn ríkara mæli að þeirri orkulind sem seint þrýtur, sólinni. En hversu „um- hverfisvænar” sem þessar nýju að- ferðir okkar verða, hljóta náttúru- gæði jarðar alltaf að skerðast lítillega árið út og árið inn. Kröfur okkar og langanir verða vafalítið endalaust deiluefni. „Fólk vill meira,” er oft sagt, „og þannig verður það alltaf.” Sé svo, er það hlutverk stjómmálamanna að verða við þessum kröfum, en ekki tíunda galla samneyslunnar og því síður reyna að „breyta mannlegu eðli”. Við Vesturlandabúar getum naumast um annað talað en verð- bólgu, alþjóðasamkeppni, gengi, greiðslujöfnuð og þar fram eftir göt- unum. Okkur gleymist oft sá póli- tíski jarðvegur sem þessi hagfræði- frumskógur er sprottinn úr. Ef fólk hefur nóga peninga (vegna meiri framleiðslu og neyslu), kemur af sjálfu sér að það verður ánægt. Það getur þá keypt þær vörur og þjón- ustu sem fullnægir þörfum þess. Skilgreinum þarjir okkar Þennan boðskap virðast stjórn- málamenn kyija einum rómi. En raddir þeirra sem rísa gegn þessu verða nú háværari, þeirra sem telja óskynsamlegt, gagnslítið og jafnvel ómannúðlegt að uppfylla þarfir fólks á þann hátt, hamingja verði ekki keypt með peningum og okkur sé nær að reyna að bæta líf okkar og gera það fyllra. Skipta má þörfum mannsins í tvo meginflokka sem fara að hluta sam- an, en eru gerólíkir í eðli sínu. Ann- ars vegar eru þær efnalegu þarfir sem flestir Vesturlandabúar telja sjálfsagðar, en margir í Þriðja heim- inum geta aðeins látið sig dreyma um: Matur, húsaskjól, hlýja, fatnað- ur, heilsugæsla og menntun. Allt þetta má kaup (og er vanalega keypt) fyrir peninga. Hins vegar eru svo fjölmargar leyndari þarfir, ekki eins háðar fjár- hag og fást raunar oft ekki keyptar. Þær eru ólíkar eftir menningarsam- félögum, en ná yfir sum eftirfarandi atriði og stundum öll: • Gott starf: vera ekki aðeins fær um að vinna fyrir sér, heldur njóta líka starfsins og geta orðið öðrum að liði um leið. • Öryggi: geta treyst á og notið hlýju, vináttu og ástar annarra. • Sjálfstraust: vera sjálfstæður, skuldlaus og eiga nóg fyrir brýnustu þörfum og ögn fram yfir það. • Afþreying: geta skemmt sér vel í góðum félagsskap. • Virðing: finna að maður sé metinn heima, í vinnunni og í sam- félaginu. • Framtak: finna að enn sé ýmis- legt ógert og þurfa ekki að óttast sífelldar hindranir sem tefja fram- kvæmdir. • Hópkennd: falla inn í hóp ijöl- skyldu og vina. • Rótfesta: bundinn ákveðnum stað þar sem kunnuglegt umhverfið hressir og endurnærir, en fjötrar mann ekki. • Innblástur: hefjast yfir sjálfan sig eða öðlast djúpan skilning vegna fræðslu annarra, sérstæðrar reynslu eða þess sem hefur trúarlegt eða andlegt gildi. • Frelsi: persónulegt fijálsræði sem er nauðsynlegt til að mæta þess- um þörufm. Stjórnmálamenn nútímans hafa aldrei beint athygli að þessum grund- vallarþörfum mannsins; þeir gera bara ráð fyrir að þær verði óbein afleiðing iðnvæðingarstefnunnar eft- ir stríðið með því að fólk verði stöð- ugt ríkara og neysla þess aukist. Maður fær varla áttað sig á svo dæmalausri flónsku. Mjög oft fer hæfni einstaklinga og þjóðfélaga til að mæta slíkum þörfum til spillis, því allri orkunni er eytt í að afla meira og meira fjár. Hugtökin markmið og leiðir hafa endanlega brenglast, og við erum snauðari eftir en áður. Þess vegna eru nútíma- stjórnmál ekki annað en gróðurlaus auðn í mínum augum. Flekkun á himninum Margir heimsþekktir einstakling- ar, karlar og konur, hafa lagt af mörkum efni til bókarinnar. Einn þeirra er forseti Tékkóslóvakíu, leik- ritaskáldið Vaclav Havel, sem hér drepur á það skelfilega vandamál sem mengunin í Austur-Evrópu er: „Þegar ég var drengur bjó ég uppi í sveit um skeið og eitt er mér minnisstætt frá þeim tíma. Ég fór fótgangandi í skólann í næsta þorpi meðfram vagnasióð yfír akrana og á leiðinni blasti við risastór reykháfur á einhverri verksmiðju sem reist hafði verið í skyndi, sennilega í tengslum við styrjöldina. Hann spúði frá sér þykkum, brúnum reykjar- mekki sem dreifðist yfír himininn. í hvert skipti sem ég sá þetta fannst mér rangt og illa gert að mennirnir skyldu flekka himininn á þennan hátt. Ég veit ekki hvort til var nokk- uð sem hét vistfræði í þá daga; hafi svo verið hafði ég enga hugmynd um það. En þessi „flekkun á himnin- um” fór gífurlega fyrir bijóstið á mér. Mér fannst sem með þessu væru mennirnir að gera sig seka um eitthvað, þeir væru að tortíma ein- hverju mikilvægu, væru vísvitandi að brengla hið eðlilega jafnvægi hlut- anna og slíkt myndi hefna sín. Reyndar var þessi óbeit mín fyrst og fremst fagurfræðileg; þá vissi ég engin skil á þeim eitraða útblæstri sem átti þegar frá leið eftir að leggja skóga okkar í auðn, tortíma veiðidýr- um og spilla heilsu manna.” Alpamir á völtum Jótum? Alparnir eru í hjarta Evrópu og tengja saman ólíka landshluta og menningarsvæði í sjö ríkjum. Um langan aldur hefur verið litið á Alpa- fjöll sem griðastað dýralífs og gróðurvin óspilltrar náttúru. Um þriðjungur plöntutegunda í fjallgarð- inum finnst hvergi annars staðar í álfunni. Dýralíf er einnig fjölskrúð- ugt og þar eru margar sjaldgæfar dýrategundir. Mikil hætta steðjar hvarvetna að vistkerfi Alpanna. Skógar hafa orðið fyrir víðtækum skemmdum vegna loftmengunar. Stórar stíflur hafa dregið úr vatnsrennsli víða, breytt svip landsins og raskað jafnvægi. Margir vinna nú að því með ýms- um ráðum að bjarga Ölpunum. Ríkis- stjórnir nokkurra landa hafa staðið að strangri löggjöf um mengunarefni og sumstaðar hefur tekist að draga úr ágangi ferðamanna, sem skaddað getur viðkvæmt vistkerfi þessara fögru og tignarlegu fjalla.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.