Morgunblaðið - 01.12.1991, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 01.12.1991, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. DESEMBER 1,991 2? FRÁBÆRT AÐ VERA KOMIN HINGAÐ AFTUR - segir nœturdrottningin Lydia Rathkolb-Rucklinger Morgunblaðið/Rúnar Þór. Stund milli stríða. Það tók því ekki að fjarlægja allan farða af næturdrottningunni á milli sýninga. tíma héma og eignaðist marga góða vini sem ég hlakkaði til að end- umýja kunningskap við. Mér fannst næstum því að ég væri að_ koma aftur heim þegar ég kom til Islands núna.” Operan vaxið á ýmsum sviðum Lydia segir að íslenska óperan hafi breyst og vaxið á ýmsum svið- um frá því að hún var hér fyrir níu ámm. „Ég ætlaði varla að þekkja Töfraflautuna aftur. Öll umgjörð, s.s. búningar og sviðsmunir, er miklu tilkomumeiri en áður og tón- listin er betri,” segir hún og nefnir sérstaklega stjórnanda hljómsveit- arinnar Robin Stapleton. „Mér finnst alveg frábært að vinna með honum.” í framhjáhlaupi má geta þess að Stapleton stjómaði tónlistarflutn- ingi í uppfærslum íslensku óper- unnar á Aidu og Rigoletto auk Töfraflautunnar nú. Nýverið stjórn- aði hann tónleikum með José Carre- ras á Spáni og með Dame Kiri Te Kanawa í Finnlandi. Viðdvöl Lydiu á íslandi er stutt að þessu sinni. „Ég fer aftur til Vínarborgar á þriðjudaginn en um kvöldið syng ég Mozartaríur í einum stærsta tónleikasalnum í borginni. Daginn eftir syng ég hlutverk Prímadonnunnar í tveimur sýning- um á Óperudraugnum í Theater an der Wien þar sem ég er samnings- bundin en þess má geta að einmitt í því húsi, fyrir 200 árum, var Töfra- flautan fmmflutt. Þá hét húsið reyndar ekki Theater an der Wien heldur Theater an der Wieden.” Syng mikið með stráknum mínum „Ég var svo heppin að mér bauðst 3 ára samningur við húsið aðeins tveimur vikum eftir að ég átti strák- inn minn sem er 2 ára núna. Skömmu seinna bytjaði ég enda hentaði samningurinn mér afar vel, bæði vegna fjölskyldunnar og tón- listarlega séð,” segir Lydia og við- urkennir að erfitt sé að vera með lítið barn og syngja á sama tíma. „Mér fannst sérstaklega erfítt að samræma þetta tvennt meðan strákurinn var mjög lítill en sem betur fer hef ég notið mikils stuðn- ings frá fjölskyldu minni.” Hún segir að mæðginin syngi mikið saman. „Stráknum mínum þykir mjög gaman að syngja. Ég er mjög ánægð yfir því hversu músikalskur hann virðist vera ,” segir Lydia og brosir breitt. Eigin- maður hennar skrifar rit um sam- tímasögu og kennir við háskólann í Vín. Auðvelt að kynnast Islendingum Næturdrottningin tekur vel í syngja aftur á íslandi. „Kannski á ég eftir að syngja eitthvað ánnað hlutverk hér, hver veit,” segir hún. „Mér líkar afskaplega vel við íslend- inga. Þeir eru góðviljaðir, opnir og auðvelt að kynnast þeim. Ég á afskaplega góðar minningar frá því fyrir níu árum þegar ég bjó hjá Signýju Sæmundsdóttur og fjöl- skyldu hennar. Eitt af því sem stendur uppúr var þegar ég fór á bak íslenskum hesti í fyrsta sinn. Hesturinn var að fara út í fyrsta skipti að vori og tók á sprett með mig svo ég hélt að ég myndi detta af baki. Eg vona að ég fái tæki- færi til þess að fara aftur á bak íslenskum hesti,” segir Lydia. „Annað sem ég man vel eftir er hversu gaman var að synda úti og draga að sér ferska loftið á ís- landi. Mér fannst líka skrítið að synda úti í snjókomu.” Sigrún Kristín Jónsdóttir, Helga María Gísladóttir og Bóas Kristjánsson. OFBOÐSLEGA GAMAN AÐ LEIKA - segja þrír krakkar úr Hafralœkjaskóla ÞRIR krakkar úr Hafralækjaskóla fóru með hlutverk anda og dýra í Töfrailautunni í Ydölum. Krakkarnir eru 9 til 10 ára og heita Helga María Gísladóttir úr Reykjahverfi, Sigrún Kristín Jónasdótt- ir, Bergi, og Bóas Kristjánsson frá Grenjaðastað. Við vorum að borða í matsalnum hérna í skólanum þegar Bob (tónlistarkennarinn) og skólastjór- inn komu allt í einu með málband og fóru að mæla alla krakkana,” segir Bóas þegar krakkamir eru spurðir að því hvernig valið hafi verið í hlutverkin. „Þeir tóku þá krakka sem pössuðu akkúrat í bún- ingana fyrir sunnan,” bætir hann við en Helga María segir að komið hafi verið í smíðatíma til hennar bekkjar og krakkarnir mældir. Hún leikur skjaldböku en Bóas segist leika broddgölt sem ráfi um pg þefi af hinum dýmnum. Sigrún Kristín segist leika anda og halda uppi einum hluta af skrímsli með hinum krökkunum. Krakkarnir vom sammála um að ofboðslega gaman væri að leika í ópem en ekkert þeirra sagðist hafa hugsað sér að leggja fyrir sig söng í framtíðinni. Bóas segist frekar vilja verða leikari, Helgu Maríu langar til að verða fiðluleikari en Sigrún Kristín segist ekki vera viss um hvað hún vilji verða. Auk krakkana þriggja fóm tvær 5 og 6 ára stelpur, Jóna Björg og Andrea, með hlutverk dýra í Töfra- flautinni. Þær léku líka litlar Papag- enur sem koma úr eggjum Papag- enós og Papagenu. LYDIA Rathkolb-Riicklinger söng í fyrsta sinn opinberlega þegar hún fór með hlutverk Næturdrottningarinnar í upp- færslu íslensku óperunnar á Töfraflautunni fyrir níu árum. Henni bauðst að taka þátt í upp- færslunni nú og var að eigin sögn ekki lengi að segja já eftir að hún hafði fengið leyfi frá Theat- er an der Wien óperunni í Vínar- borg þar sem hún fer með hlut- verk Prímadonnunnar í Óperu- draugnum. Söngkonan er fædd í Vín og nam við Tónlistarháskólann þar í borg undir handleiðslu Helene Kar- usso, dr. Eriks Werba og K. S. Kmentt. Meðal helstu hlutverka hennar á óperusviðinu eru Konst- anza í Brottnáminu úr kvennabúr- inu, Rosina í Rakaranum frá Se- villa, Lucia í Luciu Lammermoor og Olympia í Ævintýmm Hoff- manns. Hún hefur einnig haldið sjálfstæða tónleika í Austurríki, Frakklandi, ísrael og Hong Kong svo eitthvað sé upptalið. „Mér finnst frábært að vera kom- in hingað aftur,” sagði Lydia þegar hún var spurð að því hvernig væri að vera komin til íslands að nýju. „Ég varð mjög ánægð og full til- hlökkunar þegar mér bauðst hlut- verkið og fékk leyfi frá Vín þar sem ég er á þriggja ára samningi til þess að koma til Islands en hingað hef ég ekki komið frá því að ég „debuteraði” í hlutverki Nætur- drottningarinnar fyrir níu árum í Reykjavík. Þá dvaldist ég í dálítinn Sigríður Birna Guðjónsdóttir og Björn Þórarinsson með dóttur sína Unni Birnu. KONNÝ Óskarsdóttir, dóttir hennar Asta Hlöðversdóttir 9 ára og afi Astu Hlöðver Hlöð- versson voru meðal gesta á fyrri sýningu íslensku óper- unnar á Töfraflautunni í Ýdöl- um á sunnudaginn. Þremening- arnir eru búsettir á Björgum í Kinn. r Eg er alveg heilluð,” sagði Konný þegar hún var innt álits á sýningunni að henni lok- inni. „Mér fannst hún alveg frábær og stórkostlegt að fá svona sýn- ingu hingað norður.” Þegar hún var spurð hvort einhver sérstakur söngvari hefði staðið uppúr nefndi hún Bergþór Pálsson í hlutverki Papagenós, fuglafangara nætur- drottningarinnar. „Hann er alveg sérstakur. Góður söngvari og mik- ill leikari.” Ásta var sammála móður sinna að sýningin hefði verið mjög skemmtileg og í ljós kom að syst- ir hennar, Jðna Björg Hlöðvers- dóttir, hafði fengið að taka þátt í ópemnni og sagði Ásta að gaman hefði verið að sjá hana á sviðinu. Hún sagðist hafa séð tvo söng- leiki, Amal og næturgestina, sem sett var upp í Hafralækjaskóla fyrir um það bil 3 árum og Söngva- seið. Hlöðver hrósaði sýningunni og sagði að framtak af þessu tagi væri eitt af því sem sterkast styrkti að íslandi væri eitt. „Það er mikill viðburður fyrir okkur að fá þetta fólk hingað og ég býst við að því finnist það ekki fá síðri hljómgrunn hér en í höfuðborg- inni.” Hlöðver Hlöðversson, Ásta Hlöðversdóttir, Jóna Björg Hlöðvers- dóttir og Konný Óskarsdóttir. SAKNAÐIHUÓM- SVEITARINNAR segir Björn Þórarinsson SIGRÍÐUR Birna Guðjónsdóttir og Björn Þórarinsson voru ásamt Unni Birnu 4 ára dóttur sinni á fyrri sýningunni. Sigríður er kennari og Björn skólastjóri tónlistarskólans á Laugum. Mér fannst sýningin mjög góð og jákvætt að fam með hana út á land. Hér er fullt af fólki sem sér ekki svona sýningar annars en hefur óskaplega gaman af þeim,” sagði Sigríður Birna eft- ir sýninguna. Björn tók undir með henni og sagði að sýningin hefði verið eins góð og hægt hefði verið að búast við miðað við aðstæður. „ Hún var mjög góð. Ég saknaði að vísu hljómsveitarinnar. Gaman hefði verið að heyra í að minnsta kosti 4 fíðlum.” Bæði nefndu Sigríður Birna og Björn Bergþór Pálsson og sögðu að hann væri bæði upplífgandi og skemmtilegur í hlutverki sínu. ER ALVEG HEILLUÐ - segir Konný Óskarsdóttir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.