Morgunblaðið - 01.12.1991, Side 30

Morgunblaðið - 01.12.1991, Side 30
30’ . .mo&gíÍnblaðiðÍsÍinnííÓXgíjíÍ -li J~" 19 Hinn mikli njósnari- „drekkur nú til að gleyma”, að eigin sögn. „Japanir hugsa nú bara um peninga og hvernig þeir eigi að vinna nýja markaði,” segir hann. Rcett vib Pearl Harbor-njósn- arann sögu- frcega, Takeo Yoshikaway en hálföld er nú libin frá þessari afdrifaríkustu hemabarabgerb seinni heims- styrjaldarinnar PEARL eftir Ron Laytner „Munið eftir Pearl Harbor” voru ein áhrifaríkustu hvatningar- orð sögunnar, en styijöldin sem þau áttu rætur í boðaði upp- haf atómaldar og kjarnorkuótta. Nú, 50 árum síðar, minnast hernaðaryfirvöld árásarinnar á Pearl Harbor með ógnbland- inni lotningu. Litla Japan kostaði Bandaríkin þúsundir manns- lífa, herskip, flugvélar og mannvirki, en missti sjálft aðeins þrjátíu menn. Þúsundir unnu að framgangi skyndiárásarinn- ar, en árangur hennar byggðist á aðeins einum manni - Pearl Harbor-njósnaranum sögufræga. Hvar er þessi meistar- anjósnari í dag? Hvaða sómi hefur honum verið sýndur?... Ron Laytner fann hann í Japan. atsuyama, Japan. Takeo Yoshikawa er njósnarinn sem aldrei kemst inn úr kuldanum. Njósnir hans voru svo árangursríkar að þær eyðilögðu líf hans. Yoshikawa er sá sem mesta ábyrgð ber á vel- gengni skyndiárásar Japana á Pe- arl Harbor sem neyddi Bandaríkin til þátttöku í síðari heimsstyijöld- inni. Hann er „Pearl Harbor-njósn- arinn” sögufrægi. Þúsundir Bandaríkjamanna, sem vissu ekki einu sinni hvað hann hét, bölvuðu tilvist hans í fjölda ára. Og margir Japanir leggja einn- ig fæð á hann, ásaka hann fyrir að hafa dregið þá út í styijöld sem Japan tapaði. Honum er einnig óbeint kennt um atómsprengjurnar, sem féllu á Hiroshima og Nagasaki. Herfræðingar víða um heim telja Yoshikawa meðal þeirra njósnara sögunnar sem mestum árangri hafa náð. Samt hefur hann enga umbun hlotið, hann hefur ekki verið verð- launaður á neinn hátt, ekki einu sinni með eftirlaunum frá japönsk- um yfírvöldum, sem hann þjónaði svo vel. Hann hefur verið atvinnu- laus í áratugi, konan hans vinnur fyrir honum, og hann stundar drykkju til að gleyma. „Ég hef verið þurrkaður algjör- iega út úr sögu Japans,” sagði hann mér þegar ég fann hann þar sem hann býr á Shikoku eyju fyrir sunn- an Tókýó. „Þegar ég varð sextugur sótti ég um eftirlaun, og þeir svör- uðu: Við höfum aldrei heyrt þín getið.” „Þegar ég sagði þeim frá njósna- starfí mínu, öllum árunum sem ég eyddi í að verða sérfræðingur í öllu varðandi bandaríska flotann, og um hættuför mína til Honolulu, sýndu þeir enga samúð. Þeir sögðu mér að Japan njósnaði aldrei um neinn.” Hvað svo sem nútíma Japönum eða öllum öðrum fínnst verður þeirri staðreynd ekki haggað að árásin á Pearl Harbor byggðist á þeim ótrú- lega árangri sem hann náði. Árásin var óþokkabragð, óvægin og lágkúruleg. Þetta var ekki árás sem almenningur var sáttur við á borð við skynaiárás ísraela í Ug- anda þar sem landgönguliðar leystu gísla úr haldi. Þetta var lymskuleg skyndiárás „hinna aðilanna”. Pearl Harbor var engu að síður svo bíræfíð, svo snjallt, og svo djarf- lega skipulagt og framkvæmt hem- aðarlegt afrek að það hefur verð- skuldað sérstakt bindi í annálum styijalda. Það var hemaðarsigur mjög fámenns liðsafla gegn ofur- efli. Og litli maðurinn sem situr fyrír framan mig og drekkur saki hrís- gijónavín, litli sveitamannsklæddi maðurinn sem ég hafði leitað að í mörg ár, hann bar mikla beina ábyrgð á árásinni á Pearl Harbor. Engin upphefð „í dag er stríð af hinu illa,” seg- ir þessi bitri gamli meistari njósnar- anna. „Stríð á ekki rétt á sér. En í þá daga var stríð af hinu góða. Það sem ég gerði var réttmætt. Ég var sönn hetja Japans. En hvers nýt ég á gamalsaldri?” EFTIR HARBOR „Ég var fæddur á dögum hins mikla japanska keisaradæmis þegar þegar það þótti heiður að berjast fyrir keisarann,” segir hinn aldni njósnari þar sem hann ríður hesti sínum á kyrrlátum sléttum Matsuy- ama. Með skjálfandi hendur kvartar hann yfír Japan nútímans. „Allt er orðið svo breytt. Þeir hugsa ekki um annað en peninga og að vinna nýja /narkaði fyrir japanskar vörur. Það er engin upphefð eins og áður var. Þeir bera enga virðingu fyrir þeim eldri”. Það var öðruvísi þegar Yosh- ikawa fæddist árið 1914. Þá var her japanska keisaradæmisins i sókn. Þegar ungur maður féil þá í bardaga, var það í augum Japana stórkostlegur dauðdagi. Þessi verðandi njósnari hóf nám sem liðsforingjaefni í keisaralega japanska flotaskólanum, einum þyngsta skóla veraldar. Fjórum árum síðar útskrifaðist hann og var efstur sinna bekkjarbræðra. Japanska keisaraveldið ætlaðist til mikils af honum. Hann stóð sig afburða vel meðan hann gegndi þjónustu um borð í orustuskipinu Asama. Seinna starfaði hann um borð í kafbátum og hlaut þjálfun sem flugmaður hjá flotanum, og var reiknað með því að hann næði því að verða skipherra eða aðmíráll í flota keisarans. En skyndilegur endi var bundinn á frama hans í flotanum tveimur árum síðar þegar magakvilli neyddi hann til að hætta. Þetta var mikið áfall, og hann íhugaði að fremja sjálfsmorð. En nokkrum vikum síð- ar bauð háttsettur foringi honum starf hjá leyniþjónustu japanska flotans. Sérfræðingur Yoshikawa ásetti sér að verða sérfræðingur í öllu er varðaði bandaríska flotann. Hann starfaði t fjögur ár við bandarísku deiidina í Tókýó, og fylgdist vel með Jane’s Fighting Ships and Aircraft, og svo til öllum dagblöðum, bókum og tímaritum útgefnum í Bandaríkjun- um._ „í upphafi voru verkefni mín hjá leyniþjónustunni ekki mjög spenn- andi,” segir þessi 77 ára gamli njósnari. „Það voru hvorki fagrir kvennjósnarar né James Bond æv- intýri. Hvaða bókavörður sem var hefði getað sinnt þessum verkefn- um. Njósnastarfíð í dag er enn það sama - að safna gagnlegum upplýs- ingum.” Árið 1940 varð þetta meira spennandi. Hann bjó sig undir að gegna njósnastörfum erlendis með því að ljúka enskuprófi utanríkis- ráðuneytisins. Hann átti að fara utan undir því yfirskini að hann væri lágt settur stjórnarerindreki. Jafnvel meðan á enskunáminu stóð reyndist Yoshikawa hættuleg- ur Bandamönnum. Eitt sinn náði hann útvarpssendingu á ensku frá Ástralíu þar sem skýrt var frá því að 17 herflutningaskip væru að fara frá Freetown áleiðis til Eng- lands. Japanir sendu þessar upplýs- ingar áfram til nazistayfirvalda í Þýzkalandi, og skipunum var öllum sökkt. Leiddi þetta til mjög mikils mannfalls og þjáninga, þar sem hákarlar heijuðu á mennina í sjón- um að næturlagi. Seinna sendi Adolf Hitler Yosh- ikawa persónulegt þakkarbréf. „Það var eina opinbera viðurkenn- ingin sem ég hlaut fyrir þjónustu mína í stríðinu,” segir hann bitur- lega. Árið 1941 fékk Yoshikawa sér- stakt vegabréf stjórnarerindreka og hélt til Honolulu undir nafninu Tad- ashi Morimura. Hann varð vararæð- ismaður við japönsku ræðismanns- skrifstofuna. Áætlunin Hann komst að því síðar að Tsor- oka Yamamoto aðmíráll hafði sam- ið ítariega áætlun um árás á Pearl Harbor snemma á árinu 1941, og kynnt hana fyrir flotastjórninni í ágúst 1941. „Ég var njósnari á staðnum án þess að vita um þessa leynilegu áætlun,” segir hann, „en ég taldi víst að verkefni mitt væri að und- irbúa árás á Pearl Harbor svo ég vann dag og nótt að því að afla nauðsynlegra upplýsinga. „Bandaríkjamenn voru ósköp kjánalegir. Sem stjórnarerindreki mátti ég ferðast um eyjarnar. Eng- inn skipti sér af mér. Oft leigði ég mér litla flugvél á John Rodgers- flugvellinum i Honolulu og fór í skoðunarflug yfír herbúðir Banda- ríkjamanna. Ég skrifaði aldrei neitt

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.