Morgunblaðið - 01.12.1991, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 01.12.1991, Qupperneq 35
34 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. DESEMBER 1991 n , xiioidriiMuelllBEIiaTðflnanA^cu MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. DESEMBER 1991 35 pltripinM&foi!* Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðaistræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakíð. Hrun miðstjórnar- valdsins í Sovétríkjunum Míkhaíl S. Gorbatsjov, forseti Sovétríkjanna, varð fyrir umtalsverðu áfalli sl. mánudag er forsetar sjö lýðvelda sáu sér ekki fært að staðfesta sáttmála þann, sem Gorbatsjov hefur ákaft beitt sér fyrir og kveða mun á um fram- tíðarskipan sovéska ríkjasam- bandsins. Leiðtogarnir töldu nauð- synlegt að leggja sáttmálann fyrir þing einstakra Iýðvelda og er sú afstaða þeirra enn ein sönnun þess, að ört fjarar undan miðstjómar- valdinu í því sem í eina tíð var með réttu nefnt „sovéska keisara- dæmið”. Ekki er langt um liðið frá því menn töldu sýnt, að framtíð Sovét- ríkjanna myndi ráðast af sáttavilja og samstöðu þeirra Gorbatsjovs og Borís N. Jeltsíns, forseta Rúss- lands. Nú virðist á hinn bóginn ljóst, að einstök lýðveldi og ein- stakar þjóðir og þjóðarbrot hyggj- ast ekki að fara að fyrirmælum ráðamanna í Kreml. Þess í stað verða ákvarðanir um framtíðars- amskipti við Rússland og hugsan- lega yfirstjóm ríkjasambandsins nýja, teknar með tilliti til sérhags- muna, sem nú um stundir virðast einkum mótastafþjóðernishyggju. Enn er því með öllu óljóst, hvort Míkhaíl S. Gorbatsjov tekst að mynda nýtt sambandsríki Sovét- lýðvelda á þeim forsendum seni hann lagði upp með. Raunar virð- ist sýnt að það bandalag, verði það myndað, verði mun laustengdara en forsetinn stefndi að í upphafi. Óvíst er hvort og þá hvaða hlut- verki þing hinna nýju Sovétríkja á að gegna. Edúard Shevardnadze, mun einkum ætlað að skera niður utanríkisráðuneytið sovéska, sem mun einkum hafa utanríkissam- skipti á sinni könnu í stað afger- andi stefnumótunar áður. í stað miðstýringar á efnahagssviðinu mun sérstakt ráðuneyti trúlega hafa með efnahagssamvinnu lýð- veldanna að gera og hlutverk for- setans er óljóst. Og verði raunin sú, að sjö af þeim tólf lýðveldum sem eftir standa undirriti sam- bandssáttmálann nýja vaknar sú spurning, hversu lengi sú skipan mála verði við lýði. Sérstaklega verður athyglisvert að fylgjast með þróun mála í Úkraínu. Um þessa helgi fara þar fram forsetakosn- ingar auk þess sem landsmenn munu taka afstöðu til þess, hvort Iýsa beri yfir fullu sjálfstæði. Verði raunin sú rís upp nýtt sjálfstætt og fullvalda ríki með um 52 millj- ónir íbúa. Fleiri lýðveldi kunna að fara að fordæmi Úkraínumanna og boða til þjóðaratkvæðagreiðslu um málið. Gera ber greinarmun á aðild til- tekinna Iýðvelda að sambandssátt- málanum nýja, sem kveða mun á um takmarkaða yfirstjórn eða umsjón á tilteknum sviðum frá Moskvu, og efnahagssamvinnu lýðveldanna tólf. Við blasir, að Sovétríkin eins og þau eru skil- greind nú um stundir eru eitt efna- hagssvæði og hagsmunir ríkjanna fara saman á þeim vettvangi. Því kann raunin að verða sú, að tiltek- in lýðveldi t.a.m. Úkraína taki þátt í efnahagssamvinnu lýðveldanna án þess að eiga aðild að sambands- sáttmálanum. Einhver lýðveldanna tólf, sem eftir standa innan þess sem enn er hentugast að nefna „Sovétrík- in”, munu líklega ganga til sam- starfs á grundvelli fullveldis í stað sósíalískrar miðstýringar frá Kreml áður. HELGI spjall 1. des. Ó, þú skrínlagða heimska og skrautklædda smán ... STEINN Er rétt að vort land sé í dögun af annarri öld og eldingin rísi við þjóðlíf sem leitar hins sanna? Vor hugur er bundinn við auðlegð og einskonar völd og allt sem er veraldleg freisting og hræsni vor manna. Og hugurinn snýst um hamingjulausa þrá þótt hjartað sé vongott og leiti þess annað slagið sem okkur er flestum fyrirmunað að sjá í fölum skugga við neyzluþjóðfélagið. Við rányrkjum miðin og teljum okkur svo trú um að talsverður þjóðarmetnaður sé í okkur og tölum einsog vort elskaða þjóðarbú sé íslandsklukkan sjálf eða gapastokkur. Samt er ekki lengur tízka að tala það mál með tilþrifum þess sem hefur mikið að þakka, sem helzt getur ávarpað íslenzka þjóðarsál en er nú að deyja í fjölmiðlun fyrir krakka. Við horfum aðeins á verðmerkta veröld sem er einsog vingjarnlegt jólaskraut í stofunni þinni en hugum sjaldnast að hinu sem eilífðin ber af himneskri von í dýrðlegri auðlegð sinni. Vor hugur er bundinn við vaxtavexti og helzt við verðtryggingu og örugg kaup eða sölu en vitum þó sjaldnast um allt sem í orðunum felst og alls ekki neitt um lánskjaravísitölu. En allt okkar tal um efnahagsvandamál er einskisvirði ef sálin deyr innan tíðar því lífið er stærra og meira en Atlantsál og eilífðin lengri en dauðinn sem vitjar oss síðar. M. (Meira næsta sunnudag.) REYKJAVÍKURBRÉF Laugardagur 30. nóvember IVIÐTALI VIÐ TÍMANN í DAG, laugardag, segir Magnús Gunn- arsson, formaður samstarfs- nefndar atvinnurekenda í sjáv- arútvegi m.a.: „ ... fyrsta málið, sem kom upp í tengslum við EB umræðuna var spurningin um, hvort það ætti almennt að fara út í að skipta á veiðiheimildum og hleypa þar með útlendingum inn f land- helgina. Það voru ekki allir þessu sam- þykkir og harðar deilur áttu sér stað um, hvort það ætti yfirleitt að taka það í mál. Við sáum það hins vegar fyrir, að við myndum aldrei geta náð samningi við EB, hvort sem það væri í gegnum EFTA eða tvíhliða, nema við samþykktum einhver skipti á veiðiheimildum.” Þetta er rétt. Og það var einmitt vegna þessara sjónarmiða, sem Morgunblaðið sagði í forystugrein hinn 23. október sl.: „í samningaviðræðunum milli aðildarríkja Evrópubandalagsins og Fríverzlunar- bandalags Evrópu skipti þrennt mestu máli fyrir okkur íslendinga: í fyrsta lagi að veija fiskveiðilögsögu okkar fyrir ásókn fiskiskipa frá Evrópubandalaginu. í öðru lagi að koma í veg fyrir, að erlend fyrir- tæki fengju heimild til að fjárfesta í ís- lenzkum sjávarútvegi. í þriðja lagi að t'fyggja tollfijálsan aðgang fyrir íslenzkar sjávarafurðir að mörkuðum Evrópubanda- lagsríkjanna. I samningunum, sem nú hafa verið gerð- ir eru ákvæði um skipti á veiðiheimildum. Þessar veiðiheimildir eru svo takmarkaðar, innan íslenzkrar fiskveiðilögsögu, að það eru engin rök fyrir því að standa gegn samningunum á þeirri forsendu, enda koma sambærilegar heimildir á móti ann- ars staðar. Hins vegar skiptir mjög miklu máli, að strangt eftirlit verði með veiðum þeirra skipa, sem koma til með að sækja þennan takmarkaða afla á íslandsmið. Reynslan af veiðum fiskiskipa frá Evrópu- bandalaginu er mjög slæm annars staðar og m.a. hefur þess gætt, að þau hafi hvorki sinnt gerðum samningum né regl- um. Eftirlitið verður að vera svo strangt, að óhugsandi sé, að þessir samningar verði brotnir eða gengið verði á svig við þá.” Eins og af þessari tilvitnun í forystu- grein Morgunblaðsins daginn eftir að sam- komulag náðist um EES má sjá, var það og er skoðun blaðsins, að um svo litlar gagnkvæmar veiðiheimildir sé að ræða, að engin rök séu til þess að standa gegn samningunum á þeirri forsendu. I ljósi þeirra umræðna, sem orðið hafa síðustu daga vegna breyttrar afstöðu sam- starfsnefndar atvinnurekenda í sjávarút- vegi má spyija, hvernig fjallað hafí verið um hinar gagnkvæmu veiðiheimildir í fréttum Morgunblaðsins, þegar sagt var frá samkomulaginu. í forsíðufrétt hinn 22. október sl. sagði: „Þorsteinn Pálsson, sjáv- arútvegsráðherra sagði eftir fundinn: „Þetta er ótvírætt mjög góður samningur fyrir ísland.” Sagði hann, að íslendingar létu Evrópubandalaginu í-té veiðiheimildir, sem samsvöruðu 3.000 tonnum af karfa en í staðinn fengju íslendingar heimildir til veiða 30.000 tonna af loðnu.” 1 sama tölublaði Morgunblaðsins kom fram í frétt á bls. 2, að mismunandi sjón- armið væru uppi hjá íslenzkum stjórnvöld- um annars vegar og Evrópubandalaginu hins vegar um þessi 3.000 tonna karfa- ígildi. í fréttinni sagði: „Til viðbótar þessu var í tillögunum gert ráð fyrir, að tilboð íslendinga frá í sumar stæði um sjávarút- vegssamning, sem innifæli m.a., að floti EB fái að veiða sem svari 3.000 tonnum af karfa í íslenzkri lögsögu gegn því, að íslendingar fái að veiða jafngildi af loðnu og rækju í lögsögu EB við Grænland. Miðað hefur verið við af íslands hálfu, að EB veiði 900 tonn af karfa að hámarki og afgangurinn verði langhali en frá EB hafa komið kröfur um, að stærri hluti afl- ans verði karfi.” Morgunblaðið var ekki eini aðilinn, sem á þessum tfma hafði upplýsingar um, að ósamið væri um þessi 3.000 tonn af karfa- ígildum. í samtali við Morgunblaðið tveim- ur dögum síðar, hinn 24. október sl. sagði Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi sjávarút- vegsráðherra og varaformaður Framsókn- arflokksins m.a.: „Þá hefur verið samið þarna um takmarkaðar gagnkvæmar veiðiheimildir, sem ríkir veruleg óvissa um. Á sl. vori var talað um, að það þyrfti að fara í rannsóknir á langhala, meðal ann- ars í þeim tilgangi að geta samið um veiði- heimildir á honum. Við höfum ekki upplýs- ingar um þennan stofn og við vitum ekki, hvar hann er veiðanlegur. Þessari undir- búningsvinnu sýnist mér, að hafí enn ekki verið hrundið af stað, sem er auðvitað bagalegt.” Eins og af þessum ummælum Halldórs Ásgrímssonar má sjá, var honum fullljóst, þegar samningamir höfðu verið gerðir um EES, að ófrágengið væri, hvernig skipting- in yrði á hinum umræddu karfaígildum, enda hafði minnisblaði sjávarútvegsráðu- neytis um þetta efni verið dreift til utanrík- ismálanefndar Alþingis og hagsmunaaðila í sjávarútvegi og bæði sjávarútvegsráð- herra og utanríkisráðherra, höfðu skýrt frá málinu á fundi utanríkismálanefndar, þegar við heimkomuna, eins og upplýst hefur verið samkvæmt hljóðritunum af fundum utanríkismálanefndar. I SERBLAÐI Hinnum- deildi lailg- Úr verinu, sem út hali kom hinn 30. okt- óber sl. var ijallað ítarlega um þá þætti EES-samninganna, sem snúa að sjávarútvegi. Vegna þeirra umræðna, sem orðið hafa um samningana um gagnkvæmar veiðiheimildir síðustu daga og yfírlýsinga talsmanna sjávarút- vegsins um, jið þeim hafi komið á óvart krafa EB um að allar veiðiheimildir þess yrðu í karfa er ástæða til að birta hér í heild kafla úr umfjöllun Versins um þetta sérstaka atriði. Þar sagði: „I tengslum við samningana um evr- ópskt efnahagssvæði verður gerður tví- hliða samningur milli íslands og Evrópu- bandalagsins úm samstarf á sviði sjávarút- vegsmála. Flest efnisákvæði slíks samn- ings liggja fyrir en endanlega verður geng- ið frá samningnum síðar, líklega ekki fyrr en á næsta ári. Þar verður kveðið á um vísindasamstarf, nýtingu sameiginlegra stofna (kolmunna) og skipti á gagnkvæm- um jafngildum veiðiheimiidum. Er gert ráð fyrir, að árlega verði gert sérstakt sam- komulag á grundvelli slíks rammasamn- ings. Við það er miðað, að Efnahagsbanda- lagsþjóðir fái heimild til veiða á 3.000 tonna karfaígildisveiðum við ísland en í staðinn fái íslenzk skip heimild til að veiða u.þ.b. 30.000 tonn af þeim hluta loðnukvót- ans, sem Evrópubandalagið hefur samið um að fá frá Grænlendingum. Af hálfu íslands hefur verið lagt til að 70% af veiði- heimildum bandalagsríkjanna verði lang- hali en 30% karfi. Eftir er að ganga endan- lega frá samningum að þessu leyti en bandalagið hefur látið í ljós ósk um að veiða einungis karfa. Þar sem vitneskja um útbreiðslu og afrakstursgetu langhala- stofnsins er af skornum skammti er ljóst, að auka þarf rannsóknir verulega á þessu sviði. Gert er ráð fyrir, að einstök skip Efnahagsbandalagsríkjanna sæki fyrir- fram um leyfí til þessara veiða og að slíkt leyfí verði aðeins veitt takmörkuðum fjölda skipa. Skipin yrðu bundin við fyrirfram ákveðin takmörkuð veiðisvæði og veiði yrði aðeins heimil á tilteknum tíma ársins (síðari hluta árs). Um veiðarnar gilda al- mennar íslenzkar reglur varðandi möskva- stærð, lokun veiðisvæða o.sv. frv. Skipun- um verður gert að tilkynna sig til Land- helgisgæzlu er þau sigla inn í íslenzka lögsögu og yfirgefa hana. Gert er ráð fyr- ir, að um borð í skipunum verði að jafn- aði íslenzkur veiðieftirlitsmaður á kostnað útgerðar skipsins. Leyfi mun ekki verða veitt til skipa er vinna aflann um borð. Veiðar íslenzkra skipa á loðnu sem í þeirra hlut fellur munu fara eftir íslenzkum regl- um og ákvæðum þríhliða samnings milli íslands, Grænlands og Noregs um loðnu- veiðar. Samkæmt núgildandi ákvæðum gætu íslenzk skip veitt þennan loðnu- kvóta, hvort sem væri í íslenzkri lögsögu eða lögsögu við Grænland eða Jan Mayen. Fyrst og fremst er rætt um karfaígildi, langhala að hluta, en EB vill helzt að ein- göngu verði um karfa að ræða. Þar eru efasemdir um, að veiðar á langhalanum geti gengið, enda lítið vitað um hegðan hans innan íslenzku landhelginnar. Endan- leg skipting er því ekki frágengin. Sum árin hefur loðnan ekki veiðst og í slíkum tilfellum er talað um annað tveggja, að gagngreiðsla okkar, 3.000 tonna karfa- ígildi, falli niður, eða við fáum heimildir til veiða á öðrum tegundum, sem við höfum áhuga á. Þar höfum við talað um rækju, en öruggt er, að aldrei komi til fégreiðslur fyrir veiðiheimildir á hvorn veginn sem þáð er. Reynist svo að loknum rannsóknum, að alls ekki verði unnt að Veiða langhal- ann, er nauðsynlegt að endurskoða veiði- heimildaskiptin, hvað tegundimar varðar. Ekki er frágengið með hvaða hætti eftir- litsmanninum verður komið um borð og veiðisvæði hafa ekki verið ákveðin.” Svo mörg voru þau orð. Þessi umfjöllun Morgunblaðsins viku eftir heimkomu ráð- herranna tveggja frá samningsgerðinni um EES sýnir svo ekki verður um villzt, að allar upplýsingar um þetta mál lágu fyrir þá þegar og voru ekki einungis í höndum utanríkismálanefndar og hagsmunasam- taka sjávarútvegsins. Miðað við þær upp- lýsingar, sem nér hefur verið vitnað til er erfitt að skilja, hvað hefur komið talsmönn- um samstarfsnefndar atvinnurekenda í sjávarútvegi svo mjög á óvart um skipt- ingu hinna gagnkvæmu veiðiheimilda. Atlantshafs- bandalágið, 200 mílurn- ar og EES A FUNDI SEM sjálfstæðismenn efndu til á Hótel Borg, fímmtudag- inn 24. október sl. leitaðist Þorsteinn Pálsson, sjávarút- vegsráðherra, við að setja EES-samningana í samhengi við aðra meiriháttar alþjóðlega samninga, sem við íslendingar höfum gert og líkti þeim réttilega við inngöngu okkar í Atlantshafs- bandalagið og samningana, sem við gerð- um við aðrar þjóðir og tryggðu yfirráð okkar yfir 200 mílna fískveiðilögsögu. Síð- an sagði Þorsteinn Pálsson: „Við höfum með þessum samningum tryggt okkur stjórnmálalega, efnahagslega og viðskiptalega stöðu í Evrópu. Það er þess vegna, sem þessi samningur er mikil- vægur fyrir stöðu íslands. Hann veikir ekki sjálfstæði íslands. Hann treystir og styrkir fullveldi íslenzku þjóðarinnar. Hann treystir hagsæld og velferð þjóðarinnar á breytingatímum.” Þetta eru orð að sönnu og það sem meira er: þetta er kjarni málsins. Samning- urinn um aðild okkar að evrópska efna- hagssvæðinu er annað og meira en samn- ingur um gagnkvæmar veiðiheimildir, sem snerta 3.000 tonn af karfaígildum innan okkar fískveiðilögsögu. Hann er lykillinn að nýrri framtíð fyrir þessa þjóð. Hann opnar okkur ótrúlega marga möguleika, sem við höfum ekki haft til þessa. Þegar við metum kosti þessa samnings annars vegar og hins vegar það óhagræði, sem við höfum af því, að EB veiði einungis karfa en ekki langhala og karfa, er hið síðamefnda slíkir smámunir samanborið við þau tækifæri, sem opnast fyrir þjóðina í heild og sjávarútveginn sérstaklega, að hér er ekki um álitamál að ræða. Raunar hefur enginn einn einstaklingur lagt jafn mikla vinnu í að sýna þjóðinni fram á nauðsyn þess að tryggja greiðan aðgang að mörkuðum Evrópubandalagsins og ein- mitt Magnús Gunnarsson, formaður sam- starfsnefndar atvinnurekenda í sjávarút- vegi. Frá því að deilur komu upp um þetta mál fyrir nokkrum dögum hefur verið sýnt fram á það með ótvíræðum hætti, að allar upplýsingar um stöðu málsins lágu fyrir skjalfestar frá íslenzkum stjórnvöldum'hjá réttum aðilum, utanríkismálanefnd Al- þingis, sem þýðir að stjórnarandstaðan hafði þessar upplýsingar undir höndum og hjá hagsmunasamtökum sjávarútvegsins, sem þýðir, að margumrædd samstarfs- nefnd hafði þær undir höndum. Þetta er það sem máli skiptir. Auk þess sýnir um- ijöllun Morgunblaðsins, að allur almenn- ingur hafði aðgang að sömu upplýsingum. Hagsmunaaðilar geta í opinberri um- fjöllun um málið ekki byggt á öðru en skjalfestum gögnum. Tilvísanir í aðrar ótilgreindar heimildir duga ekki í máli af þessu tagi. Telji formaður samstarfsnefnd- ar atvinnurekenda í sjávarútvegi sig eiga eitthvað vantalað við utanríkisráðherrann verður það að vera þeirra í milli en getur að sjálfsögðu ekki haft áhrif á afgreiðslu eins stærsta alþjóðlega samnings við aðrar þjóðir, sem Islendingar hafa gert frá lýð- veldisstofnun. Þótt þjóðmálaumræður í þessu landi einkennist of oft af músarholu- sjónarmiðum verða menn stöku sinnum að rífa sig út úr músarholunni og horfa á málin frá stærri sjónarhóli. Það er við hæfí að ljúka þessum hugleið- ingum með því að vitna til ummæla Þor- steins Pálssonar sjávarútvegsráðhen'a, hér í Morgunblaðinu í gær, föstudag, er hann sagði, að „vissulega væri sjálfur EES- samningurinn miklu stærra hagsmunamál en 3.000 tonn af karfa.” „Hagsmunaaðilar geta í opinberri umfjöllun um málið ekki byggt á öðru en skjal- festum gögnum. Tilvísanir í aðrar ótilgreindar heimildir duga ekki í máli af þessu tagi. Telji formaður sam- starfsnefndar at- vinnurekenda í sjávarútvegi sig eiga eitthvað van- talað við utanrík- isráðherrann verður það að vera þeirra í milli en getur að sjálf- sögðu ekki haft áhrif á afgreiðslu eins stærsta al- þjóðlega samn- ings við aðrar þjóðir, sem Is- lendingar hafa gert frá lýðveldis- stofnun.” r
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.