Morgunblaðið - 01.12.1991, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1. DESEMBER 1991
HlDtafjárútboð
Eignabankinn hf. er almenningshlutafélag
sem hefur fengið staðfestingu
Ríkisskattstjóra um að kaupendur
hlutabréfa njóti skattaafsláttar, sbr. III.
kafla laga nr. 9/1984.
Markmið Eignabankans er að verja
hlutafé sínu til fjárfestinga í eignum og
verðbréfum, sem stjórnéndur félagsins
telja arðbært.
Hlutafjárútboð:
Útboðsfjárhæð kr. 10.000.000,00
Nafnverðseiningar: kr. 10.000,-
kr. 50.000,- og kr. 100.000,-. Hlutabréfin
eru seld á nafnverði.
Þegar eru seld hlutabréf fyrir
kr. 18.500.000,- og fjöldi
hluthafa er28 (30/10 ’91).
Til að upplýsa um skattaafslátt, skal tekið
fram, að einstaklingur, sem fjárfestir í
hlutabréfum Eignabankans fyrir
kr. 100.000,- lækkar skatta sína um
ca. kr. 39.000,-, sbr. l.nr. 9/1984.
Leitið upplýslnga strax
í síma (91) 61 83 70
EígnaBankínn ha
AÐALSTRÆTI9 - 101 REYKJAVÍK
SÍMI (91) 61 83 70 - FAX (91) 62 83 70
HÓTEL ESJA
$tai*fcmaiiuaiclög os* liópai*
miuiið að pauta tímaiilcs>a
Matreiðslumenn Lauga-áss
leggja metnáð sinn í
glæsilegtjólah
framreitt verður
i hádeginu
og á kvöldin
alla daga
tiljóla.
Verið velkomin í Lauga-ás
Sími 689509
David Attenborough
Dýrabók
eftir Atten-
borough
ÚT ER komin hjá bókaútgáfunni
Skjaldborg hf. bókin Lífsbarátta
dýranna eftir David Attenbor-
ough.
í kynningu útgefanda segirm.a.:
„Bókinni er skipt upp í 12 megin-
kafla sem fjalla hver um sinn þátt-
inn í lífsbaráttu dýranna, svo sem
fæðingu, uppvöxt, fæðuöflun, veið-
ar og flótta, ratvísi, heimilislíf, sam-
búð, átök, vini og andstæðinga, tjá-
skipti, makaval og viðhald kyn-
stofnsins.
Sum atferli dýra eru svo dulin
að þau koma ekki i ljós fyrr en
eftir áralangar rannsóknir. Sir
David Attenborough byggir bók
sína m.a. á slíkum rannsóknum
margra aðila.”
I tilefni af útkomu bókarinnar
mun höfundur hennar, Sir David
Attenborough, heimsækja ísland á
vegum Skjaldborgar hf. og fylgja
hinni íslensku útgáfu bókar sinnar
úr hlaði, segir í fréttatilkynningu
frá Skjaldborg.
Nýir full-
trúar í Vest
Norden-
nefndinni
FORSÆTISRÁÐHERA hefur
skipað Guðmund Arnason
stjórnmálafræðing og Stur-
laug Þorsteinsson bæjarstjóra
á Höfn, Hornafirði, fulltrúa
íslendinga í Vestur-Norður-
landsnefndina (Vastnorden-
kommittén) sem starfar á veg-
um norrænu ráðherranefndar-
innar.
Guðmundur og Sturlaugur taka
sæti Bjarna Einarssonar og Jónasar
Hallgrímssonar.
Jafnframt hefur Sturlaugur Þor-
steinsson verið skipaður í stað Jón-
asar Hallgrímssonar i stjórn Nor-
ræna þróunarsjóðsins fyrir hin vest-
lægu Norðurlönd (Nordiska
utvecklingsfonden för Vástnorderi).
Mótorhjóli
stolið
NÝJU mótorhjóli af gerðinni
Yamaha DT-175 var stolið aðf-
aramótt þriðjudagsins fyrir ut-
an blokkina að Eskihlíð 18.
Hjólið er blátt að lit og ber einkenn-
isstafina GT-745. Þeir sem gætu
gefið upplýsingar um þjófnaðinn er
bent á að snúa sértil lögreglunnar.