Morgunblaðið - 01.12.1991, Side 62

Morgunblaðið - 01.12.1991, Side 62
62 MORGUNBLAÐIÐ FOLK I FRfcl- hUMf-SUNNUL)AGUK!l. DESEMBEK .1991 MATREIÐSLA Uppskriftir að réttum með allt frá murtu til hreindýra *_t er komin á vegum Forlags- I ins bók með 45 uppskriftum ^ að þess háttar villibráð sem hérlendis er að hafa. Leitað var í smiðju „Kokkalandsliðsins” sem rakaði saman efni í bókina á furð- uskömmum tíma nú síðsumars og í haust. Það kemur ef til vill ein- hverjum á óvart hversu fjölbreyti- leg villibráð hér finnst. I bókinni er að finna uppskriftir fyrir allt frá lunda og súlu, til murtu og til hreindvrs. Og auðvitað eru fastir liðir á ferð eins og lax, bleikja, ijúpa og gæs. Og margt fleira, bæði forréttir, aðalréttir og eftirréttir. „í upphafí far þess far- ið á leit við okkur að við settum saman bók um svona fínni mat- reiðslubók, en svo skiptu þeir hjá Forlaginu um skoðun og vildu villibráðarbók. Það var knappur tími og við vældum eitthvað um það, en þeir voru ákveðnir og við hrifumst því með og settum allt á fulla ferð og þetta hafðist, mest fyrir tilstilli góðs hóps sem lagðist á eitt,” sagði Sigurður Hall blaða- fulltrúi Klúbbs matreiðslumeistara í samtali við Morgunblaðið. Við vorum út og suður að ná okkur í hráefni og ekki hlaupið að því í öllum tilvikum, þó fannst flest í frosti einhvers staðar það sem ekki var annars staðar að hafa. Við vorum reknir áfram og þetta var 16 til 17 stunda vinna á dag í svona viku við myndatök- urnar sem fóru fram í gamla Matreiðsluskólanum í Hafnarfirði. Þar voru útlitshönnuðurinn, ljós- myndarinn og textahöfundurinn María, sem Ieysti eitl vandasam- asta verkið úr hendi, þ.e. að fella saman texta og uppskrfitirnar. Það er ekki grín að láta uppskrift- Morgunblaðið/Sigurgeir Sigurðsson. Keppnislið matreiðslumeistara, myndin tekin í veiðihúsinu við Hítará. ir stemma við réttina. Það þarf að vera samræmi. Þar kom texta- höfundurinn og leysti málið með snilldarlegum hætti,” segir Sigurður. En hvað segir hann um réttina sem bókin snýst um? „Sumir þessara rétta eru nýir og urðu til á meðan á mynda- tökunum stóð. Aðrir hafa verið í lengri eða skemmri þróun, annað hvort hjá okkar mönnum, eða að þeir hafa verið teknir sem frum- hugmynd af erlendum matseðlum og heimfærðir upp á íslenskt hrá- enfi ef við getum orðað það þann- ig. Notað íslenskt hráefni og ein- hveijum hugmyndum bætt við. Einn af réttunum sem ég á þarna, villigæsasúpa, hef ég reynt með ýmsum tilbrigðum í veiðihúsini við Laxá í Kjós þar sem ég hef unnið á sumrin og í bókinni er sú útgáf- an sem besta gaf raunina. Það er gott dæmi um hvernig sumir rétt- ana hafa þróast með tíð og tíma. Og það er eitt sem má ekki gleyma. Réttirnir eru valdir þann- ig, að hver og einn sem hefur aðgang að ósköp venjulegu eld- húsi á að geta farið í þessa bók, valið þann rétt sem hann kærir sig um og eldað hann,” svarar Sigurður Hall. Fannir hf. • Krókhálsi 3 • Sími 67 25 11 Dúkurinn er uiulirstaða að glœsilegu veisluborði. Duni-dúkarúllur eru fáantégar í fallegum litum sem lífga upp á borðið, hvort heldur sem er við hátíðleg tœkifœri eða bara hversdags. Duni-dúkarúllurnar eru 25 metrar á lengd og 1,25 metrar á breidd og jiassa því á Jlest borð. Líttu eftir Duni-dúkarúllu í nœstu verslun. Metsölublað á hvetjum degi! Morgunblaðið/Ari AUG^SING 100 manns umiii í fiinm sólahringa að lengstu leiknu aug- lýsingunni Nýlega var lokið við gerð leikinn- ar auglýsingar sem Frostfílm vann fyrir Gosan með þátttöku ung- menna úr samtökunum Módel ’79. Verið var að auglýsa Pepsí kóla og var mikil og ströng vinna lögð í verk- ið og það unnið fram á rauðanætur í einni fimm daga törn. Útkoman ætti að sjást á hvítum tjöldum um þessar mundir, því auglýsingin var unnin með því augnamiði að vera fyrirrennari stórmynda í Sagabíói sem opnar um þessar mundir. Aug- lýsingin er merkileg fyrir ýmsa hluta sakir, en ekki kannski hvað síst vegna þess að hún er trúlega lengsta leikna auglýsingin sem gerð hefur verið hér á landi, en svo telur að minnsta kosti Karl Óskarsson kvik- myndagerðarmaður sem fór fyrir verkinu ásamt Magnúsi Scheving hjá Módel ’79. Auglýsingin er þijár mín-; útur og fimmtán sekúndur. Karl sagði í samtali við Morgun-; blaðið, að gerð hefðu verið tvö eintökj af auglýsingu þessari, annaðv svart/hvítt og hitt í lit. „Þetta er svona lítil tallaus glæpasaga frá ár- 1 •

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.