Morgunblaðið - 01.12.1991, Side 68
W*f Reghibundinn
JL/# sparnaðiir
Landsbanki
íslands
FORGANGSPOSTUR
UPPLYSINGASIMI 63 71 90
MOHGUNBLADIÐ, ADALSTRÆTI 6, 101 liEYKJAVÍK
SÍMI 691100, FAX 691181, PÓSTHÓLF 1565 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
SUNNUDAGUR 1. DESEMBER 1991
VERÐ I LAUSASOLU 110 KR.
VEL BUINN I VETRARKULDA
Morgunblaðið/KGA
Slátursamlag Skagfirðinga;
Aukið magn og
hærra verð fyrir
hrossakjöt til Japans
500 hross hafa verið felld á árinu
Sauðárkróki.
VERULEG aukning hefur verið
í pöntunum þeirra fjögurra aðila
í Japan, sem kaupa hrossakjöt
frá Slátursamlagi Skagfirðinga
á Sauðárkróki. Að sögn Gísla
Sverris Halldórssonar, fram-
kvæmdasljóra slátursamlagsins,
var í upphafi slátrað á bilinu
14-15 hrossum á viku, en í síð-
ustu slátrun fyrir jól verða hins
vegar 80 hross felld, og þá hafa
samtals um 500 hross verið felld
á árinu. Bændur fá nánast stað-
greitt fyrir sína vöru, en Gísli
segir að slát.ursamlagið geti boð-
ið þeim allt að 40 krónum yfir
grundvallarverði.
Gísli segir að hinir japönsku
kaupendur hafí lýst sig mjög
ánægða með vöruna héðan frá
Sauðárkróki, og nú væri pöntunar-
kerfið og salan komin í fastan far-
veg og þess vegna væri bjart fram-
undan í þessum útflutningi. Hann
sagði að síðasta slátrun fyrir ára-
mót yrði um miðjan desember og
þá yrðu allir biðlistar hreinsaðir
upp og þeim fjölda náð sem yrði
lágmarkið á ársgrundvelli fram-
vegis, eða um 500 hrossum. Gert
væri ráð fyrir að markaðurinn geti
tekið við mun meira magni, eða
allt að 800 hrossum á ári.
Gísli sagði að kaupendurnir í
Japan vildu fá kjöt í hverri viku,
og ef ekkert kæmi uppá væri um
fastan markað að ræða allt árið.
Hefði kaupendum verið gerð grein
fyrir því að um hærra verð myndi
vera að ræða þegar slátra þyrfti
allt árið, og um þetta hefðu náðst
góðir samningar.
Þetta kæmi einnig til vegna
þess að bændur yrðu líka að gera
betur við hrossin til þess að fítu-
- segir Friðrik Sophusson fjármálaráðherra
RÍKISSTJÓRNIN hyggst standa við það markmið sitt að hallinn á
ríkissjóði verði innan við fjórir milljarðar á næsta ári, án þess að
skattar verði hækkaðir. Aflasamdráttur og frestun álversframkvæmda
þýða að skera þarf niður rúma þrjá milljarða í viðbót við það, sem
þegar er orðið. Friðrik Sophusson fjármálaráðherra segir í viðtali við
Morgunblaðið I dag að fækka verði ríkisstarfsmönnum til að draga
úr launakostnaði og svo geti farið að segja þurfi upp fólki hjá ríkinu.
„Ég legg mjög þunga áherzlu á
að langsamlega stærsta efnahagsað-
gerðin, sem ríkisstjórnin getur gripið
til, er að styrkja ríkisfjármálin og
fylgja þessari stefnu sinni eftir,”
segir Friðrik í viðtalinu. „Ef við
ætlum að ná niður vöxtum og halda
stöðugleika í efnahagslífínu til að
veija þá sem verst eru settir og
lægst hafa launin, eigum við aðeins
einn möguleika. Það er að draga úr
útgjöldum rikisins og koma verð-
bólgunni niður fyrir það, sem hingað
til hefur þekkzt hér á landi; tvö til
þijú prósent.”
Friðrik segir að launakostnaður
ríkisins sé um 70% af rekstrarkostn-
aði þess, eða 33 til 34 milljarðar.
Draga verði úr yfirvinnu og fækka
opinberum starfsmönnum. „Auð-
veldast væri að fækka með því að
ráða ekki í þær stöður, sem losna,
heldur færa til innan kerfisins. Ef
það dugar ekki til, verðum við eins
og aðrir að segja upp fólki,” segir
fjármálaráðherra.
Aðspurður lækkun vaxta á á ríkis-
skuldabréfum og ríkisvíxlum sagði
Friðrik að mikil lánsfjárþörf vegna
umframeyðslu hins opinberra og
heimilanna í landinu héldi vaxtastig-
inu uppi. Hann segir að vextir á rík-
isvíxlum hafí lækkað í takt við lækk-
un á vöxtum í bankakerfinu. Til
þess, hins vegar, að lækka raun-
vexti á ríkisskuldabréfum þurfí að
draga úr lánsfjárþörf ríkisins. Ríkis-
stjórnin hafi sett sér það markmið
að á næsta ári taki opinberir aðilar
innan við 24 milljarða í lán, en á
þessu ári megi reikna með að þeir
taki tii sín 36 milljarða.
Aðspurður um skort á eindrægni
innan forystusveitar Sjálfstæðis-
magn í kjötinu minnkaði ekki.
Um 80% þeirra hrossa sem lógað
hefur verið eru úr Skagafirði, en
að sögn Gísla hafa einnig fengist
hross bæði úr Eyjafjarðar- og
Húnavatnssýslum og væntanlega
yrðu fyrstu hrossin sem felld yrðu
eftir áramót austan af Tjömesi.
-BB.
Ríkisstjórnin hyggst skera ríkisútgjöld enn frekar niður:
Uppsagnir starfsmanna
hjá ríkinu koma til greina
Úlnliðs-
brot eru
algeng í
hálkunni
UNDANFARNAR tvær vik-
ur hefur verið mjög hált í
höfuðborginni og eins og
ávallt gerist í hálku fjölgar
mjög beinbrotum hjá al-
menningi. Tryggvi Þor-
steinsson yfirlæknir á slysa-
deild Borgarspítalans segir
að úlnliðsbrotin séu algeng-
ust í hálku og áberandi að
fullorðið fólk er í meirihluta
þeirra sem koma á slysa-
deild af þessum sökum.
Tryggvi segir að hann hafí
ekki nákvæmar tölur um fjölda
tilfella undanfarnar tvær vikur
en þegar hálkan er mikil er
algengt að 5-6 einstaklingar
komi daglega með brotinn
úlnlið á slysadeild.
„Og hér á árum áður man
ég eftir einum degi þar sem
17 slík tilfelli komu til okkar,”
segir Tryggvi. Af öðrum al-
gengum brotum í hálkunni má
nefna mjaðmagrindarbrot, oln-
bogabrot og fótbrot auk sára
og hruflna á andliti og hnjám.
Tryggvi segir að það sé
mikilvægt að fólk, einkum full-
orðið fólk, fari sér varlega í
hálkunni og sé á góðum skóm.
flokksins og tillögur Þorsteins Páls-
sonar sjávarútvegsráðherra um
efnahagsaðgerðir vegna sjávarút-
vegsins, segir Friðrik: „Menn verða
að gera sér grein fyrir hversu mikil-
vægt það er fyrir ríkisstjórnina í
heild að hafa frumkvæði og forystu
um þær aðgerðir, sem þarf að grípa
til, á þeim tíma sem við teljum æski-
legan. Það hefur þess vegna óheppi-
leg áhrif ef fram koma ótímabærar
tillögur um aðgerðir fyrir einstakar
atvinnugreinar, án þess að það sé
liður í heildaraðgerðum. Það er líka
afar nauðsynlegt í þessari stöðu að
ríkisstjórnin og aðilar vinnumarkað-
arins séu samferða í athöfnum sínum
og allir beri ábyrgð á niðurstöðunni.
Skilyrði þess að slíkt sé hægt, er
að menn þjófstarti ekki.”
Sjá „Munum halda fjárlagahall-
anum í skefjum” á bls. 29.