Morgunblaðið - 12.12.1991, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 12.12.1991, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1991 Hæstiréttur: Stjórnarmenn Hafskips sýknaðir af 5 milljóna kröfum þrotabúsins HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest dóm borgardóms Reykjavíkur og sýknað ýmsa fyrrum stjórnarmenn og forsljóra Hafskips hf., 16 aðila, af kröfum þrotabús félagsins um að þeim verði sameiginlega gert að greiða búinu rúmlega 5 milljónir króna auk vaxta. Þrotabúið taldi að hluti þessarar upphæðar hefði tapast vegna þess að grunnvísitala skuldabréfa, sem tekin voru sem greiðsla fyrir hluta- íjáraukningu á árinu 1985, hefði verið miðuð við undirritunardag hvers skuldabréfs í stað þess að í öllum tilfellum hefði verið miðað við lánskjaravísitölu febrúarmánaðar 1985 en í þeim mánuði samþykkti hluthafafundur að auka hlutafé félagsins um 80 milljónir króna. Einnig töldu forsvarsmenn þrota- búsins að í tilkynningu stjómar fé- lagsins til hlutafélagaskrár um hlut- afjáraukninguna hefði hlutafé félagsins verið oftalið um rúmlega þijár milljónir og þannig hafí kröfu- hafar og við skiptamenn fengið ranga mynd af stöðu félagsins. Tveir hæstaréttardómarar, Þór Vil- hjálmsson og Hrafn Bragason, skil- uðu sératkvæði og töldu rétt að dæma stjómarmenn og forstjóra til að greiða þrotabúinu um 3 milljónir auk vaxta vegna síðartalda atriðis- ins en voru sammála meirihlutanum um að sýkna af hinu fyrra. Af 80 milljóna hlutafjárútboði sem ákveðið var á aðalfundi Haf- skips í júní 1985, seldist hlutafé fyrir tæplega 77 milljónir króna og var þorri þess greiddur með skulda- bréfum, vísitölutryggðum en vaxta- lausum til rúmlega fímm ára. Skuldabréfín voru fjölmörg og gefín út á tímabilinu febrúar-ágúst 1985. Að ákvörðun aðalbókara félagsins var grunnvísitala hvers bréfs miðuð við útgáfumánuð. Bústjórar þrota- búsins töldu að þetta hefði kostað FEIN rafhlöðuvélin sameinar kosti annarra borvéla Nýja accu-tec rafhlöðuvélin frá Fein er borvél fyrir fagmenn sem vilja skila vandaðri vinnu af nákvæmni og öryggi. Fein rafhlöðuvélin býr yfir fjölmörgum eiginleikum sem sameina kosti annarra borvéla. 6 mismunandi styrkstillingar auka nákvæmni Fein borvélarinnar og sérstök höggkúpling auðveldar vinnu á föstum skrúfum. • Vegur aðeins 1,55 kg með patrónu og staða handfangs gefur henni þægilegt jafnvægi. • Ný hleðsluaðferð tryggir stuttan hleðslutíma og langa endingu. Nákvæmni • öryggi • Rafhlöðuna má tengjc á enda vélarinnar eða handfang sem gerir hana jafnvíga fjárum vélum. Kynntu þér gæði og möguleika accu-tec 2 óg 4 rafhlöðuvélanna. RAFVERHF Skeífan 3 • 108 Reykjavík • Símar: 91-81 24 15 og 81 2117 i Vestmannaeyjum, Póllinn Isafirði, Glitnir Borganesi, Snarvirki Djúpavogi félagið rúmlega tvær milljónir króna. Ágreiningur var um hvort stjórn félagsins hefði fjallað um hvemig vísitölubindingu skyldi hátt- að. Einnig var þess krafist að þeir menn sem sátu í stjórn félagsins og framkvæmdastjóri þess á þeim tíma sem hlutafjáraukning var sam- þykkt og aukið hlutafé var tilkynnt Hlutafélagaskrá yrðu gerðir ábyrgir fyrir fyrrgreindu tjóni búsins, sam- tals um fímm milljónum króna, auk vaxta. Kröfurnar voru reistar á ákvæðum hluta félagalaga um að stjórnarmenn í hlutafélagi skuli bæta það tjón sem þeir valda félag- inu af ásetningi eða gáleysi. I niðurstöðum meirihluta Hæsta- réttar, sem skipaður var hæstarétt- ardómurunum Guðrúnu Erlends- dóttur, Gunnari M. Guðmundssyni og Pétri Kr. Hafstein, er fallist á þá niðurstöðu Friðgeirs Bjömssonar yfirborgardómara, að það að stjórn félagsins hafí hvorki sjálf tekið ákvörðun um vísitölu bréfanna né borið það mál undir hlutahafafund verði ekki metið stjómarmönnum til þeirrar sakar að skaðabótaskyld varði enda sé óvíst nema sú leið sem farin var hefði verið valin ef um hefði verið fjallað. Samkvæmt því hefðu stefndu ekki sýnt af sér með útgáfu skuldabréfanna háttsemi sem metin verði þeim til sakar og því væru ekki skilyrði til að .gera þá skaðabótaskylda. Því taldi meiri- hluti Hæstarétar ekki efni til að taka afstöðu til þess hvort sýnt hefði verið fram á að þrotabúið hefði orð- ið fyrir tjóni vegna mismunandi vísi- tölu skuldabréfanna. Um tilkynn- ingu um hlutafjáraukninguna var fallist á með héraðsdómara að stjórnarmenn hefðu ekki nægilega rækilega gengið úr skugga um að rétt fjárhæð hlutafjár væri þar til greind. Hins vegar sé hvorki sannað að félaginu hafi veirð valdið tjóni með óeðlilegri innheimtu hluta- fjáraukans né að það að hlutafé var minna en tilkynnt var hafí valdið félaginuy eða viðskiptamönnum tjóni frá dagsetningu tilkynningar- innar, 21. ágúst 1985, til gjaldþrota- dagsins, 6. desmber 1985. Hver aðilanna var látinn bera sinn kostn- að af rekstri málsins. í sératkvæði Hrafns Bragasonar og Þórs Vilhjálmssonar hæstarétt- ardómara var sýknað af fyrra atrið- inu en hvað varðar tilkynningu til hlutafélagaskrár segir að lánar- drottnar Hafskips hafi mátt á því byggja að upplýsingar formanns og stjómar væru réttar og að því hafi við gjaldþrotaskipti verið rúmum 3 milljónum króna minna til ráðstöf- unar en ella. Á hinum röngu upplýs- ingum beri stjómarmenn og for- stjóri ábyrgð og vildu dómararnir tveir sem skipuðu minnihluta rétt- arins gera þeim skylt að endur- greiða þrotabúinu rúmar 3 milljónir, auk vaxta. Worgunblaðið/Sverrir Frá aftansöng í Langholtskirkju. Jón Stefánsson, organisti er lengst til vinstri og sr. Flóki Kristinsson sóknarprestur lengst til hægri. Aftansöngur hvern virk- an dag í Langholtskirkju LANGHOLTSKIRKJA er fyrsta lútherska kirkjan í Reylg'avík, sem hefur tekið upp á því að hafa aftansöng á hverjum virk- um degi kl. 18. Að sögn sr. Flóka Kristinssonar, sóknarprests í Langholtskirkju, verður þetta fastur Iiður kirkjustarfs í kirkj- unni í framtíðinni. Uppistaðan í aftansöngnum er, að sögn sr. Flóka, söngur Davíðs- sálma og biblíulegra lofsöngva, en einnig eru sungnir sálmar, farið með bænir og lesið úr ritningunni. „Ég er sammála mörgu fólki, sem gagnrýnir kirkjuna fyrir að vera tyllidagakirkja og nú bjóðum við upp á daglega iðkun. Það virðist vera það, sem fólk sækist eftir í Verðlaunaævintýri AB nýaldarhreyfíngunni, einhvers kon- ar regluleg iðkun. Með þessu móti er komið á móts við þetta fólk. Nú getur það komið daglega og hefur aðgang að prestinum sínum,“ segir sr. Flóki. Sr. Flóki segist hafa hugsað sér að vera með eitthvað fræðsluefni inn á milli aftansöngsins. „Það er einfalt að taka þátt í aftansöngnum og hann er á þægilegum tíma, t.d. fyrir fólk, sem er að koma heim úr vinnunni. Síðan þetta fyrirkomu- lag byijaði hefur það ekkert verið auglýst en á milli átta og fimmtán manns hafa tekið þátt í aftansöngn- um í hvert skipti,“ segir sr. Flóki Kristinsson. ALMENNA Bókafélagið hefur gefið út bókina Dvergastein eftir Aðalstein Ásberg Sigurðsson. Þessi bók hlaut verðlaun í bók- menntasamkeppni sem AB efndi til 1990. í kynningu útgefanda segir: „Dvergasteinn er ævintýri um 9 ára telpu sem dvelur um tíma hjá ömmu sinni í litlu þorpi úti á landi. í garðinum bak við húsið er stór steinn, sem heitir Dvergasteinn, og er sagt að í honum búi dvergar. Uglu tekst að komast í samband við dvergadreng, sem býr í steinin- um, og hann segir henni frá hörmu- legum atburði sem gerst hefur meðal dverganna. Ugla einsetur sér að leysa úr þessu vandamáli dverg- anna og fær í lið með sér mennsk- an dreng.“ Bókin er myndskreytt af Erlu Sigurðardóttur. Dvergasteinn er 123 bls. Um- brot, filmuvinnu og kápuhönnun hefur Skerpla annast, en bókin er grentuð og bundin í Prentsmiðju Árna Valdemarssonar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.