Morgunblaðið - 12.12.1991, Blaðsíða 48
48
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1991
Tónlist og upplestur
í KVÖLD, fimmtudagskvöld,
verður haldið á Café Romance
í Lækjargötu „Kúltúrkvöld“ og
hefst dagskráin kl. 20.30
Stekkjastaur
Jólasvein-
arnir koma
í Þjóðminja-
safnið
HEFÐ ER komin á jólahald
í Þjóðminjasafninu. Þangað
hafa gömlu íslensku jóla-
sveinarnir vanið komur sínar
undanfarin ár við mikinn
fögnuð gesta á öllum aldri.
I tengslum við jólasveina-
heimsóknir hafa um 6 og 7
þúsund börn komið í safnið
í kringum jólin.
Fimmtudaginn 12. desember
er Stekkjastaur væntanlegur
klukkan 11 fyrir hádegi en
áður en hann kemur flytur
barnakór úr Tónlistarskóla
Hafnarfjarðar nokkur lög. Síð-
an koma þeir félagar koll af
kolli þar til Kertasníkir rekur
lestina á aðfangadag jóla. Þar
sem yfir stendur „ár söngsins“
kemur barnakór daglega fram
í safninu í tengslum við heim-
sóknir jólasveinanna.
Víðs vegar í safninu verður
jólasveinabrúðum komið fyrir
og verða þær tilefni til nokkurs
konar ratleiks í sýningarsölun-
um auk þess sem jólasýning
safnsins „Sönglíf í heimahús-
um“ verður opin á þriðju hæð.
Fram koma hljóðfæraleikararn-
ir Valdimar Örn Flygenring og
Hendes Verden ásamt Pálma Sig-
urhjartarsyni og Sigurði Jónssyni.
Margar bækur eru að koma út nú
fyrir jólin á vegum bókaforlaganna
og verða rithöfundar þeirra gestir
Café Romance og lesa uppúr þeim.
Þeir rithöfundar sem lesa úr
verkum sínum í kvöld eru Súsanna
Svavarsdóttir sem les úr bók _sinni
„I miðjum draumi", Jón Óttar
Ragnarsson sem les úr bók sinni
„Fimmtánda fjölskyldan", Stefán
Jón Hafstein sem les úr bók sinni
„Guðirnir eru geggjaðir“, Stein-
unn Sigurðardóttir sem les úr bók
sinni „Kúaskítur og norðurljós",
Þorgrímur Þráinsson sem les úr
bók sinni „Mitt er þitt“, Ómar
Ragnarsson sem les úr bók sinni
„Heitirðu Ómar?“ og Illugi Jökuls-
son sem les úr bók sinni „Fógeta-
vald“.
Aðgangur er öllum heimill.
Magnús Ver Magnússon
Magnús Ver
sigraði í
„Hreysti ’91“
MAGNÚS Ver Magnússon sigr-
aði í keppninni „Hreysti ’91“
sem haldin var I Reiðhöllinni
um helgina, en keppt var i sex
greinum sem reyndu á ýmsa
þætti krafta, harða og snerpu.
Þáttakendur í keppninnj voru
fímm auk Magnúsar, einn íslend-
ingur og fjórir útlendingar. Næstir
Magnúsi komu Finninn Riku Kiri
og Bretinn Jamie Reeves, en auk
þeirra tóku þátt í mótinu Henning
Thorsen frá Danmörku, Andrés
Guðmundsson og Uka Kinnonen
frá Finnlandi.
■ GEIRI SÆM ásamt hljómsveit-
inni „Tunglið" munu halda tónleika
á skemmtistaðnum Edinborg í
Keflavík í kvöld, fimmtudaginn 12.
desember. Á efnisskránni verða lög
af nýútkominni plötu Geira, „Jörð“.
Hljómsveitina Tunglið skipa:
Bjarni Bragi, bassi, Einar Rún-
arsson, hljómborð, Sigfús Ottars-
son, trommur, Sigurður Gröndal,
gítar og Geiri Sæm, gítar og söng-
ur. Tónleikamir heljast klukkan
22.30.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir,
GUÐNI Þ. GUÐMUNDSSON,
Skaftahlíð 38,
verður jarðsunginn frá Háteigskirkju, föstudaginn 13. desember
kl. 13.30.
Guðrún Áslaug Edvardsdóttir,
Jóhanna M. Guðnadóttir, Þorgeir P. Runólfsson,
Edvard G. Guðnason, Kristin G. Guðmundsdóttir,
Sigurlaug Þ. Guðnadóttir, Óskar Hrafnkelsson.
Ljosmynd/Björg Sveinsdóttir
Bubbi Morthens verður með útgáfutónleika í Borgarleikhúsinu
Utgáfutónleikar
Bubba Morthens
BUBBI Morthens sendi fyrir skemmstu frá sér breiðskífuna Ég
er, sem á eru tónleikaupptökur frá síðasta ári. Platan hefur
nú selst í yfir 3.000 eintökum, en Bubbi heldur útgáfutónleika
í Borgarleikhúsinu á morgun, föstudag.
Með Bubba á útgáfutónleikun-
um koma fram Reynir Jónasson
harmonikkuleikari, Gunnlaugur
Briem slagvérksleikari og Pálmi
Gunnarsson sem leikur á kontra-
bassa. Bubbi leikur sjálfur á gít-
ar að vanda og syngur, en meðal
efnis af Ég er og eldri laga
hyggst hann leika lög sem hann
er að vinna fyrir næstu breið-
skífu sína, sem hann ætlar að
taka upp á Kúbu snemma á
næsta ári, en tónlistin er skotin
suður-amerískum fjölrytmum og
áhrifum. Eins og áður sagði
verða tónleikarnir í Borgarleik-
húsinu annað kvöld, en í Morgun-
blaðinu á sunnudag misritaðist
að þeir væru í kvöld, sem leiðrétt-
ist hér með.
Aukatónleikar hjá Bryan
Adams í Laugardalshöll
KANADÍSKI rokktónlistarmaður-
inn Bryan Adams er væntalegur
hingað til lands til tónleikahalds
í næstu viku og treður upp á tón-
leikum í _ Laugardalshöll nk.
þriðjudag. Ásókn í miða á tónleik-
ana hefur verið með mesta móti
að sögn aðstandenda og hafa tek-
ist samningar við Adams um aðra
tónlcika, sem haldnir verða mið-
vikudagskvöld, einnig í Laugar-
dalshöllinni.
Það er Borgarfoss hf. sem stendur
fyrir tónleikunum, en að sögn for-
svarsmanna fyrirtækisins seldist upp
í sæti á tónleikana 17. rik. í síðustu
viku og nú stefnir í að uppselt verði
á þá fyrir helgi. Þeim þótti því ástæða
til að halda aðra tónleika til að gefa
fleirum kost á að sjá Bryan Adams,
sem er einn vinsælasti tonlistarmað-
ur heims í dag.
Þeir sögðu hafa verið auðsótt að
fá Adams til að fallast á aðra tón-
leika, enda verða þetta lokatónleikar
hans í fyrri hluta tónleikaferðar hans
um heiminn til að fylgja eftir síðustu
breiðskífu sinni, Waking up the Neig-
Bryan Adams.
hbors, sem selst hefur í milljónum
eintaka. Að sögn Alans Balls hjá
Borgarfossi kemur Bryan Adams
hingað til lands með einkaþotu á
þriðjudag og er ætlað að hún muni
lenda á Reykjavíkurflugvelli um tvö-
leytið.
Jólahlaðborð í Lindinni
VEITINGASALURINN
Lindin, Rauðarárstíg 18,
hefur aukið við húsnæði
sitt með nýjum glerskála,
sem tekiim var í notkun
um síðustu helgi.
Sem nýbreytni má nefna
að í desember vei'ður boðið
upp á íslenskt jólahlaðborð.
Meðal þess sem er á boð-
stólum á hlaðborðinu eru
síldarréttir, taðreyktur lax,
físk- og kjötpaté, heitir og
kaldir kjötréttir eins og
carvery-steik og hangikjöt,
pastaréttir, hrísgijónarétt-
ir o.fl., o.fl. Jólahlaðborð
er framreitt frá kl. 12.00-
14.00 í hádeginu og kl.
18.00-21.00 á kvöldin.
Matreiðslumeistarar Lind-
arinnar eru Kristján Frede-
riksen og Jón Kr. Sigfús-
son.
(Úr fréttatilkynningu)
Jólahlaðborð Lindarinnar í nýjum
glerskála.
Gestaþraut-
in Tangoes
KOMIN er á markað hérlendis
gestaþrautin Tangoes, sem er
byggð á 1.000 ára gömlum kín-
verskum leik. Þjóðsagan segir
að maður að nafni Tan hafi
misst postulínsflís, sem brotnaði
í sjö hluta. Þegar hann reyndi
að raða brotunum saman fékk
hann út hin ýmsu myndform og
barst leikurinn síðan fljótt út
og varð vinsælt tómstundaga-
man meðal Kínverja en þrautin
gengur út á að búa til hin ólík-
ustu myndform.
Tangoes-þrautin samanstendur
af sjö brotum og 54 þrautum. Til-
gangur leiksins er að búa til mynd-
form, sem sýnt er á spjaldi og á
bakhlið hverrar þrautar er rétta
lausnin sýnd. Einn þátttakandi
getur leikið með því að reyna að
leysa eins margar þrautir og
mögulegt er án þess að líta á
lausnirnar. Einnig geta tveir þátt-
takendur keppt sín á milli. Tango-
es gestaþrautin er framleidd af
Rex Games Inc. í Bandaríkjúnum.
■ ARKITEKTAFÉLAG ís-
lands stendur nú í vetur fyrir röð
fyrirlestra fyrir fagfólk og áhuga-
menn á sviði hönnunar og
byggingarlistar. Fimmtudags-
kvöldið 12. desember flytur Þór-
arinn Þórarinsson arkitekt í
Reykjavík fyrirlesturinn „Línur í
landnámi Ingólfs“, um athuganir
sínar á staðháttum og fyrirbærum
frá fyrstu öldum íslandsbyggðar.
Á ótal gönguferðum um nágrenni
Reykjavíkur hefur Þórarinn m.a.
upgötvað merkileg tengsl milli
ákveðinna staða og kennileita og
afstöðu þeirra til gangs sólar.
Fyrirlesturinn er í Ásmundarsal,
Freyjugötu 41, og hefst hann
klukkan 20.00. Aðgangur er
ókeypis og öllum heimill, á meðan
húsrúm leyfir.
■ BRÚ, félag áhugamanna um
þróunarlöndin, heldur almennan
félagsfund í kvöld, fimmtudaginn
12. desember 1991, í fundarsölum
ríkisins í Borgartúni 6. Fundurinn
hefst klukkan 20.30. Á fundinum
segir Stefán Jón Hafstein út-
varpsmaður frá störfum sínum í
Súdan og Eþíópíu og les upp úr
nýútkominni bók sinni, Guðirnir
eru geggjaðir og Vilhjálmur
Þorsteinsson fiskifræðingur segir
frá störfum sínum við Karibavatn
í Zambíu og Zimbabwa. Að lokn-
um fræðsluerindum verða almenn-
ar umræður um starfsemi Brúar
í nútíð og framtíð. Fundurinn er
öllum opinn og er allt áhúgafólk
um þróunarlöndin hvatt til að
mæta.
(Fréttatilkynning)
H í FUNDARSAL Norræna
hússins verður sýnd norska kvik-
myndin „Reisen til julestjernen“.
Myndin er gerð eftir leikriti eftir
Sverre Brandt og segir frá
Gullintoppu prinsessu. Á jólanótt
lokkar greifinn, fændi hennar, sem
er grimmur og undirförull, hana
út í skóg að leita að jólastjöm-
unni. Drottningin og kóngurinn
leita dóttur sinnar árangurslaust
og það líða mörg ár áður en nokk-
uð ber til tíðinda. Leikstjóri er Ola
Soluni. Sýningartími er um ein
og hálf klukkustund. Aðgangur
er ókeypis og boðið er upp á
ávaxtasafa í hléi.
■ FYRSTU SKREFIN heitir
bók eftir Ragnheiði Gestsdóttur
sem er komin út hjá Máli og
menningu. Bókinni er ætlað að
geyma endurminningar frá fyrsta
ári bamsins og gefur höfundur
hugmyndir um hvaða merkisá-
fanga skuli skrásetja, en einnig
er svigrúm til að útfæra eigin
hugmyndir. Bókin sem er 70 síður
er öll litprentuð og var unnin í
Prentsmiðjunni Odda.