Morgunblaðið - 12.12.1991, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER <1991
41
ERLENT
Israelar og arabar:
f- * ar * ■w-7’ * Keuter
Þiða í Koreu
Eftir síðustu atburði í Sovétríkjunum og afvopnunarsamninga á þessu ári þykja auknar líkur á bættum
samskiptum Norður- og Suður-Kóreu. Hér sést Yon Hyong-nok, forsætisráðherra Norður-Kóreu (fyrir
miðju), í heimsókn í Seoul, höfuðborg Suður-Kóreu. Skoðaði hann meðal annars skemmtigarð í fylgd Kim
Woong-se starfsmanni garðsins (2. frá vinstri).
Deilur um forms-
atriði tefja fyrir
Washington. Reuter.
VIÐRÆÐURNAR um frið í Miðausturlöndum héldu áfram í Was-
hington í gær en dagurinn hjá Israelum, Jórdaníumönnum og
Palestínumönnum fór aðallega í deilur um hvort ræðast ætti við
í einu herbergi eða tveimur. Israelar og Sýrlendingar voru svo
aftur á öðrum fundi í bandaríska utanríkisráðuneytinu.
Viðræðurnar hófust aftur á
þriðjudag eftir fimm vikna hlé og
deilur um fundartíma og fundar-
stað og litlar líkur þykja á, að
tekið verði til við raunverulega
Atlantshafsflugleiðin:
samninga á næstunni. Jórdaníu-
menn og Palestínumenn vilja, að
sameiginlegri sendinefnd þeirra
verði skipt en á það vilja ísraelar
ekki fallast. Með því viðurkenndu
þeir í raun Palestínumenn sem
sérstakan samningsaðila og segj-
ast aðeins tilbúnir til að rðsða við
undirnefnd, sem Palestínumenn
hefðu meirihluta í. Jórdanir og
Palestínumenn segjast ætla að
biðja Bandaríkjamenn að skera úr
um þetta mál ef allt um þrýtur.
í viðræðum ísraela og Sýrlend-
inga sökuðu hvorir aðra um
ósveigjanleika en góður gangur
virtist í viðræðum Israela og Lí-
bana.
Stríðið í Króatíu:
Sjálfstæðisviðurkenning gæti
leitt til enn harðari bardaga
— segja eftirlitsmenn Evrópubandalagsins
Belgrad, Zagreb. Reuter, The Daily Telegraph.
BARDAGAR geisuðu enn víðs vegar um Króatíu í gær og útséð virt-
ist um að Sameinuðu þjóðirnar myndu senda friðargæslusveitir til
Júgóslavíu í bráð. Eftirlitsmenn Evrópubandalagsins (EB) sögðu að
viðurkenning á sjálfstæði Króatíu kynni að verða til þess að bardag-
arnir breiddust út til nágrannalýðveldisins Bosníu-Herzegovínu.
Þjóðvarðliðar Króatíu virtust í
gær vera að sækja í sig veðrið á
nokkrum vígstöðvum í lýðveldinu.
Sjónvarpið í Belgrad skýrði frá því
að herinn hefði hörfað frá bænum
Lipik í austurhluta lýðveldisins, sem
barist hefur verið um undanfarnar
vikur. Króatar segjast einnig hafa
náð á sitt vald þrettán þorpum í
grennd við bæinn.
Serbar og Króatar skiptust á
föngum á þriðjudag og einn króa-
tísku fanganna, læknirinn Vesna
Bosanak, sakaði Serba um alvarleg
brot á Helsinki-sáttmálanum um
meðferð stríðsfanga. „Það var farið
illa með fangana allan tímann,“
sagði hún. „Okkur var haldið í klef-
um sem ég hélt að væru aðeins til
í kvikmyndum um seinni heimssfytj-
öldina. Hinir særðu sættu illri með-
ferð og þegar ég mótmælti henni
var því ekkert sinnt.“
Cyrus Vance, sérlegur sendimað-
ur Sameinuðu þjóðanna, sagði í New
York að hann gæti ekki lagt til við
samtökin að þau sendu friðargæslu-
sveitir til Júgóslavíu fyrr en bardög-
unum linnti.
Utanríkisráðherrar Evrópuband-
alagsins koma saman á mánudag til
að ræða hvort viðurkenna eigi sjálf-
stæði Króatíu og nágrannalýðveldis-
ins Slóveníu. Þýska stjórnin hefur
sagt að hún hyggist viðurkenna
sjálfstæði þeirra fyrir jól. Ed Koest-
al, talsmaður eftirlitsmanna EB í
Júgóslavíu, sagði að slíkt myndi
kalla á hörð viðbrögð Serba og kynni
að leiða til enn harðari bardaga, sem
gætu gætu jafnvel breiðst út til
Bosníu-Herzegovínu.
Margir stjórnarerindrekar í
Belgrad eru sömu skoðunar. „Við-
urkenning leiðir til enn harðari bar-
daga og stríðið verður langvinnara,"
sagði einn þeirra. „Það gæti staðið
í tuttugu ár.“
Njósnastarfsemi KGB fyrir valda-
ránstilraunina í Moskvu:
1.500 manns njósnuðu
um forsetafjölskylduna
Flugfar á
hálfvirði
Flórída. Frá Atla Steinarssyni, fréttarit-
ara Morgunblaðsins.
MIKIL lækkun verður á flugfar-
gjöldum milli Bandarikjanna og
Evrópu í vetur. Þrjú stærstu flug-
félögin, American Airlines, Delta
og TWA hafa lækkað þessi far-
gjöld um 50% og brezka flugfélag-
ið Virgin Island segir sitt verð
alltaf verða einum dollar lægra
en hjá bandarísku flugfélögunum.
Eftir þessa lækkun er hægt að
fá farmiða fram og til baka frá
Boston til London fyrir 318 dollara
og frá Los Angeles til Parísar fyrir
478 dollara (fram og til baka).
Til að fá lægstu fargjöldin verður
að fljúga á mánudegi til fimmtu-
dags. Helgarfargjöld eru hærri.
Fyrri legginn verður að fljúga á
tímabilinu frá 7. janúar til 31. marz
en hinn síðari fyrir 7. apríl. Kaupa
verður farmiðana fyrir 15. janúar
og yfirleitt er ekki hægt að láta
kaupin ganga til baka eftir það.
Sérstök vetrarfargjöld eru ekki
óþekkt í flugrekstrinum, en þetta
er meiri lækkun en í boði hefur ver-
ið um margra ára skeið, og ber vitni
hinnar hörðu samkeppni í fluginu.
William Kennedy Smith:
Vitnaleiðslum og málflutn-
ingi í nauðgunarmáli lokið
Vestur Pálmaströnd, Flórída. Reuter.
VITNALEIÐSLUM og málflutn-
ingi í réttarhöldunum yfir Will-
iam Kennedy Smith lauk í gær
en liann er ákærður fyrir að
hafa nauðgað þrítugri konu á
grasflöt við bústað Kennedy-
fjölskyldunnar í mars sl.
I lokaræðu sinni hélt saksókn-
ari fram sekt Smiths, sagði að
hann hefði neytt konuna til sam-
ræðis og komið fram vilja sínum
þrátt fyrir mótspyrnu hennar.
Hvorki hefði verið um ástarleik
né kynlíf að ræða heldur ofbeldis-
verk.
Verjandi Smiths hélt fram sak-
leysi skjólstæðings síns og krafðist
sýknunar. Fullyrti hann að um
hreinan tilbúning væri að ræða,
vitnisburður og sönnunargögn
sem lögð hefðu verið fram við rétt-
arhöldin renndu ekki neinum stoð-
um undir nauðgunarákæruna. T.d.
væru áverkar á hinu meinta fórn-
arlambi augljóslega eldri en frá
Reuter'
Sakboniingurinn á leið í réttarsal ásamt móður sinni Jean Kennedy
Smith, systur, Kym, og fjölskylduvininum séra Charles O’Byrne.
nóttinni örlagaríku er þau William
Kennedy Smith hittust.
I lokaræðu sinni til kviðdóm-
enda sagði dómari að enginn vafi
mætti leika á sekt eða sakleysi
sakbornings, niðurstaða þeirra
yrði að vera algjörlega samhljóða
á hvorn veginn sem hún yrði.
SOVÉSKA leyniþjónustan KGB fól 1.500 starfsmönnum sínum
að fylgjast með ferðum og hlera samtöl Míkhaíls Gorbatsjovs
Sovétforseta og fjölskyldu hans fyrir valdaránstilraun sovéskra
harðlínukommúnista í ágúst. Þetta kom meðal annars fram við
yfirheyrslur sovéskrar nefndar, sem var skipuð til að rannsaka
valdaránstilraunina, að sögn breska dagblaðsins The Independent
KGB kom meðal annars fyrir
hlerunartækjum í hárgreiðslu-
stofu, sem eiginkona Gorbatsjovs,
Raísa, átti viðskipti við. Borís
Jeltsín, forseti Rússlands, fór ekki
heldur varhluta af njósnastarf-
seminni. Leyniþjónustan lét ekki
nægja að hlera samtöl dóttur
hans og tennisþjálfara, heldur
þótti henni ástæða til að koma
fyrir hlerunartækjum í eftirlætis
sánabaðstofu hans, að sögn so-
véska vikublaðsins Moskvu-
frétta.
Ennfremur kom fram við yfir-
heyrslurnar að þegar einn af
ráðgjöfum Gorbatsjovs, Alexand-
er Jakovlev, þurfti að ræða við
Oleg Kalúgín, umbótasinnaðan
hershöfðingja KGB, hefðu þeir
farið út á götu í Moskvu til að
geta rætt saman án þess að hafa
áhyggjur af hlerunartækjunum.
Það nægði þó ekki því hvorki
meira né minna en 72 KGB-menn
reyndust hafa fylgst með ferðum
þeirra og tekið allt samtal þeirra
upp.
Njósnastarfsemin fór fram all-
an sólarhringinn. Að sögn
Moskvu-frétta fundust upptökur
af því sem fram fór á nóttunum
í svefniherbergjum þeirra sem
leyniþjónustan lét fylgjast með.
Njósnunum linnti ekki heldur
þá þijá daga sem valdaránstil-
raunin stóð. Vladímír Kijútsjkov,
þáverandi yfirmaður KGB, færði
sig meira að segja upp á skaftið
og lét lilera samtöl samstarfs-
manna sinna í neyðarnefndinni,
sem var stofnuð í valdaráninu.
Kijútsjkov situr nú í fangelsi
ásamt sjö öðrum samsærismönn-
um og búist er við að réttarhöld-
in hefjist í janúar.
Rannsóknin leiddi ennfremur í
ljós að KGB réð því að miklu leyti
hvaða upplýsingar Gorbatsjov
fékk fyrir valdaránið. Rannsókn-
arnefndin fékk upplýsingar um
að af 3.900 starfsmönnum utan-
ríkisráðuneytisins hefðu 2.200
starfað á vegum KGB.
Þótt almennt sé álitið að
Krjútsjkov hafi verið leiðtogi sam-
særismannanna var það miðstjórn
kommúnistaflokksins sem gaf
fyrirmæli um svo viðamikið eftir-
lit með öllum forystumönnum
umbótaaflanna. Tvö eintök voru
af afrakstri njósnanna og mið-
stjórnin fékk annað en yfirstjórn
KGB hitt.