Morgunblaðið - 12.12.1991, Síða 46
MQRG.ymAPJD flWT.UPAÓUg J?- QIJSEMBER
á£
Lúsíuhátíð
Karlakórsins
LÚSÍUHÁTÍÐ Karlakórs Akur-
eyrar-Geysis verður haldin í Akur-
eyrarkirkju í kvöld, fimmtudags-
kvöldið 12. desember, og einnig
annað kvöld, föstudagskvöldið 13.
desember, og hefst kl. 20.30.
Stjórnandi er Roar Kvam.
Lúsíuhátíð hefur verið haldin á
vegum Karlakórs Akureyrar og nú
hin síðari ár Karlakórs Akureyrar-
Geysis um það bil tuttugu sinnum
frá árinu 1947. Á hátíðinni í kvöld
og annað kvöld verður Sólveig
Hjálmarsdóttir Lúsían og einsöng og
tvísöng annast Sólveig Hjálmarsdótt-
ir og Michael Jón Clarke. Aðalhndir-
ieikari kórsins er Richard Simm. Kór
Lundarskóla undir stjórn Elínborgar
Loftsdóttur verður gestur hátíðarinn-
ar og þemur Lúsíunnar eru stúlkur
úr Lundarskóla og Gagnfræðaskóla
Akureyrar.
----» ♦----
Kennarar for-
dæma tillögur
um skerðingu
í ÁLYKTUN frá fundi um kjarmál
kennara í Kennarasambandi ís-
lands, sem haldinn var í Lundar-
skóla á Akureyri fyrir skömmu
er þess krafist að fá nú þegar
samsvarandi launahækkun og aðr-
ir opinberir starfsmenn hafa feng-
ið á síðasta samningstímabili.
í ályktuninni segir ennfremur að
fundurinn fordæmi hugmyndir
samninganefndar ríkisins um skerð-
ingu á ýmsum félagslegum réttind-
um kennara. Þá styður fundurinn
alshugar kröfur Kennarasambands-
ins sem settar hafa verið fram af
fulltrúaráðinu, en þar kemur m.a.
fram að í komandi kjarasamningum
krefjast kennarar stórhækkunar
taxtalauna með tryggingu kaup-
máttar.
' m
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Þórdís Arnljótsdóttir leikari sýndi börnunum á Sunnubóli verkið Björt og jólasveinafjölskyldan í gær.
Björt ogjóla-
sveinafjölskyldan
Þórdís Arnljótsdóttir leikari hjá
Leikfélagi Akureyrar hefur heim-
sótt börn á dagheimilum, leikskól-
um og í yngstu bekkjum grunn-
skóla síðustu daga og flutt verkið
Björt og jólasveinafjölskyldan við
miklar vinsældir. „Þetta hefur ver-
ið óskaplega skemmtilegt, ætli ég
hafi ekki bara meira gaman af
þessu en börnin," sagði Þórdís, en
hún ætlar að sýna verkið 30 sinnum
á Akureyri nú fyrir jólin. Hún hef-
ur áður sýnt þetta verk í Reykjavík,
en samtals eru sýningarnar orðnar
um hundrað talsins.
Björt og jólasveinafjölskyldan
gerist í nutímanum, en er byggt á
gömlum kvæðum um Grýlu ogjóla-
sveinana og bregður hún sér í fjöl-
mörg gervi á sýningunni, tekur
fram bjúgu, skyr og aska svo eitt-
hvað sé nefnt. Börnin eru virkir
þátttakendur í sýningunni og
syngja m.a. nokkur lög með
Þórdísi.
Leikhús í tösku, en svo nefnir
Þórdís þetta litla leikhús sitt verður
á ferðinni á Amtsbókasafninu á
Akureyri á laugardaginn og verður
það eina opinbera sýningin á verk-
inu, en hún hefst kl. 14.
Slippstöðin hf.;
Þórunni Sveinsdóttur VE verður
breytt í frystiskip eftir áramót
Samið um verkefni fyrir Samherja
ÞÓRUNNI Sveinsdóttur VE
verður breytt í frystiskip í Slipp-
stöðinni á Ákureyri eftir áramót-
HEILSUGÆSLUSTÖÐIN Á AKUREYRI
Deildarstjóri
mæðradeildar
Staða deildarstjóra mæðradeildar er laus til umsóknar.
Staðan er veitt frá 1. febrúar nk.
Viðkomandi starfsmaður þarf að vera Ijósmóðir og gjarnan
með hjúkrunarfræðimenntun.
í starfinu felst dagleg stjórnun, almenn mæðraverndarstörf
og umsjón með námskeiðum fyrir verðandi foreldra.
I boði er ný og glæsileg vinnuaðstaða og spennandi þróunar-
verkefni. Góður starfsandi er á staðnum.
Umsóknarfrestur er til 31. desember 1991.
Nánari upplýsingar veitir hjúkrunarframkvæmdastjóri eða
deildarstjóri mæðradeildar í síma 96-22311 milli kl. 11 og
12 alla virka daga.
Akureyri
jVfiídð úrval jólatfafa:
Ibikirogspjí
tölvvr
in. Endanlega verið gengið frá
sölu á nýsmíðaskipinu B-70 til
Matthíasar Oskarssonar í Vest-
mannaeyjum og verður skipið
afhent fullbúið í lok febrúar
næstkomandi. Þá hefur Slipp-
stöðin samið um smiði vinnslu-
búnaðar fyrir eitt skip Samherja.
Jóhannes Óli Garðarsson fram-
leiðslustjóri hjá Slippstöðinni sagði
svo virtist sem nokkuð hefði lifnað
yfír á þessum vettvangi. „Við höf-
um nú fengið nokkur þokkalega
stór verkefni sem verða unnin eftir
áramótin. Á þeim tíma höfum við
síðustu ár verið með nýsmíðaverk-
efni í gangi eða önnur stærri til-
boðsverk, en það eru hin almennu
viðgerðarverkefni sem verið hafa í
lægð undanfarin ár. Með þ'essum
verkefnum fyllum við upp í göt sem
myndast oft á þessum tíma. Þetta
er skref í rétta átt,“ sagði Jóhannes
Óli. „Það má segja að við séum
kátari í þessari viku en þeirri síð-
ustu.“
Slippstöðin mun breyta Þórunni
Sveinsdóttur VE í frystiskip, en
skipið var smíðað í Slippstöðinni og
afhent eigendum, Ós hf. í Vest-
mannaeyjum síðastliðið vor. Frá a
þessum samningi var gengið nú ~
nýlega. Jóhannes Óli sagði að búist
væri að skipið kæmi norður í febrú-
ar og verkið tæki um sjö vikur, en
reiknað væri með að breytingum
ljúki í apríl. Skipta þarf um Ijósavél
í skipinu, koma fyrir frystibúnaði í
vélarrúmi og ganga frá vinnslubún-
aði og fleiru á vinnsludekki og gera
breytingar á íbúðum skipverja.
Gengið hefur verið endanlega frá
sölu á nýsmíðaskipinu svokallaða,
B-70 til Matthíasar Óskarssonar í
Vestmannaeyjum og er stefnt að
því að afhenda honum skipið full-
búið í lok febrúar á næsta ári. Á
milli 25-30 manns munu vinna við
skipið fram að þeim tíma, en eftir
er að smíða og setja upp vinnslu-
búnað, ganga frá frystiklefa fyrir
lest og vinnsludekk og ganga frá
tækjum í brú. Jóhannes Óli sagði
að stefnt væri að því að ljúka þess-
um verkum fyrir lok febrúar og
afhenda þá skipið fullbúið.
Nýlega var samið um nokkuð
stórt verk fyrir eitt skipa Samheija
hf. á Akureyri, en smíða á vinnslu-
búnað á millidekk í Víði EA. Um
er að ræða þriggja vikna verk, sem
reiknað er með að hafist verði
handa við fljótlega eftir áramót.
Nú er verið að vinna að almennu
viðhaldi Múlabergs ÓF í Slippstöð-
inni og Kolbeinsey ÞH frá Húsavík
var væntanleg í gærkvöld. Þá er
verið að skipta um ljósavél í Sólbak
EA og búist við að því verki verði
lokið fyrir jól.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Allrahanda, við opnunina í vikunni, en við það tækifæri var
gestum boðið að kynna sér starfsemina.
Gallerí Allrahanda
flutt í Grófargil
GALLERÍ Allrahanda hefur flutt slarfsemi sína í Grófargilið, þar
sem í framtíðinni verður miðstöð lista og menningar á Akureyri.
í gíilleriinu eru seldir listmunir af öllu tagi eftir listamenn af öllu
landinu, en það er nú til húsa í gamla mjólkursamlaginu fyrir miðju
gilinu.
Þórey Eyþórsdóttir, eigandi
Gallerís Allrahanda, sagðist vera
afar ánægð með að hefja starfsem-
ina í Grófargilinu, en hún verður
fyrst til að hefja þar þá starfsemi
sem þar mun verða í framtíðinni.
í Galleríi Allrahanda eru seldir
Þá stendur til að hefja kynningar
á verkum listamar.na eftir áramót-
in og verður efnt til lítilla sýninga
í galleríinu af því tilefni.
„Það er allt annað líf af vera hér
í Grófargili," sagði Þórey, en áður
var starfsemin í Brekkugötu.
listmunir eftir listafólk af landinu „Þetta er að fara í gang af fullum
öllu, m.a. skartgripir úr gulli, silfri, 1—*- -- ----* —
leðri, gleri, leir, pappír og steinum,
málverk og glermunir, munir úr
leir auk heimilisiðnaðar af ýmsu
tagi.
Fyrir síðustu jól seldi Þórey
muni fyrír yfir 60 aðila og sagði
hún að þeir yrðu ekki færri í ár.
krafti og ég er afar ánægð með
að hefja hér þessa starfsemi því
þetta er mjög góður staður."
Galleríið er opið frá kl. 13 til
18 alla virka daga, en í desember
verður það opið á sama tíma og
aðrar verslanir.