Morgunblaðið - 12.12.1991, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1991
55'
Hvað var gert fyrir söfnunarfé Hjálparstofnunar kirkjunnar?
ur
Fer inn á lang
flest
heimili landsins!
FRA ITALÍU
■ NÝ VERSLUN hefur opnað
við Óðinstorg, Parket og hurðir
sf. Eigendur segjast leggja áherslu
á vandað gegnheilt parket á góðu
verði. Harðviðurinn sem notaður
er í parketið er ættaður frá Afr-
íku, Suður-Ameríku og Ástralíu.
Nýjar harðviðartegundir eru á boð-
stólum sem ekki hafa verið fáan-
legar á íslandi. Eins og nafn versl-
unarinnar ber til kynna er einnig
hægt að fá hurðir, bæði' innihurðir
og útihurðir. Einnig eru seldir stig-
-ar eftir pöntunum. Eigendur eru
Ivar Atlason og Orri Wilbergs-
son.
Eigendur Parkets og hurða sf. í verslun sinni.
Verð kr.18.600,- stgr.
Verð kr. 14.700,- stgr.
Skatthol - bókaskápar -
skrifborð - hornskápar-
smáborð - kommóður -
stakir stólar.
Ármúla 8, símar 812275 og 685375.
Starfið hefur
skilað árangri
segir Jónas Þórisson framkvæmdastjóri
- Á þessu ári hefur Hjálparstofnun kirkjunnar varið alls um 30
milljónum króna til verkefna og er það talsvert meiri upphæð eu
nokkur síðustu árin. Við teljum að þessum fjármunum hafi verið
vel varið og með þeim hafi bæði tekist að bjarga mannslífum og
bæta kjör þeirra sem minnst mega sín í þeim löndum sem við
höfum starfað, segir Jónas Þórisson framkvæmdasljóri Hjálpar-
stofnunar kirkjunnar í samtali við Morgunblaðið.
Jónas Þórisson lýsir hér á eftir
nokkrum verkefnum Hjálparstofn-
unar og nefnir dæmi um árangurs-
ríkt starf stofnunarinnar. Hann
hefur á árinu fylgt starfinu eftir,
bæði sendingu vegna neyðarað-
stoðar í „rak og nýlega var hann
í Indlandi þar sem hann ræddi við
samstarfsaðila Hjálparstofnunar
og kynnti sér starfið.
Priscilla Njoroge sér um starf meðal kvenna í Nairobi.
Indland:
Námið bætir aðstöðu bamanna
Konum
hjálpað
í Kenýju
Síðustu tvö árin hefur Hjálpar-
stofnun styrkt starf meðal
kvenna í Nairobi í Kenýju og
verður svo einnig á næsta ári.
Þarna er um að ræða hjálp fyr-^
ir ungar konur og einstæðar
mæður til að koma undir sig
fótunum en sumar hverjar hafa
lent í ógöngum vegna áfengis-
og eiturlyfjaneyslu.
Aðstoðin felst í því að útvega
konunum húsaskjól og kennslu.
Einnig er rekstur barnaheimilis
styrktur. Konum þessum er kennd
einhvern handiðn, saumskapur eða
annað og þeim hjálpað við að koma
á fót framleiðslu á fatnaði og að
koma henni á markað. Priscilla
Njoroge veitir þessu starfi forstöðu
en hún hefur m.a. sótt nám til
Bandaríkjanna. Þá hefur hún einn-
ig tekið að sér fjölfötluð börn.
Svipuð starfsemi hefur einnig
verið kostuð í Afríkuríkinu Les-
hoto. Þar er áfengis- og eiturlyfja-
neysla vandamál eins og í mörgum
öðrum ríkjum Afríku. Samanlagð-
ur kostnaður við þesi verkefni var
á árinu um 1.200 þúsund krónur.
Verð kr. 29.600,- stgr.
Uppbyggingarstarfið sem við
kostum á Indlandi gengur mjög
vel og ég er mjög ánægður með
samstarfsaðila okkar þar. Eg leit
nyög gagnrýnum augum á allt
starfið og get fullyrt eftir þessa
heimsókn að þarna eru fjármunir
vel nýttir og hver krón a frá ís-
landi kemst til skila til hagsbóta
fyrir þá lægst settu á starfssvæð-
um okkar, segir Jónas Þórisson
eftir ferð sína til Indlands í síð-
asta mánuði. Samstarfsaðilar
Hjálparstofnunarinnar á Ind-
landi eru tveir, Social Action
Movement og United Christian
Church of India og starfa bæði
samtökin meðal hinna lægst
settu, landbúnaðarverkamanna
og svokallaðs þvottafólks.
Starf þessara samtaka fer fram
í suðurhluta landsins, ekki langt frá
Madras. Hjálparstofnun kirkjunnar
hóf að styrkja starfsemi þeirra fyr-
ir tveimur árum. Samtök þessi eru
styrkt á þann hátt að kostað er
framfæri og skólaganga barna og
haf a fjölmargir einstaklingar á
Islandi og nokkur fyrirtæki tekið
að sér fósturbörn. í ráði er að Hjálp-
arstofnunin kosti fleiri börn. Börnin
búa í heimavistum og eru sum
þeirra munaðarlaus en öll eiga það
sammerkt að vera frá fátækum og
barnmörg um fjölskyldum og geta
ekki stundað nám án stuðnings.
Einnig hefur verið styrkt framfæri
fjölfatlaðra barna sem Jónas segir
að sé litið niður á í Indlandi og að
þau séu álitin fyrir.
- Fósturbörnin eru dugleg og
yfirleitt heilsuhraust og fylgist
hjúkrunarkona með heilsufari
þeirra, segir Jónas. -Þau vita að
þau eru styrkt af fjölskyldum frá
Islandi enda hafa sumum börnunum
Hjálparstofnun sér um framfæri rúmlega 300 barna á Indlandi með stuðningi fósturforeldra á íslandi.
I ráði er að byggja heimavist fyrir börnin sem reist verður ofan á bygginguna vinstra megin á myndinni.
borist myndir og kveðjur héðan.
Heimavistarrými er e kki enn nægi-
leg stórt fyrir öll börnin og því hef-
ur verið farið fram á að Hjálpar-
stofnun fjármagni byggingu svefn-
rýmis. Þá vantar einnig aðstöðu til
að matast en í dag taka börnin
bara matinn hvert á sinn disk og
hreiðra um sig úti eða inni e ftir
atvikum og borða þar. Hjálparstofn-
un mun einnig aðstoða við að koma
upp þessari aðstöðu sem nýtist fóst-
urbörnunum á fleiri vegu.
Auk þess sem framkvæmdastjóri
Hjálparstofnunar ræddi við forráða-
menn samstarfsaðila sinna var
hann viðstaddur vígslu 40 manna
sjúkraskýlis sem safnað var til í
síðustu söfnun Hjálparstofnunar.
Hefur þegar verið ráðinn þangað
læknir og hjúkrunarlið og var það
nýlega tekið í notkun. Nokkurn
tækjabúnað vantað þó ennþá og
verður haldið áfram að aðstoða við
útvegun þeirra. En hver verður
framtíð þeirra barna sem nú eru
kostuð í grunnskólanám?
- Framtíð hinna lægst settu á
Indlandi er lítil í augum þeirra
sjálfra og í augum hinna sem eru
ofar í þjóðfélagsstiganum. Hindú-
isminn boðar að maður verði ævi-
langt á því þjóðfélagsstigi sem hann
er fæddur inn í. Það á að vissu leyti
við þessi börn en það að þau fá
tækifæri til náms breytir þó miklu.
Báðir þessir samstarfsaðilar okkar
eru að undirbúa kennslu í einhverj-
um verkmenntum sem börnunum
koma til góða. Dæmi um slíkt eru
smíðar, saumaskapur, vélaviðgerði
r og fleira og börn sem kunna eitt-
hvað slíkt fyrir sér hafa möguleika
á starfí. Þar með er hugsanlegt að
kjör þeirra verði önnur en þau að
lifa við örbirgð alla ævi því þeir
lægst settu í Indlandi eru vart ann-
að en matvinnungar.