Morgunblaðið - 12.12.1991, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1991
61
Minning:
Jenný Jónasdóttir
á börnum. Hún var dagmóðir til
margra ára og var eftirsótt til þess
starfa. Hvernig sem það mátti vera
þá voru börnin sem Gyða gætti
yfirleitt óvenju prúð og hældi hún
þeim ekki ósjaldan er þau bar á
góma í samræðum okkar. Hún
sagði þá að þetta eða hitt bamið
væri alveg einstaklega ljúft og
duglegt og átti hún augljóslega í
þeim hvert bein. Það hefur sannar-
lega verið gott veganesti sem hún
gaf dagbörnum sínum því þeir eru
ekki margir sem ég hef kynnst sem
bera jafnmikla virðingu fyrir börn-
um og Gyða gerði. Hún kom fram
við börn sem jafningja og það
fundu þau og mátu.
Ég og fjölskylda mín erum inni-
lega þakklát fyrir að hafa verið
svo lánsöm að hafa notið samvista
við Gyðu. Hún hefur kennt okkur
mikið um hver hin raunverulegu
gildi lífsins eru og hvemig má taka
því sem að höndum ber með æðru-
leysi og reisn. Þolgæði hennar var
aðdáunarvert. Sá eiginleiki birtist
ekki hvað síst síðustu mánuðina
er Gyða lá rúmföst, lengst af á
Grensásdeild Borgarspítalans, þar
sem hún naut góðrar umönnunar.
Síðasta samvemstund mín með
Gyðu var þegar hún kom nýverið
á heimili mitt í 70 ára afmæli
móður minnar, sitjandi í hjólastól
og dúðuð í teppi. Hún var innan
um fjölda gesta og naut kvöldsins
til fulls og vildi dvelja sem lengst
þótt veikburða væri. Gyða var mik-
il félagsvera og naut þess að vera
innan um fólk til hinstu stundar.
Kæri Benedikt, Ársæll, Frið-
gerður og Kristján. Við Sturla,
bömin og móðir mín biðjum góðan
guð að blessa ykkur og hugga svo
og fjölskyldur ykkar. Systkinum
Gyðu og öðmm ættingjum færi ég
innilegar samúðarkveðjur.
Minningin um Gyðu er björt og
fögur og mun lýsa okkur veginn
um ókomin ár. Blessuð sé minning
hennar.
Eyrún Gísladóttir
Fædd 19. ágúst 1904
Dáin 3. desember 1991
Elskuleg amma mín er dáin.
Minningin um yndislega konu lifír
áfram. Hjartahlýja, fómfysi og gjaf-
mildi er mér efst í huga er ég hugsa
til hennar.
Amma hafði yndi af ljóðum og
kunni hún þau mörg, einnig var hún
mikill náttúruunnandi og elskaði
landið sitt.
Það var alltaf notalegt að koma
til ömmu og hlusta á hana segja frá
eða fara með kvæði. Hún liafði
ákveðnar skoðanir á lífinu og tilver-
unni og var óhrædd við að láta þær
í ljós.
Við áttum margar góðar stundir
saman ég og amma og hjartfólgnar
eru mér æskuminningarnar þegar
ég fékk að gista hjá henni upp á
Vífilsstöðum þar sem hún starfaði
lengi. Ekki fannst mér það síður
spennandi þegar við fómm í bæinn
og löbbuðum niður Laugaveginn,
oftast í því skyni að skoða í búðar-
glugga en komum þó sjaldnast tóm-
hentar heim. Amma hafði alla tíð
unun af að gefa öðmm en vildi síður
þiggja neitt sjálf. Elsku ömmu á ég
margt að þakka. Með söknuði kveð
ég hana að sinni. Guð geymi hana.
Nú dýr er dagur liðinn
og draumsæl kemur nótt,
og fyrir næturfriðinn
vér færum þakkir hljótt.
Hans helgi kross, til hjálpar oss
er tákn í von og trú.
(Friðrik Friðriksson)
Jenný Níelsdóttir
Jenný fæddist í Hlíðarhaga í Saur-
bæjarhreppi í Eyjafirði, foreldrar
hennar voru Jónas Tómasson og
Ragnheiður Ámadóttir. Ragnheiður
var dugleg og myndarleg kona, en
hún var einstæð móðir með tvær
dætur, Kristínu Sigurðardóttur og
Jennýju.
Jenný var 8 ára þegar Ragnheiður
kom með hana í Æsustaði til Níels-
ar Sigurðarsonar og Sigurlínu Rósu
Sigtryggsdóttur og þar ólst Jenný
upp með Helgu Níelsdóttur, sem var
ári eldri. Þær bundust þeim vinar-
böndum, sem aldrei slitnuðu meðan
báðar lifðu. v
Jenný átti nokkur systkini, sam-
feðra, þau voru: Árni, Þórhallur,
Validmar, Sigurliði, Hermann, Hörð-
ur, Lilja, Jónína, Fanney og Ólöf.
Jenný hafði alltaf mjög gott sam-
band við systkini sín öll.
Hún var góð manneskja, sem vildi
alltaf hjálpa öðmm. Þess vegna fór
hún á Akureyrarspítala til þess að
læra hjúkrun og var þar í eitt og
hálft ár. En Jenný var ekki nógu
heilsusterk og varð að hætta námi.
Þá fór hún til Siglufjarðar til Jón-
ínu, systur minnar, og Sveins Frí-
mannssonar, sem þá var þar útgerð-
armaður. Að fá Jennýju til sín var
Fædd 20. febrúar 1922
Dáin 29. nóvember 1991
Elsku amma, Hrafnhildur Ásta
Jónsdóttir, er dáin. Hún er farin
og kemur aldrei aftur. Það er svo
erfitt að skilja dauðann en við trú-
um því að amma lifi hjá guði og
að við hittumst þar seinna. En
amma skildi eftir fjársjóð handa
okkur, allar góðu og fallegu minn-
ingamar um yndislega ömmu. Þær
munum við geyma og varðveita í
systur minni mikið lán, því hún var
mjög heilsutæp.
Jónína og Sveinn áttu tvö börn,
Svövu, fædda 1928, og Níels, fædd-
an 1929. Jónína kom heim með
Svövu í Æsustaði sumarið 1930, var
þá orðin fársjúk af berklum og dó
á Kristneshæli 4. janúar 1931.
Haustið 1930 kom Jenný svo með
Níels litla og það er óhætt að segja,
að hún reyndist litlu systkinunum
hjörtum okkar. Góður guð geymi
Hrefnu ömmu.
Hér áttu blómsveig
bundinn af elsku,
blíðri þökk
og blikandi tárum.
Hann fólnar ei
en fagur geymist
í hjörtum allra
ástvina þinna.
(Úr ljóðabók Höllu Loftsdóttur.)
Barnabörn
alltaf hin besta fóstra. Börnin ólust
svo upp-hjá afa sínum og ömmu og
Jenný var líka þeirra stoð og styrkur
meðan þau lifðu bæði. Hún sagði
oft við mig: „Mamma þín er falleg-
asta og gáfaðasta kona, sem ég hef
kynnst." Þær kunnu vel að meta
hvor aðra.
Jenný fór til Danmerkur 1946 og
vann á Vejlefjord Sanatorium, en
Svava var þar þá sér til hressingar.
Eftir að Jenný kom heim vann hún
við matreiðslu í mötuneytum og rak
sjálf mötuneyti á Akureyri og síð-
asti vinnustaður hennar var á Vífils-
stöðum, þar var hún aðstoðarráðs-
kona í meira en 15 ár.
Jenný var mjög ljóðelsk og fór
oft með ljóð eftir okkar bestu skáld,
en Davíð Stefánsson frá Fagraskógi
skipaði alltaf efsta sætið. Hún var
mjög rómantísk og sagði mér oft
ástarsögur, sem hún samdi sjálf
jafnóðum, og ég efa ekki, að hún
hefur átt sinn draumaprins, eins og
aðrar stúlkur, þó að hún giftist ekki
og talaði ekki um það. Jenný flíkaði
ekki tilfinningum sínum, en fórnaði
sér alltaf fyrir aðra. Við kveðjum
hana nú með innilegum þökkum fyr-
ir allt. Hvíli hún í friði.
Jónheiður Níelsdóttir frá Æsu-
stöðum og fjölskylda.
Hrafnhildur Á.
Jónsdóttir — Kveðja
HANDA HJÓLREIDAFÓLKl A ÖLLUM ALDRI 06 HRESSUM KRÖKKUM
WINTHER
þríhjólin sívinsælu
frá kr. 5.048,- stgr.
TURTLES hjálmar fyrir hjól og
sleða frá 2.690 stgr.
Snjóþotur
Barnahjól fráJAZZUSA,
MONTANA og
WINTHER frá kr.
11.732,-stgr
stýrissleðar
m/bremsum
frákr. 1.186,-stgr.
Barna- og fullorðinshjálmar
frá kr. 1.990,- stgr.
Ljósabúnaður frá kr. 550,-.
VISTALITE Blikkljós kr. 1.569,
Skautar
frá kr. 2.962,- stgr.
Svartir, hvítir
stærðir: 30—45.
BODY SCULPTURE þrekhjól
frá kr. 17.678,- stgr.
Þrekstigar frá
kr. 18.424.- stgr.
NOKIA
nagladekk
kr. 2.495,- stgr.
Fjallahjól frá USA
fyrir unglinga og
fullorðna
frákr. 21.900,- stgr.
HJÓLREIÐAFATNAÐUR
GORE-TEX úlpur
GORE-TEX buxur
THERMAL nærföt
POLAR-LITE peysur
SPECIALISED-skór
DARLEXX vetrar hanskar
POLAR-LITE eyrnaskjól A
o.fl. o.fl. já
SPECIALIZED
vetrardekk
frá kr. 1534,-
Tölvumælar frá kr. 2.450,-, lásar frá kr. 324,-, álbögglaberar kr. 2.039,-, standarar kr. 817,-, stýrirsendar kr. 1.980,-, bretti kr. 1.877,
✓TIGPk
— *eionjoiaversiun,n fcrv
ORNINNP'
SERVERZLUN I
YFIR 65 ÁR
RAÐGREIÐSLUR
PÓSTSENDUM