Morgunblaðið - 12.12.1991, Qupperneq 63
in. Einnig sótti hann sjó frá Patreks-
firði og jafnvel frá Reykjavík þegar
lítið var um vinnu á ísafirði. Um
1950 veiktist hann af asma og
hætti þá sjómennsku og var þá að
minnsta kosti eitt ár frá vinnu vegna
veikinda. Eftir það vann hann hjá
Norðurtanga hf. við fiskvinnu en tók
síðan við fiskbúð fyrirtækisins og
sá um hana til æviloka.
Jóna sinnti nær eingöngu heimili
sínu á vetrum meðan börnin voru á
skólaaldri, en greip tímabundið í
vinnu þegar hún bauðst. Á sumrin
stundaði hún ígripavinnu af ýmsu
tagi, þegar og ef hún fékkst. Eftir
1950 þegar börnin voru orðin stálp-
uð vann hún ýmsa vinnu, en þó
mest við fisk.
Þorgeir lést 30. desember 1967
nokkuð skyndilega en ekki óvænt,
þar sem hann hafði kennt alvarlegs
sjúkdóms í nokkur ár. Þá voru öll
börnin flutt til Reykjavíkur og urðu
við þetta mikil þáttaskil í lífi Jónu.
í hennar huga hefur sjálfsagt aldrei
komið annað en að hún myndi alla
tíð búa á ísafirði og bjó hún þar
' ein fyrstu árin eftir andlát Þorgeirs.
Síðan var hún nokkur ár að vetr-
inum í Reykjavík í íbúð sem þau
hjónin voru svo farsæl að festa sér
í sama húsi og dóttir þeirra bjój en
á sumrin var hún fyrir vestan. Árið
1974 flutti Jóna alfarin til Reykja-
víkur og bjó þar til dauðadágs. Það
urðu Jónu greinilega vonbrigði að
þurfa að flytja frá Isafírði, svo fast
var hún tengd sínu heimahéraði og
þar voru ættingjar, vinir og kunn-
ingjar. Aðsæður réðu því að ekki
þótti ráðlegt að hún byggi ein fyrir
vestan, hún var farin að reskjast
og líkamleg vanheilsa farin að segja
til sín. Þó að svo virtist sem hún
yndi hag sínum vel í Reykjavík
mátti þó af ýmsu ráða að hún sakn-
aði alltaf heimaslóða og hugsaði
mikið þangað.
Jóna hélt heimili fyrir sig í
Reykjavík og á köflum einnig fýrir
I
Það var einstaklega gaman að
hlusta á Björgu hvort sem fjallað
var um liðna tíð eða lífið og tilver-
Iuna á líðandi stundu. Frásagnar-
máti hennar var lifandi og skemmti-
legur. Minnistæðar eru sögur frá
Iþví að hún var ung kona í Borgar-
fírði og af þátttöku hennar í félags-
störfum. Sögur frá því hún var í
Iskíðadeild Í.K., hvernig þær kon-
urnar byggðu skíðaskála í Skála-
felli, fóru í glæfralegar skíðaferðir
og fleira.
Með árunum breyttust þessar
stundir okkar. Pönnukökurnar voru
að vísu á sínum stað en umræðuef-
nið fjölbreyttara. Björg hafði áhuga
á mörgu og fylgdist vel með því sem
var að gerast í þjóðfélaginu.
Hún hafði sérstakan áhuga á
dulspeki og draumum, eða því sem
maðuririn getur hvorki sannað né
afsannað.
Mínningarnar eru margar og er-
um við þakklátar fyrir þær. Fyrir
hönd fjölskyldna okkar þökkum við
Björgu allar yndislegu stundirnar.
| Minningin um góða konu lifir með-
al okkar.
g Og sé það tálvon ein um endurfund
þá ævisól í þagnardjúp er setzt,
ger tregann samt að engri óttastund,
| ástvinum sínum guð ljær væran blund,
" og vilji hann þeir sofi áfram, en það bezt.
(H.A.Huxley)
Kristín, Elín og Sólveig.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. DESEMBER 1991
63
syni sína á meðan kraftar entust.
Fljótlega eftir að hún flutti til
Reykjavíkur fóru hrörnunarsjúk-
dómar að gera vart við sig og voru
það fætur og heyrn sem fyrst gaf
sig. Hún hélt sig því mikið heima
og fór lítið nema í fylgd barna sinna.
Hins vegar var hún sjálfri sér nóg
og kvartaði aldrei um einveru eða
fámenni, en reyndi að finna sér eitt-
hvað við að vera og meðal annars
reyndi hún alla tíð að fylgjast með
því sem skeði „heima“, bæði í blöð-
um og útvarpi.
Það var heitasta ósk Jónu að fá
að vera heima í sinni íbúð svo lengi
sem hægt var, og var reynt að upp-
fylla þá ósk hennar með aðhlynn-
ingu aðstandenda og utanaðkom-
andi hjálpar eftir því sem aðstæður
leyfðu. Síðustu tvö árin sem hún
lifði var hún meira og minna bund-
in við rúmið og síðastliðið sumar
var svo komið að ekki var hægt að
veita henni alla nauðsynlega hjálp
heima og lagðist hún þá inn á öld-
runardeild Borgarspítalans þar sem
hún lá til hinstu stundar og naut
þar frábærrar aðhlynningar og alúð-
ar starfsfólksins og eru því færðar
bestu þakkir fyrir.
Nú er komið að því að haldið sé
heim aftur, þangað sem hugurinn
leitaði oft, í faðm fjalla blárra, þar
sem hún verður lögð við hlið Þor-
geirs í kirkjugarðinum á ísafírði.
Blessuð sé minning hennar.
Páll Lúðvíksson
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting-
ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á
2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu biaðsins í Hafn-
arstræti 85, Akureyri.
Athygli skai á því vakin, að greinar verða að berast með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að
berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tek-
in til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfílegt er að birta til-
vitnanir í ljóð, tvö erindi, eftir þekkt skáld, og skal þá höfundar
getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minning-
argreinar birtist undir fullu nafni höfundar.
SA\YO
Gefðu góðar gjafir
VHR 7100 EX SANYO myndbands-
tæki. HQ myndgæði. 365 daga
upptökuminni. Fljótþræðing aðeins 1
sek. þar til mynd er komin á skjáinn.
Sjálfleitari, tækið leitar að eyðu á
spólu. Monitortakki.
VHP Z3REE Fjölhæft myndbands-
tæki frá SANYO. Hægt er að spila
spólur bæði frá USA og Evrópu.
Sjálfvirkur hreinsibúnaður á
myndhaus.
mm-
MJ STGR.
VHR 7700 SANYO HiFi STERÍO
NICAM. Hágæða myndbandstæki í
sérflokki. Útgangur fyrir STERlO
heyrnartæki með styrkstilli. Sjálfleit-
ari. í þessu myndbandstæki eru
gerðar kröfur um hljómgæði.
CQ.660,-
%)j STGR.
CEP 2873N SANYO sjónvarp
28 tommu flatur skjár.
PIP (mynd f mynd). Lausir
hátalarar á hliðum. 78
aðgerðir með fullkominni
fjarstýringu. Textavarp
' H
DCX 500 SANYO hljómtækjasam-
stæða 2x60 W magnari. Tvöfalt
snældutæki. Geislaspilari. Útvarp
með 12 stöðva minni á FM.
Hálfsjálfvirkur plötuspilari. Fullkomin
fjarstýring Hátalarar 80 Watta (3 way).
CC.960/
STGR.
Heildsöludreifing
Gunnar Ásgeirsson hf.
Sími 626080
HELSTU SÖLUAÐILAB
REYKJAVÍK ..............Heimilistæki hf......Sætúni8
Fristund............Kringlan
Rafbúð Sambandsins ... Holtagörðum
AKRANES ................Skagaradlo
BORGARNES ..............Kaupfélag Borgfirðinga
HELLISANDUR.............Óttar Sveinbjörnsson
ÍSAFJÖRÐUR .............Póllinn hf.
SAUÐÁRKRÓKUR.........Rafsjá
ÓLAFSFJÖRDUR.........Valberg
AKUREYRI ............Radlonaust
VESTMANNAEYJAR.......Brimnes
SELFOSS..............Kf. Árnesinga
KEFLAVÍK ............Radlokjallannn
MERKISMENN HF.