Morgunblaðið - 11.03.1992, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MARZ 1992
Krislján Ragnarsson um kvóta Færeyinga:
Við höfum engar
heimildir að láta
„Mér líst illa á þetta því við höfðum gert okkur vonir um að
þessar heimildir Færeyinga yrðu með öllu afnumdar. Við höfum
engar heimildir að láta og erum með skip bundin við bryggju í
stórum stíl. Við erum mjög undrandi á því að lúðukvótinn er ekk-
ert skorinn niður hjá þeim. Þegar Færeyingar sömdu um fiskveiði-
heimildir hér við land við síðustu ríkisstjórn fengu þeir verulega
hækkun á lúðukvóta. Þá var sagt að það stæði í samhengi við það
að þeir veiddu ekki lax í sjó. Við sjáum þessa sömu laxveiðibáta
veiða lúðu hér uppi á íslandsmiðum," sagði Kristján Ragnarsson,
formaður LÍÚ, aðspurður um ákvörðunina að úthluta Færeyingum
kvóta.
„Veistu ekki um samninginn við
Orra Vigfússon?" sagði við mig
færeyskur þingmaður fyrir nokkr-
um dögum. Sportveiðimenn virð-
ast geta verslað með hagsmuni
íslenskrar útgerðar í gegnum ís-
lensk stjómvöld. Útgerðarmenn
borga fyrir það að þeir geti veitt
meira í ánum,“ sagði Kristján enn-
fremur.
Hann sagði að síldar- og makríl-
kvóti sá er íslendingum stæði til
Apple-skákmótið:
Jóhann og
Kotronias
skildujafnir
JÓHANN Hjartarson og
Kotronias eru enn efstir og jafn-
ir með 5Vi vinning á Apple-
skákmótinu eftir að hafa gert
jafntefli í 42 leikjum í 8. umferð
mótsins í gærkvöldi. Jóhann var
með svart og átti heldur í vök
að veijast en hélt jafntefli.
Sírov kemur næstur með 5 vinn-
inga en hann vann Plaskett eftir
að hafa fómað mönnum á báða
bóga. Hannes Hlífar Stefánsson
og Renet em með 4 Vi vinning.
Hannes gerði jafntefli við Jón L.
Árnason, sem er með 4 vinninga,
og Renet vann Cónquest, sem
einnig er með 4 vinninga, eftir að
Conquest missti tökin á skákinni
í miklu tímahraki.
Þá gerðu Helgi Ólafsson og
Margeir Pétursson jafntefli og
Karl Þorsteins og Þröstur Þór-
hallsson sömuleiðis. Helgi, Mar-
geir og Karl eru með 3 vinninga
og Þröstur með 2 vinninga.
Níunda umferð verður tefld í
skákheimilinu í Faxafeni í dag og
hefst klukkan 17.
Sjá skákþátt á bls. 34
boða af hálfu Færeyinga væri
einskis virði. „Þetta jafngildir
100-200 tonnum og í þessum veið-
um felst mikil áhætta. Við hrein-
lega veiðum þetta ekki, þetta er
bara bræðsluvara og ekki eftir-
sóknarvert fyrir okkur,“ sagði
Kristján.
Þorsteinn Pálsson, sjávarút-
vegsáðherra sagði að það hefði
aldrei verið tengt saman að Fær-
eyingar hættu laxveiðum í sjó við
ísland og héldu lúðuveiðiheimild-
um þar með.
„Þetta hefur aldrei verið tengt
saman, hins vegar geri ég ráð
fyrir því þegar kvótinn var ákveð-
inn á sínum tíma að heildar-
hagsmunir hafí verið hafðir í
huga,“ sagði Þorsteinn.
Hann sagði að sfldar- og makr-
ílkvótinn stæði mönnum einfald-
lega til boða en enginn yrði neydd-
ur til að sækja hann.
Morgunblaðið/Sverrir
Elinborg Siguijónsdóttir, starfsmaður Miklagarðs, heldur hér á einni af fyrstu íslensku gúrkunum
á markaðnum í ár.
Sölufélag garðyrkjumanna:
Islenskar gúrkur á markaðinn
FYRSTU íslensku gúrkumar á
árinu'voru seldar í Miklagarði
við Sund í gær. Um var að ræða
15-16 kassa af gúrkum en reikn-
að er með meira magni fyrir
helgi. Fyrir næstu mánaðamót
er búist við að eingöngu verði
íslenskar gúrkur i verslunum.
Kolbeinn Ágústsson, sölustjóri
hjá Sölufélagi garðyrkjumanna,
sagði að þegar væri komin ný
steinselja á markaðinn og von
væri á blaðsalati í næstu viku.
Uppúr því bætast fleiri tegundir
í hópinn og líklegt að fólk geti
keypt íslensjca tómata og paprikur
uppúr mánaðamótum.
Fyrstu gúrkurnar komu frá
Óttari Baldurssyni í Hveragerði,
Magnúsi Skúlasyni í Hveratúni í
Biskupstungum og Jakobi Helga-
syni í Gufuhlíð í Biskupstungum.
Heildsöluverð þeirra er 295 kr.
kg en í fyrra voru þær seldar á
330 kr. kg í heildsölu. Þess má
geta að þá komu fyrstu gúrkurnar
ekki fyrr en 24. mars. Alagningin
er misjöfn í búðum en búist er við
að verð lækki með auknu fram-
boði.
Formannaráðstefna BSRB:
Náið samstarf tekið upp
við önnur launþegasamtök
Fjármálaráðherra segir koma til greina að skoða breytingar á bótagreiðslum ríkisins
FORMANNARAÐSTEFNA
BSRB samþykkti í gær að
mynda samflot innan bandalags-
ins í kjaraviðræðunum og taka
upp náið samstarf við önnur
samtök launafólks. Ögmundur
Jónasson, formaður BSRB,
sagði að stefnt væri að sem víð-
tækastri samstöðu launafólks
um gerð lyarasamninga. Friðrik
Sophusson fjármálaráðherra
sagði í fyrirspurnatíma á Al-
þingi í gær að ekki stæði til af
hálfu ríkisstjórnarinnar að falla
frá skerðingu á bótum úr ríkis-
sjóði eða gera aðrar breytingar
sem kostuðu ríkissjóð fjármuni
vegna kjarasamninganna. Hins
vegar kæmi til greina að kanna
hvernig breytingar á sjómanna-
afslættinum kæmu út og skoða
hvort breyta mgetti kerfi barna-
bóta og ná sama árangri fyrir
ríkissjóð með öðrum hætti.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
sagði vegna fyrirspurnar á Alþingi
Bindiskylda bankanna
heldur uppi raunvöxtum
- segir Björn Björnsson, bankastjóri Islandsbanka
BJÖRN Björnsson, bankastjóri íslandsbanka, segir að bindiskylda
viðskiptabankanna hjá Seðlabankanum þjóni að hans mati ein-
göngu þeim tilgangi að halda uppi raunvöxtum á almennum útlán-
um bankakerfisins. „Þetta er að mínu mati orðin hálfgerð eftir-
legukind í peningakerfi okkar, vegna þess að við hliðina á binding-
unni sem tæki til þess að stýra fjármagni á markaðinn er komin
lausafjárkvöð, sem er miklu virkara tæki í því skyni heldur en
bindingin," sagði hann.
I Morgunblaðinu í gær var haft
eftir Birgi ísleifi Gunnarssyni
seðlabankastjóra að bindiskylda
innlánsstofnana hjá Seðlabankan-
um væri mjög mikilvægt tæki til
að hafa áhrif á útstreymi lánsfjár
og þar með jafnvægið á fjár-
magnsmarkaðnum, og hið bundna
fé væri mjög mikilvægt mótvægi
við gjaldeyrisvarasjóð Seðlabank-
ans. Þá hefði Seðlabankinn reynt
að stuðla að því að hér þróaðist
verðbréfamarkaður, sem bankinn
gæti tekið þátt í og á þann hátt
haft aukin áhrif á stjórn peninga-
mála, og ekki væri líklegt að
bankinn breytti afstöðu sinni til
bindiskyldunnar fyrr en sá mark-
aður hefði náð ákveðnum þroska.
Björn Bjömsson sagði að til
þess að halda í skefjum framboði
á lánsfé á markaðnum væru til
önnur tæki en bindiskyldan, sem
þá gæfu hlutaðeigandi stofnunum
færi á því að ávaxta laust fé með
eðlilegum hætti.
„Að því er varðar bindinguna
þá er því hins vegar ekki til að
dreifa, og þess vegna segi ég að
hún sé ekki annað en tæki til að
halda uppi raunvöxtum á almenn-
um útlánum bankakerfísins. Af
því að bindingin er þetta há og
vegna þess að Seðlabankinn
greiðir bönkunum einungis 2%
raunvexti á þetta fé á ári, er af-
Ieiðingin sú að raunvextir á öðrum
útlánum verða auðvitað að sama
skapi hærri. Við ákveðnar að-
stæður ítefnahagslífinu getur ver-
ið ástæða til þess arna, en í sam-
ræmi við þær umræður sem í dag
eiga sér stað í þjóðfélaginu skilur
maður hins vegar ekki hvers
vegna í þetta er haldið,“ sagði
hann.
í gær um aðgerðir ríkisstjórnarinn-
ar í tengslum við gerð kjarasamn-
inga að atbeini ríkisstjórnarinnar
myndi fylgja þeim tímapunkti að
kjarasamningar væru að takast.
Ögmundur sagði eftir for-
mannafundinn í gær að samtökin
myndu nú leita eftir náinni sam-
vinnu við samtök launþega á al-
menna markaðinum, Kennarasam-
band íslands og BHMR. Aðspurður
um sameiginlegar kröfur á borð
við kaupmátt, tryggingar og
samningslengd sagði Ögmundur
að samtökin vildu ræða það við
félögin áður en það yrði gert opin-
bert.
„Þegar við óskum eftir sam-
starfí erum við ekki með ófrávíkj-
anlegar kröfur," sagði Ögmundur.
Hann sagði að samningslengd
væri háð innihaldi samninga og
áherslumunur væri á milli samtak-
anna en þau mál yrðu rædd. „Menn
meta það meira að mynda breið-
fylkingu launafólks. Við höfum
orðið vitni að miklum niðurskurði
velferðarkerfisins að undanfömu
og í ljósi þess er eðlilegt að samtök
launafólks taki höndum saman,“
sagði Ögmundur.
„Það er fagnaðarefni fyrir okkur
að þeir hafa ákveðið að vera okkur
samhliða við þetta verkefni,“ sagði
Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ.
Hann sagði einnig að forystá ASÍ
myndi eiga fund með öðrum sam-
tökum í vikunni til að fara yfír
stöðuna. „Við settum okkur þá
viðmiðun að þetta færi hratt af
stað og höfðum hugsað okkur að
kalla saman formannafund í næstu
viku þar sem við værum komin
með einhverja efnisniðurstöðu f
viðræðum eða til að meta hvort
við þyrftum að fara að undirbúa
aðgerðir. Það er hins vegar aldrei
hægt að setja sér eindaga í
samningaviðræðum. Það verður að
fara eftir framvindunni,“ sagði
Ásmundur.
í dag er fyrirhugaður fundur
forystumanna BSRB og KÍ og
sagði Ögmundur að strax yrði ósk-
að eftir viðræðum við ríkisvaldið.
Þá munu forystumenn BSRB og
ASÍ hittast í hádeginu í dag.
Samninganefndir ASI og samtaka
vinnuveitenda koma saman kl. 16.
-------------»■♦ «------
Reykjavík:
Færri leysa
af í lögregl-
unni í sumar
Á ANNAÐ hundrað manns hafa
sótt um störf við afleysingar í
lögreglunni í Reykjavík á sumri
komanda. Vegna sparnaðar hjá
embættinu verða líklega aðeins
um 30 afleysingamenn ráðnir,»
stað 57 í fyrra.
Samkvæmt upplýsingum starfs-
mannahalds lögreglustjóraemb-
ættisins verður reynt að ráða það
fólk í sumar, sem áður hefur starf-
að við afleysingar. Flest er það
nemendur í Háskóla íslands og
algengast að það stundi nám í lög-
fræði, læknisfræði, guðfræði eða
sálfræði. í fyrra fengu 57 störf
við afleysingar, en líklega verða
aðeins ráðnir um 30 nú. Fjöldinn
skýrist á næstu dögum, þegar
fastráðnir lögreglumenn hafa
ákveðið hvenær þeir taka sér frí.