Morgunblaðið - 11.03.1992, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MARZ 1992
7
Morgunbladid/Kóbert Schmidt
Guðbjörg Benjamínsdóttir verkstjóri Fiskvinnslunnar á Bíldudal
hf. heldur hér á tveimur vænum steinbítum.
Bíldudalur:
Steinbíturmn kominn
Bíldudal.
VORBOÐINN ljúfi segja sumir
þegar steinbíturinn er farinn
að veiðast. Línubáturinn Geysir
BA frá Bildudal kom með 5
tonn af blönduðum steinbít ný-
lega í land en aflinn var bland-
aður þorski. Á sama tíma í
fyrra hófst steinbítsvertíðin á
fullu, en sjómenn kenna slæmu
tíðarfari um hve lítil veiði hefur
verið af sladdanum.
Vertíðin í fyrra stóð fram í
miðjan maí og voru unnin 1.000
tonn af steinbít, sem er það mesta
sem unnið hefur verið í Fisk-
vinnslunni á Bíldudal hf. Steinbít-
ur er utan kvóta. Hann er mest
allur sendur á Frakklandsmarkað.
Að sögn Tómasar Árdal yfirverk-
stjóra Fiskvinnslunnar hf. verða
fimm línubátar í viðskiptum við
fyrirtækið og vonast menn eftir
jafn góðri vertíð og var í fyrra.
- R. Schmidt.
Hefur dvalið 203 nætur í
fangaklefum lögreglunnar
ÚTIGANGSMAÐUR um sextugt
hefur dvalið 203 nætur í fanga-
geymslum lögreglunnar undan-
farin tvö ár. Ymist hefur maður-
inn verið handtekinn vegna ölv-
unar á almannafæri eða komið
og óskað sjálfur eftir gistingu í
fangageymslunni þar sem hann
ætti ekki í önnur hús að venda.
Maður þessi er, að sögn Axels
Kvaran, áfengisvarnafulltrúa
Framfærsluvísitala
hækkaði um 0,1%:
2% verð-
bólga síð-
ustu þijá
mánuði
Framfærsluvísitala marsmán-
aðar er 160,6 stig og er hún 0,1%
hærri en vísitala febrúarmánað-
ar. Undanfarna þrjá mánuði hef-
ur vísitalan hækkað um 0,5% og
samsvarar sú hækkun 2% verð-
bólgu á heilu ári en síðastliðna
12 mánuði hefur visitalan hækk-
að um 6,9%.
I frétt frá Hagstofu Islands kem-
ur fram að hækkun matvöru hafí
valdið ríflega 0,05% hækkun vísi-
tölunnar. Kostnaður við rekstur eig-
in bíls hafi aukist um 0,5%, sem
hækkað hafi vísitöluna um 0,07%
og verðhækkun á fötum hafí haft
í för með sér 0,02% hækkun fram-
færsluvísitölunnar.
Á móti vó og leiddi tii lækkunar
að fjármagnskostnaður lækkaði um
1,3% en það olli um 0,07% lækkun
framfærsluvísitölunnar.
Hafrannsóknastofnun:
Yenjulegt árferði í sjónum
VENJULEGT árferði var í hlýja
sjónum við landið og innstreymi
hans á norðurmið í líkingu við
það sem var í febrúar á síðasta
ári, samkvæmt niðurstöðum úr
sjórannsóknaleiðangri Bjarna
Sæmundssonar í síðasta
mánuði.
Helstu niðurstöður sýna að hlý-
sjórinn fyrir Suður- og Vesturlandi
var heldur undir meðallagi heitur
og saltur. Áhrifa hans gætti á
norðurmiðum allt austur að Siglu-
nesi eins og sl. vetur, sem er breyt-
ing til batnaðar frá árunum 1988-
1990, að því er segir í fréttatil-
kynningu frá Hafrannsóknastofn-
un. Þar segir ennfremur að skilin
Myndakvöld
hjá Ferða-
félaginu
FERÐAFÉLAG íslands verður í
kvöld með myndasýningu í Sókn-
arsalnum, Skipholti 50A, sem
hefst klukkan 20,30.
Þar mun Björn Hróarsson jarð-
fræðingur kynna í máli og myndum
næstu Árbók Ferðafélagsins, sem
von er á í maí. Sýndar verða m.a.
myndir frá Látraströnd. Fjörðum,
Flateyjardal og víðar.
Eftir hlé mun Sigrún Pálsdóttir
sýna myndir úr gönguyferð Ferða-
féiagsins um Jötunheima.
milli kald- og hlýsjávar hafi í vet-
ur verið langt undan fyrir norðan
og austan land og hvergi gætti
pólsjávar í efri lögum sjávar í
Austur-íslandsstraumi. Er það í
góðu samræmi við lítinn eða engan
hafís á miðunum við landið í vetur
og er svo að vænta áfram í vetur
og vor.
Síðastliðinn miðvikudag hófst
togararall Hafrannsóknastofnun-
ar, en alls taka fimm skip þátt í
því að þessu sinni, þ.e. Vest-
Iögreglunnar í Reykjavík, einn
úr hópi 5-10 útigangsmanna,
sem líkt er ástatt um og ekki
fást til að dvelja á þeim vistheim-
ilum í borginni og nágrenni, sem
hafa yfir um 260 rúmum að ráða
og er ætlað að hýsa fólk sem er
óvirkt í samfélaginu, oftast
vegna áfengissýki eða annarrar
vímuefnanotkunar og á hvergi
húsaskjól.
Þessar stofnanir eru vistheimilin
í Víðinesi, Gunnarsholti og Hlað-
gerðarkoti, en þau eru jafnan full-
setin vistmönnum, að sögn Axels.
Að auki eru til í borginni ýmis heim-
ili sem ætlað er að hýsa fólk í svip-
aðri aðstöðu um skemmri tíma, svo
sem gistiskýlið í Farsóttarhúsinu
við Þingholtsstræti. Sammerkt er
með öllum þessum stöðum að þang-
að fær fólk ekki að koma sjái á því
vín.
Maðurinn sem minnst var á að
framan hefur auk 203 nátta í
fangageymslum lögreglunnar frá
mars 1990 gist 104 sinnum í gisti-
skýlinu en frá því síðla á árinu
1989 hefur maðurinn fjórum sinn-
um dvalist á Víðinesi, mest í 22
daga, minnst í 4 daga og alls í
tæplega 40 daga.
Að sögn Axels Kvaran hafa fáir
mannanna í þessum hópi verið
sviptir sjálfræði enda þýðingarlítið
þar sem engar stofnanir hér á landi
hafi í raun úrræði til að halda mönn-
um nauðugum nema uin mjög
skamman tíma. Axel sagði að eins
og málum þessa litla hóps væri
komið væru fangageymslur lögregl-
unnar í raun gistiheimili fyrir þessa
menn og sagði hann að lögreglan
vildi gjarnan að yfirvöld gerðu
gangskör að því að taka á málum
þessara manna og finna þeim raun-
verulegan samastað í kerfinu.
mannaey VE 54, Ljósafell SU 70,
Bjartur NK 121, Rauðinúpur ÞH
160 og Arnar HU 1. Togað er á
um 600 stöðum allt í kringum
landið, að 500 metra dýptarlinu.
Verkefnið tengist að þessu sinni
ijölstofna rannsóknum með um-
fangsmikilli magasýnatöku. Fyrst
og fremst er þó verið að leita að
þeim árgöngum sem ekki hafa
skilað sér inn í veiðarnar. Alls eru
30 manns frá Hafrannsóknastofn-
un við þessi rannsóknastörf.
NÆSTU
HELGI:
HC^TEL ígJiAND
FÖSTUDAGS*DG
LAUGARDAGSKVÖLD
THE PLATTERS
Missið ekki af þessu einstaka tækifæri
til að sjá og heyra í hinum stórkostlegu
The Platters. Hver man ekki eftir lögum
eins og The Great Pretender, Only You,
Smoke Gets in Your Eyes, The Magic
Touch, Harbor Lights Enchanted, My
Prayer, Twilight Time, You'll never
Know, Red Sails in the Sunset,
Remember When.. o.fl.
Einnig: 14., 20., 21., 27. 0G 28. MARS 0G 3. og 4. APRÍL
Hljómsveitin
STJÓRNIN
er nú aftur komin á
sviöið á Hótel íslandi
og leikur fyrir dansi.
Sýningar á
heimsmælikvarða
á Hótel íslandi
HÚm fglAND
Miðasala og borðapantnanir í síma 687111
Verktakar - Vörubí Ist jórar!
BORCO T H A 1 L. E R S
ii l:, i i TOian nntuií
n
Tæknimaður frá BORCO vagnaverksmiðjunum
í Bandaríkjunum verður til viðtals dagana
17. - 20. mars næstkomandi.
Tryggið ykkur véla- eða malarvagn fyrir sumarið
á mjög hagstæðu verði.
Ráðgjöf - sala - þjónusta.
H
Skútuvogur 12A - Reykjavík - 8 812530