Morgunblaðið - 11.03.1992, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 11.03.1992, Blaðsíða 40
•SJÓVÁHlmLMENNAR Nýttuþér FORSKOTIBM RISC SYSTEM/6000 MORGUNBLADW, ADALSTRÆTl 6, 101 REYKJAVÍK SÍMl 691100. FAX 691181, RÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTllÆTl 85 MIÐVIKUDAGUR 11. MARZ 1992 VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR. Morgunblaðið/Rax Til lands með fullfermi Mjög góð loðnuveiði var í fyrrinótt og gærdag og var heildaraflinn .kominn upp í 530 þúsund lestir, þar af hafa um 475 þúsund lestir veiðst á vetrarvertíðinni. Mánudagsnóttina var mokveiði á Faxaflóa bæði suður af Snæfellsnesi og norður af Reykjanesi, en einnig veiddist á miðunum fyrir austan land og fjöldi loðnuskipa var í gærdag á sigl- ingu til hafna um allt land með fullfermi. Á myndinni sést Örn KE á leiðinni til Vestmannaeyja í gærmorgun með 740 tonn, sem hann fékk suður af Malarrifi. Mat Þjóðhagsstofnunar á sjávarútvegsfyrirtækjum: Gjaldþrot 12% fyrirtækja bætir afkomu liimia um 3% SH og Lýsi uppfylla stranga al- þjóðastaðla Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna og Lýsi hf. fengu í síðustu viku svokallaða vottun þess að fyrir- tækin uppfylltu stranga alþjóð- lega staðla. Friðrik Pálsson forstjóri SH sagði að vottun væri að ryðja sér hratt til rúms erlendis og í sumum tilfellum væri hún skilyrði fyrir viðskípta- samningum. Aukin samkeppni með opnun innri markaðar EB í byijun næsta árs ýtti á fyrirtæki að fá vott- un. Þá gerðu strangari reglur Evr- ápulandanna um skaðsemisábyrgð pað að verkum, að fyrirtæki í mat- vælaiðnaði vildu sýna fram á að þau hefðu gert allt til að tryggja að vara þeirra og þjónusta væri sem best. Ágúst Einarsson forstjóri Lýsis hf. sagði að fyrirtæki hans hefði orð- ið fyrir þrýstingi frá helstu viðskipta- vinum um að uppfylla þessa alþjóð- legu staðla. „Ég er sannfærður um að við hefðum misst umtalsverð við- skipti, ef við hefðum ekki hafist handa,“ sagði hann. Sjá viðtöl við Friðrik Pálsson ^►og Ágúst Einarsson á bls. 16. ----------»■-»-.».. Skógræktarfélagið: 600 ungl- ingar ráðn- ir í sumar BORGARRÁÐ hefur samþykkt tillögu atvinnumálanefndar um að heimila Skógræktarfélagi Reykjavíkur að ráða allt að 600 vj^ólanema til vinnu í 8 vikur í sumar. Til þessa verkefnis verð- ur veitt um 79 milljónum króna í aukafjárveitingu. Gert er ráð fyrir að Skógræktar- félagið miði undirbúning sumar- verkefna skólafólks við ráðningu 600 unglinga í stað 300 eins og fjárhagsáætlun miðaði við. Á fjár- hagsáætlun var gert ráð fyrir 88.032 millj. til sumarstarfa á veg- um félagsins en að viðbættri auka- fjárveitingu fara samtals 167 millj. til verkefnisins. niðurskurð, en Islendingar sjálfir, en raunin er að kvóti okkar er skor- ínn niður um nær 30%. Það er bót í máli að lúðukvótinn er óbreyttur, en þetta eru mikil vonbrigði," segir færeyski sjávarútvegsráðherrann John Petersen í samtali við Morgun- -teiðið í gær. „Kvótinn við ísland hefur haft ótrúlega mikla þýðingu fyrir skipin, SAMKVÆMT úttekt Þjóðhags- stofnunará 187 sjávarútvegsfyr- irtækjum sem eru með um 70% af veltu greinarinnar í heild eru 34 þeirra sem ekki uppfylla ákveðin skilyrði um eigið fé og svonefnda verga hlutdeild fjár- John Petersen. „Þar hafa verið 26 handfærabátar, 23 á línu og 12 bát- ar á lúðulínu. Mikii hluti tekna þeirra hefur komið af þessum veiðum og þessi afli hefur skapað mikla vinnu í landi. Nú er fyrirsjáanlegt að þar verður einhver breyting á,“ segir ráðherrann. Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegs- ráðherra, sagði að fram hefðu kom- ið kröfur um að afnema kvóta Fær- magns sem er það sem fyrirtæki skilar upp í fjármagnskostnað og afskriftir. Þjóðhagsstofnun kemst að þeirri niðurstöðu að ef 12% verst settu fyrirtækjanna í sjávarútvegi, sem skulda á bil- inu 12 til 13 milljarða króna, eyinga að fullu eða öllu eða skerða mjög verulega. „Ég taldi ekki rétt að verða við þeim óskum í ljósi þess að við viljum eiga gott samstarf við Færeyinga um fiskveiðimál. Á hinn bóginn er það líka ljóst að þessi mikli niðurskurður veldur Færeying- um miklum vonbrigðum en þeir höfðu vænst þess að niðurskurðurinn yrði ekki svo mikill. Að öllu athug- uðu tel ég þetta vera eðlilega niður- stöðu miðað við aðstæður," sagði sj ávarútvegsráðherra. Hann kvaðst vonast til þess að þessi ákvörðun hefði enga eftirmála í för með sér í samskiptum þjóð- anna. Ákvörðunin væri ekki í neinum tengslum við vjðskiptasamninga hætti rekstri og framleiðslu þeirra og veiðiheimildum verði dreift á þau sjávarútvegsfyrir- tæki sem eftir standa, batni af- koma greinarinnar í heild um allt að 3%. Þórður Friðjónsson forstjóri þjóðanna að öðru leyti og íslensk stjórnvöld hefðu aldrei blandað sam- an veiðiheimildum og viðskiptahags- munum. Helgi Már Reynisson, útgerðar- stjóri Ásgeirs Frímanns ÓF, segir að sjávarútvegsráðherra hafi látið Færeyinga plata sig. Útgerð Ásgeirs Frímanns hefur byggt afkomu sína á veiðum á lúðu og keilu eins og Færeyingarnir, en Helgi segir að ekki sé rúm fyrir báðar þjóðirnar á þessum veiðum. „Með þessu er verið að hrekja okkur út úr eigin land- helgi“ segir Helgi Már. Sjá jafnframt, frétt á bls. 2 og á bls. B5 Þjóðhagsstofnunar segir í samtali við Morgunblaðið að verst stöddu fyrirtækin dreifist nokkuð um land- ið, en þó komi þetta misjafnlega niður eftir svæðum. „Grundvallar- atriðið til þess að ná fram hagræð- ingu er að draga úr afkastagetu greinarinnar og því fylgir óhjá- kvæmilega að lakast settu fyrir- tækin hætti rekstri,“ segir Þórður. Þórður segir að á þessu stigi sé ekki hægt að geta sér til um það hversu mikið þeirra 12 til 13 millj- arða sem lakast settu fyrirtækin skulda glatist viðkomandi lána- stofnunum, verði þau gerð gjald- þrota. Slíkt færi eftir því hversu vel eignir fyrirtækjanna standa undir skuldbindingum. „Það er ekkert vafamál að í hag- ræðingu af þessu tagi fælist geysi- legt umrót og rask, en það er erf- itt að sjá hvernig hægt er að ná hagræðingu í sjávarútvegi, án skipulagsbreytinga af þessu tagi,“ segir Þórður. Þórður telur að með skipulags- breytingum í gengismálum í þá veru að markaðstengja gengis- skráningu krónunnar megi í raun koma í veg fyrir að endurgjald fyr- ir veiðileyfi jafngildi skattlagningu á sjávarútveginn. Hann telur að slík breyting geti átt sér stað í áföngum á nokkrum árum. Sjá viðtal við Þórð Friðjónsson á miðopnu. Fiskveiðiheimildir Færeyinga hér við land skertar um 28% Þetta eru okkur mikil vonbrigði, segir sjávarútvegsráðherra Færeyja FISKVEIÐIKVÓTI Færeyinga hér við land verður skertur um 2.500 lestir á yfirstandandi fiskveiðiári, úr 9.000 lestum i 6.500 lestir, eða um tæp 28%. Þorskkvóti þeirra verður 1.000 lestir í stað 1.500 lesta og lúðukvóti þeirra verður 450 tonn. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- ráðherra segir þessa skerðingu óhjákvæmilega miðað við núverandi aðstæður. -a..Við höfðum vonazt til að við pyrftum ekki að taka á okkur meiri sem veiða þar og fólk í landi,“ segir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.