Morgunblaðið - 11.03.1992, Page 17

Morgunblaðið - 11.03.1992, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MARZ 1992 17 Morgunblaðið/Sverrir. Starfsmenn afmælisnefndar. Frá vinstri eru: Agúst Agústsson, starfs- maður Reykjavíkurhafnar, Guðmundur Hallvarðsson, alþingismaður, Sigurður Rúnar Magnússon, sem sæti á í hafnarstjórn fyrir Nýjan vettvang, Hannes Valdimarsson, hafnarstjóri og Vignir Albertsson, starfsmaður Reykjavíkurhafnar. 75 ára afmælis Reykjavíkur- hafnar minnst ÞESS VERÐUR minnst á þessu ári að 75 ár eru frá því að hafnaryf- irvöld í Reykjavík tóku formlega við stórskipabryggjum og öðrum hafnarmannvirkjum frá verktökum. Opnuð verður sögusýning í Hafnarhúsinu á afmælisárinu og efnt til siglingakeppni frá Reykja- vík til Akraness á miðju sumri. í tilefni af þessum tímamótum fór eimreiðin Minor, sem notuð var við gerð hafnarmannvirkjanna 1913- 1917, frá grjótnáminu í Öskjuhlíð um borgina og lauk för sinni á Granda. Hafnargerðin var stórfram- kvæmd og var samanlagður kostn- aður við hana rúmar 2 milljónir króna. Þá voru samanlagðar tekjur bæjarsjóðs um 2,2 milljónir kr. Með hafnarframkvæmdunum var lagður grunnur að nútíma verkmenningu Islendinga í mannvirkjagerð með aðstoð stórvirkra þungavinnuvéla. Með tilkomu nýju hafnarmannvirkj- anna urðu stórstígar framfarir í flutningum og sjávarútvegi, auk þess sem hafnarframkvæmdin blés lífi í innlendar framkvæmdir. Á 75 ára afmælinu verður borg- arbúum og landsmönnum öllum gefinn kostur á að kynna sér starf- semi Reykjavíkurhafnar og hafa hafnaryfirvöld þegar samþykkt drög að dagskrá þar að lútandi. Á sjómannadaginn verður opnuð sög- usýning á annarri hæð Hafnarhúss- ins, þar sem rakin verður bygging- arsaga hafnarinnar og skyggnst inn í framtíð hennar. Fjöldi minjagripa verður til sýnis, þar á meðal eim- reiðin á Miðbakka. Útbúið verður gönguleiðakort fyrir Reykjavík- urhöfn þar sem merktar verða gönguleiðir og getið helstu kenni- leita og auglýstar verða gönguferð- ir. Ráðgert er að efna til hafnar- daga með auglýstri hátiðardagskrá, gefa út afmælisfréttabréf, efna til kynnisferða um höfnina fyrir al- menning þar sem skoðuð verða hafnarmannvirki og atvinnustarf- semi við höfnina. Efnt verður til siglingakeppni frá Reykjavík til Akraness á miðju sumri. Aðalstöðin: Hlustendur velja full- trúa í útvarpsráð Á stjórnarfundi Utvarps Rcykjavíkur hf. sl. miðvikudag, var sam- þykkt að gefa hluslendum Aðalstöðvarinnar tækifæri til að tilnefna fulltrúa í útvarpsráð stöðvarinnar. I útvarpsráði koma til með að eiga sæti 13 aðalfulltrúar og 26 varamenn. „Útvarp Reykjavík hf. vill með þessu gefa öllum velunnurum Aðal- stöðvarinnar tækifæri til að taka þátt í mótum menningarlegrar dag- skrár við hæfi hlustenda hennar,“ segir Margrét Björnsdóttir, stjórnar- formaður Útvarps Reykjavíkur hf. Margrét segir að skipun útvarpsráðs Útvarps Reykjavíkur hf. sé í beinu framhaldi af óskum fjölmargra hiust- enda Aðalstöðvarinnar, sem hafi að undanförnu haft samband við stjórn- endur stöðvarinnar og komið á fram- færi ýmsum gagnlegum hugmyndum um dagskrá og rekstur Aðalstöðvar- innar. „Hugmyndin um útvarpsráð er ekki ný af nálinni, en stjórnendum Aðalstöðvarinnar finnst að rödd hins almenna útvarpshlustanda fái ekki að njóta sín í sambandi við útvarps- og sjónvarpsrekstur fyrr en skipað verður ópólitískt og óháð ráð, sem hafi ótakmörkuð tækifæri til þess að gera tillögur og bera fram hug- myndir þeirra sem hlusta. Á þetta jafnt við talað orð sem tónlist," seg- ir Baldvin Jónsson útvarpsstjóri. Þeir sem hafa hug á að koma á framfæri tilnefningum í útvarpsráð Útvarps Reykjavíkur hf. geta haft að hafa samband bréflega eða sím- leiðis við Aðalstöðina, Aðalstræti 16, fyrir næstkomandi mánaðamót. Formenn Verkamannasambandsins og Dagsbrúnar: Fiskvinnsludeildin fjalli um vaktavinnu- kerfi fyrir frystihús BJÖRN Grétar Sveinsson formaður Verkamannasambandsins og Guðmundur J. Guðmundsson formaður Dagsbrúnar eru sammála um að fiskvinnsludeild Verkamannasambandsins eigi að fjalla um hvort taka á upp vaktavinnukerfi í frystihúsum. Finnbogi Baldvins- son framkvæmdastjóri Söltunarfélags Dalvíkur sagði í frétt í Morgun- blaðinu siðastliðinn þriðjudag, að verkalýðsfélögin stæðu í vegi fyr- ir aukinni atvinnu og stuðluðu að enn frekari flutningi vinnslunnar úr landi. Björn Snæbjörnsson varaformaður Verkalýðsfélagsins Ein- ingar sagði, að ineð vaktavinnukerfi væri farið fram á lægri laun auk þess sem óeðlilegt væri að semja sérstaklega um vaktir í einu frystihúsi. Björn Grétar Sveinsson sagði, að hugmynd um vaktakerfi hefði kom- ið upp þegar frystitogari var keypt- ur til Akraness. Reynt væri að koma sökinni yfir á verkalýðshreyfinguna og ætlast til að samið yrði ódýrt um vaktavinnu í frystihúsum. „Ég bendi þessum ágætu mönnum á að skoða hlutfall kostnaðar í fyrirtækj- unum og ég hefði gaman af að heyra hver hlutur fjármagnskostn- aðar var af útflutningsverðmæti í samanburði við launakostnað," sagði hann. „Þeir eru æpandi á torgum núna en þeir komast ekki áfram með öskrum. Við getum skoðað þessi mál eins og önnur. Það hefur verið rætt um það innan fiskvinnsludeildar Verkamanna- sambandsins að gerður verði rammasamningur um vaktavinnu og ég veit ekki betur en að formað- ur deildarinnar hafi tekið jákvætt undir það.“ Guðmundur J. Guðmundsson sagði, að vaktir hefðu ekki tíðkast í fiskvinnslu til þessa að undanskild- um beinamjölsverksmiðjum. Enginn hefði sýnt vaktsamningum áhuga í frystihúsum. „Fiskvinnslufólk er óánægt og eðlilegast að fiskvinnslu- deild Verkamannasambandsins taki málið til umfjöllunar,“ sagði Guð- mundur. „Vaktir hafa oft verið í fræðilegri umræðu um sjávarútveg- inn og menn hafa sýnt fram á betri nýtingu í frystihúsunum með þessu. Það er nú oftar að það vantar hrá- efni en hitt og þetta verður torleyst fyrir eitt byggðarlag að semja um. Ég held að þeir verði að taka þetta upp á breiðari grundvelli." Guðmundur benti á að vakta- vinna hefði mikla röskun í för með sér. „Á meðan aflinn var mikill höfðu þeir engan áhuga á þessu, en nú blossar hann upp,“ sagði Guðmundur. „Fólk er dálítið hvekkt á þessu, því er skúbbað burt þegar ekki er vinna en í öðrum iðngreinum er vinnan jafnari og öruggari." Vegagerð ríkisins: Nítján tilboð bárust í 800 metravegargerð TILBOÐ voru opnuð hjá Vegagerð ríkisins í gær í vinnu við 800 metra kafla á Eyjafjarðarbraut eystri um Þverá en því verki skal vera lokið fyrir 1. júlí í sumar. 19 tilboð bárust og var eitt þeirra yfir kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar, sem nam tæpum 10,4 milljón- um króna. Lægsta tilboðið átti Árni Helgason, Olafsfirði, sein bauð 5,72 milljónir króna í verkið en það er um 55% af kostnaðaráætlun. Næstlægsta tilboð átti Borgarfell hf, og hljóðaði það upp á 5,77 millj- ónir króna, Akurverk á Akureyri bauð 6,4 milljónir króna og Guð- mundur Erlendsson bauð um 6,6 milljónir króna. ....... Flestallir þeirra 19 sem skiluðu tilboðum eru starfandi á Norður- landi en tvö hæstu tilboðin, 10,2 milljónir og 10,9 milljónir komu frá aðilum í Hafnarfirði og Garðabæ. SjáKsftæðar hillur eðaheilar samslæður Níðsterkarog hentugar stálhillur. Auðveld uppsetning. Margarog stillanlegar stærðir. Hentar nánast allsstaðar. Ávallt fyrirliggjandi. Leitið upplýsinga UMBOÐS OG HEILDVEfíSL UN BÍLDSHÖFÐA 16 SIMI 6724 44 Metal Polish Undraefni á ryðfrítt stál! ÁRVÍK ARMÚLM • REYKJAVlK • SlMI 687222 • TELEFAX 687295 0 ■o CATERPILLAR ★ ★★★★★★ ★ ★★★★★★TO, SkL m !. 3★★★★★★★ 0 Stjórnendur og eigendur CATERPILLAR vinnuvéla Góðar flísar á góðu verði - / Íiliv iS^ul Stórhöfða 17, við Gullinbrú, sími 67 48 44 s Verið er að stofna Félag stjórnenda og eigenda Caterpillar vinnuvéla. Markmið félagsins er að miðla fróðleik um Caterpillar vinnuvélar og notkun þeirra. Félagið er opið eigendum og tækjastjórum sem hafa átt, eða unnið á Caterpillar vinnuvélum. Stofnfundur verður haldinn í lok mars. Þeir sem hafa áhuga á að gerast stofnfélagar eru vinsamlegast beðnir að skrá sig hjá véladeild Heklu í síma 695726 fyrir mánudaginn 16. mars. -—mmmmmmm—mmmmmmm—mmmmmmmmmm—^^mmmmmmmmmmmmmm—S 0 HEKLA LAUGAVEGI 174 SÍMI 695500

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.