Morgunblaðið - 11.03.1992, Síða 18

Morgunblaðið - 11.03.1992, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDÁGUR 11. MARZ 1992 Frambjóðendur í forkosningunum í Bandaríkjunum; Boða fimm leiðir til að bæta Bandaríkin The Daily Telegrraph. FORKOSNINGAR Repúblíkanaflokksins og Demókrataflokksins vegna forsetakosninganna í nóvember fóru fram í ellefu ríkjum Bandaríkjanna í gær, þar af sjö Suðurríkjum. Þrír menn beijast um tilnefningu sem forsetaefni Demókrataflokksins, Bill Clinton, ríkisstjóri Arkansas, Paul Tsongas, fyrrum öldungadeildarþing- maður frá Massachussets og Jerry Brown, fyrrum ríkissljóri í Kalifomíu. Þá sækist George Bush Bandaríkjaforseti eftir endur- kjöri en íhaldsmaðurinn Pat Buchanan, sem starfaði um skeið sem ráðgjafi í stjórnartíð Reagans og er þekktur dálkahöfundur og sjónvarpsmaður, hefur boðið sig fram gegn forsetanum og niðurlægt hann, m.a. í forkosningum í Georgíu og New Hamps- hire, með því að fá hátt í fjörutíu prósent atkvæða. Allir frambjóðendurnir eru sammála um að Bandaríkin eigi í ákveðnum erfiðleikum þessa stundina og nefna þá til efna- hagssamdrátt, gífurlegan fjár- lagahalla, aukna glæpatíðni, hnignun í menntakerfinu, of dýrt velferðarkerfi og að milljónir Bandaríkjamanna njóti ekki nægilegra sjúkratrygginga. Virðist sem kosningabaráttan muni þróast út í umræðu um bandarískt efnahagslíf og hver sé rétta lausnin við að koma því á réttan kjöl á ný, skattalækkan- ir eða aukin ríkisútgjöld eða ein- hver blanda af báðu. Fer hér á eftir stutt yfirlit yfír helstu fram- bjóðendur og einkenni þeirra: George Bush hefur gegnt forsetaembætti síðan 1989 og á hann fjögur börn með eiginkonu sinni Barböru, sem samkvæmt skoðanakönnunum er mun vin- sælli en hann. Hann er sveigjan- legur í stefnu sinni og leggur áherslu á „varkámi“ en er þó talinn reiðubúinn að gera hvað sem er til að ná endurkjöri. Bush leggur áherslu á skattaafslátt handa þeim sem eru að koma sér upp húsnæði í fyrsta sinn og að skattar verði lækkaðir af fjár- magnstekjum til að vinna á kreppunni. Honum hefur ekki tekist að koma þessum aðgerð- um í gegnum þingið. Helsti veik- leiki forsetans er talinn vera að hann sveik loforð sitt um að hækka ekki skatta og honum er kennt um slæmt ástand efna- hagsmála. Pat Buchanan er 53 ára gam- all, kvæntur fyrrum starfsmanni Hvíta hússins og er barnlaus. Hann ólst upp í Washington og hlaut mjög stranga kaþólska skólagöngu. Ungur maður var hann hálfgerður „vandræðaungl- ingur“ og var eitt sinn handtek- inn fyrir árás á lögreglumann. Erkiíhaldsmaðurinn Buchanan þykir einangrunarsinni og leggur áherslu á að hagsmunir Banda- ríkjanna verði settir ofar öðru við stefnumótun og gamaldags sjálfsþurftarbúskap. Hann vill skera niður velferðarkerfið og afnema „kvóta“ vegna kynþátta. Mesti veikleiki Buchanans er hversu öfgakenndur stjórnmála- maður hann er og einnig þykir hann hallur undir kynþáttahatur og gyðingahatur. Jerry Brown er 43 ára lög- fræðingur, ókvæntur, og er nú í framboði í þriðja skipti. Hann var ríkisstjóri Kaliforníu í tvö kjörtimabil en tapaði kosningum er hann bauð sig fram til öldungadeildarinnar. í kjölfar þess rannsakaði hann Búddisma í sex ár í Japan og á Indlandi og vann einnig störf fyrir móður Teresu. Hann segir of mikla pen- inga í stjórnmálum vera undirrót alls hins illa, vill afnema flesta skatta með 13% flötum skatti og setja einkatölvu á borð hvers skólanemanda. Honum er helst fundið það til ama að vera sérvit- ur, skorta kímnigáfu og tala of mikið. Bill Clinton er 45 ára gamall og kvæntur lögfræðingi. Þau Reuter Paul Tsongas, frambjóðandi í forkosningum demókrata vegna forsetakosninganna í nóvember. eiga eina dóttur saman. Clinton nam við Oxford og Yale og varð yngsti ríkisstjóri Bandaríkjanna þegar hann náði kjöri í Arkansas 32 ár gamall. Hann er babtisti og stjórnmálaskoðanir hans eru taldar hófsamar. Clinton leggur áherslu á að lækka skatta „milli- stéttarinnar“ og hækka skatta „hinna ríku“. Hann vill heildar- stefnu á vegum ríkisins til að auka atvinnu. Clinton hefur átt í erfiðleikum vegna ásakana um framhjáhald og að hafa komið sér undan herþjónustu í Viet- namstríðinu. Hann getur einnig verið leiðinlegur ræðumaður. Paul Tsongas er 51 ára lög- fræðingur kvæntur lögfræðingi og þriggja bama faðir. Hann nam við Yale og var öldunga- deildarþingmaður á árunum 1979-1985 en þurfti að hætta því starfi vegna krabbameins- meðferðar. Hann er af grískum hættum og skilgreindur sem „fijálslyndur" en „vinveittur við- skiptalífinu“. Tsongas leggur áherslu á víðtæka stefnu til að endurlífga bandarískt efnahags- líf sem byggist á því að ríkið veiti framleiðslugreinunum að- stoð. Hann er „íhaldssamur" að vissu leyti, t.d. fylgjandi dauðar- efsingu, en „ftjálslyndur" í mál- um á borð við fóstureyðingar og réttindi minnihlutahópa. Helsti ókostur Tsongas er talinn vera áberandi skortur á persónu- töfrum. Hann virðist einnig veik- burða og menn spyija sig spurn- inga um heilsu hans. Þá hefur Demókrataflokkurinn ekki góða reynslu af því að bjóða fram Grikkja frá Massachussets. ■ KAUPMANNAHOFN - Búlgarski rithöfundurinn og blaðamaðurinn Georgi Markov, sem lést í London árið 1978 af völd- um stungu með eitruðum regnhlíf- arbroddi, hafði áður sætt tveimur úthugsuðum morðtilraunum af hálfu sovésku öryggislögreglunnar, KGB, að því er segir í danska blað- inu Jyllands Posten nýlega. Oleg Kalugin, fyrrum hershöfðingi hjá KGB, viðurkenndi fyrir skömmu við yfirheyrslu í Sofía, höfuðborg Búlg- aríu, að tilraun- irnar hefðu bara ekki verið nógu úthugsaðar. Hann sagði að Markov, sem vann við þýðingar fyrir BBC vegna útvarpssendinga til Búlgaríu, hefði eitt sinn verið byrlað eitur í vín- glasi, þegar hann Georgi Markov var staddur í Þýskalandi, en það hefði ekki te- kist. Þess vegna hefði útsendari KGB elt Markov til Miðjarðarhafs- ins, þar sem hann var í orlofi, í því skyni að bera á hann eitraða sólar- olíu. Þegar sú aðförin misheppnað- ist var gripið til regnhlífabragðsins. Fyrir tilræðin við Markov hafði KGB gert tilraunir með drápsað- ferðimar á dauðadæmdum föngum á „12. tilraunastofu til þróunar sér- vopna og eiturs“. Ráðstefna Evrópubandalagsins Hótel Saga 13. mars 1992 NÝSKIPAN MÁLA í EVRÓPU - í FRAMHALDI AF MAASTRICHT 11.45 Innritun. 12.00 Hádegisverður íÁrsal, Hótel Sögu. 13.15 Jón Báldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra,flytur ávarp. 13.45 Stanley Crossick, forstjóri Belmont Institute í Brussel. 14.30 Þórarinn V. Þórarinsson, framkvœmdastjóri VSÍ. 14.50 Ari Skúlason, deildarstjóri alþjóðasamskipta ASÍ. 15.10 Kaffihlé 15.30 Eric Hayes, yfirmaður samskipta EB við EFTA-ríkin, þ.m.t. ísland. 16.15 Aneurin Rhys Hughes, sendiherra EB á Islandi, flytur samantekt og lokaorð. 16.30 Ráðstefnuslit. Ráðstefnustjóri: Aneurin Rhys Hughes, sendiherra EB í Noregi og á íslandi. Ráðstefnugjald, sem innifelur hádegisverð og kaffi, er kr. 5000.- Ráðstefnan er haldin í samvinnu við Iðnþróunarsjóð. Vinsamlega tilkynnið þátttöku í síma 91 - 62 24 11. Skipuleggjendur ráðstefnunnar áskilja sér rétt til að breyta dagskrá vegna ófyrirsjáanlegra breytinga. Aðstoð við skipulag og umsjón: Kynning Og Markaður - KOM hf. Bók um hollustu lýsis vekur athygli TVEIR bandarískir læknar, Reg Saynor og Frank Ryan, hafa gefið út bók þar sem þeir mæla með „inúítamataræði“ til að hindra hjartasjúkdóma. Þeir leggja einkum áherslu á fiskneyslu eða inn- töku lýsis. Omega-3-fitusýrur í fiski geti dregið úr myndun blóð- tappa og æðakölkun. Þýska blaðið Welt am Sonntag hefur undan- farið gert bókinni góð skil og birti fjóra sunnudaga í röð kafla úr henni. Læknarnir gera greinarmun á lifrarlýsi og búklýsi og segja hið síðarnefnda innihalda meira af Omega-fitusýrum sem hindra hjartasjúkdóma. Að sögn Baldurs Iljaltasonar hjá Lýsi hf. á þetta ekki við um íslenska lýsið, það innihaldi mikið af Omega- fitusýrum. Læknarnir gera greinarmun á lýsi sem unnið er úr fisklifur og búklýsi sem unnið er úr kjöti feits fisks. Að þeirra sögn er mikið af A- og D-vítamíni í lifrarlýsi en minna af EPA og DHA sem eru nauðsynlegar fitusýrur. Þeir mæla með hreinu lýsi sem ekki hefur verið meðhöndlað í þeim tilgangi að auka innihald EPA og DHA. Slíkar aðferðir geti breytt eðli lýsisins. Læknarnir mæla með að neytt sé 800 mg af Omega-3-fitusýrum á dag. Ekki eigi að hafa dag- skammtinn stærri en 1.000 mg nema skv. læknisráði. Gæta verði varúðar við val lýsisins og hyggi- legast sé að kaupa af þekktum framleiðendum. Þeir segjast ekki þekkja neinar aukaverkanir lýsis- neyslu ef magnið er ekki meira en þeir mæla með. Þó sé ekki ráðlegt fyrir fólk með fiskofnæmi að neyta lýsis. Læknarnir hafa útbúið leið- beiningar um mataræði fyrir Vesturlandabúa þar sem mikil áhersla er lögð á fiskneyslu. Þeir sem borði 30 g af makríl eða sam- bærilegum fiski á dag þurfi ekki að neyta lýsis. Fólk eigi að borða fituríkan físk tvisvar í viku hið minnsta. Þá daga sem ekki er neytt fituríks fisks eigi að taka inn lýsi (5 ml af blöndu þar sem 50% er lýsi og 50% vatn). í öðru lagi eigi fólk að forðast mettaða fitu í mat sínum en nota þess í stað ómettaða fitu. Draga eigi úr sykur- og saltn- eyslu. Fólk eigi að njóta eins glass af víni en ekki of oft. Gæta beri þess að fæðan sé fjölbreytt og málsverðurinn ánægjulegur. Þeir mæla með að fólk fái lýsið úr fiskn- um sjálfum. Þannig dragi fólk úr kjötneyslu en í flestu kjöti sé mik- ið af mettaðri fitu. Þar sé kjúkling- akjöt þó undantekning. Læknarnir nefna sem dæmi um fisk sem hefur hátt fituinnihald makríl, háf, síld og sardínur. Þeir vekja athygli á að líklegt sé að eldisfiskur hafi ekki jafnmikið af EPA og DHA-fitusýrum og villtur fiskur. Fiskurinn fái fitursýrurnar úr svifi og því sé eldisfiskur sem nærist á sojabaunum eða öðru grænmetismjöli verri fitugjafi. Þeir mæla með að fiskur sé ekki steikt- ur því þá fari hluti fitunnar for- görðum, sama eigi við um of langa spðu. Að sögn Baldurs Hjaltasonar hjá Lýsi hf. eiga ummæli læknanna um að búklýsi sé betri vörn gegn hjartasjúkdómum en lifrarlýsi ekki við um íslenska lifrarlýsið. Það standist fyllilega samanburð við búklýsi að þessu leyti. Að sögn Baldurs var fyrst vakin athygli á því að lýsi gæti hindrað hjartasjúk- dóma árið 1979 er danskir vísinda- menn rannsökuðu hvernig stæði á því að Grænlendingum í Danmörku væri hættara við hjartasjúkdómum en inúítum á Grænlandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.