Morgunblaðið - 11.03.1992, Side 24

Morgunblaðið - 11.03.1992, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MARZ 1992 Fjórðungsmót á Vindheimamelum: Eyfirðingum finnst að verið sé að valta yfir þá - segir Jónas Vigfússon, Litla-Dal FJÓRÐUNGSMÓT norðlenskra hestamanna, sem haldið verður á næsta ári, verður haldið á Vindheimamelum í Skagafirði. Móts- s£a.ðurinn var ákveðinn á fundi fulltrúa 17 hestamannafélaga á Norðurlandi, sem haldinn var á Akureyri á sunnudag. Kosið var um tvo staði, Vindheimamela og Melgerðismela í Eyjafirði. Skagfirðingar buðu að taka 14% af innkomu aðgangseyris á mótinu yrði það haldið á Vindheimamelum, auk þess sem 6% af innkomunni rynni til landeigenda. Eyfirðingar buðu aftur á móti að taka 25% af innkomu aðgangseyris og að 5% rynni til landeigenda, þannig að niðurstaðan varð sú að Skagfirð- ingar muni taka 20% í heild af innkomunni, en Eyfirðingar 30%. í kosningu milli staðanna tveggja á fundinum urðu Vindheimamelar fjmir valinu. „Eyfirðingar eru auðvitað hund- fúlir og argir yfir þessu og finnst að verið sé að valta yfir þá,“ sagði Jónas Vigfússon, Litla-Dal. „Skag- firðingar komu með undirboð til að halda okkur úti í kuldanum. Þeir fengu Landsmótið 1990 á silfurfati og innheimtu þá 28% af aðgangseyri fyrir utan það sem rann til landeigenda, en á lands- mótinu árið 1986 var innheimtan 16%. Á síðasta fjórðungsmóti á Norðurlandi, 1987, varleigan 25%, eða eins og tilboð Eyfirðinga nú. Það er eðlilegt að innheimt sé lægri prósenta á landsmótum þar sem þau gefa mun meiri tekjur í að- gangseyri heldur en fjórðungsmót- in, en leggja þarf til svipaða að- stöðu hvort sem um er að ræða lands- eða fjórðungsmót. Þá á ég við þá föstu aðstöðu sem mótsstað- urinn leggur til en ekki þá bráða- birgðaaðstöðu sem mótshaldari sér um.“ Jónas sagði að einnig gætu menn velt fyrir sér þeirri stöðu sem upp kann að koma ef í framtíðinni verður einungis einn staður sem kemur til greina fyrir slík mót og engin samkeppni um þau. „Við slíkar aðstæður skapast einokun- araðstaða þar sem staðarhaldari getur ákveðið leiguupphæðina, eins og gerðist fyrir landsmótið 1990,“ sagði Jónas. ' Rækjuverksmiðja Til sölu eru eignir þrotabús Árvers hf. Um er að ræða verksmiðjuhús að Fossbrún 6, Árskógshreppi í Eyjafirði, ásamt vélbúnaði til rækjuvinnslu. Einnig vörubíll M. Bens 1619 árgerð 1972, frystigámur, fiskikassar og kör, skrifstofubúnaður o.fl. Leiga á verksmiðjunni um takmarkaðan tíma kemur einnig til greina. Tilboðum skal skila til undirritaðs í síðasta lagi hinn 18. mars 1992. Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Undirritaður veitir frekari upplýsingar í síma 96-25919 eða fax 96-21499. Akureyri, 10. mars 1992. Arnar Sigfússon, hdl., bústjóri. Ráðstefna um sjávarútvegsmál Stafnbúi, félag sjávarútvegsfræðinema við Háskólann á Akur- eyri, og Akureyrarbær gangast fyrir ráðstefnu um SJÁVARÚTVEGSSTEFNU FRAMTÍÐARINNAR. Ráðstefnan verður haldin í Alþýðuhúsinu, 4. hæð (Fiðlaranum), Skipa- götu 14, Akureyri, þann 14. mars og hefst kl. 10.00 með innritun ráð- stefnugesta. Frestur til skráningar rennur út miðvikud. 11. mars. Skráningarsími er 96-11770 f.h. og 11780 e.h. Skráningargjald er kr. 2.500 pr. mann (inn- ifalið er matur, kaffi og ráðstefnugögn). Dagskrá: 10.45 Setningarávarp: Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegsráðherra. 11.00 Erindi hagsmunaaðila (skipt á tvo sali). Framsögumenn verða: Snær Karlsson, V.M.S.Í. Kristján Þór Júlíusson, Samb. ísl. sveitarfélaga. Hólmgeir Jónsson, Sjómannasamb. íslands. i Sveinn H. Hjartarson/Kristján Ragnarsson, L.Í.Ú. Guðjón Kristjánsson/Benedikt Valsson, F.F.S.Í. Arthur Bogason, Landssamb. smábátaeigenda. Guðlaugur Stefánsson, Landssamb. iönaðarmanna. Sturlaugur Sturlaugsson, Sambandi fiskvinnslustöðva. 13.00 Hádegisverður. 14.00 Fulltrúar stjórnmálaflokkanna. Framsögumenn verða: Jón Sigurðsson, Alþýðuflokki. Halldór Ásgrímsson, Framsóknarflokki. Árni Johnsen, Sjálfstæðisflokki. Steingrímur J. Sigfússon, Aiþýðubandalagi. Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, Kvennalista. 16.30 Kaffihlé. 17.00 Pallborösumraeður. 18.30 Ráðstefnuslit. Ráðstefnustjóri: Sigurður J. Sigurðsson, forseti bæjarstjórnar Akureyrar. Ráðstefnan er öllum opin. Neytendafélag Akureyrar og nágrennis: Landað var úr togaranum Víði EA í gær, en togarinn var með um 300 tonn upp úr sjó, mest grálúðu og karfa. Það blés að norðan á löndunarkarlana, en þeir létu það ekki á sig fá, enda má búast við misjöfnu veðri á þessum árstíma. Morgunblaðið/Rúnar Þór Landað í norðangarra Tannlæknar innheimta 68 þúsund í húsaleigu Kaffikostnaður tannlækna um 7.000 krónur á mánuði TANNLÆKNAR innheimta rúmlega 68 þúsund krónur á mánuði vegna húsaleigu fyrir 80 fermetra húsnæði á meðan sjúkraþjálfar- ar innheimta tæplega 16 þúsund krónur. Þetta kemur fram í saman- burði sem Neytendafélag Akureyrar og nágrennis gerði á tveimur heilbrigðisstéttum, tannlæknum og sjúkraþjálfurum, þar sem reynt var að bera saman sambærilega hluti „og draga fram í dagsljósið hvernig samningamenn ríkisins hafa mismunað þeim“, eins og seg- ir í frétt frá félaginu. Hvað tannlækna varðar kemur fram að grunnárstekjur af hverjum sérfræðingi eru rúmar 16 milljónir, en 2,5 milljónir af hverjum sjúkraþjálfara með mastersgráðu. „í krafti aðstöðu sinnar hefur tannlæknastéttin náð betri kjörum á kostnað neytenda en nokkur önnur. Það er því vel við hæfi að þegar spara á í heilbrigðisþjón- ustunni, sé bytjað á að „leiðrétta" taxta tannlækna. Ef vel tekst til við leiðréttinguna er það stór „fé- lagsmálapakki" ti) handa hinum almenna neytanda,“ segir í frétt frá Neytendafélaginu. Samanburður félagsins byggir á töxtum frá því í mars árið 1991 miðað er við átta stunda vinnudag* á einföldum grunntaxta og vann félagið samanburðinn upp úr kja- rasamningum Tryggingastofnunar ríkisins við tannlækna annars veg- ar og sjúkraþjálfara hins vegar. Fram kemur í samanburðinum að lægsta grunngjald sjúklings á hveijar 10 mínútur hjá tannlækni sé 1.114 krónur, en 'A grunngjalds í meðferð hjá sjúkraþjálfara sem tekur allt að 40 mínútum er 244 krónur. Grunngjald sjúklings hjá tannlækni fyrir hveija klukkustund er 6.684 krónur, en hjá sjúkraþjálf- ara 1.397 krónur. Launahluti tann- læknis í grunngjaldi er 34,63% eða 2.315 krónur, en sjúkraþjálfara 60% eða 838 krónur. Kostnaðar- hluti tannlæknastofu í grunngjaldi hveija klukkustund er 65,37% eða 4.369 krónur, en 559 krónur eða 40% af kostnaði við rekstur sjúkra- þjálfarastofu. Samanburðurinn leiðir í ljós að grunnárstekjur tannlæknastofu af hveijum sérfræðingi eru rúmar 16 milljónir króna, en grunnárstekjur af hveijum sjúkraþjálfarar með mastersgráðu eru rúmar 2,5 millj- ónir króna. Þá kemur einnig fram í saman- burði Neytendafélagsins, að húsa- leiga af 80 fermetra húsnæði tann- læknastofu er áætluð um 9% af kostnaði, eða 393 krónur á klukku- stund, en leigukostnaður sjúkra- þjálfarastofu er 90 krónur á klukkustund fyrir jafnstórt hús- næði. Tannlæknar innheimta því vegna þessa viðmiðunarhúsnæðis rúmar 68 þúsund krónur á mánuði á meðan sjúkraþjálfarar innheimta tæplega 16 þúsund krónur fyrir húsnæði af sömu stærð. Launakostnaður tannlækna vegna aðstoðarfólks er 28,7% af kostnaði, þannig að tannlæknar innheimta mánaðarlega ríflega 217 þúsund krónur vegna launa aðstoðarfólks. Ekki er í samning- um sjúkraþjálfara við Trygginga- stofnun gert ráð fyrir kostnaði vegna aðstoðarfólks. Bifreiðakostnaður tannlækna er 2% af kostnaðarhluta, eða 87 krón- ur á klukkustund og um 15 þúsund krónur á mánuði, en sjúkraþjálfar- ar innheimta um 4.300 krónur á mánuði vegna bifreiðakostnaðar eða 25 krónur á klukkustund. Þá er í samningum tannlækna áætlað að kaffikostnaður sé um 0,9% af rekstri stofunnar, eða 39 kónur á klukkustund, þannig að tannlæknar innheimta mánaðar- lega vegna kaffikostnaðar síns 6.817 krónur. Kaffikostnaður sjúkraþjálfara er ekki inni í samn- ingum við Tryggingastofnun. Fyrirlestur um kvenfrelsi DR. GORDON Graham, heimspekikennari við háskólann í St. Andrews, flytur opinberan fyrirlestur við Háskólann á Akureyri um kvenfrelsishugmyndir að fornu og nýju fimmtudagskvöldið 12. mars kl. 20. saman kvenfrelsishugmyndir frá síðustu öld, í verkum Johns Stuarts Mills við róttæk afbrigði þeirra nú á dögum. Hafa þessar nýju hug- myndir leyst hinar eldri af hólmi? Fyrirlesturinn, sem haldinn er á vegum Háskólans á Akureyri og Félags áhugafólks um heimspeki, verður fluttur á ensku í húsi Háskól- ans við Þingvallastræti og er öllum opinn á meðan húsrúm leyfir. (Fréttatilkynning) Dr. Gordon Graham, sem kennt hefur nokkrum íslenskum nemend- ur í Skotlandi, er þekktur heimspek- ingur á Bretlandseyjum og hefur m.a. skrifað víðlesnar byijendabæk- ur í stjórnmálaheimspeki. Hann hefur einnig sinnt almennri sið- fræði, fagurfræði og trúarheim- speki. Fyrirlestur hans að þessu sinni nefnist „Fijálslyndur og róttækur femínismi,“ og þar mun hann bera

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.