Morgunblaðið - 09.04.1992, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1992
LIU:
Fiskifræð-
ingnr ráðinn
í fullt starf
KRISTJÁN Þórarinsson, fiski-
fræðingur, hefur verið ráðinn
til Landssambands íslenskra
útvegsmanna og hefur hann
störf 1. maí næstkomandi.
Þetta er í fyrsta skipti sem
Landssamband íslenskra út-
vegsmanna ræður fiskifræðing
í fullt starf.
Sveinn Hjörtur Hjartarson,
hagfræðingur LÍÚ, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið, að hlutverk
fiskifræðingsins yrði að vinna með
Hafrannsóknastofnun og leggja
mat á og túlka niðurstöður stofn-
unarinnar varðandi fiskistofna.
Sveinn Hjörtur sagði að það hefði
verið töluvert lengi í umræðunni
að ráða fískifræðing í fullt starf,
en á undanförnum árum hafí ver-
ið leitað til fiskifræðinga þegar á
hafi þurft að halda.
„Ég held það sé engin spurning
að það séu næg verkefni fyrir
fiskifræðing á okkar vegum. Það
-skiptir okkur miklu máli að við
skiljum þessar upplýsingar rétt
og að við getum lagt sjálfstætt
mat á þær,“ sagði Sveinn Hjörtur
Hjartarson.
Morgunblaðið/Einar H. Valsson
Á leið í djúpið
Þessar myndir voru teknar úr varðskipinu Tý þegar manni var bjargað af línubátn-
um Magnúsi ÍS-126 í fyrradag. Stærri myndin er tekin þegar báturinn er í þann
veginn að hverfa í ísafjarðardjúpið. Efst til vinstri á myndinni sést björgunarhringur-
inn á floti. Minni myndin er af Daníel Sigmundssyni, björgunarbát slysavarnafélags-
ins vestra, og er hún tekin um það bil sem slysavarnafélagsmenn voru að bjarga
skipbrotsmanninum af Magnúsi, Guðmanni Guðmundssyni, úr gúmmíbjörgunarbáti.
Kaupmannasamtökin:
Vilja lægri þóknun
kortafyrirtækjanna
Morgunblaðið/Ingvar
Jeppi valt við árekstur
Harður árekstur varð á mótum Breiðholtsbrautar og Seljaskóga í
Reykjavík um miðjan dag í gær. Þar rákust saman jeppi og lítil
fólksbifreið. Við áreksturinn valt jeppinn og hentist þannig um 50
metra áður en hann stöðvaðist á umferðarskilti. Ökumaður hans
var fluttur á slysadeild en var ekki talinn alvarlega meiddur, sam-
kvæmt upplýsingum lögreglu. Bílarnir voru báðir óökufærir eftir.
KAUPMANNASAMTÖK íslands hafa óskað eftir viðræðum við stjórn-
ir greiðslukortafyrirtækjanna um endurskoðun á þjónustugjöldum
versiana. I bréfi samtakanna er á það bent að með tilkomu beinlínu-
tengingar kortafyrirtækja við verslanir með notkun svokallaðra „posa“
hafi kostnaður við skráningu hjá greiðslukortafyrirtækjum lækkað til
muna. Telja samtökin því eðlilegt að smásöiuversiunin fái að njóta þess
í lægri þjónustugjöldum. Einar S. Einarsson, framkvæmdastjóri Visa-
Islands, segist búast við að viðræður um málið verði teknar upp innan
tíðar.
Magnús E. Finnsson, fram-
kvæmdastjóri Kaupmannasamtak-
anna, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að styrr hefði staðið um það
500 manns fengn 60 millj.
kr. í ofgreidd lán frá LÍN
UM fimmhundruð námsmenn fengu samtals tæpar 60 milljónir króna
í svonefnd ofgreidd námsián á skólaárinu 1990-91, og nam hæsta of-
greiðsla til einstaklings á milli 700-800 þúsund krónum. Að auki fengu
margir fyrirgreiðslu hjá sjóðnum sem hafa hætt námi án þess að skila
tilskildum árangri.
Þetta kemur fram í grein eftir
Gunnar Birgisson formann stjórnar
Lánasjóðs íslenskra námsmanna í
Morgunblaðinu í dag. Gunnar segir
að námsmenn sem fái ofgreidd lán
vegna samtíma- eða fyrirfram-
greiðslu lána geti lent í miklum
vanda þar sem leitast sé við að inn-
þeimta þau á sem skemmstum tíma.
Viðkomandi hafi undantekningarlít-
ið eytt lánuðum peningum og lendi
í miklum þrengingum, flosni jafnvel
til ftambúðar upp frá námi o.s.frv.
Hinir sem skuldi námsárangur og
5 kílóum af hassi smyglað:
Tvennt ennþá í haldi
ENN eru tveir menn í haldi fíkniefnalögreglunnar vegna tveggja mála
sem komu upp fyrir um hálfum mánuði og snúast um innflutning á um
5 kílóum af hassi, sem talið er að unnt sé að selja fyrir um 7,5 millj.
á svörtum markaði í Reykjavík. Alls hafa sex manns á tvítugs- og þrí-
tugsaldri komið við sögu rannsóknarinnar.
í öðru málinu var femt, þar af handtekinn við komu að utan með
þrjú systkini, handtekin við komu frá
Lúxemborg með um þijú kíló af hassi
innanklæða. Eitt systkinanna er í
haldi en hin hafa verið látin laus.
Í hinu málinu var 26 ára maður
tvö kíló af hassi. Ásamt honum var
handtekinn 23 ára maður sem talinn
var hafa fjármagnað kaupin á efninu
og er sá enn í haldi.
ætli sér eftir nokkurra ára hlé að
hefja nám að nýju geti ekki fengið
námslán fyrr en þeir hafa unnið upp
þann námsárangur sem á vanti.
Gunnar segir í greininni að ákvæði
í nýju frumvarpi um lánasjóðinn um
að Ián verði greidd eftir að árangri
er skilað muni koma í veg fyrir þessa
misnotkun á fjármunum.
Að sögn Lárusar Jónssonar fram-
kvæmdastjóra LÍN er þarna bæði
um að ræða námsmenn sem skila
of lágri tekjuáætiun þegar þeir
sækja um og fá námslán og náms-
menn sem taka ekki tilskilin próf
og skila því ekki eins mörgum ein-
ingum og lánið var miðað við. Þeir
námsmenn sem fara í próf en falla
eru ekki krafðir um endurgreiðslu
lána, en þeir eru taldir skulda náms-
árangur og það getur haft áhrif á
frekari fyrirgreiðslu úr sjóðnum nái
þeir ekki prófunum síðar.
Heildarnámsaðstoð lánasjóðsins
var rúmir 3 milljarðar króna á þessu
tímabili, að sögn Lárusar. Hann
sagði að sjóðurinn fengi þessi of-
greiddu lán að einhveiju leyti til
baka, en þeim fylgdu miklir erfiðleik-
ar, bæði fyrir sjóðinn og það fólk
sem í þessu lenti.
Sjá grein á bls. 16.
á sínum tíma þegar „posar“ hefðu
verið teknir upp hver ætti að greiða
leiguna fyrir þá. „Við töldum að
kortafyrirtækin hefðu meiri hag af
þeim en verslunin og þess vegna
ættu þau að greiða fyrir „posana".
Því lyktaði með því að stóru verslan-
irnar fóru að greiða leigu. Forsvars-
menn kortafyrirtækjanna sögðu þá
að hér væri um mikla hagræðingu
að ræða fyrir þau og það hlyti að
leiða til lækkunar þóknunar þegar
fram í sækti. Við höfum ítrekað
þetta oftar en einu sinni við kortafyr-
irtækin."
Á ráðstefnu Kaupmannasamtak-
anna, Verslun ’92, sl. laugardagkom
fram að framkvæmastjóra VISA ís-
lands hefur verið falið að gera tillög-
ur um lækkun þóknunar til stjórnar
fyrirtækisins. Þóknunin er hæst
2,75% en hjá sérverslunum er hún
2%. Lægst er hún í matvöruverslun-
um eða allt að 1% og kom fram á
ráðstefnunni að ekki yrði um að
ræða lækkun þar.
„Ég get staðfest að erindi frá
Kaupmannasamtökum íslands barst
okkur í dag. Þar er óskað eftir við-
ræðum um endurskoðun á þjónustu-
gjaldatöxtum og sjálfsagt verður
orðið við því að taka upp viðræður
við, samtökin um það efni innan tíð-
ar,“ sagði Einar S. Einarsson, fram-
kvæmdastjóri VISA íslands, þegar
málið var borið undir hann. „A hitt
hefur einnig verið bent að þessi raf-
ræna greiðslumiðlun, sem nú er til-
komin, felur einnig i sér aukið ör-
yggi og hagræði fyrir verslunina,"
bætti hann við.
Skipagjöld 33%
hærri en í fyrra
GJÖLD fyrir skoðun, skráningu og mælingu skipa eru í mörgum tilvik-
um 20-33% hærri í ár en á síðasta ári. Sum gjöldin hafa þó liækkað
minna, önnur mun meira, eða allt að 130%. Gjöld þessi innheimtir
Siglingamálastofnun ríkisins fyrir þjónustu sína og eru þau ákvörðuð
með árlegri reglugerð samgönguráðuneytisins. Sævar Vigfússon skrif-
stofustjóri Siglingamálastofnunar segir að gjöldin hafi yfirleitt hækk-
að í takt við verðbólguna en nú hafi komið krafa frá ráðuncyti um
auknar tekjur stofnunarinnar. Gjöldin hafi hækkað mismikið vegna
mismunandi kostnaðar við þjónustuna sem að baki liggur.
Skipagjöldin hækkuðu um 33%, 15.640 krónur, 3.880 kr. hærri en
gjöld vegna nýsmíða og skráningu síðasta ár. Skipagjöld fyrir skip 251
til 500 brúttólesta er 91.900 kr. sem
er 22.800 kr. meira en á síðasta
ári. Fyrir þetta gjald fær eigandi
skipsins aðalskoðun skipsins. Sem
dæmi um önnur gjöld má geta þess
að samþykkt teikninga vegna ný-
srriíða skips á bilinu 6 til 8 metra
kostar 19.400 kr.
skipa og útgáfu skipsskjala um 20%,
gjöld fyrir hleðslumerki um 133%
og fyrir mælingu skipa og útgáfu
vottorða um 18%, svo dæmi séu tek-
in úr gjaldskránni.
Skipagjöld fyrir skip frá 8 til 15
metra að lengd eru á þessu ári