Morgunblaðið - 09.04.1992, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. APRIL 1992
15
á dag, eins og mér skilst að eigi
að gera ef menn taka sig hátíð-
lega. Mér þætti ég ekki lifandi og
mundi tapa allri „dýnamik“.“
ísland er síðasti staðurinn á
fimm vikna ferðalagi Sir Peters o'g
á laugardag heldur hann aftur heim
til Orkneyja. „Ég gekk niður að
höfninni hérna í góða veðrinu í
gær,“ segir hann, „og horfði á fjall-
garðinn hinum megin við sundið; á
þessa sérstöku birtu sem speglast
í haffletinum — þessa sérstöku
birtu norðursins — og ég fékk svo
mikla heimþrá. Þegar ég kem heim,
ætla ég að hlaupa út á klettinn bak
við húsið heima hjá mér og öskra
og öskra af gleði — og ég veit að
ég hræði engan, nema örfáa sjó-
fugla.“
- Hvað er svo næst á dagskrá?
„Litli sumarskólinn minn.“
- Sem er?
„Ég stofnaði sumarskóla fyrir
fjórum árum. Þá tek ég átta til níu
nemendur á sumarnámskeið, ásamt-
öðru tónskáldi og í sumar verður
skoska tónskáldið Judith Weir með
mér. Þetta er námskeið fyrir ungt
fólk í tónsmíðanámi og stendur í
tvær vikur. Fyrri vikuna vinna þau
við skriftir undir okkar handleiðslu
og seinni vikuna koma hljóðfæra-
leikarar frá „Scottish Chamber
Orchestra", og æfa verkin þeirra.
í lokin höldum við svo tónleika, þar
sem frumflutt eru 8-9 ný verk.
Þá mæta allir á eyjunni og það
kemur bátur frá hinum eyjunum í
kring og kirkjan, þar sem tónleik-
arnir eru haldnir, troðfyllist af fólki
— upp í ijáfur. Það er alveg ótrú-
lega skemmtilegt.
Á námskeiðinu eru nemendur
hvaðanæva úr heiminum. Þeir búa
ýmist hjá fólkinu á eyjunni, eða á
gistiheimili sem þar er og hafa tölu-
verð samskipti við eyjaskeggja. Ég
hvet þá sem leika á hljóðfæri sem
hægt er að ferðast með, til að koma
með þau og leika á kránni. Ef þeir
hafa ekki hljóðfæri, hvet ég þá til
að syngja. Þetta skapar mjög gott
andrúmsloft og mikil tengsl við
eyjaskeggjana — og það er mikil-
vægt. Tónskáld eru oftast mjög
einangruð í vinnu sinni og hafa lít-
il tengsl við áheyrendur sína, hljóð-
færaleikara og samfélagið almennt
og ná oft ekki til eins eða neins
með verkum sínum. Það er hinsveg-
ar mjög mikilvægur hluti af nám-
skeiðunum hjá mér, að nemendurn-
ir læri að lifa í og skrifa fyrir það
samfélag sem á að taka við verkum
þeirra.
Auk þessa hef ég lengi verið í
samvinnu við þtjár hljómsveitir og
held því áfram, bæði sem tónskáld
og stjórnandi. Þetta eru BBC Phil-
harmonic Orchestra í Manchest-
er,Royal Philharmonic Orchestra í
London og svo Scottish Chamber
Orchestra. Þessa dagana er ég að
vinna að tíu konsertum fyrir þá
síðastnefndu, sem er mjög ögrandi
og skemmtilegt verkefni, fyrir utan
hvað mér finnst lærdómsríkt að
skrifa aldrei út í loftið, heldur vera
alltaf í náinni samvinnu við hljóð-
færaleikarana."
- Þú talar mikið um að læra af
vinnu þinni.
„Já, ég er alltaf að læra; af börn-
um, af hljóðfæraleikurum og af
áheyrendum. Ég hlusta og hlusta
og læri þar af leiðandi margt. Um
það snýst allt lífið.“
Viðtal/Súsanna Svavarsdóttir
Sverrir
Stormsker
með tónleika
9 SVERRIR Stormsker verður
með tónleika á Furstanum,
Skipholti 37, í dag, fimmtudag-
9 inn 9. apríl kl. 22.30.
Á þessum éinsöngstónleikum
9 mun Stormsker sitja við píanóið
og flytja gömul og ný lög. Sérstak-
ur gestur kvöldsins verður Bjarni
Arason.
Jazztónleikar á Jazz um helgina
FÉLAGARNIR Hilmar Jensson,
Birgir Bragason og Einar
Scheving efna til jazztónleika á
veitingahúsinu Jazz að Ármúla 7
fimmtudaginn 9. apríl. Á efnis-
skránni verða m.a. frumsamin
lög eftir þá félaga.
Berglind Björk ásamt Bláu sveifl-
unni leika föstudag og laugardag
og sunnudaginn 12. apríl munu þau
Andrea Gylfadóttir, Kjartan Valdi-
marsson, Martin Van Der Falk og
Richard Korn endurtaka uppákomu
sína frá síðasta sunnudegi. Á efnis-
skrá þeirra verða gömul og þekkt
jazzlög.
Veitingahúsið Jazz er opið í há-
deginu alla virka daga og frá kl.
18-23.30 og um helgar kl.
18-23.30. Opið er til kl. 1.00 virka
daga og 3.00 um helgar.
H
öföar til
_____fólks í öllum
starfsgreinum!
mHMB
Ljóst eða dökkt súkkulaði í páskaegginu þinu
GOTTOG
GAMAN
Cómsæt súkkulaðiegg frá
NÓA-SfRÍUS
úr besta hráefni, fyllt enn Ijúffengara innihaldi,
málshætti og límmiðunum vinsæiu
með dýrunum hans Nóa.
Og nú hafa enn fleiri dýr bæst í hóþinn!
5AT0nvnN?igH