Morgunblaðið - 09.04.1992, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1992
Thor Jensen útgerðarmaður rak á sinni tíð Godthaabsverslun, sem var til húsa í Austurstræti 18.
Þar er nú Reykjavíkurapótek, hús sem Nathan & Olsen reistu á lóðinni. Þórður Bjarnason er innan-
búðar lengst t.v. Hann var lengi bæjarfulltrúi í Reykjavík. Börn hans mörg þjóðkunn, m.a. Regína
leikkona og Bjarni píanóleikari. Guðrún Hafliðadóttir sem sést á miðri mynd var lengi við afgreiðslu
í Vöruhúsinu í Austurstræti. Systkini hennar, Guðmundur og Katrín, störfuðu einnig að verslun.
Jón Hafliðason styður sig við búðarborðið. Hann var um langt skeið bókhaldari í Völundi. Tók
virkan þátt í starfi góðtemplara. Sonur hans er Ilafliði Jónsson píanóleikari og bankamaður. Mynd-
in er tekin um 1910.
Ljósmyndir úr lífinu í Reykjavík
LJÓSMYNDASAFN Reykjavíkurborgar gengst fyrir sýningu
nokkurra ljósmynda á Mokkakaffi þessa dagana. Myndirnar sýna
Reykvíkinga við ýmis störf, netahnýtingu, hárgreiðslu, skósmíði,
leirmunagerð, úrsmíði, straujun á þvotti, bókband o.fl.
Iþróttaráðstefna með
sagnfræðilegu ívafi
Þá eru myndir úr kennslustund
í Barnaskólanum við Fríkirkjuveg.
Þar eru í hópi nemenda margir,
sem seinna urðu kunnir borgarar
í Reykjavík og gegndu trúnaðar-
og stjórnsýslustörfum. Einnig
konur sem tóku virkan þátt í fé-
lagslífí borgarbúa. Þá er ljósmynd
af fundi í neðri deild Alþingis árið
1903. Einnig má telja mynd af
eimreiðinni Frumheija — Pioneer
sem flutti gijót úr Öskjuhlíð í
hafnargarð Reykjavíkur í aldar-
byrjun.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur-
borgar eflir starfsemi sína með
hveiju ári. Lögð er áhersla á söfn-
un, varðveislu og skráningu
mynda. Safið hefur á undanföm-
um árum afgreitt fjölda ljósmynda
til einstaklinga og stofnana, bó-
kaútgefenda, blaða go tímarita.
Þá hefur Ljósmyndasafnið átt
þátt í sýningum sem haldnar hafa
verið af ýmsu tilefni. Má þar m.a.
nefna sýningu á Kjarvalsstöðum
á sj. ári.
Á Ljósmyndasafni Reykjavík-
urborgar er starfrækt ljósmynda-
stofa þar sem unnið er með marg-
víslegum hætti úr eigin myndefni
og einnig leyst af hendi ýmis verk-
efni fyrir viðskiptavini.
(Fréttatilkynning)
í NORRÆNA húsinu dagana
9.-12. apríl verður haldin íþrótta-
ráðstefna með sagnfræðilegu ívafi
, sú fyrsta sinnar tegundar hér-
lendis. Aðalefni hennar verður
fornar norrænar íþróttir og leikir,
en einnig verða kynntar sagn-
fræðilegar rannsóknir á íþróttum
og það starf sem unnið er víða á
Norðurlöndum á sviði íþrótta-
sagnfræðinnar.
Þorsteinn Einarsson fyrrverandi
íþróttafulltrúi ríkisins átti hugmynd-
ina að þessari ráðstefnu eða mál-
þingi og hefur sett saman sýningu
með teikningum af íþróttum forn-
manna og verður hún opnuð í and-
dyri Norræna hússins fimmtudaginn
9. apríl kl. 20.00. Ólafur G. Einars-
son menntamálafulltrúi flytur ávarp
við opnunina.
Jan Lindroth prófessor í íþrótta-
sagnfræði í Svíþjóð kemur hingað til
lands ásamt íþróttasagnfræðingum
frá hinum Norðurlöndunum. Norski
fulltrúinn, Kristen Mo, hélt fyrirlest-
ur í Odda í gær og talaði um sögu
skíðaíþróttarinnar í Noregi. Aðrir
norrænir gestir eru Leena Laine,
■ AÐALFUNDUR Stéttarfé-
lags íslenskra félagsráðgjafa
haldinn 13. mars sl. skorar á félags-
málaráðherra og ríkisstjórn Islands
að beita sér fyrir aðgerðum til þess
að draga úr atvinnuleysi á Islandi.
Atvinnuleysi bitnar harðast á þeim
hópum þjóðfélagsins sem standa
höllum fæti svo sem fötluðum, öldr-
uðum og foreldrum með ung börn,
einkum einstæðum mæðrum. Við-
varandi atvinnuleysi leiðir af sér
önnur vandamál. Allar aðgerðir til
þess að fyrirbyggja atvinnuleysi
munu til langs tíma litið leiða til
spamaðar fyrir þjóðfélagið í heild.
sagnfræðingur frá Finnlandi, Else
Trangbækk frá Danmörku, John
Kjær frá Færeyjum, John Dahl frá
Grænlandi og Mats Hellspong frá
Svíþjóð.
Malin Dögg Þorsteinsdóttir
Malin Ðögg
kjörin ungfrú
Austurland
Neskaupstað.
MALIN Dögg Þorsteinsdótitr
var kjörin ungfrú Austurland
í Fegurðarsamkeppni Austur-
Iands sem haldin var í Egilsbúð
28. mars sl.
Malin, sem er tvítug að aldri,
er frá Hallormsstað og stundar
nám í Menntaskólanum á Egils-
stöðum. Foreldrar Malinar eru
Elín Kröyer og Þorsteinn Þórar-
insson. Besta ljósmyndafyrirsæt-
an var kjörin Stella Ingigerður
Steinþórsdóttir, Neskaupstað, og
stúlkurnar völdu Aðalbjörgu Ein-
arsdóttur vinsælustu stúlkuna úr
hópnum. _ Ágúgt
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Sigvaldi Ægisson á Blakki 977 frá Reykjum en afkvæmi Blakks verða
sýnd á sýningunni, í fyrsta skipti á hópsýningu.
„Vestlendingar í Reiðhöllinni“:
Kynbótahross uppi-
staðan í sýningrmni
HESTAMENN af Vesturlandi verða með sýningu í Reiðhöllinni um
helgina undir yfirskriftinni „Vestlendingar í Reiðhöllinni" þar sem
þeir munu sýna hross upprunnin að vestan og stóðhesta sem notaðir
hafa verið til kynbóta í fjórðungnum. Mikill fjöldi hrossa mun koma
þar fram en uppistaðan í sýningunni verða kynbótahross.
Afkvæmi sex þekktra stóðhesta
verða sýnd, þeirra Ófeigs 818 frá
Hvanneyri, Blakks 977 frá Reykjum,
Dreyra 834 frá Álfsnesi, Eiðfaxa 953
frá Stykkishólmi, Borgfjörðs 909 frá
Hvanneyri og Gusts 923 frá Sauðár-
króki. Állir hafa þessir hestar verið
mikið notaðir á Vesturlandi og má
gera ráð fyrir að þar komi fram
mörg af bestu afkvæmum þeirra. Þá
verða sýndir þarna stóðhestar og
hryssur og A- og B-flokks gæðing-
ar. Meðal gæðinga sem koma fram
er Gáskasonurinn Haukur frá
Hrafnagili sem Gísli Höskuldsson frá
Hofsstöðum á en sá hestur hefur
vakið mikla athygli þá sjaldan hann
hefur komið fram á sýningum. Þess
má geta að Haukur er skyldur hinum
fræga Hrímni frá Hrafnagili. Einnig
munu koma þarna fram gamlir kunn-
ir gæðingar sem sýndir hafa verið á
Vesturlandi á undangengnum árum.
Þá verða sýnd hross frá nokkrum
ræktunarbúum á Vesturlandi og má
þar nefna bú eins og Skáney,
Laugadal, Hrappsstaði og Hallkels-
staðahlíð. Ýmis fyrirtæki á Vestur-
landi verða með sýningarbása í and-
dyri Reiðhallarinnar þar sem þau
munu kynna framleiðslu sína. Er
sýningarinnar beðið með nokkurri
eftirvæntingu því líklegt þykir að
þama komi fram fjórðungsmóts-
kandídatar en fjórðungsmót Vest-
lenskra hestamanna verður haldið
sem kunnugt er á Kaldármelum í
sumar. Alls verður boðið upp á þtjár
sýningar, fösudags-, laugardags og
sunnudagskvöld og hefjast þær allar
klukkan 20.30. v it.
Gott úrval hljóðfæra
ó fermingartilboði t.d.
REYKJAVÍKUR
taugavegi 96 - Sími: 600935
sriHM: loe.