Morgunblaðið - 26.04.1992, Blaðsíða 10
10 c
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. APRIL 1992
HÓTEL HOLT í HÁDEGINU
Þríréttaður hádegisverður alla daga.
Verð kr. 1.195.-
CHATEAUX.
Bergstaðastræti 37, sími 91-25700
m Mrrm lítm
m ofíji ot OMO
Nýtt 4ra vikna námskeið þar sem
tekið er á offituvandanum á raunhæfan
og árangursríkan hátt.
Námskeiðið býður m.a. uppá:
• Fyrirlestra: læknir, sálfræðingur,
næringafræðingur, snyrti—
fræðingur og fleiri.
• Hópvinnu.
• Ráðleggingar.
• Einkaviðtöl.
Leiðbeinandi verður
Heiðrún B. Jóhannesdóttir.
Námskeiðið verður haldið ífundarsal ÍSÍ í
Laugardal og hefst 4. maí nk.
Takmarkaður fjöldi er á hverju námskeiði.
Innritun og upplýsingar
í síma 673137.
TERRACINABRÉF
Kraftaverkið í kirkjunni og
krossfestingin á Yalhúsahæð
TERRACINA er lítill bær, hér
búa um þrjátíu þúsund manns. A
sumrin tvöfaldast sú tala og
meira en það, því þá streymir
að fólk frá Róm og öðrum borg-
um, í sjóinn og sumarfríið. Nú
kannast fáir við bæinn, en fram
á síðustu öld var hann fastur við-
komustaður ferðalanga á leiðinni
milli Rómar og Napólí. Hér gistu
meðal margra annarra Goethe,
H.C. Andersen og Tómas Sæ-
mundsson. Og hér eru páskarnir
hátið, eins og annars staðar.
ítalir eru gefnir fyrir kökur, en
baka lítið heima og því er mikið
um bakarí og kökubúðir. Munurinn
á þessu tvennu er að í bakaríum
eru seld bæði brauð og kökur, í
kökubúðunum kökur og oftast einn-
ig sælgæti og jafnvel ís. Sem stend-
ur selja kökubúðirnar páskaegg,
sem fást líka í matvöruverslunum.
Hér sjást þau stærstu páskaegg
sem sem ég hef á ævi minni séð, á
stærð við tveggja ára barn, sýnist
mér. Þau eru til í ýmsum útgáfum.
Það er hægt að fá stór tuskudýr
með egg inni í sér, egg í pökkum
ásamt leikföngum eða egg pökkuð
inn í gljápappír, sem stendur eins
og blóm upp af egginu. Sum stóru
eggin fást í sellófanpokum og á þau
eru málaðar páskamyndir af hænu-
ungum og blómum. íslenski stæll-
inn, að steypa súkkulaðistall undir
eggin, sést ekki hér, þau standa á
pappahringjum.
Sumar kökubúðir auglýsa að þær
útbúi egg með innihaldi að ósk
kaupandans. Þá er ekkert því til
fyrirstöðu að koma með eitthvert
dýrmæti og láta setja inn í eggið,
eða málshátt að eigin vali. Sex ára
sérfræðingur minn í ítölskum
páskaeggjum segir mér að á miða
á eggjunum standi hvað sé innan í
þeim, svo kaupandinn hefur úr
ýmsu að velja.
í þýskumælandi löndum er allt
fullt af páskaskrauti um þetta leyti,
meðal annars margvíslega máluð-
um eggjum. Súkkulaðieggin þar eru
hóflega stór, lítil á íslenskan mæli-
kvarða og dvergvaxin miðað við þau
ítölsku. Hér er páskaskraut hins
vegar ekki algengt. En það er fleira
en páskaeggin, sem fylgir páskun-
um hér. Á pálmasunnudag eru seld-
ar ólífuviðargreinar fyrir kirkjum
úti, svo þann dag má víða sjá fólk
á heimleið með litlar greinar. Ágóð-
inn rennur til safnaðarstarfsins. I
kirkjunum hanga uppi auglýsingar,
þar sem fólk er beðið um að gefa
sér tíma að aðstoða kirkjuna við
að sinna fátækum, einmana eða
sjúkum meðbræðrum, líka eyðni-
sjúklingum og föngum.
Á föstudaginn langa er breytt
yfir altaristöflur í kirkjunum eða
töflunum lokað, ef það er hægt.
Þá logar aðeins á ljóstýru í hlið-
arkapellu, svo að kvöldi eru kirkj-
urnar næstum myrkvaðar. Þá eru
þær opnar fram undir miðnætti og
fólk gengur frá einni kirkju til ann-
arrar. Það er ekki hægt að lýsa
andrúmsloftinu í kirkjunum það
kvöld, vísast skynjar það hver með
sínu hjarta. Föstudagurinn langi er
ekki frídagur á Ítalíu.
Dagana fyrir páska og um pásk-
ana er mikið um tónleika í kirkjun-
um og einnig helgileiki. Efni þeirra
er ýmist sótt í Biblíuna, ævi helgra
manna eða kraftáverkasögur. Einn
þeirra var um prest frá fyrri hluta
aldarinnar, sem missti trú á brauð-
ið og vínið. Flytjandinn var aldraður
prestur. Hann stóð hempuklæddur
á gólfinu fyrir framan altarið og
talaði við sjálfan sig, um leið og
hann tilreiddi obláturnar og vínið.
Hann sagðist ekki lengur geta trúað
því að hann færi með hold og blóð
Krists, fyrir honum væri þetta ekki
annað en oblátur og vín. Sem hann
Tónleikar í Listasafni Signrjóns
Tónlistarskólinn í Reykjavík
heldur tónleika í Listasafni Sig-
uijóns Ólafssonar þriðjudaginn
28. apríl kl. 20.30. Tónleikarnir
eru burtfararpróf Ragnheiðar
Haraldsdóttur, blokkflautuleik-
ara, frá skólanum.
Á efnisskránni eru verk eftir Ph.
Verdelot, Van Eyck, Sónata nr. 4
í F-dúr eftir A. Corelli, Svíta í G-
moll eftir J.B. de Boismortier, Frag-
mente eftir M. Shinohara og Trísón-
ata í c-moll eftir Telemann.
Á tónleikunum Ieika með Ragn-
heiði semballeikararnir Elín Guð-
mundsdóttir og Málfríður Konráðs-
dóttir, Peter Tompkins leikur á bar-
okkóbó og nemendur í Tónlistar-
skólanum í Reykjavík leika á blokk-
flautur.
Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis.
Ragnheiður Haraldsdóttir
Vortónleikar
ÁRLEGIR vortónleikar Lúðra-
sveitar Hafnarfjarðar verða í Víði-
staðakirkju sunnudaginn 26. apríl
og hefjast klukkan 16.
Á efnisskrá eru innlend og erlend
lög. Um þessar mundir starfa um
30 félagar í sveitinni undir stjórn
Stefáns Omars Jakobssonar.
HÍTÍB HARMOHIKUHNAR
verður haldin í húsi íslensku óperunnar v/lngólfs-
stræti í dag kl. 15.00.
Stórsveit Harmonikufélags Reykjavíkur leikur auk minni
hópa. Einnig koma fram þekktir einleikarar t.d. Garðar
Olgeirsson, Grétar Geirsson, Örvar Kristjánsson og Mog-
ens Bækgárd frá Danmörku.
Aðgöngumiðar eru seldir í afgreiðslu Óperunnar.
Harmonikufélag Reykjavíkur.
RHEINLAND-PFALZ - Ferðaævintýri í eigin bíl
Spennandi sumarleyfisland í hjarta Þýskalands.
Luxemborg er hliðið að hinum rómantísku
héruðum Rheinland-Pfalz.
Þangað er um 1-3 tíma akstur með bíl.
Njóttu pess að ferðast um Mosel- og Rínarhéruðin.
Flug og bíll í A-flokki til Luxemborgar
verð frá 28.200 kr. á mann m.v. tvo í btl.
FLUGLEIDIR S
Traustur fslenskur fer&afélagidA
wm\
'Iysk lurist Information
Vesterbrogade 6 d, DK-1620 Kbh. V. Simi: (90) 45 3312 70 95
Flugvallarskattur kr. 1.250.- er ekki
innifalinn í ofangreindu verði.
Hafðu samband við ferðaskrifstofuna þína.
Söluskrifstofur okkar og umboðsmenn um allt land
eða í síma 690 300
(svarað alla 7 daga vikunnar frá kl. 8:00-18:00).