Morgunblaðið - 21.06.1992, Qupperneq 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ
CACTEiriUID
rASTEIUlMIR sunnudagur 21. juni 1992
Þörf áhærrí og
lengri lánum fyr-
ir slærri eisnir
ÞAÐ sem af er sumri, hefur meira líf verið að færast í fasteigna-
markaðinn og hann gæti orðið enn líflegri, ef eitthvað yrði gert
til þess að liðka fyrir sölu á stærri eignum. Það myndi losa um
mikinn hnút á fasteignamarkaðnum og greiða enn frekar fyrir
sölu á minni eignum um leið. Kom þetta fram í viðtali við Þórð
Ingvarsson, sölustjóra hjá fasteignasölunni Kringlan nú í vikunni.
að hefur verið mikið um fyrir-
spurnir og greinilega fyrir
hendi töluverður áhuga hjá fólki,
sagði Þórður. — Áberandi er, að
þeir, sem eru að leita fyrir sér,
eru að því í alvöru. Það er mikið
um yngra fólk á markaðnum, sem
er að kaupa í fyrsta sinn og það
spyr einkum um 2ja og 3ja herb.
íbúðir. Margt af þessu fólki virðist
ekki hafa mikil íjárráð og tekur
þá eins hátt húsbréfalán og frek-
ast er hægt og reynir jafnframt
að teygja útborgunina lengra en
eitt ár t. d. í 14-15 mánuði.
Þórður kvað eitt erfiðasta vand-
amálið hjá mörgum vera fyrstu
greiðsluna af húsbréfunum og
sagði: — Hún er lang þyngst,
vegna þess að fyrsti gjalddagi er
sex mánuðum, eftir að þau voru
gefin út og þá bætast vextir og
verðtrygging fyrir allan þann tíma
við afborgunina. Kaupendur verða
því að gera ráð fyrir að þurfa að
borga all háa fjárhæð af húsbréf-
unum á miðju útborgunartímabil-
inu, en það eru ekki nándar nærri
allir, sem gera sér nægilega grein
fyrir þessu.
Þórður sagði ennfremur, að
sala á stærri íbúðum og einbýlis-
húsum væri eftir sem áður mjög
hæg. Það væri þó auðveldara að
selja slíkar eignir, ef á þeim hvíldu
myndarleg veðdeildarlán frá því
áður t.d. 3-3,5 millj. kr. Þá gæti
fólk nýtt sér húsbréfin til viðbót-
ar. Mun erfiðara væri að selja slík-
ar eignir, ef þær væru skuld-
lausar, sem væri býsna algengt.
Sú skoðun að eiga hús og íbúðir
skuldlausar væri fáránleg, en hún
hefði samt reynzt býsna lífseig á
meðal íslendinga. Ein afleiðingin
væri sú, að fólk um þrítugt, sem
kannski væri komið með þrjú böm
og þyrfti einmitt á stærri íbúðum
á verðbilinu 9-10 millj. kr. að
halda, gæti ekki klofið slík íbúðar-
kaup miðað við þá fyrirgreiðslu,
sem fengist nú.
~vn;:
* "** "*
H >l \ y
Þar við bættist að lánstíminn á
húsbréfunum væri allt of stuttur.
Það ætti að lengja lánstímann og
hækka láninn eitthvað á stærri
eignum. Sala á þeim myndi þá
strax verða auðveldari og jafn-
framt greiða fyrir sölu á minni
eignum. — Staðreyndin er sú, að
fæstir hafa þá peninga, sem þarf
til þess kaupa slíkar eignir, sagði
Þórður Ingvarsson að lokum. —
Ríki eða lánastofnanir verða því
að koma til skjalanna og gera
fólki kleift að kaupa þær með
aukinni fyrirgreiðslu. Þó að láns-
tíminn verði lengdur, er ekki verið
að gefa neitt. Fólk mun eftir sem
áður borga það með vöxtum og
verðbótum til baka, sem það fékk
að láni.
Sorpreiuiur
ER NOKKUR vandi að nota sorprennu? Slíkar rennur eru svo algengar
að ætla má að allir geti notað þær. Þó hefi ég heyrt furðulegar sögur
frá mönnum sem sjá um að flytja úrganginn frá byggðinni. Fólk reynir
að troða alltof stórum úttroðnum ruslapokum í rennurnar svo þær stífl-
ast gjörsamlega og getur reynst illmögulegt að losa þá stíflu.
að er bamaskapur að láta slíkt
koma fyrir, kann einhver að
segja. Ef orðið bamaskapur táknar
þekkingarskort þá er það rétt, eða
kannske stafar það af leti?
Hugum aðeins
að því hvemig
sorprennur í hús-
um em byggðar og
hvemig þarf að
nota þær svo að við
lendum ekki í
vandræðum.
Blikksmíði
Algengast er að sorprennur í íbúð-
arhúsum séu settar saman úr sívöl-
um blikkhólkum sem em tæplega
300 mm að þvermáli innanvert. í
húsum þar sem tvær eða fleiri íbúða
hæðir nota svona rennu, má reikna
með að all langur hluti rennunnar
sé beinn og standi lóðréttur í veggn-
um. Neðst á þessum beina strokk
er næstum ævinlega aflíðandi beygja
sem er þannig smíðuð að hægt er
að stilla sorptunnu undir stútinn.
Stundum er hægt að snúa þessum
enda til. Það er til þess að ef ein
tunnan er orðin full, má snúa stútn-
um til og beina mslinu í aðra tunnu.
Á sorprennum husa geta verið
fleiri beygjur á leiðinni niður í tunn-
ugeymsluna. Það fer eftir fyrirkom-
ulagi íbúða og afstöðu til tunnug-
eymslunnar, hversu bein sú leið er,
það getur komið fyrir að rennslis-
tregðu gæti í stöku húsum við svona
beygjur.
Skemmdar rennur
Blikksmíðameistari tjáði mér að
skemmdir á sorprennum húsa væru
algengar. Orsakir skemmda em oft-
ast þær að fólk treður of stórum
pökkum í rennuna og oft of þungum
og stómm hlutum. Nú gilda ákveðn-
ar reglur um hvað má setja í rusla-
poka en margir fara ekki eftir slíkum
reglum. Þannig er þvi farið með
ýmiss konar gler. Það þykir mjög
óæskilegt að gleri sé fleygt í
sorptunnur, en margir fleygja flösk-
um og glerkrakkum ýmiss konar í
mslapokana.
Við getum ímyndað okkur hvílíkt
högg verður þegar þriggja pela
flaska fellur fimm til sjö metra niður
og skellur niður í beygjustútinn
neðst í rennunni. Auðvitað beyglast
stúturinn og getur raunar eyðilagst,
að ég ekki tali um ef fleiri flöskum
af þessari stærð er fleygt niður renn-
una. Þá verður stúturinn trúlega
ónothæfur á eftir.
í fjölbýlishúsum þar sem afnota-
réttur margra íbúða er að sömu sorp-
rennunni hættir fólki til kæmleysis
í skjóli þess að enginn viti hver það
var sem ekki fór að settum reglum.
Stífluð renna og eyðilögð kemur
auðvitað öllum illa og veldur kostn-
aði og fyrirhöfn.
Heyrt hefi ég sagt að það séu
hinir ólíklegustu hlutir sem fólk
fleygi í svona rennur. Eitt af þvf sem
mér þótti merkilegt að heyra var
hesthaus í heilu lagi. Mætti margt
telja upp, sem hefur valdið skemmd-
um og stíflum í sorprennum, allt frá
fyrirferðarmiklum umbúðum, papp-
akössum, brotnum stólum, bókum,
pottum, pönnum, útvarps- og hljóm-
flutningstækjum o.fl. o.fl.
Hreinlætis gætt
Ég vil leggja áherslu á að mikil
þörf er á að fólk gæti fyllsta hrein-
lætis við notkun sorprenna og í tunn-
ugeymslunni. Það er brýnt að msl
og matarleifar séu pakkaðar í hæfi-
lega stóra poka sem bundið er vand-
lega fyrir opið á áður en þeim er
kastað í sorprennuna. Ég segi hæfi-
lega stóra poka og þá meina ég að
þótt pokarnir séu það stórir að hægt
væri að setja meira í þá áður en.
þeim er kastað í sorprennuna, má
ekki gera þá umfangsmeiri en svo
að þeir renni léttilega niður rennuna.
Varðandi það hversvegna á að
setja það sem fleygt er í sorprenn-
eftir Bjarna
Ólofsson
SMIÐJAN
er þetta að segja:
Ef sorprennan verður óhrein að
innan er mjög erfitt að þvo hana eða
hreinsa og ef matarleifar klístrast í
innvegg sorprennunnar mun ekki
líða langur tími þar til skordýr koma
til að gæða sér á matnum og þau
em fljót að tímgast.
Þegar ég var drengur var sorpi
fleygt óvörðu I öskutunnur, eins og
þær nefndust þá. í kring um ösku-
tunnurnar og í þeim var mikið líf
og fjörugt hjá maðkaflugunum sem
bám víurnar í matarleifar sem kast-
að var í tunnurnar og á sumrum
vom egg þeirra fljót að klekjast út,
svo tunnumar momðu af skríðandi
maðki.
Stærri dýr, svo sem rottur og
mýs, sóttu líka mikið að öskutunn-
unum, svo og hundar og kettir, jafn-
vel hross er gengu laus í bænum.
Þvottur á tunnugeymslum
Nú kann einhver að spyija hvern-
ig skuli sótthreinsa og halda hreinum
sorptunnugeymslum. Tunnugeymsl-
ur þurfa að vera með góðri loftræst-
ingu og upp úr sorprennunni þarf
einnig að ganga loftventill.
En það fer fljótt að bera á vondum
Hllnnl lóúa-
efUrspurn
EFTIRSPURN eftir lóðum í
Reykjavík hefur verið lítil í vor
og meira um það en venjulega,
að lóðum sé skilað inn. Hefur
lóðaúthlutun hjá borginni aðal-
lega verið í Rimahverfi og Engja-
hverfi fyrir norðan Grafarvog,
en þar er töluvert til bæði af ein-
býlishúsalóðum sem öðrum lóð-
um og því auðvelt að svara eftir-
spurn. Kom þetta fram í viðtali
við Ágúst Jónsson, skrifstofu-
stjóra borgarverkfræðings.
Hagkaup hafa fengið fyrirheit
um lóð á þessu svæði í svo-
nefndum Kjama við Borgarveg. Það
gildir í 18 mánuði og þann tíma á
að nota til að undirbúa skipulag og
framkvæmdir á þessum stað og
geta Hagkaup á þeim tíma fengið
þessu svæði formlega úthlutað, en
eftir þennan tíma fellur fyrirheitið
niður, ef Hagkaup verða ekki búin
að Jtaka ákvörðun.
Ágúst sagði ennfremur, að nú
væri endanlega búið að úthluta
byggingarétti við Hæðargarð, en
talsverðar deilur hafa staðið um
framkvæmdir þar að undanfömu.
Þar ætla svonefnd Réttarholtsam-
tök og byggingarfyrirtækið Ár-
mannsfell að reisa í sameiningu 19
íbúðir fyrir aldraða. Framkvæmdir
þama munu væntanlega heíjast í
sumar. Af öðrum stærri fram-
kvæmdum mætti nefna, að Há-
teigssöfnuður væri að undirbúa að
byggja myndarlegt safnaðarheimili
við hliðina á kirkjunni og væri þeg-
ar búið að samþykkja teikningarnar
að þeirri byggingu.
daun frá tunnugeymslunni og renn-
unni ef geymslan er ekki þvegin.
Kalk er ágætt sótthreinsiefni. Það
getur verið gott ráð að kalkbera
tunnugeymsluna að innan, þegar
þurfa þykir, en auðvitað má einnig
nota önnur hreinsiefni svo sem
þvottasóta eða góða sápu.
Sorpa
Sorpa er tekin til starfa. Ekki er
ennþá komin næg reynsla á þjónustu
þess fyrirtækis. Þó hlýt ég að segja
að sorphirða Reykjavíkur var það-
góð að erfitt verður fyrir einkarekið
fyrirtæki að veita svo góða þjónustu.
Þetta nýja fyrirtæki hefur auglýst
töluvert hvemig flokka skuli sorp.
Slík flokkun tíðkast í æ ríkari mæli
hjá nágrannaþjóðum okkar og geng-
ur auðvitað misvel að fá fólk til þess
að flokka það sem fleygt er.
Það liggur líka í augum uppi að
það er mikilvægt fyrir fyrirtækið
Sorpu að fólk taki því vel að flytja
stærstan hluta úrgangs í fáeina
gáma sem komið er fyrir á ákveðn-
um stöðum. Því meira magn sem
fólk flytur í gámana, því minna safn-
ast auðvitað í tunnumar heima, svo
minna verður að flytja þaðan.
Þetta er gott og blessað, svo fremi
að fólk geti, án mikils kostnaðar,
komið msli í gámana. Ennfremur
var fyrirtækjum gert að skyldu að
annast sjálf flutning úrgangsefna á
sorphaugana. Allur þessi niður-
skurður á þjónustu við skattborgara
er í raun og veru töluverð hækkun
á gjöldum til borgarsjóðs.
Ruslagámar eru alltof fáir, þurfa
að vera innan kílómetra fjarlægðar
í hveiju hverfí, þannig að ekki verði
lengra á milli þeirra en svo sem tveir
til tveir og hálfur km.
Með því móti er mögulegt að fólk
geti ekið heyi og öðrum úrgangi á
hjólbörum að heiman og hent því í
gáminn.
Gámaþjónustan er í raun til mik-
ils hagræðis fyrir fólk er það þarf
að koma frá sér fyrirferðarmeiri
úrgangi en þeim sem má fleygja í
sorptunnumar, því margt fellur til
sem fólk þarf að losa sig við.
Aftur á móti veldur það auknum
akstri bíla og þar með aukinni meng-
un, ef safnstöðvar eins og þessir
mslagámar em hafðir svo strjálir
að fólk komist ekki með ruslið öðm-
vísi en á bílum.