Morgunblaðið - 15.07.1992, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 15.07.1992, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 1992 3 Morgunblaðið/Þorkell Gunnar Kristinn Kristinsson og Oddur Sigfússon smiður festa klæðingu á vinnuskúrinn. Allt betra en atvinnuleysi - segja nemendur Vinnuskóla Reykjavíkur SUMARLEYFI sitt vilja íslenskir námsmenn gjarnan nýta til vinnu. Því miður hefur atvinnuleysi orðið hlutskipti sumra þeirra og hafa yfirvöld reynt að bæta úr með fjárveitingum til ýmissa verkefna. Til að heyra hljóðið í námsmönnum voru nokkrir nemendur Vinnuskóla Reykjavíkur teknir tali. Við Stórhöfða í Reykjavík hafa nokkrir unglingar á vegum Vinnu- skólans unnið við smíðar á vinnu- skúrum fyrir borgina. Stjórnandi verksins er Oddur Sigfússon, smiður hjá áhaldahúsi Reykjavík- ur. „Þetta gengur ágætlega hjá okkur. Ég er með níu krakka, bæði stelpur og stráka, og þær gefa strákunum ekkert eftir,“ sagði Oddur þegar blaðamann Morgunblaðsins bar að garði. Odd- ur sagði að þetta væri sjöunda sumarið sem hann ynni við þetta og venjulega skiluðu þau af sér tveimur skúrum fullfrágengnum á sumri. „Við byijum af krafti í júní en þá er ég búinn að undirbúa smíðina og sýna þeim uppdrátt að skúrunum," sagði Oddur en bætti við að venjulega þyrfti fyrst af öllu að kenna þeim að beita hamrinum. „í lokin,“ sagði hann, „þegar skúrarnir hafa verið mál- aðir fá krakkarnir að gefa þeim nafn í samráði við mig.“ Gunnar Kristinn Kristinsson og Þórir Haraldur Þórisson lögðu frá sér hamrana og sögðust hafa ver- ið að velta nafninu fyrir sér. Þeir töldu að það helsta sem fara mundi fram innan veggja skúrsins yrði kaffidrykkja þannig að „Kaffíkot" væri viðeigandi nafn en þeir væru ekki búnir að ákveða sig. Strák- arnir sögðust báðir hafa unnið hjá Vinnuskólanum síðasta sumar en ekki við smíðar. Að sögn Þóris vann hann síðast við snyrtingu garða og þótti honum nýja verk- efnið mun skárra. Gunnar Kristinn hafði hins vegar fengið að starfa við knattspymuskóla Fjölnis í fyrra og þótti það ívið skemmti- legra. Aðspurðir um hvað yrði af laununum svöruðu þeir að lítið yrði úr þeim en Gunnar Kristinn væri þó að reyna að safna sér fyrir hjóli. Strákamir bám sig illa en neituðu því hins vegar ekki að þessi vinna væri mun betri en engin vinna. Að lokum bentu smið- irnir ungu blaðamanni Morg- unblaðsins á að þeir væm komnir mun lengra með kofann sinn held- ur en stelpurnar. „Oddur hjálpar alltaf strákun- um,“ var svarið sem fékkst hjá Ingu Magneu Skúladóttur. Hún sagðist hafa unnið hjá Vinnuskó- lanum síðastliðið sumar við garða og þætti henni smíðarnar góð til- breyting þó svo að hún gæti hugs- að sér skemmtilegra starf. Þórir Jónsson sagði að sér væri ekki skemmt því launin væm lág og hyrfu bókstaflega í daglega neyslu. Hann sagðist vera ákveð- inn í að komast í malbikunarvinnu næsta sumar en það væri erfitt. Þórir kvað nokkra vini sína vera atvinnulausa og viðurkenndi að þá væri Vinnuskólinn skemmti- legri: „Það er allt betra en að vera atvinnulaus.“ Inga Magnea Skúladóttir sker til einangrun í útveggi. Þórir Jónsson rekur smiðshögg á þakið. Þórir Haraldur Þórisson miðar einbeittur á naglann. Hœsta ávöxtun meðal óbundinna innlánsreikninga í bönkum og sparisjóðum! Raunávöxtun Sparileibar 3 hjá íslandsbanka fyrstu sex mánubi ársins var 5,76% eftir ab vextir höfbu verib lagbir vib höfubstól. Enginn annar óbundinn reikningur hjá bönkum og sparisjóbum gaf jafn háa ávöxtun á þessum tíma. Sparifjáreigendur gera sér grein fyrir ab þab skiptir máli ab hafa aubveldan abgang ab sparifé sínu ef á þarf ab halda. Einnig leggja þeir áherslu á ab fá góba ávöxtun. Sparileib 3 sameinar þessa kosti. Sparileib 3 er alltaf laus til rábstöfunar. Engin þóknun reiknast af útteknu fé sem stabib hefur inni 12 mánubi eba lengur. Kynntu þér Sparileibir íslandsbanka. Þœr eru fyrir fólk sem fer sínar eigin leibir í sparnabi. < æ ISLANDSBANKI - í takt við nýja tíma!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.