Morgunblaðið - 15.07.1992, Side 7
Efnin í plastinu
talin skaðlaus
- segir Jón Gíslason, deildarstjóri hjá
Hollustuvernd ríkisins
JÓN Gíslason, deildarstjóri hjá
Hollustuvernd ríkisins, segir að
ekki hafi þótt ástæða til að vara
fólk við notkun sjálfiímandi
plastumbúða þar sem ekki sé
talið að efnin sem berist úr um-
Vísitölugrunnur í
júlíbyrjun:
Matvara
hækkaði
um 1%
VÍSITALA framfærslukostnaðar
hækkaði um 0,2% í byrjun júlí-
mánaðar. Helsta ástæða hækkun-
arinnar er 1% verðhækkun mat-
vöru sem olli um 0,19% hækkun
vísitölunnar. Rekstrarkostnaður
bifreiðar hækkaði um 0,2% sem
hafði i för með sér 0,04% hækkun
vísitölunnar og breyting ýmissa
annarra liða olli um 0,07% hækk-
un. A móti hafði 1,4% lækkun á
drykkjarvörum í för með sér
0,06% lækkun vísitölu fram-
fær slukostnaðar.
í 1% meðaltalshækkun matvara
frá júníbyrjun til júlíbyijunar munar
mest um hækkun á grænmeti,
ávöxtum og berjum. Sá liður hækk-
aði um 7,9%. Næstmest vægi hefur
1,3% hækkun á kjöti og kjötvörum.
Af öðrum flokkum matvæla má
nefna að kartöflur og vörur úr þeim
hækkuðu um 3,2%, fiskur og fisk-
vörur um 0,6%, mjólk og mjólkur-
vörur 0,3% og feitmeti og olía um
0,4%. Aftur á móti lækkaði kaffi,
tek, kakó og suðusúkkulaði um
1,9%.
Síðastliðna tólf mánuði hefur
vísitala framfærslukostnaðar
hækkar um 3,5%. Undanfarna þijá
mánuði hefur hún hækkað um 0,5%
sem jafngildir 2% verðbólgu á ári.
Hækkun vísitölunnar í júlí um 0,2%
jafngildir 2,3% verðbólgu á heilu
ári.
-----» ♦ '4---
Bandaríkin:
búðunum í matvæli séu skaðleg.
Breskar rannsóknir hafa leitt í
ljós að efni úr plastfilmum geta
borist í mat sem þær eru vafðar
um, einkum ef um feitan mat er
að ræða.
Jón segir að rannsóknirnar sem
gerðar hafi verið í Bretlandi og
Svíþjóð hafi leitt í ljós að það séu
mýkingarefni sem berist úr plastinu
í fiturík matvæli. Hann segir að
eftir að þessar hafi legið fyrir hafí
umbúðirnar verið endurbættar
þannig að þær innihaldi nú minna
af mýkingarefnum en áður svo
sáralítið geti borist í matvæli. Þá
segir hann að rannsóknir hafi ekki
leitt í ljós að efnin sem berist úr
plastinu séu skaðleg.
Jón bendir hins vegar á að það
sé góð regla á heimilum að pakka
fituríkum mat, eins og osti, í plast-
poka ekki vefja þeim inn í sjálflím-
andi plast.
Aðrar umbúðir, eins og mátmum-
búðir ýmiss konar, segir hann að
sé búið að gera þannig úr garði að
ekki berist úr þeim efni í matvæli.
Vestanvind-
ur hreyfði
skýjabakka
MARGUR Vestlendingurinn
hefur eflaust velt því fyrir sér
af hveiju ekki sást sól á himni
í gær eins og spáð var. Magn-
ús Jónsson, veðurfræðingur,
segir að ástæðan sé sú að vest-
anvindur hafi hreyft við skýja-
bakka milli íslands og Græn-
lands. Hann býst við betra
veðri í dag og á morgun.
Skýjabakkinn var kominn
milli Islands og Grænlands á
mánudag að sögn Magnúsar.
Vestanvindur náði hins vegar
ekki að hrekja hann yfir Vestur-
land, þ.e. austur á Hellisheiði,
upp í Borgarfjörð og á sunnan-
verða Vestfirði, fyrr en í gær. A
þessum slóðum var alskýjað og
8-10 stiga hiti.
HONDA
Góður árang-
ur íslenskrar
konu í brids
HJÖRDÍS Eyþórsdóttir hefur að
undanförnu tekið þátt í brids-
mótum í Bandaríkjunum og um
síðustu helgi vann hún í sveita-
keppni í Iowafylki með banda-
rísku heimsmeisturunum Eric
Rodwell og Karen McCallum.
Sveitakeppnin var hluti af stóru
svæðamóti og tóku rúmlega 50
sveitir þátt í henni. Hjördís varð
einnig í 3. sæti í aðal sveitakeppn-
inni á sama svæðamótinu og hafði
þá einnig Rodwell og McCallum sem
sveitarfélaga.
Um næstu helgi tekur Hjördís
þátt í sumarlandsmóti Norður-
Ameríku sem að þessu sinni verður
haldið í Toronto í Kanada. Þar spil-
ar Hjördís við Karen McCallum í
svokölluðum Life-Masters tvímenn-
ingi, sem er eitt aðaltvímennings-
mót Ameríku. Þá tekur hún einnig
þátt í Spingold-sveitakeppninni,
sem er eitt af fjórum helstu brids-
mótum álfunnar.
Hjördís Eyþórsdóttir er marg-
faldur íslandsmeistari kvenna í
brids og hún varð einnig Norður-
landameistari kvenna í sveitakeppni
fyrir tveimur árum.
Nánari upplýsingar eru veittar
í síma 68 99 00
Verð frá: 1.548.000,- stgr.
Greiðslukjör við allra hæfi.
Morgunblaðið/KGA
Fasteignir og hús við Hafnarstræti 2 og Aðalstræti 3, sem Reykjavikurborg hefur fest kaup á. Kaup-
verð eignanna er samtals 37 milljónir.
Borgin kaupir Hafnar-
stræti 2 og Aðalstræti 3
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að
kaupa tvær lóðir, Hafnarstræti 2
og Aðalstræti 3, ásamt fasteign-
um og er kaupverðið samtals 37
miiljónir króna. Að sögn Ólafs
Jónssonar upplýsingafulltrúa,
verður þegar sótt um heimild
byggingarnefndar, til að rífa
Hafnarstræti 2, Steindórshúsið en
söluskálinn við Aðalstræti 3, þar
sem Hlöllabátar eru til húsa, verð-
ur ekki rifinn fyrr en fram-
kvæmdir hefjast við fyrirhugað
Ingólfstorg.
Lóðarmat Hafnarstrætis 2 er
13.304.000 krónur, brunabótamat
hússins, sem er tveggja hæða, er
5.453.000 krónur og húsmat
670.000 krónur. Eigandi fasteignar-
innar er Petrína Jónsdóttir og er
umsamið kaupverð 18,5 milljónir.
í samningnum lýsir Reykjavíkur-
borg því yfir að verði reistir söluskál-
ar á Ingólfstorgi eða heimiluð torg-
starfsemi þar þá skuli sonur Petrínu,
Hlöðver Sigurðsson, sem nú rekur
söluskála á lóðinni Aðalstræti 3 hafa
forgang að leigu eða uppsetningu
söluskála samkvæmt þeim skilmál-
um sem borgaryfirvöld kunna að
setja.
Lóðarmat Aðalstrætis er
14.371.000 krónur og brunabótamat
hússins sem þar stendur er
2.079.000 krónur og húsmat er
379.000 krónur. Eigendur fasteign-
arinnar er Petrína Jónsdóttir auk
annarra og er umsamið kaupverð
18.500.000 krónur. Við undirritun
kaupsamninga greiðast 2,5 milljónir
fyrir hvora fasteign, en síðan 2 millj-
ónir fjórum sinnum fyrir hvora eign
fram til mars árið 1993. Greiðslurn-
ar bera ekki vexti.
Borgarráð:
Leikfimishús við Selás-
skóla fyrir 37,1 milljón
BORGARRÁÐ hefur samþykkt,
að taka 37,1 milljón króna tilboði
lægstbjóðanda S.S. húsa hf., í
byggingu leikfimishúss við Selás-
skóla. Tilboðið er 84,39% af kostn-
aðaráætlun, sem er rúmar 44
milljónir.
Sjö tilboð bárust í verkið og átti
Smári Arnarsson, næst lægsta boð,
rúmar 38,2 millj. eða 86,89% af
kostnaðaráætlun. Næstir komu
Sveinbjörn Sigurðsson hf., sem bauð
39 millj. eða 88,77% af kostnaðar-
áætlun, Dverghamrar sf., sem buðu
rúmar 39,6 millj. eða 90,15% af
kostnaðaráætlun, Al-verk h.f., sem
bauð rúmar 41,1 millj. eða 93,46%
af kostnaðaráætlun, en einn liður
hafði fallið niður í tilboðinu. Þá bauð
Sigurður Guðmundsson, rúmar 43,3
millj. eða 98,39% og Örn Úlfar Andr-
ésson bauð rúmar 43,8 millj. eða
99,67% af kostnaðaráætlun.
. . . sæti í Bandaríkjunum sem
söluhæsti fólksbíllinn undan-
farin þrjú ár og var heiðraður
sem sá bíll sem eigendur voru
ánægðastir með. Accord hlaut
einnig verðlaunin um Gullna
stýrið í sínum flokki í Þýska-
landi.
Það er ekki hægt að segja að
Accord sé sportbíll, en hann er
eins nálægt því og hægt er að
komast sem fjöl-
skyldubíll. Það má
því kannski segja
að Accord sé fjöl-
skyldusportbíll.
Utlitshönnun
Accord er sérlega
vel heppnuð og
innréttingar í alla
staði vel úr garði
gerðar.
Accord er með
sextán ventla,
tveggja lítra vél og
a nýja hönnun á
Isveifarás sem
| dregur mjög úr titringi.
Accord er stórgóður bfll sem
uppfyllir ströngustu kröfur sem
gerðar eru til
fjölskyldubíla.
Accord ár-
gerð 1992 er
til sýnis að Vatnagörðum 24,
virka daga kl. 9:00 - 18:00
ACCORD ER í FYRSTA . . .