Morgunblaðið - 15.07.1992, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 1992
15
Alþjóðadagur hjúkrunarfræðinga 12. mai sl.:
UNGUR AÐ EILÍFU?
Mælistika á það hve gömul við erum
er sjálfstæði og virkni einstaklingsins
eftir Guðrúnu Björgu
Guðmundsdóttur
Hvað er að vera gamall?
Rannsókn sem hjúkrunarfræðing-
ar gerðu á öldruðum og viðhorfum
þeirra til aldraðra leiddi í ljós að
sjálfstæði annars vegar og virkni
hins vegar er mælikvarði þess hversu
gamall maður er.
Hér á landi fær fólkið ellilífeyris-
bætur 67 ára og flestir hætta að
vinna 70 ára.
En fólk verður ekki aldrað á einu
ári, heldur er það líffæralegt ferli.
Frá fæðingu til 30 ára aldurs er
einstaklingurinn að vaxa og þrosk-
ast. Eftir það byijar hrörnun eða
öldrun.
Öll viljum við verða gömul, ekki
viljum við deyja ung. Þess vegna er
mjög sérstakt að fylgjast með um-
fjöllun um málefni aldraðra í fjöl-
miðlum og ákvörðunum stjórnmála-
manna.
Af þeirri umfjöllun má ætla að
aldraðir séu baggi á þjóðfélaginu.
Hvergi er pláss fyrir þá eða gert ráð
fyrir þeim. Það er eins og gamalt
fólk sé nýtt fyrirbrigði.
Til eru fræðilegar skilgreiningar
um líffræðilega, andlega og félags-
lega öldrun, en upplifun okkar
sjálfra á öldrun og elli skiptir meira
máli að mínu mati. Viðhorf þjóðfé-
lagsins til aldraðra er einnig mjög
mikilvægt á hveijum tíma.
Öldruðum íbúum jarðar fjölgar
mikið á næstu árum. Nú eru 488
milljónir, sem eru 60 ára og eldri.
Árið 2000 er reiknað með því að
þeir verði 612 milljónir. Konur lifa
allt að 7-8 árum lengur en karlar
í flestum vestrænum löndum.
Við megum ekki líta á öldrun sem
sjúkdóm heldur sem eðlilegan gang
lífsins.
Aldraðir eiga einkum við heil-
brigðisvandamál að stríða er tengj-
ast næringu, öryggi, líkamlegri og
andlegri líðan. Hér verður reynt að
benda á nokkur atriði sem skipta
miklu máli, ef gamall maður vill
vera ungur.
Næring
Næring er undirstaða lífsins. Ekki
er síður mikilvægt að aldraðir fái
góða og fjölbreytta fæðu en ungvið-
ið. Önnur vandamál koma upp hjá
öldruðum en ungum. Þar má nefna
of litla vökvainntekt, gamalt fólk
sparar oft við sig vökva ef það á
erfitt með að fara á salerni af ein-
hverri ástæðu. Það getur haft í för
með sér ýmsa líkamlega og andlega
kvilla svo sem minnistap svo eitthvað
sé nefnt.
Tannleysi eða lélegar tennur valda
því að gamalt fólk sneiðir hjá græn-
meti, kjöti og ýmsum fæðutegundum
sem okkur eru nauðsynlegar, ekki
síst vegna trefjanna, sem í þeim
eru. Það leiðir síðan af sér meltingar-
vandamál. Erfiðleikar við að losna
við hægðir, sem er mjög algengt
vandamál hjá fullorðnu fólki. Síðan
eru vandamál af öðrum toga, t.d.
að kaupa í matinn. Oft eru langar
vegalengdir í næstu verslun, versl-
unin á horninu er hætt en kominn
stórmarkaður langt í burtu. Einnig
reynist mörgum erfitt að elda mat-
inn. Reynt er að koma til móts við
þetta fólk. Reykjavíkurborg býður
því heimsendingu á heitum máltíð-
um, til skemmri eða lengri tíma ef
það getur ekki séð um matinn sjálft.
Öryggi í umhverfinu
Hætturnar ieynast víða á heimil-
um og í kringum okkur. Algengt er
að gamalt fólk detti og beinbrotni.
Líkamlegar ástæður, skert sjón,
jafnvægisleysi svo eitthvað sé nefnt.
Mikilvægt er að fólk íhugi hvað geti
verið slysagildra í umhverfi sínu og
fjarlægi hana eða lagfæri. Skófatn-
aður skiptir einnig miklu máli, mott-
ur á gólfum, þröskuldar og aðrar
upphækkanir. Gott er að fá sér hjálp-
artæki s.s. handföng og grip.
Lærleggsbrot er mjög algengt hjá
öldruðum eftir fall. Það getur kostað
margra mánaða legu á sjúkrahúsi
með öllum þeim óþægindum sem
henni fylgir.
Líkamlegt og andlegt heilsufar
Betra er seint en aldrei.
Það er aldrei of seint að taka upp
heilbrigt líferni. Rannsóknir sýna að
reykingamaður á sjötugsaldri sem
hættir að reykja minnkar hættu á
lungnakrabbameini og hættu á
hjartasjúkdómum. Næringarrík
fæða, heilbrigt líferni og markviss
líkamsrækt á yngri árum skilar sér
á efri árum. Aldrei er maður of gam-
all til að stunda líkamsrækt. Leikfími
fyrir aldraða er mjög góð. Mikilvægt
er að hreyfa alla liði og liðamót til
að koma í veg fyrir stirðnun og verki.
Slíkt leiðir síðan til andlegrar og lík-
amlegrar vellíðunar.
Við verkalok verða miklar breyt-
ingar hjá fullorðnu fólki, lífsmunstr-
ið breytist. Margir eiga þá erfitt með
að fínna tilgang með lífinu, þetta
leiðir oft til þunglyndis og fólk ein-
angrast.
Lífið gefur okkur öllum tækifæri,
allt veltur á því hvernig við bregð-
umst við aðstæðum hveiju sinni, og
þá gerum við okkur jafnframt grein
fyrir því að við erum ábyrgir þátttak-
endur í lífinu. Að halda sjálfstæðinu
og sjálfsvirðingunni er mjög mikil-
vægt. Að einstaklingur hjálpi sér
sjálfur eins mikið og lengi og hann
getur.
Guðrún Björg Guðmundsdóttir
„Aldraðir eiga einkum
við heilbrigðisvanda-
mál að stríða er tengj-
ast næringu, öryggi,
líkamlegri og andlegri
líðan.“
Fræðsla
Fræðsla til aldraðra um heilbrigði
er lykill að góðri heilsu þeirra. í dag
eru læknar sérhæfðir í öldrunarmál-
um, svokallaðir öldrunarsérfræðing-
ar og annað sérhæft starfsfólk sem
vinnur við þessi mál. Markvissri
fræðslu er reynt að halda uppi bæði
fyrir þá öldruðu og einnig fyrir
starfsfólkið. Á þeirri stofnun sem
ég vinn á, Vistheimilinu í Seljahlíð,
erum við með árlega fræðsluviku
fyrir vistfólkið og starfsfólkið sam-
hliða. Þessi fræðsluvika hefur vakið
mikla hrifningu hjá vistfólkinu sem
gat nýtt sér hana og það var stór
hópur. Einnig er þar gefið út blað,
Viskubrunnur, sem vistfólkið sjálft
sér um að safna efni í. Við hjúkrun-
arfræðingarnir erum búnir að fá eina
síðu í því blaði til að fjalla um heil-
brigðismál. Aðalstarf hjúkrunar-
fræðinga sem starfa við öldrunar-
mál, á vistheimilum og stofnunum
fyrir aldraða er að hjálpa fólki til
sjálfshjálpar. Að finna leiðir fyrir
þá sem eiga við erfíð vandamál að
stríða og fá þá til að átta sig á því
að þeir geti hjálpað sér sjálfir með
ýmsu móti.
Við gerum ekki aldraða sjúka
háða okkur eða ósjálfbjarga, heldur
sjálfbjarga og sjálfstæða. Það eru
okkar lykilorð.
Hðfundur er lýúkrunar-
deildarstjórí & vistheimilinu
SeijahUð.
URSLITI
VERÐLAUNA
GETRAUN
Dregið hefur verið f
verðlaunasamkeppni
Gáska, blaði Bókaklúbbs
barnanna, þar sem aðal-
vinningurinn var Qöl-
skylduferð til Disney-
lands Evrópu með
Flugleiðum.
Ferðavinninginn hlaut:
Oddný Hinriksdóttir
Njörvasundi 11
Reykjavík
Auk vinningshafans
voru dregin út nöfn 50
annarra barna og fá þau
send glæsileg aukaverð-
laun. Nöfn þeirra eru
birt hér að neðan.
Gífurleg þátttaka var í
verðlaunagetrauninni og
þakkar Bókaklúbbur
barnanna öllum þeim
ijölmörgu börnum sem
sendu inn svarseðla.
Hér draga þœr Ama Ormarsdóttir (f. miðju) frá Flugleiðum og Valgerð-
ur Benediktsdóttir (t.v.) og Helga Þóra Eiðsdóttir (t.h.) frá Vöku-Helga-
felli út nöfn vinningshafanna.
Aukaverðlaun hlutu:
Anna B. Gunnlaugsdóttir
Geithömrum 12, R.
Anna G. Gyifadóttir
Eyjabakka 14, R.
Andri Valur Jónsson
Óspaksstöðum, Brú
Anton Örn Helgason
Kambaseli 69, R.
Arnar og Bergur Jóhannes-
synir, Stafholtsveggjum,
Borgamesi
Aron Skúlason
Borgarhlíð 7E, Akureyri
Atli Þorsteinsson, Austur-
vegi 13, Reyðarfirði.
Ágústa Sif Víðisdóttir
Stakkhömmm 12, R.
Baldvin Sigurðsson
Vesturbergi 78, R.
Berglind Helgadóttir
Vorsabæ II, Selfossi
Bergþóra Smáradóttir
Jakaseli 24, R
Birgir A. Guðmundsson
Skipasundi 24, R.
Birgir Þór Þrastarson
Grænugötu 12, Akureyri
Dagný Lilja Jónsdóttir
Brekkustíg 6, Njarðvík
Dana R. Aðalsteinsdóttir
Urðargerði 7, Húsavík
Davíð Ingi Jónsson
Goðabraut 9, Dalvík.
Elín Björk Jóhannsdóttir
Kríuhólum 4, R.
Elísa Þórarinsdóttir
Sörlaskjóli 19, R
Freyja Siguijónsdóttir
Baldursgötu 9, R.
Guðrún A Hálfdánardóttir
Bæjargili 62, Garðabæ
Guðvin S. Haraldsson
Baðsvöllum 21, Grindavík
Halldóra Ögmundsdóttir
Reynihlíð 4, R
Hannes Þorkelsson
Heiðmörk 9, Hveragerði
Hlynur Jónsson
Faxabraut 16, Keflavík
Hulda Björk Amarsdóttir
Heiðargerði 2, Húsavík
Hörður Aron Harðarson
Hrísrima 31, R.
Joshua W. McKelvey
Hringbraut 58, Keflavík
Jóhann H. Guðjónsson
Gránufélagsgötu 27, Ak.
Jóhann Oddur Úlfarsson
Ránargötu 45, R.
Jóhann Pétur Jensson
Laugarási, Biskupst.
Jón Friðriksson
Sigtúni, Öxafirði
Laufey Sif Lárusdóttir
Borgarheiði, Hveragerði.
Lilja Rún Kristjónsdóttir
Suðurvangi 19, Hafnarf.
Matthildur Kj’artansdóttir
Ólafsvegi 1, Ólafsfirði
Nansý Rut Víglundsdóttir
Hraunbæ 172, R.
Páll Magnús Guðjónsson
Búhamri 39, Vestm.éyjum
Sigrún H. Jónsdóttir
Skógarhjalla 23, Kópavogi
Skafli og Ingimar Vigniss.,
Hjaltabakka, Blönduósi
Sólveig Jóhannsdóttir
Ytra-Hvarfi,Vopnafirði
Stefanía Ásgeirsdóttir
Krummahólum 6, R.
Stefanía Helga
Tunguvegi 6, Njarðvík
Stefán Jóhann Sigurásson
Laugarbraut 16, Akranesi
Steinar Sveinsson
Drápuhlíð 2, R.
Steinþór Karl Aronsson
Háarifi 71, Hellissandi
Svanborg Siguijónsdóttir
Álfaskeiði 76, Hafnarfirði
Sveinbjörg A. Karlsdóttir
Ásabraut 5, Sandgerði
Sverrir H. Steindórsson
Fagrahjalla 20, Vopnafirði
Vala Maria Valsdóttir
Strandgötu 25, Eskifírði.
Þórdís Brypjólfsdóttir
Næfurási 17, R.
Þómnn S. Hermannsdóttir
Kársnesbraut 91, Kópavogi
Bókaklúbbur barnanna • Síðumúla 6 • Reykjavík • s. 688 300
LOKAÐ I DAG
ÚTSALAN HEFST
Á MORGUN Kl. 10
JOSS
KRINGLUNNI 8-12
SÍMI 689150