Morgunblaðið - 15.07.1992, Side 17

Morgunblaðið - 15.07.1992, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JULI 1992 17 Lífeyrissjóður Austurlands; Grunur um 4 millj- óna kr. fjárdrátt Fyrrverandi starfsmaður grunaður um skjalafals Rannsóknalögreglan hefur Morgunblaðsins um 4 milljónir nú til rannsóknar meintan fjár- króna á s.l. 2 árum. Starfsmað- drátt og skjalafals hjá Lífeyris- ur þessi er ein af fimm konum sjóði Austurlands á Neskaup- sem unnið hafa hjá sjóðnum stað. Fyrrverandi starfsmaður undanfarin fimm ár en grunur- sjóðsins er grunaður um að inn beinist að henni einni. Hún hafa dregið sér töluverða fjár- hafði umsjón með innheimtu- hæð, samkvæmt heimildum málum sjóðsins og uppboðsmál- ----------------- um. Morgunblaðið/Sturla Páll Sturluson. Þorsteinn með netadræsu úr trolli sem hann hirti upp úr sjó á siglingaleið fyrir Barða. Suðureyri: Netadræsa úr trolli á reki á siglingaleið fyrir Barða Suðureyri. ÞAÐ var ekki gott hljóðið í Þorsteini H. Guðbjörnssyni útgerðar- manni á Berta G.ÍS 161 er hann renndi í höfn á Suðureyri fyrir skemmstu með stóra netadræsu meðferðis sem hann hafði hirt upp úr sjónum á siglingaleið fyrir Barða. Að sögn Þorsteins var hann á siglingu 13 mílur undan Barða er hann sá þúst á sjónum. Við nánari athugun reyndist þetta vera dræsa úr trolli u.þ.b. 10x10 metrar. í dræsunni voru dauðir fulgar sem höfðu fest sig í henni. „Það er ljóst að ef svona dræsa myndi lenda í skrúfu einhvers báts þá gæti stafað af því mikil hætta og er það óafsakanlegt kæruleysi og heimska að kasta svona hlutum í sjóinn,“ sagði Þorsteinn um leið og hann snaraði netadræsunni upp á hafnarkantinn þaðan sem leið hennar mun liggja á sorphaugana. - Sturla Páll. Ástæða til að ætla aðvilji sé fyrir því að efla RÖSE segir Davíð Oddsson DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra segir að leiðtogafundur Ráðstefn- unnar um öryggi og samvinnu í Evrópu (ROSE) í Helsinki hafi á margan hátt verið athyglisverður. Hann segir að eftir þennan fund sé RÓSE á margan hátt skilvirkari en áður og ekki sé ástæða til annars en að ætla, að vilji sé fyrir því að þróa samtökin þannig að þau verði í stakk búin til að takast á við óróleika og erfið vandamál í öryggismálum í Evrópu. Kammer- tónleikar á Kirkjubæj- arklaustri KAMMERTÓNLEIKAR verða haldnir á Kirkjubæjarklaustri dagana 21. ágúst til 23. ágúst. Flytjendur verða Auður Haf- steinsdóttir, fiðluleikari, Christop- her Beau, sellóleikari, Edda Er- lendsdóttir, píanóleikari, Jorge Chaminé, baritónsöngvari, Marie- Francoise Bucquet, píanóleikari, og Olivier Manoury, bandóneon- leikari. Flutt verða m.a. spönsk, portúg- ölsk og suður-amerísk kammer- tónlist í tilefni af þátttöku portúg- alska baritonsöngvarans Jorge Chaminé, en hann söng nýlega stórt hlutverk í óperunni Carmen undir stjórn Placido Domingo við opnun á heimssýningunni í Sevilla á Spáni. Jorge Chaminé mun m.a. flytja argentísk tangóljóð með Olivier Manoury bandónenleikara sem hefur leikið oft áður hér á landi. Hann mun einnig flytja spönsk og portúgölsk ljóð ásamt franska píanóleikaranum Marie-Francoise Bocquet sem er þekkt fyrir leik sinn og starfar sem prófessor við Tónlistarháskólann í París. Einnig verður flutt slavnesk tónlist m.a. píanótríó eftir Dvorak, verk fyrir selló og píanó eftir Brahms, Janac- ek og Martinu, duo eftir Handel og Haydn svo að eitthvað sé nefnt. Ný efnisskrá verður á hvetjum degi og er tilvalið fyrir tónlistar- unnendur og ferðafólk að dvelja á Kirkjubæjarklaustri þessa daga. Þess má geta að slíkir tónleikar voru einnig á síðasta ári enda ætl- unin að þeir verði árlegur viðburð- ur. Eins og áður hefur komið fram er meirihluti flytjenda í ár erlendir listamenn en í fyrra voru allir inn- lendir. Þannig er ætlunin að fá alltaf nýtt og nýtt listafólk frá ári til árs en þó alltaf þekkt og eftir- sótt svo tónlistarunnendur geti notið þess besta á þessu sviði. Tónleikarnir í fyrra þóttu takast afar vel og voru alltaf fyrir fullu húsi eða á annað hundrað áheyr- enda í hvert skipti. (Fréttatilkynning) RLR verst allra frétta af rann- sókninni enn sem komið er en máiið var kært til hennar fyrir um tveimur vikum síðan. Samkvæmt upplýsingum frá Jóni Guðmunds- syni formanni stjórnar lífeyris- sjóðsins lét konan af störfum hjá sjóðnum í miðjum síðasta mánuði. Er verið var að setja eftirmann hennar inn í starfið kom í ljós að ýmislegt var athugavert í gögnum sem hún skildi við sig. Jón Guð- mundsson segir að í bókhaldinu hafi verið að finna ýmsa pappíra sem falsaðir höfðu verið. „Hér er um töluvert tjón að ræða fyrir sjóð- inn og slæmt að svona geti átt sér stað,“ segir Jón. Jón vildi ekkert segja um hve mikil fjárhæðin er sem um væri að ræða enda málið ekki fullrannsakað. Lífeyrissjóður Austurlands telur nú um 6000 virka félaga en frá því að sjóðurinn var stofnaður 1969 hafaum 17.000 mannsgreitt iðgjöld til hans. „Þetta var um margt athyglis- verður fundur," segir forsætisráð- herra. „Þarna komu fulltrúar fleiri ríkja en áður og ljóst er að þjóðir ýmissa fyrrum kommúnistaríkja í Austur-Evrópu binda töluverðar vonir við þessi samtök. Þau eiga hins vegar ekki hægt um vik við að bregðast við óróleika eða jafnvel styijaldarástandi í álfunni eins og þau eru skipulögð, enda er til þeirra stofnað við töluvert aðrar aðstæður en nú ríkja. En nú má segja að aðeins hafi miðað í þá átt að þau verði skilvirkari og leiðir opnast til að þau geti fylgt eftir ákvörðunum sínum með valdi, annars vegar fyr- ir tilstilli Vestur-Evrópusambands- ins og hins vegar í gegnum Atlants- hafsbandalagið." Davíð segir, að hann hafi ekki ástæðu til annars en að ætla, að menn vilji reyna til þrautar, að þróa RÖSE þannig að samtökin verði í stakk búin til að taka á erfiðum málum. „Ég tel að eftir leiðtoga- fundinn í Helsinki sé RÖSE að mörgu leyti skilvirkari samtök en áður. Hér er um að ræða athyglis- verðan vettvang fyrir aðildarríkin, þar sem fulltrúum þeirra gefst færi á að skiptast á skoðunum. Menn mega þess vegna ekki vanmeta þessa ráðstefnu." Hann segir að enn eigi eftir að laga samtök eins og RÖSE, Atlants- hafsbandalagið og Vestur-Evrópu- sambandið að þeim miklu breyting- um, sem átt hafi sér stað í öryggis- málum Evrópu á undanförnum árum, en athyglisvert verði að fylgj- Islensk verslun: Frumvarpið er komið fram vegna samningsins um evrópskt efnahags- svæði og með því eru gerðar veru- legar breytingar á almennum toll- ast með þróuninni í þeim efnum. Ljóst sé að samstarfið innan Atl- antshafsbandalagsins verði íslend- ingum áfram mikilvægt og jafn- framt telji hann nauðsynlegt að taka boði um aukaaðild að Vestur- Evrópusambandinu. um, ytri tollum, vörugjöldum, tolla- afgreiðslu og fleiru, auk þess sem viðtækari heimildir fást til álagn- ingar jöfnunartolla á matvæli. Hádegisverðarfundur með fjármálaráðherra SAMTÖKIN íslensk verslun halda hádegisverðarfund með Friðrik Sophussyni fjármálaráðherra, fimmtudaginn 16. júlí í Hvammi, Holiday Inn, kl. 12. Fjallar fundurinn um nýtt frumvarp til laga um tolla og vörugjöld. ÚTSALA ÚTSALA L ÚTSALAN BYRJAR í JTSALA DAG Opið daglega frá kl. 9-18, laugardag frá kl. 10-14. <3<h mtt ! * HF verzlun v/Nesveg, Seltjarnarnesi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.