Morgunblaðið - 15.07.1992, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 15.07.1992, Qupperneq 24
Laugaland á Þelamörk: 34 skólanemar atvinnulausir: Unglingar fá vinnu hjá opin- berum stofnunum og félögum Morgunblaðið/Tómas Vilbcrg Margar trillur eru þessa dagana í Grímsey. Þessir hafa væntanlega verið að ræða um krókaleyfin þegar Ijósmyndarinn smellti þessarí mynd af í Grímsey á dögunum. Sjómenn í Grímsey: Ekki kvóta á krókaleyfisbátana Grímsey. SJÓMENN í Grímsey óttast mjög hugmyndir um að kvóti verði settur á krókaleyfisbáta. Þeir telja að verði slíkt að veru- leika ógni það ákaflega byggð í eyjunni og geti jafnvel gert út af við hana. Á mánudaginn var var haldinn fundur í Grímsey þar sem kynnt voru samtök um nýja fiskveiði- stefnu. Skúli Alexandersson kom og kynnti félagsskapinn. Fundur- inn var hins vegar haldinn á afar óheppilegum tíma, um miðjan dag í fádæma góðu sjóveðri og þess vegna komu fáir til að hlýða á það sem fram fór. Greinilegt var á tali heima- manna á fundinum að þeir eru afar ósáttir við að kvóti verði lagð- ur á krókaleyfisbátana, báta und- ir 6 tonnum, sem mjög mikið er af hér í Grímsey. Fram komu áhyggjur margra yfir því hvemig kvóti er færður af smábátum yfir á togarana og menn voru sam- mála um að kvótakerfíð væri svo slæmt fyrir eyjuna að eitthvað nýtt, eitthvað annað en kvóti, nánast sama hvaða nafni það nefndist, yrði að koma í stað þess. Eins og fyrr segir var fundarsókn ekki góð og menn höfðu orð á því að það stafaði af því að mönnum fyndist hver dag- ur vera þeirra síðastur á króka- veiðunum. H.H. Strandlífá Akureyri Sumarblíðan hefur leikið við fólk víðast hvar um landið síðustu daga. Ljósmyndari Morg- unblaðsins átti leið framhjá Sundlaug Akureyrar einn hlýjan sólskinsdaginn. Þá streymdi þar að fólk til að baða sig í sólskini og kæla sig í heitu vatninu. Þarna var líf og fjör ekki síður en á sólarströnd suður í heitu löndunum. Morgunblaðið/Eiríkur Ekkinóg vatn í bor- holunni 1,5 milljóna króna aukafjárveiting veitt til launagreiðslna ATVINNULAU SIR unglingar á Akureyri, á fjórða tug talsins, geta átt von á því að fá vinnu á næstunni samkvæmt ákvörðun bæjaryfirvalda að veita hálfri ann- arri milljón króna til viðbótar til sumarvinnu unglinga. Þessa dag- ana er unnið að því að skipu- leggja þessa vinnu ungmennanna. Næg verkefni eru fyrir hendi hjá opinberum stofnunum og fleiri aðilum og með þessari aukafjár- veitingu verður unnt að taka fleiri til starfa en verið hefur. Árni Steinar Jóhannsson hjá um- hverfisdeild Akureyrarbæjar sagði að þegar væru á skrá hjá sér 34 unglingar sem væru atvinnulausir, fyrst og fremst skólafólk sem hefði ekki áunnið sér neinn bótarétt. Um- hverfísdeild væri nú gert að taka allt þetta fólk í vinnu. Arni sagði að um væri að ræða aðallega 17, 18 og 19 ára fólk, sem hefði ekki getað útvegað sér neina aðra vinnu, enda væri atvinnuleysi mikið á Akureyri þessar vikurnar. Um þetta bótalausa fólk væri að ræða, hér féllu ekki í hóp þau ungmenni sem ekki hefðu atvinnu en væru á einhverjum at- vinnuleysisprósentum. Samkvæmt upplýsingum Vinnu- miðlunarskrifstofunnar á Akureyri var þar skráð um það bil hálft þriðja hundrað manna atvinnulaust um síð- ustu mánaðamót og fjölgaði heldur þegar skóverksmiðjunni Strikinu var lokað. Þeir sem umhverfisdeild Akur- eyrarbæjar er nú að fjaila um eru ekki inni í þeirri tölu. Til þess að komast á atvinnuleysisskrá og geta notið lægstu bóta þarf viðkomandi að hafa unnið minnst 425 stundir á undangengnu ári. Með fullri sumar- vinnu geta skólanemar náð því en þeir sem hafa minni vinnu en því nemur falla utan bótaréttar. Árni Steinar Jóhannsson sagði að þessa dagana væri unnið að því hjá umhverfisdeild að skipuleggja starf ungmennanna. Bæjaryfirvöld væru búin að leggja til eina og hálfa millj- ón í launagreiðslur og hann væri að vinna að tillögum til bæjarráðs um það hvernig unnt væri að gera þessu unga fólki úrlausn fyrir þetta fé. Umhverfísdeild réð til starfa í sumar alla 16 ára unglinga sem sóttu um vinnu. Árni sagði að alls væru 107 sextán ára unglingar að störfum í bæjarkerfinu og umhverfisdeild sæi um launagreiðslur til þeirra þótt þeir væru margir að störfum við aðrar stofnanir. Á síðasta ári hefði verið gerð sú breyting að í stað þess að byggja unglingavinnuna, sumar- vinnu skólafólks, upp á aldurshópun- um 13, 14 og 15 ára hefðu þeir 13 ára verið felldir brott en 16 ára tekn- ir í staðinn. Sumarvinna skólafólks væri orðinn stór þáttur í kerfínu, en þar væri átt við skólafólk á aldrinum frá 16 til 24 ára. „Við erum ekki í neinum vandræð- um með verkefni, það hefur aldrei verið,“ sagði Ámi Steinar, „hins veg- ar hefur bæjarsjóður verið í vandræð- um með að reiða fram launagreiðsl- ur, eins og gefur að skilja. Verkefn- in eru óþijótandi í svona stórum og fallegum bæ og þetta unga fólk fær trúlega vinnu hjá opinberum stofnun- um og félagasamtökum, til dæmis Golfkúbbnum og öðrum íþróttafélög- um, eins og verið hefur talsvert, og við ætlum jafnframt að styrkja vinnuflokka okkar innan umhverfis- deildarinnar, því við höfum varla náð að hirða bæinn sómasamlega með þeim mannafla sem við höfum haft.“ ♦ ♦ ♦--------------- Póstur og sími: Næturpóst- ur gengur vel PÓSTFLUTNINGAR milli Akur- eyrar og Reykjavíkur landleiðina að næturlagi, sem hófust fyrir skömmu, hafa gengið vel. Flutt eru 2 tonn á dag að meðaltali. Að sögn Guðlaugs Baldurssonar, póstfulltrúa, eru þessir flutningar til mikilla bóta fyrir viðskiptavinina. Sendingar sem berast póststofum á opnunartíma þeirra eru til afhend- ingar á viðtökustað að morgni næsta dags. Tveir bílar eru í förum milli Akureyrar og Reykjavíkur og fíytja póst milli þessara staða og annarra póststöðva á leiðinni. Guðlaugur sagði að þessir flutn- ingar væru í því skyni einvörðungu að póstur bærist hraðar milli stað- bóta. Póstur hefði áður allur verið fluttur með Flugleiðum og Norður- leið, en enda þótt samskipti við þau fyrirtæki hefðu verið afar góð hefði þessi kostur verið tekinn vegna þess að hann væri fljótvirkari. Fyr- ir hefði komið að bögglasendingar hefðu tafíst dálítið þegar rúm hefði þrotið í vélum Flugleiða, sem að sönnu væru fyrst og fremst far- þegaflutningatæki. EKKI reyndist borhola Hita- veitu Akureyrar á Laugalandi á Þelamörk, sem sagt var frá fyr- ir skemmstu, gefa nægilega mikið heitt vatn. Ákveðið hefur verið að bora aðra holu skammt frá og freista þess að hitta þar á heita sprungu. Eins og áður hefur verið frá sagt var það komið undir mæling- um á borholu hitaveitunnar nú um liðna helgi hvort þar væri að vænta nægilegs heits vatns svo huga mætti að gerð vinnsluholu. í ljós hefur komið að þarna er ekki nægt heitt vatn, Að sögn Franz Árna- sonar hitaveitustjóra er hitinn þarna greinilega nægur en menn hafí trúlega misreiknað halla á þeirri sprungu sem verið sé að reyna að hitta í, henni halli að lík- indum undir Hörgána en ekki inn til lands. Franz sagði að af þessum sökum væri borun nú hætt á þessum stað en borinn yrði færður dálítinn spöl vestur í átt að árbakkanum og þar boruð önnur könnunarhola, heldur grynnri þó en sú sem nýlokið var við. Þess væri að vænta að því lyki nærri mánaðamótum og bjart- ar vonir manna stæðu til þess að þá mætti gera tilraunir til að dæla upp úr henni. Að sögn Franz má segja að bor- unin sem nýlokið er hafí að öllu leyti gengið framúrskarandi vel að öðru leyti en einungis þessu að ekki náðist að hitta á nákvæmlega rétta staðinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.