Morgunblaðið - 15.07.1992, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 15.07.1992, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 1992 ©1988 Universal Press Syndlcate f/ JcL,já,, 'egvejtað þúyarst sestun Bn lestu Þaé^iál-fbr, herstendur: Gre.lndurmaÁunös!ca<,t tjL star-fciy Hann klappaði mér á höfuð- ið og kyssti hundinn þegar hann fór í vinnuna í rnorg- un, blessaður. Ást er... að bæta útlit sitt. TM Reg. U.S. Pat Off.—all rights reserved ° 1991 Los Angeles Times Syndicate Eins og vant er redda ég öilu á heimilinu sjálfur: Hringdi í rafvirkjann, mál- arann og pípulagninga- manninn... BREF HL BLAÐSINS Aðalstræti 6 101 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691222 Bænabók - leiðsögn á vegi trúarlífsins Frá Jóni Bjarman: Fyrir tveimur árum sendi sr. Karl Sigurbjörnsson frá sér bókina „Til þín sem átt um sárt að binda“. Var þar komið hið ágætasta hjálpartæki fyrir þá sem reyna að hugga syrgj- endur. Bókin er falleg, skreytt ljós- myndum eftir Björn Rúriksson, umbrot og uppsetning gerð af mik- illi smekkvísi, lesmál hljóðlátt, hóg- vært en um leið huggunarríkt. Ber þar allt vitni um hjartalag og hæfi- leika þess sem saman setti. Þessa bók ættu prestar að hafa í nokkru upplagi hjá sér og afhenda þeim syrgjendum sem þurfa. Væri athug- andi fyrir sóknamefndir að styrkja slíkt tiltæki. En sr. Karl hefir ekki látið þar við sitja heldur sendir nú frá sér aðra bók og meiri, „Bænabók - leið- sögn á vegi trúarlífsins". Var orðið tímabært að fá slíka bók í hendur, þar sem eldri bækur af þessari gerð eru Iöngu uppseldar. Bænabókin ber hin sömu ytri ein- kenni og fyrri bók sr. Karls, list- fengi hans og hlýja eru alls staðar auðsæ í texta hans og myndavali, bæði ljósmyndum Björns Rúriksson- ar og eigin pennateikningum, sem hann notar sem vinjettur við kafla- skipti. Eru þær byggðar á gömlu kirkjulegu táknmáli, þar sem mynd- ir Björns leggja hinsvegar áherslu á hrynjandina í sköpun Guðs (sjá t.d. mynd á bls. 165). í lesmáli bókarinnar er ausið af brunni mikillar auðlegðar, og æðar liggja víða að. Hér er bæði nýtt og gamalt, talað er bænamál aldanna og fléttað saman lofgjörð, þakkar- gjörð, fyrirbænum og beiðnum. Þær era hrífandi margar gömlu bænirn- ar, þar sem eitt bænarefni er meitl- að í odd og Kristi falið, eða þá þessi gamla bæn á bls. 21: Sofi augu mín. Vaki hjarta mitt, horfí ég til Guðs míns. Sipdu mig sofandi, varðveittu mig vakandi, lát mig í þínum friði sofa og í eilífu ljósi vaka. Þá koma bænir Olavi Kaukola á óvart, þær tala svo mærðarlaust og blátt áfram við Guð. Ég bendi á bæn eftir hann á bls. 121 „Þegar rign- ir“. - Upphafsorð hennar bergmála sjálfsagt í bijóstum margra: „Góði Guð, ætlarðu aldrei að láta stytta upp!“ Bókinni er skipt í 7 kafla. Þunga- miðja hennar og hjarta eru annar og þriðji kaflinn - „Dag í senn“ og „Helgar og hátíðir". Hinn fyrri er leiðsögn í bænagjörð í fjórar vikur, hinn seinni er bænagjörð tengd helgihaldi kirkjuársins. Eðlilegur hluti þess er svo Biblíulestrarskrá er fylgir kirkjuárinu, eru þar gefnir Davíðssálmar til lestrar kvölds og morgna, Gamla testamentis lestur, pistill og guðspjall fyrir hvern dag. Að öllu þessu er mikill fengur, enda er það hlutverk bókarinnar að „koma reglu á bænalíf" fólks. Ég álít þó að fjórði og fimmti kafli bókarinnar eigi eftir að reynast mörgum lesandanum góð upp- spretta til andlegrar svölunar, „Krossgötur" og „Trúarlífið". Ekki er hægt að geta bænabókar- innar án þess að minnst sé á þátt Sigurbjörns Einarssonar biskups í henni. Hann á hér margar bænir, svo sem við var að búast, og þar að auki inngang bókarinnar, „Stutt- ar leiðbeiningar um bæn og trúar- líf“. Sigurbjörn talar skírt og skært og beint til hjartans. Enginn hefir talað betur máli trúarinnar við ís- lendinga á þessari öld. Hann nær hlustum allra og fangar hjörtu þeirra. Þess vegna kemur það ekki á óvart að til hans sé vitnað og það veh Ég las bókina alla um leið og ég fékk hana í hendur. Ég hef stuðst við hana síðan í daglegri bænagjörð minni til að prófa skorðurnar sem hún setur manni og er skemmst frá því að segja, að mér líkar hún vel. Örfáar aðfinnslur í lokin. Bókar- smiður hefði mátt nota meiri fjöl- breytni í letri, bæði í stærð og stafa- gerð. Þá hefði mátt setja Biblíulestr- arskrána upp á skírari hátt og láta hana fylgja kaflanum „Helgar og hátíðir". Einnig finnst mér að mátt hefði fylgja nafnaskrá með upplýs- ingum um uppruna og aldur bæn- anna, svo og höfunda þeirra. Prent- villur eru fáar og engar meinlegar. Ég óska sr. Karli og Skálholtsút- gáfunni til hamingju með Bænabók- ina og mæli eindregið með notkun hennar. JÓN BJARMAN sjúkrahúsprestur. Sýnum tillitssemi á tjaldstieðum Frá Þórunni Lárusdóttur: Á undanförnum áram hefur áhugi á umhvérfismálum aukist til muna og hefur það leitt til bættar umgengni í íslenskri náttúru. Ástæða er til að fagna þessari þróun, en ekki má gleyma mikilvægi þess að ferðafólk sýni hvert öðra sjálfsagða tillitssemi. Á tjaldstæðum hefur iðulega borið á ölvun og drykkjulátum, sem valdið hafa ónæði og truflun þeirra sem vilja vera í friði og ró og njóta þess að vera úti í íslenskri náttúra. Skemmst er að minnast óláta sem urðu víða á tjaldstæðum um síðustu helgi. Forráðamenn tjaldstæða hvetja ferðafólk til að forðast ofnotkun áfengis á tjaldstæðum og sýna hvert öðru sjálfsagða nærgætni og tillit- semi. Allir vilja að ferðalög, hvort sem um er að ræða helgarferðir eða sum- arleyfísferðir, verði sem ánægjuleg- astar fyrir alla. Þess vegna hvetja umsjónarmenn tjaldstæða ferðafólk til að sýna samferðafólki sínu tillits- semi og raska ekki ró annarra með óþarfa hávaða og látum. Ölvun og drykkjulæti geta leitt til brottvísunar af tjaldstæðum. F.h. Félags eigenda sumardvala- svæða, ÞÓRUNN LÁRUSDÓTTIR, Markarvegi 10, Reykjavík. HÖGNI HREKKVÍSI GLEPUR MKSAEi KyHNA&TþéR... ÉG þEKtct PABBA þ/NN l/EL’ " EFTlXdítOfi Víkveiji skrifar Morgunörtröðin í Leifsstöð á Keflavíkurflugvelli þessa dag- ana er með ólíkindum. í síðustu viku átti Víkverji leið til Kaupmannahafn- ar með morgunvél sem átti að fara í loftið kl. 7.30. Víkverji taldi sig vera tímanlega í því, er hann kom i Leifsstöð fyrir kl. 6.30, en þá var brottfararsalurinn fullur út úr dyrum og langar biðraðir við hvert einasta afgreiðsluborð, nema fyrir Saga-far- þega. Afgreiðslan tók hreint lygilega langan tíma og klukkan var korter gengin í átta þegar Víkveiji hafði fengið brottfararspjaldið í hendur. Það er afar óskemmtilegur máti að hefja ferðalag sitt á, að þurfa að standa í biðröð í fimmtíu mínútur og Víkveiji trúir ekki öðra en Fiug- leiðir geti aðeins dreift morgunálag- inu á lengri tíma, sjálfum sér og við- skiptavinum sínum til aukinna þæg- inda. xxx Reyndar var sama upp á teningn- um þegar Víkveiji kom aftur landsins nú á sunnudagseftirmiðdag. Örtröð komufarþega var slík, að bið- raðir mynduðust um allt, enda komu fjórar vélar að utan til Keflavíkur á einum og sama klukkutímanum. Svona kraðak er fólki vart bjóðandi, og svo stendur flugstöðin meira og minna auð og starfsfólkið verkefna- lítið á milli þessara lítt þolandi álag- stoppa. Hvemig stendur á því að brottfarir og komur eru ekki skipu- lagðar þannig að bærilegra sé? xxx Aleiðinni heim frá Kaupmanna- höfn var borinn fram heitur hádegisverður, sem Víkveiji taldi hreint ekki boðlegan. Við eftir- grennslan við flugfreyjur kom á dag- inn að þessir mauksoðnu kjötbitar, sem flutu í eigin fitu og einhverri torkennilegri hveitisósu, í fylgd með heldur leiðinlegum dósagulrótum gengu undir nafninu kálfasteik. Sessunautar Víkveija, sem vora tveir rosknir Danir, höfðu á orði að þeir hefðu aldrei áður fengið jafnlélegan viðurgerning á ferðum sínum með Flugleiðum, og verður Víkverji að gera orð þeirra að sínum. að var annars skemmtilegt að ræða við annan þessara rosknu Dana, sem er gömul hjúkrunarkona, fyrir löngu sest í helgan stein, en heimsækir Frón á hveiju ári og eyð- ir hér nokkrum vikum. Hún tjáði Víkveija að hún hefði fyrst komið hingað til lands árið 1947, sem hjúkr- unarkona, fyrst á Blönduósi, svo í Keflavík. Loks réðst hún til ísafjarð- ar og þar giftist hún og bjó með manni sínum í 30 ár, eða allt til þess er hún varð ekkja árið 1978. Hún fluttist á nýjan leik til Danmerk- ur árið 1980, en kemur á hveiju sumri til íslands og eyðir nokkrum vikum með vinum sínum og kunn- ingjum á ísafirði og víðar. Þennan háttinn segist hún ætla að hafa á „þar tit yfir lýkur", enda sé það svo með sig, að ísland og þá einkum Vestfirðir skipi háan sess í hug henn- ar og hjarta. Það yljar okkur lands- mönnum óneitanlega um hjartaræt- ur, þegar land okkar þrátt fyrir öll sín rok og rigningar laðar hingað til sín ár eftir ár útlendinga sem tekið hafa ástfóstri við land og þjóð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.