Morgunblaðið - 15.07.1992, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 1992
HJOLREIÐAR / TOUR DE FRANCE
Reuter
Jean-Paul van Poppel náði á síðustu sentimetrunum að skjótast fram úr Samveldismanninum Abdoujaparov og
tryggja sér þannig sigur á 10. legg. Á myndinni eru frá vinstri Jalabert sem lenti í þriðja sæti, samveldismaðurinn
Abdoujaparov, og loks Hollendingamir Johan Museeuw og van Poppel lengst til hægri.
Sigur á síðuslu
sentimetrunum
Hollendingurinn van Poppel sigraði á 10.
legg í gær og Lino heldur enn forystunni
KNATTSPYRNA
Koma Júgóslavar í haust?
Formaður KSÍ
ósáttur við
vinnubrögd FIFA
URSLIT
Hjólreiðar
Staðan eftir 10 leggi f Tour de France:
1. Pascal Lino (Frakklandi).. 42:01.48 kist.
2. Miguel Indurain (Spáni) 1.27 mín. á eftir
3. JesperSkibby (Danmörku)..........3:47
4. Stephen Roche (írlandi)..........4:15
5. GregLeMond (Bandar.).............4:27
6. Gianni Bugno (ftalíu)............4:39
7. Jens Heppner (Þýskalandi)........4:52
8. Claudio Chiappucci (Italfu) .....4:54
9. Yvon Ledanois (Frakklandi).......5:52
10. Alberto Leaizbarrutia (Spáni)....6:15
11. GiancarloPerini(ítalfu)..........6:44
, 12. Pedro Delgado (Spáni)...........7:11
13. Raul Alcala (Mexíkó).............7:46
14. Laurent Fignon (Frakklandi).....7:54
LeiArétting
Leik Léttis og Bolungarvíkur sem vera
átti um síðustu helgi í 4. deild var frestað.
í Morgunblaðinu í gær var sagt að Bolvík-
ingar hefðu gefið leikinn, sem er rangt. Þá
var rangt farið með föðumafn Amars, sem
gerði mark Hugins úr Fellabæ gegn Val.
Hann er Sigbjömsson. Beðist er velvirðing-
ar á mistökunum. Rétt staða í B-riðli 4.
deildar er nú þannig:
Fj. leikja U j T Mörk Stig
HK 9 9 0 0 54: 7 27
LEIKNIR 9 5 1 3 24: 15 16
ÁRMANN 9 5 1 3 20: 17 16
VÍKVERJI 9 4 1 4 20: 23 13
SNÆFELL 9 4 1 4 18: 21 13
FJÖLNIR 9 3 1 5 15: 18 10
BOLUNGARV. 8 2 1 5 12: 20 7
LÉTTIR 8 0 0 8 4: 46 0
„ÉG er orðinn vanur gula vest-
inu, og umfram allt kom ekki
til greina að tapa því 14. júlí,“
sagði Frakkinn Pascal Lino,
sem hélt upp á þjóðhátíðardag
Frakka í gær með því að halda
enn forystunni í Tour de France
hjólreiðakeppninni. Það var
hins vegar Hollendingurinn
Jean-Paul van Poppel sem sigr-
aði á 10. legg í gær. Hann hjól-
aði kflómetrana 217 frá Lúxem-
borg til Strasborgar á 5 klst.
2.45 mín.
ttugu efstu mældust allir á
sama tíma, en Jean-Paul van
Poppel náði á síðustu sentimeuim-
um að skjótast fram úr Samveldis-
manninum Djamolidine Abdoujap-
arov, sem varð annar, og Frakkan-
um Laurent Jalabert sem lenti í
þriðja sæti.
Þegar hjólreiðamennimir höfðu
lagt um 10 kílómetra að baki í
gær, stungu heimsmeistarinn
Gianni Bugno frá ítalíu og írinn
Stephen Roche, sigurvegarinn frá
því 1987, aðalhópinn af ásamt níu
minni spámönnum. Bugno og Roche
misstu forystuna aftur fljótlega, en
hinir níu héldu henni áfram, allt
þar til um þrír kílómetrar voru eft-
ir. Þeir hjólreiðamenn, sem þekkt-
astir eru fyrir mikinn hraða og
snarpa endaspretti, fengu þá loks-
ins að njóta sín í keppninni, en fram
að þessu hafa þeir orðið að láta í
minni pokann fyrir mönnum sem
„stolið" hafa forystunni snemma,
og haldið henni allt tii enda. Þegar
400 metrar voru eftir var Rússinn
Viatcheslav Ekimov fremstur.
Frakkinn Jalabert gaf þá í ásamt
Abdoujaparov sem var fremstur þar
til örfáir metrar voru í mark, en
van Poppel kom þá öllum á óvart
með því skjótast fram úr honum á
síðustu sentimetrunum.
Stríðsástandið í Júgóslavíu gæti
snert fleiri óþróttamenn hér á
landi en handknattleiksmenn. ís-
lenska landsliðið í knattspymu er
með Júgóslövum í riðli í undan-
keppni heimsmeistarakeppninnar
og á að leika gegn þeim á Laugar-
dalsvelli miðvikudaginn 2. septem-
ber og U21s árs lið þjóðanna eiga
að leika daginn áður í Evrópu-
keppninni.
Knattspymusambandinu (KSÍ)
barst bréf frá alþjóðaknattspyrnu-
sambandinu (FIFA) á dögunum þar
sem segir að ef samskiptabann
Sameinuðu þjóðanna standi 31.
ágúst næstkomandi verði ekki leik-
ið hér á landi þann 2. september
en ef búið verði að aflétta sam-
skiptabanninu verði leikið.
„Þetta nær auðvitað ekki nokk-
urri átt og það er fáránlegt að halda
okkur í spennitreyju varðandi hvort
leikið verði eða ekki. Við emm
löngu byrjaðir að reyna að fá annan
leik á þessum tíma því við búumst
ekki við að Júgóslavar komi hing-
að. Við munum rita FIFA bréf þar
sem við mótmælum því að þurfa
að bíða alveg fram á síðustu stundu
með að fá upplýsingar um hvort
leikurinn verður eða verður ekki,“
sagði Eggert Magnússon formaður
KSÍ við Morgunblaðið í gær.
Eggert bætti því við að sér þættu
vinnubrögð FIFA ekki til fyrir-
myndar í sambandi við þetta mál.
„Þessi samþykkt þeirra var gerð á
fundi í FIFA 29. júní en bréfíð er
dagsett 10. júlí. Við emm með
Júgóslövum í riðli og það hefði ver-
ið eðlilegra að fá að vita þetta strax,
en ekki löngu síðar," sagði Eggert.
Jensen til Arsenal
ARSENAL keypti í gær John
„Faxe“ Jensen, einn hinna
nýbökuðu dönsku Evrópu-
meistara«knattspyrnu, á 1,1
milljón sterlingspunda — and-
virði um 116 milljóna ÍSK —
frá Bröndby. Jensen er knatt-
spyrnuáhugamönnum eflaust
enn f fersku minni, en það var
hann sem gerði fyrra mark
Dana f úrslitaleiknum gegn
Þjóðverjum með þrumuskoti.
Jensen er sókndjarfur miðvallar-
leikmaður og hefur leikið 48
sinnum með danska landsliðsinu.
Hann var á mála hjá þýska félag-
inu Hamburger SV fyrir tveimur
ámm, en dæmið gekk ekki upp
og hann fór aftur heim.
George Graham, stjóri Arsenal,
lýsti yfír mikilli ánægju með kaup-
in eftir að þau vom um garð geng-
in í gær. „Hann er stórgóður
miðjumaður — maður sem við
höfum verið að leita að til að
„mata“ hina frábæm framherja
okkar. Hann er kraftmikill og tek-
ur virkan þátt. Hann lék stórt
hlutverki í danska liðinu í Svíþjóð
— var á ferðinni um allan völl.“
KORFUBOLTI
ÍBK mætir Leverkusen
Körfuknattleikslið ÍBK tekur þátt í Evrópukeppni meistaraliða í haust.
Keflvíkingar drógust á móti þýsku meistumnum, Bayer Leverkusen
og verður leikið hér heima 10. september en í Þýskalandi viku síðar, eða
17. september.
Njarðvíkingar kepptu við Bayer Leverkusen fyrir nokkmm ámm síðan
í Evrópukeppninni. Ifyrri leikurinn var hér heima og Njarðvík tapaði hon-
um naumlega og var leikurinn í jámum allan tímann. Síðari leikinn vann
Bayer hins vegar með miklum yfírburðum.
Olís-Texaco
golfmótið
fer fram í Grafarholti, helgina 18. til 19. júlí
Leiknar verða 36 holur. Keppt verður
( karla- og kvennaflokki án forgjafar og !
einum forgjafarflokki. Mótið gefur stig
til landsliðs.
Keppni hefst kl. 8 báða dagana.
Þátttökugjald er 2.500 kr.
Vegleg verðlaun eru í boði
KARLAFLOKKUR
1. verðl. að verðmaeti 30.000 kr. 2. verðl.
að verðmæti 25.000 kr. og 3. verðl. að
verðmæti 20.000 kr.
KVENNAFLOKKUR
1. verðl. að verðmæti 30.000 kr. 2. verðl.
að verðmæti 25.000 kr. og 3. verðl. að
verðmæti 20.000 kr.
FORGJAFARFLOKKUR
1. verðl. að verðmæti 25.000 kr. 2. verðl.
að verðmæti 20.000 kr. og 3. verðl. að
verðmæti 15.000 kr.
Aukaverðlaun Sá sem kemst næst holu á
2. braut fær veglegt golfsett og poka. Sá
sem kemst næst holu í tveimur höggum á
OLlS brautinni (14 braut) fær vandað
gasgrill í verðlaun.
Allir keppendur fá glæsilegan
gjafapakka.
Síðastliðin ár hefur verið uppselt - skráið ykkur tímanlega í Golfskálanum Grafarholti í síma 682215.
Skráningu lýkur kl. 14.00 föstudaginn 17. júlí.