Morgunblaðið - 15.07.1992, Side 39
M0RGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÖTTIR
M
MIÐVIKUÐAGUR 15: -JUhf 1992-
39
I
I
I
I
I
I
í
I
I
I
KAPPAKSTUR
KNATTPSPYRNA
í kvöld
Nigel Mansell
Mansell
hylltur
Bretinn Nigel Mansell hefur
mikla yfirburði I Formulu-1
kappakstrinum þetta árið, og sigr-
aði í sjöunda skipti í níu tilraunum
er ökuþórarnir mættust á heima-
velli hans, Silverstone brautinni í
Englandi um helgina.
Sigur Mansells var mjög örugg-
ur. Hann ekur á Williams bíl og var
39 sekúndum á undan næsta manni
Lauféy úrÍA
í Stjömuna
LAUFEY Sigurðardóttir, fyrrum landsliðskona í
knattspyrnu, hefur gengið til liðs við Stjörnuna
í Garðabæ. Laufey hef ur lengst af leikið með
Akranesi, og kemur hún ef að líkum lætur til
með að styrkja lið nýliða Stjörnunnar mikið.
Davíð Garðarson hefur skipt úr Val í FH. Davíð
hefur ekki fengið að spreyta sig með Val í sum-
ar, en hann lék með þeim við upphaf síðasta tíma-
bils, en varð þá fyrir því óláni að fótbrotna. Þá hefur
Rögnvaldur Rögnvaldsson tilkynnt félagaskipti úr
UBK í Hauka í Hafnarfirði. Sigfús Kárason er kom-
inn aftur til Þróttar í Reykjavík eftir dvöl hjá Val.
Björgvin Björgvinsson hefur gengið úr Víði í Garði
til liðs við ÍBK. Sigurður Valur Árnason hefur hins
vegar skipt úr ÍBK yfír í Víði. Garðar Jónasson úr
Keflavík og Ólafur Ingólfsson og Þórir Ólafsson úr
Grindavík, mættu á æfíngu hjá Víði á mánudagskvöld-
ið, en hafa ekki enn tekið ákvörðun um það hvort
þeir skipti yfír.
í mark. Hann ók á 1 klst., 25 mín.
og 42,991 sek.
Mansell bætti tvö met í keppn-
inni; þetta var 28. sigur hans á
ferlinum og þar með komst hann
upp fyrir Skotann Jackie Stewart,
fyrrum heimsmeistara, á listanum
yfír sigursælustu Bretana. Þá setti
hann hraðamet á Silverstone braut-
inni — ekki einu sinni heldur í
nokkrum hringjum.
Italinn Riccardo Patrese, sem
einnig ekur Williams bíl, varð annar
og Bretinn Martin Brundle þriðji á
Benetton.
Litlu munaði að illa færi á Sil-
verstone eftir sigur Mansells, vegna
gríðarlegra fagnaðarláta aðdáenda
kappans. Fjöldi fólks hljóp inn á
brautina eftir að sigur hans var í
höfn til að fagna hetjunni, og lét
viðvörunarorð þularins í hátalara-
kerfinu sem vind um eyrun þjóta.
Hinir ökuþórarnir stigu enn sem
fastast á bensíngjöfina einhvers
staðar á brautinni, þannig að gulu
flaggi — viðvörunarflaggi — var
veifað í gríð og erg til að láta vita
að ekki væri allt með felldu, og til
að koma í veg fyrir stórslys!
Eftir sigurinn hefur Mansell 36
stiga forystu í keppninni um heims-
meistaratitilinn. Hefur 76 stig en
Patrese 40. Kappamir hafa mæst
níu sinnum, en gera það 16 sinnum
alls á keppnistímabilinu.
Heimsmeistarinn, Ayrton Senna
frá Brasilíu, sem ekur McLaren bíl,
lauk ekki keppni. Var lengi í fjórða
sæti en hætti eftir 53 hringi af 59
og vonir hans um að halda heims-
meistaratitlinum eru nánast að
engu orðnar.
Aðeins tveir ökuþórar hafa nú
fagnað sigri oftar en Mansell.
Frakkinn Alain Prost (44 sigrar)
og Senna, sem sigrað hefur 34 sinn-
um, eru sigursælli.
ÚRSLIT
Naust siglingadeildin
1. Sæstjaman, Ýmir...............1:30,59 mín
2. Dögun, Brokey................1:31,23 mín
3. Svala, Ýmir..................1:31,27 mín
Sextán skútur tóku þátt i keppninni í
gærkvöldi. Skýjað var og 3-4 vindstig.
Knattspyrna kl. 20
1. deild karla
Laugardalsvöllur: Fram - Þór
■Þess má geta að leikurinn fer fram
á aðalleikvanginum í Laugardal, og
verður þar með sá fyrsti sem þar fer
fram í sumar.
1. deild kvenna
Kópavogsvöllur:_ UBK - Stjarnan
Akranesvöllur: ÍA - KR
2. deild kvenna
Dalvíkurvöllur: Dalvík - Tindastóll
KA-völlur: KA - KS
Eskifjarðarvöllur: Austri - Leiknir F
4. deild karia
Njarðvíkurv: UMFN - Hvatberar
Seyðisfjarðarv: Huginn - Höttur
Siguijón í tveggja leikja bann
SIGURJÓN Kristjánsson, UBK,
var úrskurðaður ítveggja leikja
bann á fundi Aganefndar KSÍ í
gær. Sigurjón fékk að líta rauða
spjaldið í leik á móti Víkingi á
sunnudaginn, fyrir að hrinda
leikmanni Víkings um koll.
Fram kemur í skýrslu eftirlits-
manns sem var á leiknum að
hann hafi í kjöifarið lagt hendur
á dómarann og stjakað við
honum, og fékk hann því
tveggja leikja bann.
eir leikmenn í fyrstu deild voru
úrskurðaðir í eins leiks bann
vegna fjögurra gulra spjalda. Þeir
eru Atli Einarsson Víkingi og Ámi
Þór Árnason Þór. Auk þeirra voru
Baldur Bjamason Fylki, Bjöm 01-
geirsson Völsungi og Mulamubic
Allen Haukum, úrskurðaðir í eins
leiks bann vegna fjögurra gulra
spjalda.
Sex leikmenn í mfl. karla fengu
eins leiks bann vegna rauðs spjalds.
Þeir em Guðmundur H. Þórsson
Þrótti N., Haraldur Haraldsson og
Theodór Jóhannsson Haukum,
Heiðar Heiðarsson og Ólafur Pet-
ersen HK, og Kjartan Sigutjónsson
KS. Þá fékk íris Eysteinsdóttir
Haukum eins leiks bann vegna
rauðs spjalds.
Reuter
Greg INlorman frá Ástralíu er tilbúinn í slaginn á Opna breska meistaramótinu
í golfí sem hefst á morgun. Hér bregður hann á leik við son sinn, Gregory sem
er sex ára, eftir að hafa lokið við æfíngahring í gær.
Evrópukeppnin:
Víkingur og
Valur þurfa
vaiia forleik
Dregið verður til fyrstu um-
ferðar Evrópukeppninnar í
knattspymu í dag í Sviss. Nokk-
uð ljóst er að lið Víkings og
Vals þurfa ekki að taka þátt í
aukakeppni um að komast inn í
fyrstu umferðina, eins og jafnvel
var óttast. Val er raðað í 23.
sæti af 36 liðum í keppni bikar-
hafa og Víking í 27. sæti í keppni
meistaraliða.
í gær var dregið í hópa eftir
styrkleika í Evrópukeppni fé-
lagsliða, UEFA-keppninni, og
þar lenti Fram í hóp með Mechel-
en frá Belgíu, Hearts Skotlandi,
Kaiserslautem Þýskalandi, VAC
FC frá Ungveijalandi, hollenska
liðinu Groningen, Caen frá
Frakklandi og Örebrö, sænska
liðinu sem Hlynur Stefánsson úr
Vestmannaeyjum leikur. Fram
mætir því einhverju þessara liða
í fyrstu umferð.
Faldo sigur-
stranglegur
OPNA breska meistaramótið f
golfi, eða „The Open“ eins og
það er kallað meðal kylfinga,
hefst á morgun á Muirfield
vellinum í Skotlandi. Þetta er
eitt stærsta og virðulegasta
golfmót ársins og bíða kylfing-
ar um allan heim spenntir eftir
að fylgjast með öllum bestu
kylfingum heims etja kappi. Og
sitt sýnist hverjum um hverjir
eru sigurstranglegastir.
Nick Faldo verður þó að teljast
framarlega í þeim hópi. Hann
hefur æft mjög vel að undanförnu
og virðist til alls líklegur. Faldo, sem
verður 35 ára á laugardaginn þegar
kappamir leika þriðja hring, hefur
náð frábæmm árangri á stórmótum
undanfarin ár, eða allt frá því hann
sigraði á fyrsta stórmótinu. Það var
á Opna breska árið 1987 sem það
gerðist og meira að segja á Muirfi-
eld vellinum. Síðan þá hefur hann
sigrað tvívegis á bandaríska meist-
aramótinu, árið 1989 og 1990 en
þá sigraði hann einnig á Opna
breska sem haldið var á St.
Andrews. Þetta verður í 17. sinn
sem Faldo tekur þátt í mótinu og
hann hefur aðeins einu sinni verið
neðar en í 20. sæti. Það var árið
1985 en þá varð hann í 53. sæti.
Þó Faldo sé talinn líklegastur til
afreka þá eru margir fleiri sem
koma sterklega til greina sem sigur-
vegarar. Það kæmi ekki á óvart þó
Fred Couples, sem er efstur á
heimsafrekalistanum, bætti öðmm
sigri á stórmóti í safnið því hann
hefur leikið geysilega vel undan-
fama mánuði. Tom Kite hefur feng-
ið sjálfstraustið eftir að hann náði
loksins að sigra á stórmóti og því
má ekki afskrifa hann.
Tom Watson, sem hefur sigrað
fímm sinnum, segist eiga möguleika
að bæta metið með því að sigra í
sjötta sinn, en þá verði hinn nýji
púttstíll, sem hann hefur verið að
æfa, að ganga upp. Watson tetur
Paul Azinger líklegan til afreka en
Azinger tapaði fyrir Faldo á Muirfi-
eld árið 1987 þegar Faldo varð fyrst
meistari.
Laufey Sigurðardóttlr
Sjaldan fellur eikin
langt frá eplinu!
Það virðist vera mjög vinsælt, þessa dagana meðal kylfínga að fara
holu í höggi. Jón Halldórsson, faðir Úlfars Jónssonar íslandsr
meistara, fór holu í höggi á sunnudaginn. Hann, ásamt þremur félög-
um sínum úr Keili, fóru á Bakkakotsvöll og léku þar. En gefum Ág-
ústi Húbertssyni orðið, en hann lék með Jóni umræddan dag.
„Á 17. braut fékk Jón fugl en við hinir par. Þá var komið að 18.
braut, sem er par 3 og átti Jón teiginn. Tók hann upp úr pússi sínu
pw [fleygjám] og sló í átt að holu eins og vera ber, boltinn fór hátt i
loft upp og lenti hálfan metra til vinsti við holuna og tók þaðan hlið-
arepinn og síðan beint í holu.“
GOLF / OPNA BRESKA