Morgunblaðið - 25.09.1992, Page 1
80 SIÐUR B/C
218. tbl. 80. árg. FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1992 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Framtíð Evrópubaiidalags-
ins sögð hanga á bláþræði
Mitterrand og Kohl sagðir vilja
stofnun innra bandalags 5-6 EB-
ríkja sem fyrst með sameiningu
frönsku og þýsku gjaldmiðlanna
London. Daily Telegraph.
FRAMTÍÐ Evrópubandalagsins (EB) kann að hanga á bláþræði
og embættismenn hjá EB segja að við blasi að annaðhvort hrynji
Gengissamstarf Evrópu (ERM) til grunna eða nokkur aðildarríkj-
anna, sem séu þess pólitískt og efnahagslega megnug, taki af
skarið og komi sér upp sameiginlegum gjaldmiðli fyrr en Ma-
astricht-samkomulagið um pólitískan og efnahagslegan samruna
EB geri ráð fyrir. Tvö evrópsk blöð, Die Welt í Þýskalandi og
The European í Englandi, skýrðu frá því í gær að Francois
Mitterrand Frakklandsforseti og Helmut Kohl kanslari Þýska-
lands hefðu gefið óbreyttar áætlanir um pólitíska og efnahags-
lega einingu Evrópu (EB) upp á bátinn á fundi sínum í París á
þriðjudag en vildu nú taka nýja stefnu og mynda eins konar
innra bandalag með Benelúx-löndunum er byggðist á samruna
franska frankans og þýska marksins árið 1997.
Dieter Vogel, talsmaður stjórnar-
innar í Bonn, vísaði fréttunum um
meint samkomulag Kohls og Mitt-
errands á bug, sagði þær hreinan
hugarburð en fjöldi hagfræðinga
sagðist ekki telja hugmyndina lang-
sótta. Þá staðfestu fulltrúar í Evr-
ópunefnd þýska þingsins að hug-
myndin um inrira bandalag hefði
verið rædd áður en til þjóðaratkvæð-
isins um Maastricht-samkomulagið,
í Frakklandi kom.
Þótti það m.a. renna stoðum und-
ir fregnina að þýsku og frönsku fjár-
málaráðuneytin og seðlabankar
landanna tveggja lýstu því yfir að
gengisskráning frankans og marks-
ins yrði varin hvað sem það kost-
aði. Yfírlýsing um samstarf af þessu
tagi á sér engin fordæmi. Þá hvatti
Karl Otto Pöhl, fyrrum bankastjóri
þýska seðlabankans, til þess í við-
tali að sterkustu gjaldmiðlar Evrópu
yrðu sameinaðir.
Jacques Delores, forseti fram-
kvæmdastjórnar EB, sagði í gær
að ekki væri hægt að útiloka þann
möguleika að nokkur EB-ríkjanna
mynduðu innra bandalag nokkru
fyrr en Maastricht-samkomulagið
gerði ráð fyrir og EB-ríki sem stæðu
utan innra bandalagsins í fyrstu
fengju lengri aðlögunartíma en til
1999 að gerast aðilar að því, kysu
þau aðild á annað borð.
John Major, forsætisráðherra
Bretlands, sagði við umræður í
breska þinginu í gær, að Bretar
gætu ekki aftur gerst aðilar að
gengissamstarfi Evrópu (ERM) fyrr
en gerðar hefðu verið vissar umbæt-
ur á því og veikleikar í kerfínu ver-
ið lagfærðir.
Jafnframt hét Major því að leggja
að nýju fyrir þingið frumvarp til
staðfestingar Maastricht-samkomu-
laginu en þingmenn yrðu þó að hafa
biðlund þar til Danir hefðu skýrt
afstöðu sína til samkomulagsins í
framhaldi af því að danska þjóðin
hafnaði því með þjóðaratkvæði og
þar til skilgreint hefði verið hvernig
ákvarðanatöku yrði háttað á hinum
ýmsu stigu stjórnsýslunnar eftir 1.
janúar 1993.
Mitterrand og Kohl voru í gær
sagðir vilja mynda innra bandalag
EB-ríkja meðal annars vegna vax-
andi andstöðu við Maastricht-sam-
komulagið í breska íhaldsflokknum
og ótta þeirra við að Bretar og
Danir myndu tefja samrunaþróun-
ina með nýrri kröfugerð tengdri
framkvæmd Maastricht-samkomu-
lagsins.
rveuutt
Mótmæla öfgasinnum
Um 50.000 Ungveijar gengu fylktu liði um götur höfuðborgarinn-
ar, Búdapest, í gær til stuðnings lýðræði, eins og aðstandendur
göngunnar sögðu, og til þess að mótmæla uppgangi hægri öfga-
manna. Þjóðernishyggja þeirra hefur átt greiðan aðgang að fólki
sem fyllst hefur vonleysi vegna bágra lífskjara eftir að valdaskeiði
kommúnista lauk. Myndin var tekin af mótmælunum í gær, sem
eru hin mestu í Ungveijalandi eftir að lýðræði komst þar á.
IATA
Spáum
verulega
aukiiingu
í flugi
milli landa
Genf, Kaíró. Reuter.
BÚIST ER við, að flugfarþeg-
um á alþjóðaleiðum fjölgi um
7,4% á ári frá 1992 til ’96 eða
eftir því sem samdrættinum í
efnahagsmálum linnir. Þá er
því spáð, að flugfélögum muni
fækka verulega vegna far-
gjaldastríðs og sameiningar
félaga og sumir telja jafnvel,
að um aldamótin verði stóru,
alþjóðlegu flugfélögin aðeins
níu að tölu.
' Á árlegri spástefnu LA.TA, Al-
þjóðasambands flugfélaga, í Genf
sagði Gúnther Eser, fram-
kvæmdastjóri þess, að farþega-
fjöldi í millilandaflugi á þessu ári
yrði líklega um 290 milljónir,
10,4% meiri en í fyrra. Kynnti
hann einnig spár fyrir næstu ár
og kom þar fram, að búist er við
43% fleiri farþegum í millilanda-
flugi árið 1996 en á þessu ári.
Farþegafjöldi minnkaði veru-
lega á síðasta ári vegna samdrátt-
arins í efnahagsmálum og Persa-
flóastríðsins en flugfélögin hafa
þó lítið hagnast á aukningunni í
ár þar sem hún er aðallega til
komin fyrir mikið framboð af af-
sláttarfargjöldum. Spáð er heldur
minni aukningu í fragtflugi en
farþegaflugi og er það öfugt við
það, sem verið hefur.
Sandy Gardiner, varaforseti
British Airways, sagði á ráð-
stefnu, sem Samband banda-
rískra ferðaskrifstofa efndi til í
Kaíró í Egyptalandi, að hugsan-
lega yrðu alþjóðlegu flugfélögin,
sem svo mætti kalla, aðeins níu
talsins um aldamótin. Sagði hann,
að British Airways ætlaði að vera
eitt þeirra.
Uppræting
í Súdan
Washington. Reuter.
ANDREW Natsios, aðstoðarfor-
stjóri Þróunarsamvinnustofnunar
Bandaríkjanna, sagði í gær að
súdönsk sljórnvöld hefðu staðið
fyrir kerfisbundinni upprætingu
kristins ættflokks í Súdan.
Natsios sagði að skipulega væri
unnið af hálfu súdönsku ríkisstjóm-
arinnar, þar sem strangtrúaðir mú-
hameðstrúarmenn ráða ferðinni, að
uppræta Nuba-ættflokkinn sem á
heimkynni í samnefndu fjallahéraði
í Mið-Súdan. Stór hluti ættflokksins
hefði verið fluttur nauðugur um
mörg hundruð kílómetra veg til
Kordofan-héraða í norðurhluta
landsins.
Mellor neyðist til að segja af sér
London. Reuter.
DAVID Mellor, sem fór með málefni
lista, fjölmiðlunar og íþrótta I ríkisstjórn
Johns Majors forsætisráðherra Bret-
lands, sagði af sér starfi í gærkvöldi og
varð frainhjáhald honum að falli.
Mál Mellors varð til að auka á erfiðleika
Majors sem neyddist í vikunni til að sveigja
af leið í efnahagsmálum og draga sterlings-
pundið út úr evrópska myntsamstarfinu
(ERM). Hefur það og versnandi staða
pundsins orðið til þess að háværar kröfur
hafa verið settar fram um að Norman Lam-
ont fjármálaráðherra verði settur af.
Mellor er 43 ára og náinn vinur Majors.
Þegar fjölmiðlar skýrðu frá vinfengi hans
og atvinnulausrar spænskrar leikkonu í júlí
bauðst hann til að segja af sér en Major
neitaði þá að taka afsögn til greina. Gula
pressan svonefnda hefur gert Mellor að
athlægi undanfarnar vikur með óvenjuleg-
um frásögnum af framhjáhaldinu. Sagði
hann í afsagnarbréfi í gær að hann vildi
ekki horfa uppá það lengur að samstarfs-
menn sínir í ríkisstjórninni þyrftu að þola
linnulausar furðusögur um sig í ákveðnum
blöðum.
Talsmaður Verkamannaflokksins sagði
að Major hefði ákveðið að fórna Mellor nú
til þess að draga athygli frá þeirri niðurlæg-
ingu sem hann hefði sjálfur orðið fyrir í
þinginu í gær, en þá sætti stefna hans í
gengismálum og Evrópumálum gagnrýni.
Reuter
David Mellor ekur frá skrifstofu sinni í
London á leið til þinghússins þar sem hann
afhenti afsagnarbréf sitt.