Morgunblaðið - 25.09.1992, Side 14

Morgunblaðið - 25.09.1992, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1992 Endurtekur sagan sig? eftir Harald Matthíasson Gamalt orðtæki segir: Sagan end- urtekur sig. Er þetta sannmæli eða ekki? Ekki hafa menn verið sam- máia um það, en viðbúið er að spurn- ingunni megi svara bæði játandi og neitandi. Auðvitað endurtekur liðinn atburður sig ekki, og enginn atburð- ur verður eins og annar liðinn. Hitt er þó auðsætt, að einatt gerast þeir atburðir sem minna ákveðið á aðra liðna, svo að þar er glögg líking, þótt eigi séu þeir eins. Mikið hefur verið rætt og ritað að undanförnu um svokallaðan EES-samning, sem íslendingar og fleiri þjóðir áætla að gera við er- lenda aðila. Ég hef að sjálfsögðu ekki séð eða heyrt nema lítinn hluta af þeim ræðum og ritum, en ég hef þó gert mér far um að fylgjast sem bezt með því sem komið hefur af ræðum alþingismanna í útvarpi og sjónvarpi, einnig greinum blaða um þetta mál. Ég hef verið mjög undr- andi á hversu lítt ræðumenn hafa vitnað til sögunnar. Minnist ég ekki að hafa séð eða heyrt neitt af því tagi að undantekinni einni tilvitnun í ræðu hjá Steingrími Hermanns- syni, en ef til vill hefur það komið fram víðar þótt ég hafi ekki heyxt. Sagan er þó lærdómsrík í þessu efni sem öðrum, og Islendingar hafa ósjaldan staðið í þeim sporum að semja við erlenda valdhafa. Þar er margt lærdómsríkt að sjá og því af nógu að taka og miklu meira en hér verði gert rækilega, en á nokkur atriði skal þó minnzt. Eitt af því sem mjög var deilt um í samningum um EES, var krafa Evrópubandalagsins um veiðiheim- ild í íslenzkri lögsögu gegn tolla- lækkunum. Þessu var lengi þver- neitað af íslenzkum samningamönn- um, slíkt kæmi ekki til greina. Mála- lok urðu þó þau að EB skyldi fá karfaveiði til 3 þúsund lesta. Fljótt á litið má kallast furðulegt að EB skuli hafa gert þetta að slíku stórmáli. Hvaða máli skiptir hið mikla og volduga Evrópubandalag hvort það hefur 3 þúsund lestum meira eða minna leyfi til karfaveiða? Þetta sér einn alþingismaður, svo sem sjá má í grein sem birtist í Morgunblaðinu nú fyrir nokkru. Hann segir þar að undanlátssemin af hálfu íslenzkra samningamanna geri lítinn skaða, það sem hinir hafi fengið sé svo lítið. Kannast nokkur við þennan róm? Hefur einhver heyrt slíkt áður? Ég veit að margir þekkja. Hér er kom- ið efnið úr svari Guðmundar ríka við beiðni Ólafs konungs helga, að íslendingar gefí honum Grímsey, sem konungur kallar ey eða útsker. Guðmundur kallar hana aðeins út- sker til að gera sem minnst úr henni og telur ekkert athugavert að láta hana af hendi, þetta sé svo lítið. Grímsey er meira en útsker; hún er góð ey, en skiptir Noregskonung þó ekki miklu til venjulegra lands- nytja vegna fjarlægðar. Sama er að segja um karfakílóin í EES- samningnum. Þau skipta þann er fær engu til veiðarskapar. Hér hangir í báðum tilfellum annað á spýtunni: smeygja sér inn úr gætt- inni, þótt þröngt sé, þá kann að verða tækifæri síðar til að þoka sér lengra inn á gólfið. Þetta sá Einar Þveræingur, bróðir Guðmundar, og lagðist á móti. En höfundur Morg- unblaðsgreinarinnar og Guðmunur ríki eru sammála að öllu sé óhætt, þótt érlendur aðili fái hér fótfestu, hún sé svo lítil. Þetta atriði í Morg- unblaðsgreininni er því aðeins mála- lenging og útþynning á fáyrðum Guðmundar. Gamli sáttmáli íslendingar afsöluðu sér sjálf- stæði árið 1262. Þar stóð að baki Hákon Hákonarson Noregskonung- ur, og hafði hann þá um langt skeið beitt fyrir sig íslenzkum höfðingjum, síðast Gizuri Þorvaldssyni, sem rak smiðshöggið á afsal sjálfstæðsins. í Gamla sáttmála felast bæði skyldur og réttindi íslendingum til handa. Skyldumar voru tvær, báðar þungar. Hin fyrri er sú, að þeir ját- ast undir yfirráð Noregskonungs. Hann er æðsti valdsmaður, þjóð- veldið er ekki lengur til. Hin skyldan var sú, að landsmenn játuðu skatt. Ýmis fríðindi komu á móti. Hér er ekki tækifæri til að fara nákvæmlega út i efni Gamla sátta- mála, en aðeins skal vitnað til orða „EES-samningurinn var kynntur lands- mönnum meö há- stemmdu lofi. Var mönnum jafnvel sagt að íslendingar hefðu fengið allt fyrir ekkert; svo langt gekk skrumið. Mætti þar helzt jafna við einokunarloforðin. Vonandi tekst vel til um EES-samninginn, en einokunarsagan sýnir, að háværum fagurgala er lítt treystandi.“ Jóns Jóhannessonar prófessors, sem kenndi sögu í Háskólanum þegar ég var þar við nám. Hann sagði er hann hafð lokið við að fara yfir og skýra Gamla sáttmála: Segja má að sáttmálinn tryggi rétt íslendinga að svo miklu leyti sem réttur hins veikari verður tryggður gagnvart hinum sterka. Þannig fór um Gamla sáttmála svo sem alþekkt er. Geng- ið var á rétt íslendinga smátt og smátt, þar til þeir voru öllum rétti rúnir, sumt með lögleysum, en einn- ig með valdi hins sterkari, án þess að lög væru beinlínis brotin. Þar áttust við tveir aðilar, mjög mis- sterkir. íslendingar, ósterkari aðil- inn, gátu ekki vegna aflsmunar náð rétti sínum. Nú stendur' fyrir dyrum að gera annan samning við sterka erlenda aðila. Þar eru bæði réttindi og kvað- ir. Rætt er um að setja reglur til varndar íslenzkum hagsmunum. Það er gott og blessað, en hvernig á að sjá um að landsmenn nái þeim rétti í viðskiptum við sterkan gagn- aðilja? T.d. er talað um að setja regíur gegn jarðakaupum útlend- inga. En hvemig verða settar og framkvæmdar reglur gegn því, að fésterkur útlendingur yfirbjóði Is- lendinga? Ekki er nóg að eiga for- kaupsrétt, ef ekki er afli til að nýta hann. Þannig getur farið eins og um Gamla sáttmála, að sterkari Haraldur Matthíasson aðilinn gangi yfír hinn þrátt fyrir allar reglur. Einokun og EES Verzlunarsaga íslands á fyrri öld- um er eftirminnileg og eigi alls kost- ar fögur. Konungur hafði tekið sér allt vald í verzlunarmálum. Komu fra honum ýmis boð og fyrirskipan- ir. Hér skal minnzt á eina. Em þar fyrirmæli um framkvæmd vezlunar- innar: Kaupmönnum var gert að skyldu að flytja nægan og góðan falslausan og óspilltan varning og selja al- menningi með sanngjörnu og kristi- legu verði, og skyldi um verð farið eftir góðri og gamalli landsvenju, og höfð íslenzk stika og mælir. Lög- maður skyldi skera úr ágreiningi. Kaupmenn skyldu reka mál sín fyr- ir íslenzkum dómstólum og eigi beita kúgun né gerræði. Þeir skyldu og sýna höfuðsmanni hlýðni, en lands- mönnum vinsemd og kurteisi í allri umgengni og viðskiptum. Þetta em aðalatriðin, en fyrir- mælin em miklu nánari. Hér virðist sannarlega vel boðið, allt lagt upp í hendur íslendingum og úrskurður ágreinings á þeirra valdi. Ætla mætti að hér væri konung- ur að hefja endurbætur á verzlun- inni, þar sem íslendingar ættu að fá allt að vild sinni. Ekki er því að heilsa. Þessi fögru fyrirheit eru upp- hafsfyrirmælin að einokunarverzl- uninni og allir vita hvemig hún varð í framkvæmd, versta plága sem yfir landið hefur gengið. Fátt sýnir bet- ur en saga einokunarinnar, hver reyndin getur orðið, þar sem sterkur og ósterkur eigast við. Fögur fyrir- heit ná þar skammt. EES-samningurinn var kynntur landsmönnum með hástemmdu lofi. Var mönnum jafnvel sagt að íslend- ingar hefðu fengið allt fyrir ekkert; svo langt gekk skmmið. Mætti þar helzt jafna við einokunarloforðin. Vonandi tekst vel til um EES-samn- inginn, en einokunarsagan sýnir, að hávæmm fagurgala er lítt treyst- andi. Einvaldshyllingin í Kópavogi Árið 1662 vom íslendingar neyddir til þess í Kópavogi að svetja Danakonungi erfðaeinveldi. Fyrir því stóð Henrik Bjelke höfuðsmaður í umboði Danakonungs. íslendingar gengu mjög nauðugir til þessarar samþykktar, en talið er að Henrik Bjelke hafi heitið þeim að ekki yrðu skert þau réttindi sem landsmenn höfðu þá. Allir vita hveij- ar efndir urðu. íslendingar vom sviptir því sem eftir var af sjálf- stæði þeirra, og gekk svo enn í full 200 ár. Nú er loforðið hið sama að íslend- ingar haldi fullum rétti við sam- þykkt EES-samninganna. Það er von, en engin vissa að betri efndir verði á því en loforðunum í Kópa- vogi. Óhöpp og ártöl Þegar ég var í bamaskóla og las þar íslandssögu Jónasar Jónssonar, benti kennari okkur nemendunum á hversu oft hefði óhappaatburði í sögu íslands borið að, er ártal end- aði á tölunni 2: Lok þjóðveldisins 1262, upphaf einokunar 1602 og tilkomu einveldis 1662. Þetta má vera tiiviljun, en staðreynd er það þó. Þarna eiga þeir örugg sæti á bekk sögunnar Gizur Þorvaldsson jarl, Kristján kongur IV. og Henrik Bjelke höfuðsmaður. Nú er enn ár- tal sem endar á 2, 1992. Enn er enginn seztur á bekkinn þar. Höfundur er fyrrverandi menntaskólakennari. ALANDSEYJABREF Fámennið kemur ekki í veg fyrir fjölbreytt menningarlíf eftír Örn Guðmundsson Hægt er að segja að menning- arlífið á Álandseyjum sé fjöl- breytt, ég tala nú ekki um ef tekið er mið af fólksfjölda eins og við Islendingar gerum svo oft. Þó að aðeins sé um áhuga- menn að ræða hefur tónlistin þróast hvað mest og er komin langt fram úr öðrum listgreinum hér. Fyrir u.þ.b. 16 árum var stofnaður hér tónlistarskóli (Musikinstitutet) og hefur hann þróast jafnt og þétt í gegnum árin og nemendur þaðan hafa getað haldið til frekara náms erlendis og getið sér góðan orðs- tír í t.d. söng, hljóðfæraleik og tónsmíðum, enda er hér mikill áhugi fyrir tónlist og tónleika- hald allt árið um kring einshvers staðar á eyjunum. Því miður er ekki hægt að segja að svipuð þróun hafi orðið í öðrum listgreinum þó að einn og einn hafí getið sér nafns eins og í mynd- list og keramík, en alls staðar eru undantekningar eins og kom í ljós þegar ég fylgdist með einni leiksýn- ingu hér í sumar. Áhugaleikhúsið er hér vinsælt, hér eru engin at- vinnuleikhús, en mikið um upp- færslur á öllum mögulegum leikrit- um, markið er sett hátt, hér geta allir leikið og allir geta leikstýrt. Nokkrir eyjaskeggjar hafa haldið til leiklistarnáms bæði í Finnlandi og Svíþjóð, en því miður hefur enginn snúið aftur að námi loknu til að miðla af reynslu sinni og kunnáttu, af hvaða ástæðu sem það nú er. Leiksýningin sem ég sá í sumar var uppfærsla á leikriti eftir álenskan listamann, Joel Petters- son að nafni, leikritið ber heitið Kajsa-Rulta og rottan. Verkið var skrifað fyrir 75 árum en ekki frum- sýnt fyrr en 8. júní sl. af því til- efni að 100 ár voru liðin frá fæð- ingu skáldsins. Uppfærslan er at- hyglisverð að því leyti að hún var gerð úr garði eins og hún hefði verið færð upp fyrir 75 árum. Þeg- ar leikrit eftir Pettersson voru færð upp, en hann skrifaði fjöldann allan af leikritum eingöngu um samtímasveitunga sína, þá leik- stýrði hann sjálfur, hann gerði leik- mynd og búninga og lék jafnvel sjálfur. Leikritin færði hann ein- göngu upp í heimasveit sinni, Lem- Joel Pettersson (sjálfsmynd). landi, í félagsheimilinu þar sem ber heitið Valborg. Álenski leikar- inn og leikstjórinn Rune Sandlund var fenginn til að færa upp Kajsa- Rulta og rottuna, en hann hefur um árabil starfað í Svíþjóð, en sýnt leikritum Petterssons mikinn áhuga eftir að þau komu fram í dagsljósið og mun þetta vera ann- að leikritið sem hann setur upp eftir Pettersson. Hitt leikritið heit- ir „Mammas pojkar" og var sýnt hér fyrir u.þ.b. tveim árum. Kajsa-Rulta og rottan var frum- sýnt í félagsheimilinu Valborg, sem að vísu hefur tekið nokkuð miklum stakkaskiptum á þessum 75 árum, en útbúið var svæði í félagsheimilinu og reynt að líkja eftir staðháttum eins og þeir höfðu verið í tíð Petterssons, flöturinn var u.þ.b. 80 m2 og var þar komið fyrir sviði og áhorfendasvæði. Þar sem sviðið var lítið og þrisvar sinn- um skipt um leikmynd, nýttu þeir lausnir sem skáldið hafði notað á sínum tíma, áhorfendasætin voru fjalir sem lagðar voru á uppistöður og gátu 10-15 manns setið á hverri fjöl og hafði áhorfandinn það á tilfinningunni að vera þátt- takandi í sýningunni. Leikritið fjallar um kotbónda, konu hans og sveitakerlingu sem er enn fátækari en þau og sam- skipti þeirra, þetta er grínleikrit en kaldhæðnin skín í gegn, frábær lýsing á viðhorfum Alendinga til hver annars og umheimsins. Leik- ritið gæti hafa verið skrifað í dag, því að mínu áliti á það jafnt við í dag og fyrir 75 árum. Þetta er leikrit sem Álendingar gætu farið með hvert sem er og verið stoltir af, það tekur tæpan klukkutíma í flutningi, leikmynd er einföld, að- eins þrír leikarar og hægt að setja upp hvar sem er. Leikritið hefur verið sýnt í allt sumar fyrir fullu húsi og er enn í fullum gangi. Joel Pettersson fæddist 8. júní 1892 í Norrby í Lemlandi, sem er á stærstu eyju Álandseyja, en hún er kölluð Fasta-Áland. Foreldrar hans voru smábændur og ólst hann því upp við mjög fábrotnar aðstæð- ur. Þarna varði hann líka sinni starfsævi; málaði, skrifaði og setti upp leikritin sín fyrir sveitungana. Eins og svo margir listamenn var hann misskilinn af sínum sam- tímamönnum, hann hafði allt frá barnæsku verið utangátta, foreldr- ar hans voru aðfluttir, 1880 fluttu þeir frá eynni Föglö, sem er í álenska skeijagarðinum, til Lem- lands, sem er á Fasta-Álandi, en í skeijagarðinum eru viðhafðir aðr- ir siðir og aðrar venjur og af þess- um orsökum var Joel Pettersson aldrei viðurkenndur sem Lem- landsbúi af sveitungum sínum. Strax sem krakki hafði Joel Pettersson sýnt áhuga fyrir mynd- list og þá þegar höfðu hæfileikar hans sem myndlistarmanns komið í ljós, en það var ekki fyrr en eft- ir lát hans 1937 að þeir hæfileikar voru viðurkenndir. Það var svo ekki fyrr en eftir 1970 að maður að nafni Valdimar Nyman kynnti skrif hans að hann var viðurkennd- ur sem einn af merkustu rithöfund- um Álendinga. Nú hafa leikritin sem hann skrifaði verið að mestu grafín upp og nokkur þegar verið flutt af áhugamannaleikfélögum hér á Álandseyjum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.