Morgunblaðið - 25.09.1992, Side 21

Morgunblaðið - 25.09.1992, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1992 21 Ákæra vofir yfir forseta Brasilíu Mafíustarfsemi og siðblinda í miðri efnahagskreppunni? Sao Paulo. Frá Andra Laxdal, fréttaritara Morgnnbladsins. Keuter. Fernando Collor, forseti Brasilíu, heldur ræðu i vikunni ásamt hershöfðingjum í brasilíska hernum. Fulltrúar hersins hafa lofað því að þeir muni ekki reyna að grípa völdin í landinu. SAMÞYKKI þing Brasilíu á næstu dögum kröfu stjórnarand- stöðunnar um að lögð verði fram ákæra á hendur forseta lands- ins, Fernando Collor de Mello, verður það í fyrsta skipti í sög- unni sem handhafi forsetavalds í Suður-Ameríkuríki er látinn svara til saka fyrir embættis- afglöp og vanrækslu í starfi. Allt frá því Collor tók við völdum í marsmánuði árið 1990 hefur rík- isstjórnin mátt sæta ásökunum um mútuþægni og aðra ósvinnu. En þar sem hneykslismál þessi tengd- ust aldrei forsetanum beint gat hann staðið af sér hið pólitíska umrót sem fylgdi í kjölfarið. í þetta skipti eru hins vegar fáar undan- komuleiðir sjáanlegar og það er að sönnu kaldhæðnislegt að þær ógöngur sem forsetinn hefur nú ratað í eiga sér rætur í sjálfum bakgarði Collor-fjölskyldunnar. Fernando Collor hafði löngum átt í etjum við bróður sinn Pedro sem var þar að auki sérstaklega í nöp við einn af nánustu vinum hans, P.C. Farias. Farias hafði ver- ið féhirðir Collors í kosningabarátt- unni og Pedro ásakaði hann um að taka umboðslaun fyrir flest allt sem keypt var eða byggt í þágu ríkisins. Ásakanir þessar þóttu svo alvarlegar að þingið skipaði sér- staka rannsóknamefnd sem vann í tæpa þijá mánuði að því að kanna sannleiksgildi þeirra. Eftir miklar yfírheyrslur komu fram gögn þess efnis að persónuleg útgjöld forset- ans væru greidd af Farias. Til að málið fengist upplýst að fullu var rofin leynd á bankareikningum þess sama og þá varð uppvíst að hann hefði lagt um fimm milljónir Bandaríkjadala (um 275 milljónir ÍSK) inn á reikninga Collors. Þessi upphæð var yfirfærð af svokölluð- um „draugareikningum" en það eru bankareikningar sem bundnir eru tilbúnum nöfnum. Collor gat ekki gefið viðunandi skýringu á þessum yfirfærslum en réttlætti uppruna hinna himinháu útgjalda sinna með samningi sem kvað á um fimm milljóna dala lán frá banka einum í Uruguay til hans einkanota. Síðar tóku menn að ef- ast um þetta lán því bankinn krafð- ist engrar ábyrgðar, auk þess sem frumrit samningsins fannst ekki. Nú bendir flest til þess að lán þetta sé tilbúningur. Ásakanirnar á hendur forsetan- um eru því orðnar margþættar. í fyrsta lagi virðist hann hafa notið góðs af fé sem fengið var með mafíustarfsemi innan ráðuneyt- anna. Hann virðist hafa sýnt van- rækslu með því að líta framhjá þessari glæpastarfsemi er virðist hafa skilað um einum milljarði Bandaríkjadala í vasa viðkomandi. í öðru lagi reyndi hann að skýra umfang reikninga sinna með til- búnum samningi og þar að auki voru undirmenn hans margoft staðnir að því að bera ljúgvitni fyrir rétti. I þessum hafsjó vandræða sem grefur jafnt og þétt undan valdi og virðingu forsetans má einnig nefna að eiginkona hans, Rosane Collor de Mello, var í fyrra viðriðin fjármálahneyksli sem fór hátt í fjöl- miðlum landsins. Hún var í for- svari fyrir góðgerðasamtök og naut góðs af örlæti ríkisstjómarinnar sakir náinna tengsla við yfirvaldið. Milljónir Bandaríkjadala höfnuðu á ókunnum áfangastað og sagði frú- in af sér vegna þessa en hún gæti þó enn fengið fangelsisdóm. Hvort það verður er óvíst og raunár mun staða hennar líklega verða til þess að koma í veg fyrir þess háttar sögulok. Ljóst er þó að forsetafrúin er ekki með öllu ráðvönd því nú nýverið var hún dæmd til að skila í ríkissjóð andvirði um 1100 þús- unda ÍSK sem hið opinbera hafði greitt til að bera kostnað af af- mæli vinkonu hennar. Haft var á orði að Rosane hefði ekki tekist að sannfæra dómstóla um að skatt- greiðendum bæri að standa undir þessum útgjöldum. Ásakanir þessar um fjárdrátt og spillingu eru ekki síst alvarlegar í ljósi þess að kreppan sem ríkir í brasilísku efnahagslífi er hin alvar- legasta í 60 ár og meirihluti lands- manna berst í bökkum við að hafa í sig og á. Á meðan hinn almenni borgari þarf að sætta sig við þessi dapurlegu lífskjör eyddi Collor jafn- virði 137 milljóna ISK í garðyrkju- framkvæmdir við híbýli sín í höfuð- borginni og góðvinurinn Farias sá um þær greiðslur sem aðrar. Það er því ekki að ástæðulausu- sem almenninguf hefur snúist svo heiftarlega gegn forsetanum sem raun ber vitni. Með tilliti til þess er grundvöllur fýrir áframhaldandi setu hans í embætti orðinn veikur. Hins vegar er ljóst að forsetinn hefur aðra skoðun á þessu máli því þótt honum hafi ekki tekist að bera af sér sakirnar hefur hann neitað að Ijá máls á því að segja af sér. Jafnvel þótt landsmenn hafi al- mennt ekki trú á því að varaforset- inn, Itamar Franco, muni geta snú- ið við þeirri neikvæðu þróun sem einkennir efnahagslífið beina menn einkum sjónum sínum að siðferðis- legum ávinningi afsagnar Fem- ando Collors de Mello. Brasil- íumenn hafa ekki vanist því að sjá efnafólk gjalda fyrir hvítflibba- glæpi sína og því er þetta að margra mati einstakt tækifæri til að breyta - eða í það minnsta hnika til - hugsanagangi lands- manna í þá veru að lögin nái einn- ig yfir hina mikilsmegandi þegna þjóðfélagsins. Rússar af- henda Irön- um kafbát BRESKA sjónvarpið BBC skýrði frá því í gær að fyrsti kafbáturinn af allt að þremur, sem Rússar seldu til írans þrátt fyrir mótmæli Bandaríkjastjórnar, hefði lagt af stað til Persaflóa í vikunni. Sjón- varpið sýndi myndir, sem teknar voru með leynd af einum kafbát- anna í rússneskri flottahöfn í Lett- landi þar sem írönsk áhöfn er tal- in hafa verið við æfingar í ár. Bandaríkjamenn óttast að salan geti skapað hættu á hinni mikil- vægu siglingaleið olíuskipa um Persaflóa. Lettar hafna tilboði Rússa LETTNESKIR blaðamenn sögðu í gær að Lettar hefðu hafnað til- boði Rússa um að flytja alla her- menn sína í Lettlandi á brott árið 1994. Lettar vilja að hermennimir fari þaðan eigi síðar en á næsta ári. Samningamenn þjóðanna voru óánægðir með niðurstöðu við- ræðna þeirra um þetta mál í vik- unni en þeim verður haldið áfram í næstu viku. Rússar dýrka Stalín VINSÆLDIR sovéská harðstjór- ans Jósefs Stalíns fara stöðugt vaxandi í Rússlandi á sama tíma og lífskjör almennings hríðversna, að- því er sagði í dagblaðinu Moskovskaja Pravda í gær. Fram kom í skoðanakönnun, sem blaðið birti, að 49% aðspurðra sögðust telja, að Stalín hefði verið mikill leiðtogi. Þannig svöruðu aðeins 28% þeirra, sem spurðir vora sömu spurningar í hliðstæðri könnun í fýrra. 80% þeirra sem svöruðu sögðu, að lífskjörin hefðu verið betrí, áður en Míkhaíl Gorbatsjov komst til valda árið 1985.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.