Morgunblaðið - 25.09.1992, Síða 26

Morgunblaðið - 25.09.1992, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. SEPTEMBER 1992 Hugsanlegt að stálsmíði Malavískipsins verði keypt af Pólverjum Eini möguleikinn til að halda 7 5% af vinnunni - segir Sigurður Ringsted framkvæmdastjóri Slippstöðvarinnar Morgunblaðið/Rúnar Þór Þessa dagana vinna starfsmenn Slippstöðvarinnar á Akureyri að lokafrágangi rannsóknarskips Malavímanna. SLIPPSTOÐIN á Akureyri er að kanna möguleika á að kaupa í Póllandi hluta af stálsmíði seinna skipsins sem fyrirtækið er að smíða fyrir Malavímenn í Afríku. Slippstöðin er að ljúka smíði fyrra skipsins og er tap af því. Sigurður Ringsted framkvæmda- stjóri Slippstöðvarinnar segir að fyrirtækið hafi staðið frammi fyrir því að taka að sér smíði skipsins með þessum hætti og halda þannig að minnsta kosti 75% af vinnunni við skipið eða að sleppa verkefninu og missa alla vinnuna. Norræni þróunarsjóðurinn fjár- magnar að hluta til fískveiðiverk- efnið í Malaví sem skipin verða notuð í, í samvinnu við Þróunarsam- vinnustofnun íslands og Aiþjóða- bankann. Slippstöðin átti lægsta Kemur Baldur í stað Sæfara? Grímsey. STARFSMENN Vegagerðar ríksins eru þessar vikumar að undirbúa yfirtöku á rekstri feija og flóabáta um næstu ára- mót. Meðal breytinga sem til athugunar era er að flytja Eyja- fjarðarferjuna Sæfara héðan og setja Breiðafjarðarfeijuna Baldur í staðinn í flutninga á Eyjafjörð. Frá því að samgönguráðherra ákvað að fela Vegagerðinni að annast yfírstjóm rekstrar flóa- og ferjubáta frá næstu áramót- um hefur verið unnið að undir- búningi þess hjá Vegagerðinni. Að sögn Jóns Birgis Jónssonar aðstoðarvegamálastjóra verður reynt að koma við sem mestri hagræðingu í þessum rekstri. Sagði hann í samtali við fréttarit- ara að stefnt væri að fundi um miðjan októbermánuð með full- trúum þeirra sveitarfélaga sem mestra hagsmuna hefðu að gæta vegna þessa reksturs. Feijumar sem hér um ræðir era Akraborg, Sæfari og Sævar á Eyjafírði, Breiðaíjarðarferjan Baldur, Vestmannaeyjafeijan Heijólfur, Djúpbáturinn Fagra- nes og Mjóafjarðarbáturinn Anný. HSH tilboð í smíði skipanna, um 110 milljónir kr. samtals. Skipin eru 17 metra löng, 40-50 tonn að stærð. Þessa dagan er verið að leggja síð- ustu hönd á smíði fyrra skipsins, sem er rannsóknarskip. Tilboð Slippstöðvarinnar miðað- ist við að skipin yrðu smíðuð að vetri þegar lítið væri að gera í öðr- um verkefnum og var því lágmarks- verð. Reyndar drógst að gengið yrði frá samningum sem seinkaði smíðinni fram á sumarið. Sigurður Ringsted sagði að tap hefði orðið á smíði skipsins en vildi ekki gefa upp hve mikið. Hann sagði að fyrirtæk- ið þyldi ekki að tapa á svona verk- efnum eins og staða þess væri. Hann sagði að áður en gengið hafí verið endanlega frá samning- um um smíði seinna skipsins, sem er fískiskip, hefði verið ljóst að tap yrði á smíði fyrra skipsins. Starfs- menn Slippstöðvarinnar hefðu því kannað hvemig hægt væri að ná kostnaðinum við smíði seinna skips- ins niður og hefðu komist að þeirri niðurstöðu að hægt væri að smíða það hallalaust með því að kaupa hluta af stálsmíðinni erlendis frá. Þar væri Pólland efst í huga vegna þess að það hefði sýnt sig að hægt væri að fá stálsmíði þar á lægra verði en víðast annars staðar. „Við höfðum þá valkosti að taka að okkur smíði skipsins á þennan hátt og halda 75% af vinnunni í landinu eða sleppa verkefninu alveg og missa alla vinnuna. Að vel at- huguðu máli ákváðum við að smíða skipið þrátt fyrir allt og hafa þó 75% af smíðinni á íslandi og jafn- vel meira ef minna verður gert er- lendis en mest gæti orðið," sagði Sigurður. Tónlistarfélagið Fyrstu tón- leikarnii Tónlistarfélag Akureyrar er að hefja sitt 49. starfsár, en í vetur er á vegum félagsins fyrir- hugað að halda fimm tónleika. Fyrstu tónleikamir verða haldnir á laugardag, 26. september, kl. 17 í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju þar sem fram koma þau Laufey Sigurðardóttir fíðluleikari, Richard Talkowsky sellóleikari og Kristinn Öm Kristinsson píanóleikari. Þau flytja verk eftir Mozart, Brahms ogHaydn. í nóvember kemur sönghópurinn Vocis Thulis og félagar úr hljóm- sveitinni Caput fram á tónleikum. Þá verður Anna Málfríður Sigurðar- dóttir með píanótónleika á vegum félagsins í janúar, en ásamt því mun hún verða með skólakynningar í grannskólunum. í mars verða þrír kennarar úr Tónlistarskólanum á Akureyri með blandaða dagskrá, sópran, gítar og píanó, og fímmtu og síðustu tónleikar starfsársins verða haldnir í samvinnu við Kirkju- listaviku í Akureyrarkirkju í maí en þá kemur Blásarakvintett Reykjavíkur í heimsókn norður. i I < i i — Fossvogur Digranessókn Kársnessókn Rétt mörk Hjalla- og Digranes sókna er við Kópavogslæk Kaliforníu- maðurinn frumsýndur SAGA-BÍÓ frumsýnir í dag, föstudag, myndina Kaliforníu- manninn (California Man). Mynd- in er framleidd af Robert Les Mayfíeld og George Zaloom. Leikstjóri er Les Mayfield. í aðal- Atriði úr Kaliforníumanninum, grínmynd sem sýnd er í Saga-bíói. hlutverkum eru Pauly Shore og Sean Astin. í frétt frá kvikmyndahúsinu seg- ir um söguþráðinn: „Hér er á ferð- inni grínmynd er segir frá ungum menntaskólanemum er fínna fros- inn steinaldarmann í húsgarði ann- ars þeirra. Þeir ákveða að slá í gegn og afráða að afþýða fundinn og taka hann með í skólann. Tímarnir hafa aðeins breyst síðan á steinöld og úr verða ýmis skondin atvik, svo ekki sér meira sagt...“ < i i Landsmót Sam- fés á Blönduósi LANDSMÓT Samfés, Samtaka félagsmiðstöðva á Islandi, verður haldið á Blönduósi helgina 25.-27. september nk. Þar verða samankomnir um 200 unglingar víðsvegar að af landinu við leik og störf. Ýmis málefni verða rædd, séð frá sjónarhóli unglinga í dag, t.d. heim- urinn og við; framtíðin, aðstöðu- munur unglinga í dreifbýli og þétt- býli o.fl. Einnig verður slegið á létt- ari strengi og verður m.a. karaoke- keppni milli unglinganna á laugar- dagskvöldinu, Digranes- og Hjallasóknir I FRÉTT á miðsíðu Morgunblaðsins í gær, þar sem fjallað var um um- sókn sóknamefndar Digranessóknar um nýja lóð undir kirkjubyggingu var birt kort, sem sýnir afstöðu sókn- anna í Kópavogi. Kortið sýndi röng mörk milli Digranes- og Hjallasókna og birtist því kortið hér rétt. I auglýs- ingu frá 19. maí 1987 um breytingu á skiptingu Reykjavíkurprófastdæm- is í sóknir og prestaköll segir um Hjallasókn: „Sóknin nær yfír Kópa- vogskaupstað austan eftirtalinnar markalínu: Frá bæjarmörkum Kópa- vogs og Reykjavíkur, austan Furu- gpamdar, yfir Nýbýlaveg (milli húsa nr. 78 og 80), austan Túnbrekku, norðan Lundarbrekku, austan Sel- brekku, og vestan Fögrubrekku, yfir Álfhólsveg (hús nr. 113 og lægri að norðanverðu og hús nr. 98 og lægri að sunnanverðu tileyri áfram Digra- nessókn), austan Skálaheiðar og það- an beina stefnu í Kópavogslæk eftir línu sem hugsast dregin samsíða Skálaheiði og þaðan eftir Kópavogs- læk.“ Stórtónleikar á Akranesi í kvöld Akranesi. NÚ er verið að leggja síðustu hönd á stórtónleika hinnar heimsfrægu hljómsveitar Jet- hroe TuU á Akranesi I kvöld. Miðasala á tónleikana hefur gengið vel og ekkert því til fyrirstöðu að mikið fjör verði í íþróttahúsinu á Akranesi. Það fylgir slíku tónleikahaldi mikill undirbúningur, enda dugðu ekki minna en tveir stórir flutn- ingagámar undir hljómflutnings- tæki og annan fylgibúnað. Búið er að reisa stórt svið í húsinu og nú er bara beðið eftir því að stóra stundinn renni upp. Á laugardagskvöld verða síðan aðrir hljómlistarmenn á ferðinni á Akranesi þegar þungarokksveitin Black Sabbath stígur á sviðið. Þær breytingar hafa orðið að hljóm- sveitin Exizt hitar þá upp í stað hljómsveitarinnar ARTCH. Exizt hitaði upp fyrir Iron Maiden í Laugardagshöll síðastliðið sumar. J.G. Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson Sviðið undirbúið fyrir tónleikana í kvöld.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.