Morgunblaðið - 16.10.1992, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 1992
Ný IM-Gallup könnun gefur
til kynna breytta afstöðu til EES
Fleiri Islending1-
ar nú fylgjandi
EES en andvígir
FLEIRI íslendingar eru nú fylgj-
andi en andvígir þátttöku Islands
í Evrópska efnahagssvæðinu,
samkvæmt niðurstöðum skoð-
anakönnunar, sem ÍM-Gallup
vann fyrir Vinnuveitendasam-
band íslands dagana 22. septem-
ber til 3. október. Af þeim, sem
tóku afstöðu, eru 46% fylgjandi
samningnum, en 44% andvígir. í
samsvarandi könnun, sem gerð
var í júlí, voru 40% fylgjandi, en
47% andvigir.
Úrtakið í könnuninni voru 1.200
einstaklingar af öllu landinu á aldr-
inum 15-69 ára. 840 svöruðu, eða
70% og heldur færri tóku afstöðu
nú en í fyrri könnun í júlí. í niður-
stöðunum kemur fram, að mest
verður fylgisaukningin við Evr-
ópska efnahagssvæðið í aldurs-
hópnum 45-54 ára, úr liðlega 22%
í tæp 47%, eða um 25%. Fylgi við
EES minnkar heldur í aldurshópun-
um 15-24 ára og 25-34 ára. Hins
vegar eykst það um rúm 7% í ald-
urshópnum 35-44 ára og um rúm
17% hjá 55-69 ára.
Fjöldi þeirra, sem eru hlutlausir,
stendur nánast í stað. Þá hefur
körlum, sem eru fylgjandi samn-
ingnum, fjölgað úr tæplega 46% í
könnuninni í júlí í iiðlega 56%. Hins
vegar eru litlar breytingar á afstöðu
kvenna, þó íjölgar þeim sem eru
fylgjandi heldur meira en þeim sem
eru andvígar.
í niðurstöðum könnunarinnar
kemur einnig fram, að fylgi við EES
eykst heldur meira á höfuðborgar-
svæðinu en á landsbyggðinni.
Morgunblaðið/Kristinn
Atvinnumálanefnd aðila vinnumarkaðar, sveitarfélaga og ríkisstjómarinnar kom saman til fundar í gær
þar sem einkum voru ræddar hugmyndir um lækkun kostnaðarliða fyrirtækja vegna alvarlegs atvinnuástands.
Formaður VSÍ segir áherslu lagða á að minnka kostnaðarskatta fyrirtækja
Tilfærslur sem þýða skatta-
hækkanir fyrir þá telduhærri
ATVINNUMÁLANEFND aðila
vinnumarkaðar, sveitarfélaga og
ríkisvalds kom saman til fundar
í gær. Megináhersla er nú lögð á
að lækka kostnað atvinnulífsins
meðal annars með því að létta
sköttum af fyrirtækjum, lækka
raforkuverð og lengja verulega
þau lán sem á sjávarútveginum
hvíla. Magnús Gunnarsson, for-
Þyrla í eftirliti í Þingvallasveit
Rjúpnaveiðibannið
var að mestu virt
Selfossi.
BANN við ijúpnaveiði í Þing-
vallasveit og í þjóðgarðinum á
Þingvöllum var að mestu virt í
Ráðstefnumiðstöðin
Framkvæmda-
stjóri ráðinn
ÁRSÆLL Harðarson hefur verið
ráðinn framkvæmdastjóri Ráð-
stefnumiðstöðvar Islands. Yfir 80
umsækjendur voru um stöðuna.
Ársæll fæddist 9. janúar 1956.
Hann lauk námi í rekstrarhagfræði
í Danmörku 1982 og hefur starfað
hjá Félagsstofnun stúdenta, Skelj-
ungi, Islenska útvarpsfélaginu og
Medis, Hugbúnaðarfélagi íslands
hf. Ársæll er kvæntur Ingibjörgu
Kristjánsdóttur og eiga þau tvo syni.
maður VSÍ, segir að aðilar vinnu-
markaðarins séu að nálgast nyög
hratt og báðir aðilar geri sér vel
grein fyrir hversu alvarleg staða
fyrirtækjanna sé. „Menn eru ekki
að tala um launalækkanir heldur
fyrst og fremst kostnaðartilfærsl-
ur og það er alveg ljóst að þær
munu vafalítið þýða skattahækk-
anir, að minnsta kosti fyrir suma,
þannig að þeir sem eru tekjuhæst-
ir þurfi að leggja meira til en
aðrir,“ segir hann.
Ásmundur Stefánsson, forseti
ASÍ, sagði eftir fundinn í gær að
ef ekkert yrði að gert blasi við mik-
ið afkomuvandamál í sjávarútvegi.
„Án aðgerða kemur þar til gjald-
þrota víða og við myndum steypast
inn í ógnarástand sem væri mjög
erfitt að vinna sig upp úr aftur.
Þess vegna er augljóst að eitthvað
verður að gera. Það yrði skammgóð-
ur vermir af gengisfellingu fyrir út-
flutningsatvinnuvegina eins og
reynslan sýnir,“ sagði Ásmundur.
Hann sagði að engar beinar tillögur
lægju fyrir í atvinnumálanefndinni
en eðlilegt væri að skoða hvaða
möguleikar væru á að létta kostnaði
af sjávarútvegsfyrirtækjum. Það
væri unnt með því að breyta skipu-
lagi greinarinnar og hugsanlega
einnig með því að létta einhveijum
gjöldum af fyrirtækjunum með til-
færslu á sköttum til að bæta stöðuna
en engin aðgerð væri auðveld í fram-
kvæmd. Ekki hefði hins vegar verið
rætt um launalækkanir eða réttinda-
afsal af háifu launþegahreyfingar-
innar.
Magnús sagði að erfíðleikarnir
væru ekki tímabundnir og spáð væri
þriggja til fimm ára erfiðleikatíma-
gær. Nokkrar ijúpnaskyttur
voru við veiðar í úljaðri svæðis-
ins og afskipti voru höfð af einni
skyttu við ólöglegar veiðar. Lög-
reglan fór í eftirlitsferð á þyrlu
yfir þjóðgarðssvæðið og varð vör
við 12-14 bíla á svæðinu.
Samkvæmt lögum er algjört
bann allt árið við fugladrápi í þjóð-
garðinum og hreppsnefnd Þing-
vallahrepps samþykkti nýlega al-
gjört bann við ijúpnaveiði í hreppn-
um. Ingólfur Ottesen, oddviti Þing-
vallahrepps, sagði einhug í hreppn-
um um þessa ákvörðun. Það væri
mat hreppsnefndar að enginn af-
réttur væri í hreppnum. „Við ætlum
að reyna að fylgja þessu banni eft-
ir eins og við getum og látum reyna
á það hvort við höfum ekki óskorað-
an rétt yfir þessu svæði,“ sagði
Ingólfur.
Sig. Jóns.
Samtök fjárfesta
Skandia stendur við
skuldbindingar sínar
AÐALSTJÓRNENDUR Skandia í Svíþjóð hafa staðfest að fyrirtækið
hafi áhuga á að opna fyrir viðskipti þeirra sjóða sem þeir hafa
umsjón með á íslandi og hafa gefið Samtökum fjárfesta fyrirheit
um að fyrirtækið muni standa að fullu við skuldbindingar sínar á
íslandi, að sögn Siguijóns Ásbjörnssonar, sljórnarformanns Samtaka
fjárfesta, en fulltrúar þeirra áttu viðræður við aðalstjórnendur
Skandia í Stokkhólmi fyrr í vikunni.
Siguijón kvaðst vera ánægður lands. Leif Victorin, forstjóri
með niðurstöðu viðræðna Samtaka Skandia, kom til landsins í gær til
fjárfesta við Skandia. í fréttatil- viðræðna við forsvarsmenn Fjár-
kynningu frá samtökunum sem festingarfélagsins Skandia.
gefin var út í gær segir að þessu -♦----
til staðfestingar hafi verið ákveðið
að forstjóri Skandia kæmi til ís-
bili. Því þyrfti að grípa til víðtækra
ráðstafana sem fælust m.a. í að
gera fyrirtækin betur samkeppnis-
hæf. Ríksvaldið yrði að taka sig á
í ríkisfjármálum því rúmlega sex
milljarða króna halli fjárlagafrum-
varps gæti endað í átta til tíu millj-
arða króna halla þegar Alþingi hefði
lokið umfjöllun sinni um frumvarpið.
Það væri þveröfug stefna við þá
stöðugleika- og gengisstefnu sem
ríkisstjómin segðist vilja fylgja. Gera
þyrfti uppskurð í ríkiskerfinu, flýta
sameiningu sveitarfélaga og fækka
bæði hagsmunasamtökum atvinnu-
rekenda og verkalýðsfélögum.
Fulltrúar hagsmunasamtaka í
sjávarútvegi áttu fund með Davíð
Oddssyni forsætisráðherra á mið-
vikudag. Að sögn Magnúsar varð
engin niðurstaða af þeim fundi en
þar hefði m.a. verið rætt um áfram-
haldandi útfærslu á lengingu lána
sjávarútvegsins og forsætisráðherra
væri að láta gera úttekt á hvernig
að henni mætti standa.
Ekki er fyrirhugað að halda aftur
fund í atvinnumálanefndinni fyrr en
upp úr helgi.
Sjá einnig viðtal við Magnús
Gunnarsson á bls. 20 og frásögn
á miðopnu.
Grindavíkur-
Ofbeldi í þýskum barnaskólum
færist sífellt í vöxt og mánudagam-
ir eru verstir 23
Leiðari
Útgjaldalækkun hjá atvinnuvegum
24
Fosteignir
► Skipulagsáætlanir og
breytingar á skipulagi-
Vamir gegn fúa og svepp-
um-Innanstokks og utan
Daglegt líf
► Matur frá Kenýa-framhalds-
skólar í kreppu-úrasafnari-breyt-
ingaskeiðið-Mombasa-bílasýning
í París-verðkönnun á
vetrardekkjum.
bær tekur
við baðhúsinu
Grindavík.
GRINDAVÍKURBÆR tekur í
dag formlega við rekstri bað-
hússins við Bláa lónið úr höndum
Kleifa sf. sem hafa haft rekstur-
inn á leigu undanfarin ár.
Samkomulag milli stjómar Hita-
veitu Suðurnesja og Grindavíkur-
bæjar um reksturinn náðist nýlega
í stjórn HS og mun Grindavíkurbær
sjá um daglega umsjón með baðhús-
inu og leggja drög að framtíðar-
skipulagi við lónið.
Kristinn Benediktsson hefur ver-
ið ráðinn umsjónarmaður með bað-
húsinu næstu tvo mánuði og tekur
hann við starfinu í dag um leið og
Grindavíkurbær tekur við rekstrin-
um.
- FÓ
Lést í um-
ferðarslysi
Konan sem lést þegar hún
varð undir strætisvagni á mót-
um Hafnarstrætis og Lækjar-
götu í fyrradag hét Sigríður
Sigurgeirsdóttir, til heimilis í
Hraunbæ 130, Reykjavík.
Sigríður var 61 árs gömul, fædd
31. mars 1931. Hún lætur eftir sig
eiginmann og fjögur uppkomin
börn.
í dag
Lúkas
Kvikmyndin Lúkas, byggð & hand-
riti Guðmundar Steinssonar, verður
frumsýnd í dag í Stjömubíói 10
Landakotsspítali
Níutíu ára saga spítalans, sem St.
Jósefssystur byggðu 18-19
OJbeldi