Morgunblaðið - 16.10.1992, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 1992
3
SaZSX%32S!2£&
Póstgjaldskrá hækkar um 7%
Flutningshraði ræð-
ur burðargjaldinu
Lækjargata 4 endurreist í Árbæjarsafni
BURÐARGJAJLD pósts tekur frá og með næstu mánaðamótum
mið af flutningshraða sendingar, en ekki innihaldi eins og áður
var. Póstur og sími stefnir ennfremur að því að gjaldskráin taki
meira mið af tilkostnaði en áður, og samkvæmt því verður sú
breyting um mánaðamótin að burðargjöld til Norðurlandanna
verða þá hin sömu og til annarra Evrópulanda. Póstur og sími
hefur fengið heimild til að hækka gjaldskrá fyrir póst að meðal-
tali um 7%. Aætlað er að aðgerðir þessar ásamt gjaldskrárhækkun-
inni auki tekjur Pósts og síma um 130 milljónir kr.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
í Árbæjarsafni er verið að
slá upp grind að húsi og þar
endurreisa smiðir safnsins
húsið sem áður stóð við Lækj-
argötu 4 í Reykjavík. Húsið
skemmdist mikið er það
hrundi við flutning frá Lækj-
argötu árið 1988. Ráðgert
er að verkinu ljúki haustið
1994 og mun húsið væntan-
lega hýsa sýningar- og fyrir-
lestrasali auk skrifstofa
safnsins.
Engin hækkun verður þó á 20
gramma bréfi innanlands, böggl-
um innanlands né póstfaxþjón-
ustu. Breytingarnar jafngilda því
að gjaldskrár Pósts og síma hækki
að meðaltali um 2%. Ekki eru fyr-
irhugaðar neinar hækkanir á síma-
þjónustu eða öðrum gjaldskrám
stofnunarinnar.
Bréfpóstur til útlanda verður
um næstu mánaðamót og fram-
vegis flokkaður í A-póst og B-
póst. Burðargjaldið ræðst þá af
flutningshraða og dreifíngartíma,
segir í fréttatilkynningu frá Pósti
og síma. Horfíð verður frá gömlu
skiptingunni eftir innihaldi send-
inga og því skiptir ekki lengur
máli hvort sendingin er bréf,
prentað mál, smápakki eða póst-
kort. Slík flokkun hefur þegar
verið tekin upp í nágrannalöndun-
um. A-póstur nýtur forgangs í
flutningi og allri meðhöndlun. Þó
verður litið á allan almennan bréf-
póst innanlands sem A-póst.
Um næstu mánaðamót bætist
við nýr 50 gramma þyngdarflokk-
ur og burðargjald til Norðurlanda
verður ekki lengur hið sama og
innanlands. Þó verður hægt að
senda 20 gramma bréf til Norður-
landa fyrir sama burðargjald og
áður, þ.e. 30 kr., með því að nota
B-póst.
I fréttatilkynningunni segir að
íslenska póststjórnin hafi þurft að
greiða talsvert með ákveðnum
sendingum vegna hærri gjaldskrár
á hinum Norðurlöndunurn í flest-
um þyngdarflokkum. íslenska
póststjómin hafi t.d. þurft að
greiða 169 kr. með 400 gr bréfi
sem sent er héðan til Noregs.
Póstur og sími segir þessar
breytingar nauðsynlegar til þess
Tyrkneska
forræðismálið
Höfðað mál
á hendur
þingmanni
öfgasinna
HASÍP Kaplan, tyrkneskur lög-
maður Sophiu Hansen, hefur
höfðað mál á hendur Ökkes
Sendiller, þingmanni öfgafullra
múslima, fyrir að hvetja til
múgæsings við þinghús í Istanb-
úl rétt áður en tyrkneska for-
ræðismálið var tekið þar fyrir
24. september síðastliðinn.
Hann hefur einnig höfðað mál
á hendur 4 mönnum sem höfðu
sig hvað mest í frammi þegar
Sophia, systkini hennar tvö og
lögfræðingar komu til réttarins.
Að sögn Sigurður Péturs Harð-
arssonar, sem hefur aðstoðað
Sophiu, er hugmyndin að hrinda
af stað söfnunarátaki til stuðnings
Sophiu dagana 2.-15. nóvember
en kostnaður vegna málsins er nú
kominn upp í um 15 milljónir
króna. Forræðismálið verður tekið
fyrir að nýju í Istanbúl 12. nóvem-
ber.
Sophia er í Istanbúl þar sem
hún á samkvæmt dómsúrskurði
að fá að hitta dætur sínar tvær á
laugardag.
að stofnunin geti staðið skil á 940
milljóna kr. greiðslu í ríkissjóð á
næsta ári sem kveðið er á um í
fjárlagafrumvarpinu.
Þriggja ára ábyrgd
BILL FBA HEKLU BOHGAH SIG
IHl
HEKLA
LAUGAVEGI 174
SÍMI 695500
6 manna VW Tránsporter með palli
Verð frá kr. 1.523.000 (m.vsk.)
Kjörnir til hverskonar
vörufiutninga og fólksflutninga
□ Án vsk
□ Bensín- eða Dieselhreyfill
□ AfSstýri/Framhjóladrif
□ 5 gíra handskipting/sjálfskipting
□ Burðargeta 1-1,2 tonn
□ Farþegafjöldi allt að 11 manns
Lokaður VW Transporter
Verð frá kr. 1.476.000 (m.vsk.)
3 manna VW Transporter meö palli
Verð frá kr. 1.472.000 (m.vsk.)
VINNUBILA
Jytá
VOLKSWAGEN