Morgunblaðið - 16.10.1992, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 1992
Ólafur Ólafsson landlæknir
Sextíu geðfatlaðir í reiðileysi
Telur mikla hættu á að fjöldinn fari
upp í 100 manns á skömmum tíma
SEXTÍU nöfn eru á skrá Landlæknisembættisins yfir geðfatlaða
einstaklinga í reiðileysi að sögn Ólafs Ólafssonar landlæknis. Lárus
Helgason, yfirlæknir á geðdeild Landspítala, segir að með lokunum
á Vífilstöðum og í Gunnarsholti verði fjöldinn kominn upp í um
hundrað manns eftir nokkrar vikur. Hann segir að um 200 einstakl-
ingar að auki þarfnist meiri aðstoðar en þeir njóti nú. Á fundi um
málefni geðfatlaðra í gær kom m.a. fram að brýn þörf væri á úrbót-
um í húsnæðismálum þessa hóps. Áætlanir eru um að leysa vanda
55-65 einstaklinga á næstu 3 árum.
Ólafur Ólafsson, landlæknir,
sagði að embættið hefði nöfn a.m.k.
60 geðfatlaðra í reiðileysi á skrá
hjá sér. Margt af þessu fólki hefði
verið á geðdeildum en við útskrift
væri skortur á úrræðum. Mörg
heimili og jafnvel sjúkrahús hefðu
gefíst upp á sjúklingunum og ætti
misnotkun þeirra á áfengi- og fíkni-
efnum oft þátt í því. Biði þá ekki
annað en reiðileysi á götum úti og
vistun í fangelsum þessa hóps.
Fram kom að flestir geðfatlaðra í
VEÐUR
reiðileysi væru á aldrinum 30-39
ára en 15 væru undir 30 ára.
Ásta M. Eggertsdóttir, fram-
kvæmdastjóri á Svæðisskrifstofu
um málefni fatlaðra, kynnti 3 ára
áætlun í húsnæðismáium geðfatl-
aðra. Samkvæmt henni er gert ráð
fyrir byggingu 15 félagslegra
íbúða, óákveðnum íjölda vemdaðra
íbúða, byggingu eða kaupum á 6
sambýlum og að komið verði á fót
sérstökum áfangastað. Áætlað er
að félagslegar íbúðir leysi vanda
Morgunblaðið/RAX
Frá fundi um málefni geðfatlaðra í reiðileysi. Á innfelldu myndinni er Ólafur Ólafsson landlæknir.
15 geðfatlaðra, sambýli 30 og
áfangastaðir 10-20 á næstu 3 árum.
Meðal þess sem Ásta lagði áherslu
á var að skipuleggja þyrfti hús-
IDAG kl. 12.00
Heimitd: Veðurstofa íslands
(Byggt ó vedurspó W. 16.15 (gær)
VEÐURHORFUR I DAG, 16. OKTOBER
YFIRLIT: Á Grænlandshafi er heldur minnkandi 1.036 mb. hæð sem
þokast suður. Við norðausturströnd Grænlands er 1.014 mb. smálægð
sem hreyfist suðaustur.
SPÁ: Norðan- og norðvestanátt, víðast gola eða kaldi, en stinningskaldi
á stöku stað norðanlands og austan. Smáslydduél norðaustan til en
víðast léttskýjað annarsstaðar. Hiti 2-7 stig að deginum en víðast frost
að næturlagi.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Norðlæg átt, dálftill strekk-
ingur austast á landinu en fremur hæg vestanlands. Smáél á annesjum
norðanlands og austan en annars staðar nokkuð bjart veöur, þó gætu
smáói gert vart við sig suðvestanlands á sunnudag. Víða næsturfrost
en yfirleitt 2-5 stiga hiti að deginum, hlýjast sunnanlands.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30. 4.30, 7.30, 10.45, 12.48, 16.30, 19.30,
22.30. Svarsimi Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
0 *£ -'A &
Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað
'V’ $ V
Skúrír Slydduél Él
f r r * f *
f f * f
f f f f * f
Rigning Slydda
* * *
* *
* * *
Snjókoma
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörín sýnir vindstefnu
og fjaðrirnar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.^
10° Hitastig
Súld
= Poka
V
FÆRÐA VEGUM:
Sumarfæri er á öllum helstu þjóðvegum landsins. Ekki er vitað um færð
á hálendisvegum á norðanverðu landinu, má þar nefna Sprengisandsveg
norðanverðan, sem er: Eyjafjarðarleið og Skagafjarðarleið og ekki er
vitaö um færð á Gæsavatnaleið. Kjalvegur og Fjallabaksleiðir, nyðri og
syöri, eru snjólausar og sama er að segja um Lakaveg.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í sfína 91-631500 og
f grænni línu 99-6315. Vegagerðfn.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hiti veður
Akureyri 2 féttskýjað
Reykjavík 3 léttskýjaö
Bergen 6 léttskýjað
Helsinki 4 rigning
Kaupmannahöfn S skúr
Narssarssuaq 1 þokuruðningur
Nuuk 7 skýjað
Osló 3 snjókoma
Stokkhólmur 6 þokumóða
Þórshöfn vantar
Algarve 18 rigning
Amsterdam 8 léttskýjað
Bercelono 17 skýjaö
Bertín 8 rigning
Chicago 11 þokumóða
Feneyjar 13 þokumóða
Frankfurt 7 rigning
Glasgow 9 skýjað
Hamborg 8 skýjað
London 9 léttskýjað
Los Angeles 18 skýjað
Lúxemborg 6 alskýjað
Madrid 11 skúr
Malaga 20 rigning
Mallorca 21 skýjað
Montreal 5 alskýjað
NewYork 15 þokumóða
Orlando 19 heiðsklrt
Paris 11 skýjað
Madeira 23 hálfskýjað
Róm 19 léttskýjað
Vín 8 hálfskýjað
Washlngton 12 mlstur
Winnipeg +2 skýjað
næðið með tilliti til þarfa íbúanna
og að við skipulagningu hverfa
þyrfti að gera ráð fyrir sambýlum
fatlaðra við þjónustumiðstöðvar.
í máli Lárusar Helgasonar, yfír-
læknis á geðdeild Landspítala, kom
fram að á næstunni yrði lokað deild
fyrir einstaklinga með áfengis- og
geðræn vandamál á Vífílstöðum og
hefði hún sinnt um 250 einstakling-
um á ári. Ennfremur yrði Gunnars-
holti með 40 vistmenn lokað. Hann
sagði að í kjölfar þessara lokana
fjölgaði hópi geðfatlaðra í reiðileysi
úr 60 í um 100 eftir nokkrar vik-
ur. Lárus benti einnig á að um 200
geðfatlaðir þyrftu á meiri aðstoð
að halda en þeir fengju.
Lena Hákonardóttir, fulltrúi í
Samtökum aðstandenda, rakti þann
vítahring sem geðfatlaðir lentu í
þegar þeir fengju ekki aðstoð við
hæfí. Ennfremur tók hún fram að
misbrestur væri á því að aðstand-
endum væri sagt hvaða aðstoð
sjúklingum stæði til boða. Hún lagði
áherslu á mikilvægi sjálfshjálpar-
hópa og fram kom að unnið væri
eftir 12 þrepa kerfí AA-samtak-
anna. Fram kom sú hugmynd að
tengja greiðslur almannatrygginga
lyfjagjöf eða meðferð af einhveiju
tagi.
Síðastur talaði Jónas Hallsson,
aðstoðaryfirlögregluþjónn, og kom
í máli hans fram að 69 einstakling-
ar í annarlegu ástandi eða geðveik-
ir hefðu vistast hjá lögreglunni á
síðasta ári. Oft eru sömu einstakl-
ingamir vistaðir mörgum sinnum.
Jónas lagði áherslu á að brýn þörf
væri á úrbótum á vanda þessa hóps.
„Réttarhöld“ Zur-
offs fortn á málþingi
- segir aðstoðarmaður dómsmálaráðherra
ARI Edwald, aðstoðarmaður
Þorsteins Pálssonar dómsmála-
ráðherra, segir að ráðuneytið
hafi ekki tekið neina afstöðu til
yfirlýsinga Efraims Zuroff, for-
stjóra Wiesenthal-stofnunarinn-
ar í Jerúsalem, um meðferð máls
Eðvalds Hinrikssonar. Zuroff
hefur meðai annars lýst yfir að
tii greina komi að stofnun hans
haldi opinber „réttarhöld" yfir
Eðvald hér á landi vegna meintra
stríðsglæpa.
„Uppákoma eins og Zuroff lýsir
í samtali við Morgunblaðið sl. mið-
vikudag hefur enga lögfræðilega
þýðingu," sagði Ari í samtali við
Morgunblaðið. „Þetta virðist bara
vera eins konar form á málþingi.
Ef hann semur til dæmis við hótel
hér á landi er hann aufúsugestur.
Þetta er fijálst land.“
Ari sagði að sú gagnrýni á störf
Eiríks Tómassonar og Stefáns M.
Stefánssonar, sem skiluðu áliti um
mál Miksons, að þeir hefðu ekki
reynt að meta sekt hans eða sak-
leysi út frá fyrirliggjandi gögnum,
missti marks. Lögfræðingarnir
hefðu verið fengnir til að skoða lög-
fræðilegar hliðar á því, hvort hefja
ætti opinbera rannsókn eða ekki.
Hefðu þeir ætlað að meta sekt eða
sakleysi Eðvalds hefði það verið
opinber rannsókn i sjálfu sér.
• •
Olvaður ók á
strætisvagn
UM KL. 11 í gærmorgun var
bifreið ekið aftan á strætis-
vagn í Vonarstræti og stakk
ökumaðurinn bifreiðarinnar
af, en hann var grunaður um
ölvun.
Að sögn lögreglu barst
skömmu síðar tilkynning til lög-
reglunnar um að ökumaðurinn
væri annaðhvort ofurölvi eða í
annarlegu ástandi í bifreið sinni
í Kirkjustræti, en þegar lög-
reglumenn komu á vettvang var
bifreiðin farin. Hún fannst síðan
mannlaus í Tryggvagötu
nokkru síðar, en í gær hafði
ökumaðurinn ekki fundist.
Loðnu- off síldveiðar
Bræla enn á miðunum
UM 25 loðnu- og síldarskip eru
á veiðum en lítið hefur fiskast
undanfarna 2-3 daga.
Geirfínnur Stefánsson, háseti á
Háberginu GK, sagði að bræla hefði
verið á loðnumiðunum síðustu tvo
sólarhringa þegar talað var við
hann um hádegisbil í gær. Skipið
var þá statt norður af Sléttu. Að-
spurður sagði Geirfinnur að litið
sæist af loðnu og sú sem sæist stæði
djúpt og erfitt væri að ná til henn-
ar. Rúmlega 20 skip voru á loðnu
miðunum í þokkalegu veðri.
Guðmundur Sveinbjörnsson
skipstjóri á Sighvati Bjamasyni VE
sagði að bræla hefði verið á síldar
miðunum austur af landinu síðan i
mánudag. Þó sagði hann að einhve;
síld væri á miðunum. Það vantað
einungis aðstæður til að ná henn
upp. A bilinu 6-7 vindstig voru í
síldarmiðunum.