Morgunblaðið - 16.10.1992, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 1992 11
Tatjana Nikolaéva
Tatjana Nikolaéva
Sýning á þjóðsagna-
og ævintýramyndum
Sænsk sýning
í Slunkaríki
Laugardaginn 17. október kl.
16.00 verður opnuð sýning í
Slunkaríki, Aðalstræti 22,
Isafirði, á verkum Karin Tiberg
og Thorleif Alpberg frá Svíþjóð.
Sýningin er samvinnuverk lista-
mannanna og ber heitið „Lursong
— bronze age echoes" og saman-
stendur af skúlptúrum, málverkum
og hljóði. Sýningin er „ísetnings-
verk“ og hugleiðing um tímaskeið
bronsaldar í Skandinavíu.
Karin og Thorleif eiga margar
einka- og samsýningar að baki, en
þetta er fyrsta sýningin sem þau
vinna sameiginlega.
Sýningin stendur til 8. nóvem-
ber. Slunkaríki er opið vikulega kl.
16.00-18.00 frá fimmtudegi til
sunnudags.
—...—...♦ -----
Sýning á
kirkjumunum
Á kirkjuviku í Áskirkju dag-
ana 11.-18. október er opin sýn-
ing á munum kirkjunnar pg
skrúða i safnaðarheimili Ás-
kirkju.
Þar er margt kirkjugripa og list-
muna af erlendum uppruna, flestir
úr eigu Unnar heitinnar Ólafsdóttur
kirkjulistakonu og Óla Magnúsar
* ísakssonar eiginmanns hennar, en
þau hjónin ánöfnuðu kirkju sinni
þessum gripum.
Höklar kirkjunnar og skrúði
verða einnig til sýnis, en allur skrúði
Áskirkju er verk Unnar Ólafsdótt-
ur, ýmist saumaður af henni eða
Ásdísi Jakobsdóttur eftir teikningu
Unnar.
Sýningin verður opin til 18. októ-
ber kl. 15-19. Einnig eftir kvöld-
samkomur í kirkjunni.
________Tónlist____________
Jón Ásgeirsson
Þegar tíminn hefur verið dreg-
inn saman í eina minningu, lifa
einstök augnablik ósnortin fölva
gleymskunnar, augnablik, gædd
óútskýranlegum mikilleik, sem
fylkja fólki saman til eignar í víð-
ernum fegurðarinnar. Eitt slíkt
augnablik varð til fyrir íjörutíu
árum, er ung og dökkhærð stúlka,
Tatjana Nikolaéva, gekk inn í ljós-
kringlu tímans og lék við hljóð-
færið sitt og síðan þá, hafa allir
viðstaddir ofið saman við þögn
tímans, minninguna um list ungu
stúlkunnar.
Margir atburðir í lífi mannanna
gleymast um leið og þeir eru liðn-
ir, þurrkast út og verða óafturk-
ræfir en þegar Tatjana hafði safn-
að sér fjörutíu árum, kom hún
aftur til okkar, inn í ljóshringinn
á leiksviði íslensku óperunnar og
minnti okkur á, að nálgun fegurð-
arinnar er hafín yfir tíma, sam-
mannleg og um leið guðleg að
innra inntaki.
Þegar mennirnir hafa illskast
víð hvern annan, brotið bæi,
brennt akra og meitt jafnvel börn
sín, er undarlegt til þess að vita,
að fólk komi saman og beini
skynjun sinni að einum punkti og
stari inn í endurspeglun fegurðar-
innar, sem bergnumið væri. Nú
er það Tatjana Nikolaéva, sem
færir okkur þær gjafir, sem signd-
ar voru af vitringunum, gjafir sem
eru dýrastar i eigu mannsins, feg-
urðin sjálf, stofnrót alls hins góða
með manninum.
Unga konan sem eitt sinn áði
hér, kemur enn til okkar og þó
tíminn hafi skorið henni aldurs-
merki sín, er list hennar ung og
jafn glitfögur sem fyrr.
OPNUÐ hefur verið sýning í
Safni Ásgríms Jónssonar á
Bergstaðastræti 74 á þjóð-
sagna- og ævintýramyndum eft-
ir Ásgrím. Myndirnar eru bæði
í eigu safnsins og Listasafns
Islands.
Sýndar verða margar þekktustu
Orgeltónleikar
í Akraneskirkju
Laugardaginn 17. október held-
ur Kjartan Sigurjónsson orgel-
leikari einleikstónleika í Akra-
neskirkju. Á efnisskrá eru
orgelverk eftir Pachelbel,
Buxtehude, Reger og Bach.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill.
------♦--------
Sýning á járn-
og glerverkum
Á morgun, laugardaginn 17.
október, kl. 14.00 opnar Marta
María Hálfdánardóttir sýningu
á járn- og glerverkum í G.P.
húsgögnum, Bæjarhrauni 12,
Hafnarfirði.
Þetta er fyrsta einkasýning
Mörtu Maríu, en hún hefur tekið
þátt í samsýningum hér heima og
í Þýskalandi.
Sýningin verður opin næstu
tvær vikur á opnunartíma verslun-
arinnar og á sunnudögum kl.
14.00-18.00.
myndir Ásgríms, til dæmis Nátt-
tröllið frá 1905, Fljúgðu, fljúgðu
klæði frá um 1915 og Djákninn á
Myrká frá 1931, auk fjölda vatns-
litamynda úr huldufólkssögum.
Einnig eru á sýningunni nokkr-
ar af elstu olíumálverkum Ásgríms
sem tengjast þjóðsagnaefni, þar á
meðal Sturluhlaup, Feijumaðurinn
og Sjórekið lík.
Sýningin stendur til nóvember-
loka. Safn Ásgríms Jónssonar er
opið um helgar kl. 13.30-16.00.
Einnig er tekið á móti gestum á
öðrum tíma, sé þess óskað.
------♦ ♦ ♦
Magnús Kjart-
ansson í List-
munahúsinu
Sýning Magnúsar Kjartansson-
ar í Listmunahúsinu, Tryggva-
götu 17, Reykjavík stendur nú
yfir.
Á sýningunni eru 18 verk frá
árunum 1982-89. Aðalviðfangs-
efni verkanna er „maður í ein-
rúmi.“ Auk þess eru á sýningunni
gögn er varða gerð verkanna, en
uppistaða þeirra eru gamlar ljós-
myndaaðferðir frá 1850- 60.
Sýningin stendur til 18. októ-
ber. Listmunahúsið er opið virka
daga frá kl. 12.00-18.00, en á
mánudögum er lokað.
Metsölubladá hverjum degi!
Kr- 22-000
MÝHERJA
oN1®r°J1ooL
trá W
Nýherji blæs á svartsýnistalið
ióðfélai
sem heltekur þjóðfélaqið í daq.
— “ ' Tbi “
r Þjc
Til að hugur fylgi máli bjóðum
við næstu daga fjöldann allan
af skrifstofuvörum, tölvubúnaði,
fylqihlutum og rekstrarvörum
á áður óþekktu verði meðan
birgðir endast. Komdu fyrir helgi
í Nýherja og gerðu góð kaup.
PAPP/rSTæta
fra kr. 11.900 R
TEIKNARAR
frá kr. 10.000
REIKNIVÉLAR
fra kr. 890
WYTT
kreditkortatímabil hefst
fimmtudaginn 15. október
Ar ci ciRA OG FLEIRA
S^SærJverbi
Auk þess verslunarvogir, vörumerkingaprentarar,
diskettur, hugbúnaður og ýmsir íhlutir fyrir tölvur á
einstöku veroi. Allir fylgi- og aukahlutir fyrir almennan
skrifstofubúnað seldir með 20% afslætti.
NÝHERJI
SKAFTAHLÍÐ 24 • SÍMI 69 77 00
AUtaf skrefi á undan