Morgunblaðið - 16.10.1992, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 1992
Fundahöld um vanda atvinnuveganna
Atburðarásin hef-
ur eiginlega tekið
af okkur völdin
- segir formaður VSI
„ÉG held að við séum að nálgast mjög hratt og að bæði vinnuveit-
endur og launþegahreyfingin geri sér vel grein fyrir því hversu
alvarlega fyrirtækin eru stödd. Allir áttu von á erfiðu hausti en
atburðarásin hefur eiginlega tekið af okkur völdin,“ segir Magn-
ús Gunnarsson, formaður VSÍ, um þær viðræður sem átt hafa
sér stað að undanförnu milli aðila vinnumarkaðarins um leiðir
til bjargar sjávarútveginum og öðrum atvinnugreinum. Magnús
segir að þegar í stað verði að gripa til aðgerða sem felist í lækk-
un skatta, raforkuverðs og annarra kostnaðarliða fyrirtækjanna
ásamt lengingu lána. Forsætisráðherra sé nú að láta vinna að
úttekt á hvernig megi standa að frekari lánalengingu hjá lána-
stofnunum og sjóðum.
Magnús sagði að til viðbótar
kvótasamdrætti hefði afurðaverð
farið lækkandi að undanförnu og
margar atvinnugreinar í sjávarút-
vegi og iðnaði einnig orðið illa
fyrir barðinu á gengisbreytingun-
um annarra gjaldmiðla. „Á síð-
ustu dögum hefur svo bæst ofaná
að illa gengur að selja síld og
okkur er sagt að olían sé að
hækka. Þegar þetta er alit lagt
saman horfast menn í augu við
að eitthvað þurfi að koma til til-
tölulega fljótt ef menn eiga ekki
hreinlega að missa vonina um að
geta haldið áfram," sagði hann.
„Fyrstu átta mánuði ársins
varð tæplega 20% samdráttur í
veiðum og ljóst er að síðustu sex
vikur hafa verið mun verri en
menn hafa áður upplifað á þessum
árstíma. Þetta setur á þrýsting
að finna einhveijar leiðir til bjarg-
ar. Ef það gengur ekki upp er
mjög hætt við að fleiri fyrirtæki
en þau sem verst eru stödd fari
að lenda í greiðsluerfiðleikum."
Skattahækkanir tekjuhærri
einstaklinga
Magnús var spurður hvort
„sænska leiðin“ svokallaða væri
höfð að fyrirmynd um víðtækt
samráði og niðurfærslu kostnað-
arliða. „Fyrst og fremst er verið
að tala um að menn verði að snúa
bökum saman og sameinast um
einhveija leið sem sé ásættanleg
fyrir alla. Það er ljóst að fyrirtæk-
in eru að taka á sig gífurlega
skelli og ríkisvaldið, sveitarfélögin
og einstkalingarnir verða að vera
með í ráðum,“ svaraði hann.
„Menn eru ekki að tala um
launalækkanir heldur fyrst og
fremst kostnaðartilfærslur og það
er alveg ljóst að þær munu vafalít-
ið þýða skattahækkanir, að
minnsta kosti fyrir suma, þannig
að þeir sem eru tekjuhæstir þurfi
að leggja meira til en aðrir,“ sagði
Magnús
„Mér finnst ánægjulegt að
stjórnarandstaðan hefur gefið í
skyn að hún sé tilbúin til að ræða
þessi mál af fyllstu alvöru þótt
það eigi eftir að verða mjög erfitt
pólitískt að koma öllum þeim
málum í gegn sem þessu yrðu að
fyigja.
3-5 ára erfiðleikatímabil
Ef þróunin verður eins og spáð
er í dag erum við að tala um
þriggja til fímm ára erfiðleika-
tímabil. Það er mín skoðun að við
þurfum _að fara í þríþættar að-
gerðir. í fyrsta lagi þurfum við
að lækka kostnað fyrirtækjanna
svo þau séu betur samkeppnisfær.
Ríkisvaldið verður að taka sig á
í ríkisfjármálunum. Sex milljarða
halli fjárlagafrumvarpsins, sem
gæti endað í átta til tíu milljarða
halla þegar frumvarpið er búið
að fá meðhöndlun í þinginu er
þveröfug stefna við þá stöðug-
leika- og gengisstefnu sem ríkis-
stjómin segist vilja stefna að.
í öðm lagi höfum við ekki neinn
tíma til að veltast lengur með
ýmsar af þeim grundvallarbreyt-
ingum sem við þurfum að gera í
sjávarútvegi, landbúnaði og í rík-
isrekstri. Við eigum að hætta að
tala um niðurskurð og fara í upp-
skurð í ríkiskerfínu. Við verðum
líka að flýta sameiningu sveitarfé-
laga. Það hlýtur að þýða minnk-
andi tekjur og þau verða því að
fínna leiðir til þess að spara. Hjá
atvinnurekendum erum við einnig
Magnús Gunnarsson formaður
VSI.
að tala um að sameina hagsmuna-
samtökin og fækka þeim til að
spara kostnað sem þar liggur og
verkalýðsfélögin verða að taka til
skoðunar þá tillögu sem kom ný-
lega fram fyrir austan að fækka
verkalýðsfélögunum og minnka
reksturinn, sem þýðir þá að fé-
lagsgjöldin minnka."
Sagði hann að þegar við værum
nú að koma út úr verðbólguþok-
unni kæmi í ljós að öll yfírbygging
ríkisins og samtaka vinnumarkað-
arins væri óhemjumikil og ekki
yrði sársaukalaust að hreinsa til
en slíkt væri óumflýjanlegt.
„Hvað höfum við til dæmis að
gera með 66 lífeyrissjóði eða 200
sveitarfélög, fjölmörg hagsmuna-
samtök atvinnurekenda eða öll
þessi verkalýðsfélög. Við þurfum
líka að fara inn í ríkisreksturinn
og fara í uppskurð í stað niður-
skurðar til að kanna hvort þörf
sé á öllum þeim rekstri sem ríkið
stendur í í dag.“
Grundvallarbreytingar af þessu
tagi þýða ekkert annað en fækkun
starfa, að sögn Magnúsar, og því
þyrfti samhliða að gefa fólki ein-
hveija framtíðarsýn sem efldi því
von um að hægt verði að búa í
landinu í framtíðinni. „Þá verðum
við að fara af miklu meiri krafti
en við höfum gert fram að Jaessu
í að selja orkuna og kynna Island
sem áhugaverðan kost til fjárfest-
ingar,“ sagði hann.
Hagsmunaaðilar í sjávarútvegi
hittu forsætisráðherra og sjávar-
útvegsráðherra á fundi á miðviku-
dag til að ræða vanda sjávarút-
vegsins. „Það varð engin niður-
staða á fundinum en menn ræddu
meðal annars um þessi vandamál
og um áframhaldandi útfærslu á
lánalengingu. Það varð samkomu-
lag um að halda áfram að ræða
það,“ sagði Magnús að lokum.
Borgarfulltrúi gekk út
af fundi borgarstj órnar
ÓLÍNA Þorvarðardóttir, fulltrúi Nýs vettvangs, vék af fundi borgar-
stjórnar í gærkvöldi eftir að hafa reiðst ummælum borgarsljóra. Þetta
gerðist í umræðum um tiliögu hennar þess efnis að borgarstjórn sam-
þykkti að hætta að veita áfengi og tóbak í síðdegisboðum borgarinnar
á virkum dögum.
Of snemmt er að
afskrifa Spasskíj
Markús Örn Antonsson borgar-
stjóri viðhafði þau ummæli að mál-
flutningur Ólínu einkenndist af skin-
helgi sem væri ríkur þáttur í eðlis-
fari borgarfulltrúans og komið hefði
fram við mörg tækifæri á þessum
ÞORSTEINN Bjarnason verður
þjálfari 2. deildar liðs Grindavík-
ur. Frá þessu var gengið í gær.
Þorsteinn, sem hefur leikið í marki
Grindavíkurliðsins undanfarin 3 ár,
tekur við liðinu úr höndum Bjarna
Jóhannessonar sem hefur verið ráð-
inn aðstoðarþjálfari Fram.
Þorsteinn sagði að sér litist vel á
verkefnið sem framundan er. „Eg á
vettvangi.
Tillagan sem Ólína mælti fyrir var
á þá leið að borgarstjóm samþykkti
að hætta að veita áfengi í þeim síð-
degisboðum borgarinnar sem bæri
upp á rúmhelga daga vikunnar.
von á að halda svipuðum mannskap
og síðasta ár auk þess sem von er á
strákum úr yngri flokkum félagsins
sem lofa góðu. 18 ára reynsla mín
úr boltánum hjálpar mér í þessu verk-
efni sem er verðugt."
Þorsteinn kvaðst reikna með því
að spila áfram í markinu meðan hann
kæmist í liðið.
- FÓ
Sömuleiðis að hætta ölllum tóbaks-
veitingum í veislum og á borgar-
stjómarfundum. Þá myndi borgar-
stjóm samþykkja að starfsnefndum
á vegum borgarinnar yrði héðan í
frá óheimilt að veita áfengi nema
sérstök tilefni væru til gestaboða og
þá einungis með samþykki borgar-
stjóra eða þess embættismanns sem
hann fæli ákvörðunarvald þar um.
Eftir ummæli borgarstjóra fór
Ólína Þorvarðardóttir fram á afsök-
unarbeiðni hans eða að forseti borg-
arstjórnar myndi ávíta hann fyrir
þau. Borgarstjóri sagðist ekki hafa
átt við persónuna Ólínu sem slíka,
heldur einungis verið að vísa til
málflutnings hennar í þessu tilviki.
Ólína vék samt sem áður af fundi.
Samþykkt var frávísunartillaga
meirihlutans við tillöguna þar sem
segir að veitingar á vegum borgar-
stjórnar séu á ábyrgð gestgjafa og
sú venja hafí ríkt að þeir ákveði
hvað á boðstólum sé hverju sinni.
Reynslan af því fyrirkomulagi sem
gilt hafi gefi ekki tilefni til breytinga.
Skák________________
Karl Þorsteins
ÞAÐ ER of snemmt að afskrifa
Spasskíj í einvíginu gegn Bobby
Fischer. Það sýndi hann í gær
þegar hann stýrði hvítu mönn-
unum af mikilli fími til sigurs
í tuttugustu einvígisskákinni.
Staðan í einvíginu er nú sjö
vinningar gegn fjórum Fischer
í hag.
Fischer hlýtur að naga sig í
handarbökin fyrir að missa auð-
unna stöðu í nítjándu einvígis-
skákinni niður í jafntefli og svo
virtist sem hann kæmist aldrei í
gang í skákinni í gær. Byrjunin
var sikileyjarvöm, sem Fischer
hefur ekki haft tök á að tefla í
tvo áratugi, opinberlega a.m.k.
Spasskíj kaus að fara fátroðnar
slóðir í byijuninni og skákin þró-
aðist fremur rólega framan af.
Eins og algengt er í sikileyjarvörn
hóf hvítur sóknaraðgerðir á
kóngsvæng á meðan svartur leit-
aði færa á drottningarvæng. Með
skemmtilegum liðstilfæringum
kom Spasskíj mönnum sínum fyr-
ir á góðum reitum í miðtaflinu
og þegar Fischer fórnaði peði átti
Spasskíj öflugt mótsvar. Skyndi-
lega stóðu öll spjót á svörtu stöð-
unni og Fischer fann engin ráð,
hann þurfti að gefa skiptamun
og Spasskíj innheimti vinninginn
af miklu öryggi nokkrum leikjum
síðar.
Tuttugasta og fyrsta skákin í
einvíginu verður tefld á laugar-
daginn og þá stýrir Fischer hvítu
mönnunum.
Hvítt: Borís Spasskíj.
Svart: Bobby Fischer.
Sikileyjarvörn
1. e4!
Spasskí hefur hafið taflið með
drottningarpeðinu hingað til í ein-
víginu. Nú gefur hann Fischer
kost á sikileyjarvörn, byijun sem
Fischer var öllum skákmeisturum
snjallari í fyrir tveimur áratugum.
Byijunina teflir Spasskíj svipað
og Fischer hefur gert í tveimur
síðustu viðureignum með hvítu
mönnunum.
I. - c5, 2. Re2 - Rf6, 3.
Rbc3 — e6, 4. g3 — Rc6, 5. Bg2
— Be7, 6. 0-0 — d6, 7. d3 — a6,
8. a3 - Dc7, 9. f4 - b5, 10.
Khl - 0-0.
Skákin fer rólega af stað. Báð-
ir keppendur ljúka liðskipan og
meðan hvítur hefur sóknaraðgerð-
ir á kóngsvæng liggja færi svarts
fremur á drottningarvæng.
II. Be3 - Bb7, 12. Bgl -
Hab8,13. h3 - Ba8,14. g4 - b4,
Síðasti leikur svarts var gagn-
rýndur. 14. — Rd7 er líklega ná-
kvæmari leikur.
15. axb4 — cxb4, 16. Ra4 —
Rd7, 17. Dd2 - Hfc8, 18. b3 -
a5, 19. g5 - Bf8, 20. Ha2 -
Re7 21. Rd4.
Hvítur kemur mönnum sínum
fyrir á góðum reitum og ef riddar-
inn á a4 kæmist óáreittur til c4
með millihoppi á b2-reitnum stæði
hvítur mun betur að vígi. Nú kom
vel til greina fyrir Fischer að leika
21. — e5 eða 21. — d5!?. Við síðar-
nefnda leiknum gæti áframhaldið
orðið 22. f5 — dxe4, 23. fxe6 —
fxe6, 24. Rxe6 — De5 og staðan
er mjög óljós. Með næsta leik
veikir svartur kóngsstöðuna.
21. - g6, 22. Rb2 - Bg7, 23.
Rc4 — d5.
Fischer fórnar peði sem lítur
vel út í fyrstu.
24. Rxa5 — dxe4, 25. dxe4 —
e5, 26. Re2!
Spasskíj teflir skákina mjög
vel. Þrátt fyrir að hvítu riddaran-
ir virðast standa fremur illa á e2
og a5 er ekki allt sem sýnist.
Hvítur er peði yfir og nú væri 26.
— Rc5 einfaldlega svarað með 27.
De3.
26. — exf4, 27. Rxf4 — Re5,
28. Rd3 - Hb5?, 29. Rxe5 -
Dxe5, 30. Rc4
Skyndilega eru hótanir svarts
óveijandi. Svártur setur á svörtu
drottninguna og hótar einnig að
leika riddaranum til d6 eða b6
eftir atvikum. 30. — De6 væri
einfaldlega svarað með 31. Rd6 —
Hd8, 32. Hxa8! og hvítur vinnur
mann. 31. — Bc3 væri engu
skárra eftir 32. Df4. Svartur verð-
ur því að gefa skiptamun án nokk-
urra mótfæra.
30. - Dxg5 31. Be3
31. Dxg5 - Hxg5, 32. Rb6
vinnur einnig eftir t.d. 32. —
Hxg2, 33. Rxc8 — Bxe4, 34.
Rxe7+ - Kf8, 35. Hf4.
31. - Dh4, 32. Rd6! - Bc3,
33. Df2 - Dxf2, 34. Hxf2 -
Hbb8, 35. Rxc8 - Hxc8, 36. Ha7
- Kf8, 37. Bh6+ - Ke8, 38.
Bg5 - f6, 39. Bxf6 - Hxf6, 40.
Hxf6 - Bc6, 41. Kgl - Bd7,
42. Hd6 - Bc6 43. Bfl
og Fischer gafst upp.
Frábær frammistaða
Margeirs í Tilburg
Margeir Pétursson gerði jafn-
tefli við enska stórmeistarann
Nigel Short í sextán leikjum í síð-
ari einvígisskák þeirra á skákmót-
inu í Tilburg í gær. Þeir þurfa því
að mætast í tveimur skákum með
styttri umhugsunartíma í dag til
þess að útskurða um hvor þeirra
kemst í 16 manna úrslit í mótinu.
Á mótinu er teflt eftir útsláttar-
fyrirkomulagi og þar hófu keppni
allir sterkustu skákmeistarar
heimsins að undanskildum heims-
meisturunum. Níu keppendur
hafa þegar tryggt sér sætj í 16
manna úrslitum. Þeir eru: ívant-
sjúk, Júsupov, Gelfand, Kortsnoj,
Vyzmanavin, Nikolic, Sveshnikov,
Adams og Kovalev, en um hin sjö
sætin verður teflt í dag.
Deildakeppni Skáksambands
íslands, Sparisj'óðskeppnin
Um helgina hefst deildarkeppni
Skáksambands Islands, sem heitir
nú Sparisjóðskeppnin. Alls eru
skráðar til keppni þijátíu og sex
skáksveitir í fyrstu, annarri og
þriðju deild, og hafa aldrei verið
fleiri sveitir skráðar til leiks. Rúm-
lega tvö hundruð og þijátíu skák-
menn munu því sitja að tafli í
hverri umferð. Fyrsta umferð
verður tefld í salarkynnum Taflfé-
lags Reykjavíkur í Faxafeni 12
kl. 20 í kvöld, önnur umferð hefst
kl. 10 á laugadaginn, þriðja um-
ferð kl. 17 og fjórða umferð hefst
kl. 10 á sunnudagsmorguninn.
Stefnt er að því að síðari hluti
deildakeppninnar verði tefld helg-
ina 27.-29. mars nk.
Þorsteinn þjálfar í Grindavík
Grindavík.