Morgunblaðið - 16.10.1992, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 1992
21
Atvinnuleysi í júlf til september 1992
Hluttall atvlnnulausra af heildarvinnuatll.
Á höfuðborgarsvæðinu standa
1.867 atvinnulausir á bak við
töluna 2,4% í september og
fjölgaði um 70 fra því i ágúst.
Alls voru 3,634 atvinnu
lausir á landinu öllu í
septembert og hefur
fjölgað um 215
frá því i ágúst
IANDSBYGGÐIN
3,114
2,854 2,7 r~
6Í%
5,0%
4.9
J Á s
Atvinnuleysi vex í öllum landshlutum nema á Vesturlandi
ATVINNULEYSI í september óx í öllu landshlutum frá ágústmánuði nema á Vesturlandi þar sem það
minnkaði verulega frá fyrri mánuði. Hins vegar var atvinnuleysi í júlí víða meira en það var í september.
Farmanna- og fiskimannasambandið
Niðurskurði á fjárveitingum
til Landhelgisgæslu mótmælt
Sambandsstjórn Farmanna- og fiskimannasambandsins hefur mót-
mælt niðurskurði á fjárveitingum til Landhelgisgæslunnar sem fyrir-
hugaður er samkvæmt fjárlagafrumvarpinu og tillögum um að leggja
varðskipinu Óðni. Stjórnin skorar á dómsmálaráðherra og ríkisstjórn-
ina að beita sér fyrir því að Óðinn verði gerður út allt árið 1993
ásamt hinum tveimur varðskipunum, og á engan hátt verði dregið
úr starfsemi stofnunarinnar.
Á fundi sambandsstjómar FFSÍ
var samþykkt ályktun þessa efnis.
Þar kom einnig fram, að á síðustu
tveimur árum hafi fjárveitingar til
Landhelgisgæslunnar verið skomar
niður um 17% að raungildi.
„Það er fráleit hugmynd að
leggja einu af þremur varðskipum
Landhelgisgæslunnar og skera
skipastól hennar niður um 'Aen þar
með hefur Landhelgisgæslan misst
tvö af fjórum skipum sínum á um-
liðnum 10 árum. Á sama tíma hef-
ur þjónusta stofnunarinnar við
100 ára afmælishátíð
Innri-Hóhnskirkju
FYRR á þessu ári varð Innra-
Hólmskirkja 100 ára og verður
afmælisins minnst með kirkjuhá-
tíð næstkomandi sunnudag.
Kirkjan var vígð 27. mars 1892
af séra Guðmundi Helgasyni,
prófasti í Reykholti, sem var afa-
bróðir núverandi biskups ís-
lands. Kirlgusmiður var Jón Mýr-
dal rithöfundur.
í samtímaheimildum er sagt, að
kirkjan sé traust og vandað hús að
stærð 14x10 álnir. Kirkjan er úr
timbi, en á árunum 1950—1953 var
steypt utan um hana og forkirkja
byggð. Að innan er kirkjan að
mestu óbreytt frá upprunalegri
gerð. Milligerð af tré með þremur
bogum er milli kórs og framkirkju.
Kirkjan er fagurt Guðs hús. Skreyt-
ingar á kórgafli og hvelfingu eru
eftir Gretu og Jón Björnsson. Alt-
aristafla kirkjunnar er eftir Jóhann-
es Kjarval.
Á þessu ári og í fyrra hafa farið
fram miklar endurbætur á kirkjunni
að utan og er hún öll nýmáluð.
Fyrir tveimur árum var tekið í notk-
un lítið þjónustuhús á lóð kirkjunn-
ar.
Hátíðarmessa verður í kirkjunni
á sunnudaginn kl. 14. Biskup Is-
lands, herra Ólafur Skúlason, préd-
ikar. Sóknarpresturinn, séra Jón
Einarsson, prófastur í Saurbæ, og
séra Bjöm Jónsson á Akranesi,
þjóna fýrir altari. Kirkjukór Innra-
Hólmskirkju syngur. Einsöngvari
er Laufey Helga Geirsdóttir. Organ-
isti kirkjunnar er Kristjana Hös-
kuldsdóttir.
Að lokinni hátíðarguðsþjónustu í
kirkjunni býður sóknarnefndin til
kaffísamsætis í Félagsheimilinu
Miðgarði og verður þar fjölbreytt
dagskrá.
Sóknarnefnd Innra-Hólmskirkju
skipa: Ragnheiður Guðmundsdóttir,
Ásfelli, formaður, Ingileif Daníels-
dóttir, Ytra-Hólmi, og Jón Stefáns-
son, Hnjúki. Safnaðarfulltrúi er
Sæmundur Helgason, Galtarlæk,
og verður við messuna frumfluttur
sálmur eftir hann.
(Fréttatilkynning)
fiskiskipaflotann stóraukist og
ásókn erlendra fiskiskipa til veiða
bæði innan og á mörkum fískveiði-
lögsögu okkar hefur aukist til
muna, en þar er um að ræða loðnu-
veiði Norðmanna samkvæmt milli-
ríkjasamningi og karfaveiðar fiski-
skipa frá ýmsum þjóðum rétt utan
lögsögunnar á Reykjaneshrygg,
suðvestur af landinu, rækjuveiðar
útlendinga á Dohmbankasvæðinu
og síldveiðar útlendinga norðaustur
af landinu," segir orðrétt í ályktun-
inni.
Einnig er bent á, að ráðgert sé
að veita fískiskipum Evrópubanda-
lagsins veiðiheimildir innan físk-
veiðilögsögu íslands, í tengslum við
aðild íslands að Evrópska efnahags-
svæðinu. Og á undanförnum ámm
hafí æ meiri sókn erlendra físki-
skipa verið allt í kring um auðlind
íslendinga. Það væri þyí full seint
í rassinn gripið og erfítt að byggja
upp Landhelgisgæsluna ef á þyrfti
að halda, ef nú sem fyrr yrði höggv-
ið stórt skarð í starfsemi hennar.
CARDIA
UVJNAMn
NÁTTÚRUAFURÐ
SEM ENGINN MÁ LÁTA FRAMHJÁ SÉR FARA
Gott á brauðið, í baksturinn, í sósuna,
í súpuna, í teið eða í flóuðu mjólkina.
CARDIA-hunang stendur alltaf fyrir sínu.
A/ÁTTÚRtí^
♦ ♦ ♦
Bandamanna-
saga í Nor-
ræna húsinu
SÍÐASTA sýning verður laugar-
daginn 17. október kl. 14 á
Bandamannasögu í Norræna
húsinu. Nokkrar sýningar hafa
verið á sjónleiknum nú í vikunni
fyrir almenning og skólafólk en
nú er síðasta tækifærið að sjá
þennan gamanleik.
Leikhópurinn Bandamenn em á
förum til Vaasa í Finnlandi þar sem
sýnt verður í Borgarleikhúsinu.
Bandamannasaga var fmmsýnd á
Listahátíð í júní. Sveinn Einarsson
samdi verkið sem er byggt á sam-
nefndri fornsögu sem talin er rituð
á 13. öld.
I leikhópnum eru 6 leikarar:
Borgar Garðarsson, Jakob Þór Ein-
arsson, Stefán Sturla Sigurjónsson,
Felix Bergsson, Ragnheiður E. Arn-
ardóttir og Guðni Franzson, sem
sér um tónlistina í verkinu og leikur
með í hópnum. Leikstjóri er Sveinn
Einarsson og meðleikstjóri og sýn-
ingarstjóri er Þómnn Magnea
Magnúsdóttir. Aðgöngumiðar era
seldir við innganginn.
Tegund Stærð Verð áður Afsláttur Verð nú
Veggflísar 15x20 1.775,- 20% 1.420,-
Veggflísar 20x25 2.490,- 25% 1.837,-
Gólfflísar 20x20 1.970,- 20% 1.576,-
Gólfflísar 25x25 1.970,- 20% 1.576,-
Gólfflísar 30x30 2.150,- 25% 1.612,-
AFGANGAR MEÐ 40% AFSLÆTTI
Opið laugardag kl. 10-13.
LITAVER
Raðgreiðslur til 18 mánaða GrensáSVegÍ 18, SÍIHÍ 81S444
M8210