Morgunblaðið - 16.10.1992, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 1992
23
.
í skóla í Hamborg hefur verið brugðið á það ráða að innrétta útrásarherbergi fyrir krakkana til
þess að árásargirnin fari í skaðlausan farveg.
Upplausnarástand í þýskum barnaskólum
Hömlulaus valdbeiting
rakin til sjónvarpsgláps
og brenglaðs gildismats
OFBELDI hefur færst mjög í vöxt í þýskum skólum. Þeir voru
áður ímynd aga og vinnusemi en nú ríkir þar upplausn, ef
marka má umfjöllun í þýska vikuritinu Der Spiegel. Sérfræðing-
ar segja að börnin venjist við ofbeldi í sjónvarpinu og oft skorti
þau alia réttlætiskennd. Einnig sé komin fram ný kynslóð for-
eldra sem láti undir höfuð leggjast að kenna börnum sínum að
þekkja sönn siðferðileg og andleg verðmæti.
Auðvitað eru ryskingar á
skólalóðinni ekkert nýmæli. En
miskunnarleysið er meira en áð-
ur. „Barsmíðarnar eru öðruvísi
en áður,“ segir Willi Pietsch, lög-
reglumaður í Stuttgart, sem
vinnur að rannsókn ofbeldis-
glæpa unglinga. Fyrir tíu árum
hefðu unglingar hætt að berja á
fórnarlambi þegar byrjaði að
blæða úr nefi þess, segir hann,
en núna er það bara byijunin,
áður en „gengið er frá“ viðkom-
andi.
Ofbeldisbylgjan hefur legið í
þagnargildi til skamms tíma.
Kennarar virðast feimnir við að
viðurkenna hve ráðþrota og úr-
ræðalausir þeir eru í raun. En
tölurnar tala sínu máli. I einum
skóla í Frankfurt sögðust 38%
nemendanna bera vopn. Fræðslu-
skrifstofa Frankfurt-borgar bað
nýlega um upplýsingar frá 158
skólum borgarinnar um ofbeldis-
tilfelli. Frá kennurum komu til-
kynningar um 130 tilfelli þar sem
valdbeitingin var meiri en gat
talist eðlilegt í leik bama. Það
var ógnvekjandi hve hömlulaus
bömin voru og afleiðingarnar
voru jafnvel alvarleg líkamleg
meiðsl eða geðrænt tjón, eins og
segir í skýrslu fræðsluskrifstof-
unnar.
Börnin einfaldlega rasa út
Starfsfólk skólanna hefur hvað
mestar áhyggjur af því hve
skeytingarlaus börnin eru. Það
gerðist t.d. í barnaskóla í Frank-
furt að sjö ára gömul telpa lamdi
höfði jafnöldru sinnar svo oft við
vegg að sú síðarnefnda hneig
meðvitundarlaus til jarðar.
Margir halda því fram að ræt-
ur ofbeldisins liggi djúpt. Aðrir
segjast ekki sjá neinar orsakir,
ofbeldið sé tilefnislaust. Börnin
einfaldlega rasa út, segir Steph-
an Steier, kristinfræðikennari í
Frankfurt. Kennarar benda á að
það sé afar erfitt og jafnvel
ómögulegt núorðið að leiða börn-
unum fyrir sjónir ranglætið í of-
beldisverkunum. Mörg börn eigi
mjög erfitt með að setja sig í
spor annarra. Þau séu afar sjálf-
hverf og ekki unnt að ná til þeirra
með samræðum.
Gemot Jochheim uppeldis-
fræðingur bendir á að fyrir
marga sé neikvæð reynsla betri
en engin. Monika Högner, kenn-
ari í bamaskóla í Kiel, telur að
tilfinningalíf margra barna sé í
slíkri rúst að þau vilji fá það stað-
fest með framferði sínu að þau
geti ennþá upplifað einhveijar
tilfinningar.
Sérlega hvekkt á
mánudögum
Margir skólamenn vilja kenna
foreldrunum um andlegt ástand
barnanna. Atvinnuleysið, efn-
hagsástandið og fortíðin almennt
! í austurhluta Þýskalands hefur
haft sín áhrif á fjölskyldur þar.
En í vestri sjá menn líka merki
um að foreldrar bregðist bömum
sínum. „Það kemur fyrir að börn-
in em send veik í skólann bara
til þess að um þau sé séð...Börn-
in eru miklu meiri einstæðingar
en áður,“ segir Wolfgang Reich-
herzer, skólastjóri í Stuttgart.
Aðrir benda á að útbreiðsla skiln-
aða hafi sín áhrif. Börnin flytji
ofbeldið sem þau upplifi í tengsl-
um við slíka atburði með sér í
skólann. Margir nemendur séu
sériega hvekktir á mánudögum.
Þá hafi þeir reynt eymd fjöl-
skyldulífsins í samþjöppuðu formi
yfir helgina.
Sjónvarpið elur upp
Eins og gefur að skilja bera
börnin þess merki ef faðir eða
stjúpfaðir beitir móðurina of-
beldi. En jafnvel börn venjulegra
friðsamlegra foreldra hafa bren-
glað tilfinningalíf og gildismat.
Oft þekkja þau ekki sönn gildi
því þau hafa ekkert lært í þá
veru heima fyrir. Þeim er séð
fyrir efnislegum gæðum en ekki
andlegum eða siðferðilegum.
Foreldrarnir kunna ekki að gera
greinarmun á hörkulausu uppeldi
og uppeldisleysi. Kristinfræði-
kennarinn Steier telur að sjón-
varpið hafi tekið við því hlutverki
foreldranna að miðla gildum til
barnanna. Þar birtist þeim sýnd-
arheimur þar sem meginboðskap-
urinn er: Sá, sem ekkert á, er
ekki neitt.
Sjónvarpið býður líka upp á
allt að 70 morð á dag en fyrir
fimmtán árum þurfti að horfa í
viku til að sjá 80 morð. Fjölmiðla-
fræðingar eru sammála um að
ofbeldið sem börnin sjá á skján-
um hafi áhrif á þau. Sumir ganga
svo langt að segja að skynjun
barnanna breytist. Það sem al-
mennt hafi vakið viðbjóð manna
hingað til sé að verða jákvætt í
augum barnanna.
Atvmnuleysi 10% í Bretlandi
Rúmlega 32.000
misstu atvinnu
sína í september
jAindúnum. Reuter.
TIUNDI hver vinnufær maður í Bretlandi er án atvinnu og atvinnu-
leysi hefur vaxið með mánuði hverjum þar í landi í tæplega tvö og
hálft ár. Þetta kemur fram í skýrslu sem gerð var opinber í Lundúnum
í gær. I septembermánuði misstu 32.200 manns vinnu sína og er nú
svo komið að tvær milljónir átta hundruð og fjörutíu þúsund Bretar
eru án atvinnu.
Hagfræðingar í Lundúnum sögðu
í gær að engin teikn væru á lofti
um að draga myndi úr atvinnuieysi
í Bretlandi. Þvert á móti virtist sýnt
að það myndi enn fara vaxandi. Sér-
fræðingamir rökstuddu þetta álit
með því að vísa til efnahagskrepp-
unnar sem ríkt hefur í Bretlandi
undanfarin tvö ár og þeirrar ákvörð-
unar stjómvalda að loka 31 kola-
námu á næstu sex mánuðum.
Mest varð atvinnuleysið í júlímán-
uði 1986 er þrjár milljónir og eitt
hundrað þúsund manns voru án at-
vinnu, samkvæmt opinberum skýrsl-
um. Hagfræðingur einn sagði í sam-
tali við -Reuters-fréttastofuna að
ástandið væri að sönnu skuggalegt.
Tölurnar segðu sína sögu, 1.000
manns væri að jafnaði sagt upp á
degi hveijum, innan árs yrði atvinnu-
leysið orðið meira en í júlí 1986 og
héldi þessi þróun áfram yrðu 3,5
milljónir manna án atvinnu i Bret-
landi árið 1994.
Lokun námanna mun kosta um
30.000 manns vinnuna en talið er
að sú tala verði á endanum mun
hærri þar sem þjónustufyrirtæki áf
ýmsum toga í kolaiðnaði muni aug-
Ijóslega lenda í erfiðleikum. Ákvörð-
un breska ríkiskoiafélagsins að loka
31 námu af 50 hefur verið harðlega
gagnrýnd. Hafa stuðningsmenn jafnt
sem andstæðingar ríkisstjórnar
Johns Majors forsætisráðherra lýst
yfír furðu sinni að gripið sé til þess
háttar ráðstafana á slíkum erfið-
leikatímum. Hafa þær raddir heyrst
að sú áhersla sem stjórnvöld leggi á
að halda verðbólgu niðri sé röng.
Ríkisstjórninni beri þvert á móti að
leita leiða til að hleypa nýju lífi í
efnahagslífið á krepputímum sem
þessum. Hafa talsmenn atvinnurek-
enda hvatt til vaxtalækkunar í þessu
skyni en hagfræðingar sem Reuters-
fréttastofan ræddi við kváðust ekki
fá séð að vextir yrðu lækkaðir í þess-
um mánuði.
------♦ ♦ ♦-----
Litháen
Leki í kjarn-
orkuveri
Stokkhólmi. Reuter.
GEISLAVIRKUR leki hefur orðið
í kjarnakljúfi í Litháen og verið
er að loka honum, að því er
sænska kjarnorkueftirlitsstofnun-
in SKI skýrði frá í gær. Útvarpið
i Litháen sagði að íbúum í grennd-
inni stafaði engin hætta af lekan-
um.
Talsmaður stofnunarinnar, Gun-
illa Wunsche, sagði að lekinn hefði
orðið í Ignalina-kjamorkuverinu í
Litháen en ekki væri vitað hversu
alvarlegur hann væri. „Þetta er gufu-
leki og hann virðist einskorðast við
orkuverið sem stendur," sagði hún.
„Það er of snemrnt að meta hvort
hætta hafí skapast utan orkuversins
og í nágrannaríkjunum."
Glæsilegt úrval af
höfuðfatnaðl á dömur og herra
SK 5- ■r A
jr . . æt
GLÆSIBÆ • SÍMI812922
hagstœð kjör, langur lánstími, sveigjanlegt lánshlutfall, margir gjaldmiðlar
IÐNÞROUNARSJOÐUR
Kalkofnsvegi 1 150 Reykjavík sími: (91) 69 99 90 fax: 62 99 92