Morgunblaðið - 16.10.1992, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 1992
37
fclk í
fréttum
LÆRDÓMUR
Fræðst
um Njálu
Eldri borgarar fjölmenntu á fyrirlest-
ur um Njálssögu í Risinu s.l. þriðju-
dag. A annað hundrað manns mættu
á fyrirlestur Jón Böðvarssonar.
Morgunblaðið/Sverrir
VEITINGAHÚS
Gestakokkur
••
á Ommu Lú
Tómas Tómasson veitingamaður á
Ömmu Lú og David Burke, yfirmat-
reiðslumeistari á „Le Pont de la To-
ur“, en hann verður gestakokkur í
eldhúsi Hauks Víðissonar á Ömmu Lú
nú um helgina.
Veitingahúsið „Le Pont
de la Tour“ er af
mörgum sælkerum talið í
hópi bestu veitingahúsa
Englands, en það er stað-
sett við Tower brúna í
Lundúnum. Einn af eig-
endum þess er Sir Terence
Conran, eigandi Habitat
verslananna, sem dreifðar
eru víða um heim. „Le
Pont de la Tour“ er veit-
ingastaður með frönsku
yfirbragði, svo sem nafnið
bendir til, og er einkum
þekkt fyrir fjölbreyttan og
síbreytilegan matseðil,
sem yfirmatreiðslumeist-
arinn, David Burke, sem
reyndar er einnig meðeig-
andi, hefur haft veg og
vanda af.
Svo skemmtilega vill til að sá
hinn sami David Burke er nú
staddur hér á landi og verður
hann gestur í eldhúsi Hauks
yíðissonar í veitingahúsinu
Ömmu Lú nú um helgina. Er hér
um að ræða eins konar forskot á
„breska daga“, sem byrja í Borg-
arkringlunni næstkomandi
fimmtudag. í tenglsum við þessa
bresku daga verður ýmislegt um
að vera á Ommu Lú og á fimmtu-
daginn verður meðal annars efnt
til leiksýningar Margrétar Helgu
á „Sigrúnu Ástrósu" eftir Willy
Russell og boðið upp á mat í
anda „Le Pont de la Tour“ fyrir
sýningu.
Morgunblaðið/Alfons
ÓLAFSVÍK
Fimm ættliðir
Aþessari mynd eru samankomnir
fimm ættliðir í karllegg. Var
myndin tekin á Hrafnistu í Hafnar-
firði við það tækifæri, þar sem elsti
fjölskyldumeðlimurinn dvelur nú.
í efri röð eru þeir feðgar Guð-
mundur Ólafsson, 71 árs, búsettur
í Ólafsvik og Ólafur Barði Guð-
mundsson, 44 ára, búsettur í Hafn-
arfirði. í neðri röð heldur Guðmund-
ur J. Ólafsson, 25 ára, á syni sín-
um, Ólafi Barða Guðmundssyni,
sem aðeins er þriggja mánaða gam-
all og eru þeir feðgar búsettir í
Ólafsvík. Við hlið þeirra Ólafur Jo-
hsua Guðmundsson sem er 92 ára.
- Alfons
FJÖLSKYLDUBÖND
Týndi bróðirinn Taggart
Hijúfur framburður og hæfilega
tyrfin framkoma einkenna
skoska réttlætisvöndinn Taggart
lögregluforingja. Leikarinn Mark
McManus fer með hlutverk Tagg-
arts og er íslenskum sjónvarpsá-
horfendum að góðu kunnur. I byij-
un 8. áratugarins var Mark McMan-
us við upptökur hjá breskri sjón-
varpsstöð. Dag • einn vatt sér að
honum ungur loðinhærður poppari
og spurði hvort hér færi maður af
McManus ættinni. Þótti popparan-
um svipur og háttalag leikarans
kunnuglegt og vildi hann vita vissu
sina. Mark McManus gat trauðla
neitað ætterninu og kvað já við. „Ég
varð orðlaus af undrun,“ segir popp-
arinn og söngvari hljómsveitarinnar
Sweet, Brian Connolly. Það var
ekki að furða því hér var hann
búinn að finna eldri bróður sinn.
Þeir bræður eru samfeðra en
vissu ekki hvor af öðrum fyrr en
þeir voru komnir á fullorðinsár.
„Það fór vel á með okkur og við
ákváðum að halda sambandi okkar
í milli. Því miður höfum við haft
lítinn tíma til að styrkja fjölskyldu-
Mark McManus,
sem leikur sjón-
varpslögguna
Taggart er 58 ára
gamall. Hann á 14
árum yngri bróð-
ur sem er frægur
poppari. Sá heitir
Brian Connolly og
syngur með hýórn-
sveitinni Sweet.
böndin vegna anna við leik og söng.
Nú stendur til að bæta úr því,“
segir Brian Connolly. Mark McMan-
us kann ábyggilega vel að meta
allan bróðurlegan stuðning og hlý-
hug sem honum er sýndur. Frá því
í fyrra hefur hann misst móður sína
og tvær systur. Þá hefur Marion,
eiginkona hans, átt í stríði við
krabbamein.
KVIKMYNDIR
COSPER
Goldie leikstýrír næstu mynd sinni
Leikkonan Goldie Hawn var eitt
sinn álitin með heimskari ljósk-
um kvikmyndabransans. Það var
ímynd sem hún skapaði sér sjálf í
samvinnu við handritshöfunda
bandarísks gamanþáttar seint á sjö-
unda áratugnum og snemma á þeim
áttunda. Hét fyrirbærið „Rowan and
Martins Laught-in“ og persóna
Goldie var heilalaus með öllu. En
síðan hefur hún bætt ímyndina hröð-
um skrefum og er nú með virtari
leikkonum Hollywood. Nú hefur hún
látið þau boð út ganga að hún vilji
feta í fótspor margra kollega sinna
og taka sæti fyrir aftan myndavél-
arnar. Sum sé leikstýra sinni fyrstu
kvikmynd.
Goldie framleiðir kvikmyndir
í samvinnu við vinkonu sínu
Antheu Silbert og hefur gert
svo í tíu ár. Sjálf hefur hún
framleitt sumar af þeim kvik-
myndum sem hún hefur leikið
í, ekki allar þó. Silbert segir að
Goldie sé harðákveðin í að leik-
stýra og það ekki innan langs
tíma.„Sem stendur er þó fjöl-
skyldan ofar öllu hjá henni.
Henni þykir hún hafa orðið út-
undan síðustu árin og vill nú
helga sig sambýlismanninum
Kurt Russel og börnum sínum
þremur frá fyrra hjónabandi, uoiclie sternir a leiKstjorastðlinn...
þeim Wyatt, Kate og Oliver sem
eru 5, 13 og 15 ára,“ segir Silbert.
-Hvað ætlarðu að ganga lengi með þennan borða?