Morgunblaðið - 16.10.1992, Síða 47
HANDKNATTLEIKUR
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 1992
47
Ungir leik-
menngegn
Egyptum
ÞORBERGUR Aðalsteinsson,
landsliðsþjálfari, hefur valið 24
manna landsliðshóp tii að leika
þrjá landsleiki gegn Egyptum.
Landsliðshópurinn er að mestu
byggður upp á ungum leik-
mönnum, sem hafa ekki leikið
með landsliðinu áður.
Konráð Olavson er eini „útlend-
ingurinn" sem kemur til að
leika. Miklar breytingar verða gerð-
ar á landsliðinu á milli leikja og
mun Ólympíuliðið frá Barcelona
leika gegn Egyptum á laugardaginn
í Laugardalshöllinni, en á sunnu-
daginn leika leikmenn sem koma
sterklega til greina að leika í HM
1995 á Islandi og á mánudaginn
leika þeir leikmenn sem koma til
greina að leika í HM í Svíþjóð í
mars á næsta ári.
21 árs landsliðið leikur síðan tvo
leiki gegn Egyptum á miðvikudag
og fímmtudag - væntanlega í Þor-
lákshöfn og Vestmannaeyjum.
Landsliðshópur Þorbergs Aðal-
steinssonar er skipaður þessum
leikmönnum:
Markverðir: Guðmundur Hrafn-
kelsson, Val, Bergsveinn Berg-
sveinsson, FH, Ingvar Ragnarsson,
Stjömunni og Reynir Þ. Reynisson,
Víkingi.
Aðrir leikmenn: Konráð Olav-
son, Dortmund, Birgir Sigurðsson,
Víkingi, Valdimar Grímsson, Val,
Einar G. Sigurðsson, Selfossi,
Gunnar Gunnarsson, Víkingi, Sig-
uijón Bjamason, Selfossi, Patrekur
Jóhannesson, Stjömunni, en þessir
leikmenn léku í Barcelona ásamt
markvörðunum Guðmundi og Berg-
sveini.
Páll Þórólfsson, Fram, Björgvin
Björgvinsson, Breiðablik, Kristján
Ágústsson, Víkingi, Róbert Sig-
hvatsson, UMFA, Olafur Stefáns-
son, Val, Valgarð Thorodsen, Val,
Jason Ólafsson, Fram, Rúnar Sig-
tryggsson, Þór, Guðjón Árnason,
FH, Dagur Sigurðsson, Val, Magn-
ús Sigurðsson, Stjömunni, Karl
Karlsson, Fram og Erlingur Ric-
hardsson, ÍBV.
Svíar hefja lokaundir-
búninginn fyrir HM
Guðjón Árnason er kominn á ný í
landsliðshópinn.
|Jengt Johansson, landsliða-
þjálfari Svía, er nú að byija
lokaundirbúning sænska lands-
liðsins fyrir heims-
meistarakeppnina
í handknattleik,
sem verður í Sví-
þjóð í mars. Bengt
hefur valið leikmenn til æfínga
Sveinn
Agnarsson
skrifar
frá Sviþjóð
fyrir tvo landsleiki gegn Frökkum
síðar í þessum mánuði.
Hann valdi alla þá leikmenn
sem léku með sænska landsliðinu
á Ólympíuleikunum í Barcelona,
þar sem heimsmeistarar Svía
fengu silfurverðlaun. Tveir leik-
menn eiga við meiðsli að stríða
og geta ekki leikið með gegn
Frökkum. Það er markvörðurinn
Mats Olsson og leikstjómandinn
Magnus Wislander.
Svíar, sem leika í riðli með Is-
lendingum, Ungveijum og Banda-
ríkjamönnum í HM, em ákveðnir
að veija heimsmeistaratitilinn
sem þeir tryggðu sér í Tékkóslóv-
akíu 1990.
KNATTSPYRIMA / SPANN
Diego Maradona fagnar sigri með Sevilla.
KEILA
Metámel ofan
Djörgvin Sigurðsson setti nýtt íslandsmet í keilu-seríu, það er þrem-
ur leikjum, hlaut samtals 715 stig á móti í Öskjuhlíð á mánudag-
inn. Hann setti einnig nýtt með í 6 leikjum er hann hlaut 1307 stig.
Klukkutíma síðar bæti Valgeir Guðbjartsson metið í séríu er hann
fékk 720 stig. Hann setti einnig nýtt íslandsmet einstaklings - 289
stig, það era ellefu fellur í röð.
Napólí vill
stöðva Diego
Maradona
Sevilla hefur ekki greitt Napolí þrátt fyrir loforð
ÍTALSKA liðið Napólí hefur far-
iö fram á það við Alþjóða knatt-
spyrnusambandið, FIFA, að
samningi Maradona við Sevilla
verði rift. Napólí seldi Mara-
dona til Sevilla fyrir milligöngu
FIFA á 7,5 milljónir dollara, en
ítalska liðið hefur enn ekki
fengið neitt greitt þrátt fyrir
loforð þar um.
Napolí átti að fá 3 milljónir doll-
ara, eða 165 milljónir ÍSK,
2. október sl. og síðan átti Sevilla
að greiða restina með jöfnum af-
borgunum á næstu tveimur áram.
Talsmaður Napólí, Ligi Amati,
sagði að enn hafí Napólí ekki séð
neina peninga frá Sevilla. Samning-
ur var undirritaður 22. september
og Napólímenn vilja að við hann
sé staðið.
Andreas Herren, talsmaður
FIFÁ, sagði í gær að FIFA hefði
farið fram á það við spænska knatt-
spyrnusambandið að það kanni
þessi mál og komist að því hver
ástæðan er fyrir því að Sevilla
standi ekki við gerða samninga.
íkvöld
Körfuknattleikur
1. deild karla:
Akranes: ÍA-ÍS.........kl. 20.30
Akureyri: Þór - Höttur.kl. 20.30
Handknattleikur
2. deild karla:
Keflavík: HKN - Ármann ....kl. 20.00
Pálmi
íhugar
framboð
- til varaforseta ÍSÍ
SÉRA Pálml Matthíasson,
sóknarprestur í Bústaða-
prestakalli, (hugar að gefa
kost á sér til framboðs vara-
forseta ÍSf 6 ársþingi ÍSÍ sem
fram fer um aðra helgi. „Ég
mun ákveða mig um helgina
hvort af framboði verður eða
ekki. Ég er að hugsa málið,“
sagði Pálmi f samtalið við
Morgunblaðið í gær. Nú þeg-
ar hafa þrfr aðilar ákveðið
að gefa kost á sér í sama
embætti, Katrfn Gunnars-
dóttir, Lovfsa Efnarsdóttir og
Guðmundur Kr. Jónsson.
Pálmi sagði að margir víða um
land hefðu haft samband
við sig og spurt hvort hann væri
tilbúinn að fara i framboð. „Það
er verið að ýta á mig þessa dag-
ana en ég hef enn ekki tekið af-
stöðu af eða á. Það styttist óðum
í ársþingið og því er nauðsynlegt
að taka ákvörðun áður en þing-
fulltrúar koma til þings,“ sagði
Páimi.
- Samræmist það preststörfum
að vera ennig varaforseti ÍSÍ?
„Ef ég færi f þetta á annað
borð sé ég fyrir mér góðan flöt
á samskiptum íþrótta og kirkju
sem þarf að vera traustur og
öruggur. Stærsta æskulýðsstarf-
ið í landinu fer fram innan kirkju
og íþrótta. Það þurfa að vera
meiri tengsl þama á milli en hafa
verið hingað tii. Þarna er mikíiSO
verk að vinna sem maður vildi
gjaman leggja lið. Þetta gæti
farið vel saman með preststarfínu
því prestar era umfram allt menn
eins og ég og þú,“ sagði Pálmi.
„Ef einhver telur að ég geti
unnið íþróttunum gott verk með
því að vera þama þá get ég ekki
neitað að verða við þeirri bón
þegar hún berst. Ég er fæddur
með þeim ósköpum að þurfa að
lifa og hrærast í kringum þetta.
Ég fékk að njóta svo margs á
sínum tíma frá íþróttunum að
mér fínnst ég eiga þeim skuid
að gjalda," sagði Pálmi.
Séra Pólml Matthíasson. .
FRÆÐSLA
Þjálfaraferð
til Hollands
Fræðslunefnd KSÍ gengst fyrir
kynnisferð fyrir þjálfara til Hollands
5. til 9. nóvember nk. Tvö hollensk
úrvalsdeildarlið verða heimsótt, fram-
kvæmdastjórar þeirra og þjálfai^r'
flytja fyrirlestra og farið verður á tvo
leiki: PSV Eindhoven - Fortuna Sitt-
ard og Ajax - MW Maastricht og
boðið upp á fyrirlestra um ýmsa
þætti knattspyrnuþjálfunar. Þá verð-
ur kynning á Knattspymuskóla Wiel
Coerver. Umsjón með ferðinni hefur
Janus Guðlaugsson en skráning og
nánari upplýsingar eru hjá Úrvali-
Útsýn (Hörður eða Þórir) í síma
699300.