Morgunblaðið - 16.10.1992, Síða 48
J
FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 1992
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Skoðanaköimun á Landspítalanum
80% hjúkrunarfræð-
inga eru tilbúin til að
segja upp starfi sínu
Veizla hjá skógarþröstum
Morgunblaðið/Rúnar Þ6r
Það hefur verið veizla hjá skógarþröstum að
undanfömu því mikið hefur verið um reyni-
ber. Þessi skógarþröstur sat í makindum á
tré í Lystigarðinum á Akureyri. Þar er óvenju
mikið af beijum núna og þjóðtrúin segir það
vita á harðan vetur.
um. Auður Guðjónsdóttir, aðal-
trúnaðarmaður á spítalanum,
segir að það þýði þó ekki að
hjúkrunarfræðingar ætli að
rjúka í uppsagnir.
Auður sagði að könnunin hefði
verið kynnt á fundi hjá Hjúkrunar-
félagi Islands á miðvikudagskvöld.
Niðurstöðumar hefðu vakið mikla
athygli hjúkrunarfræðinga á öðr-
um spítölum og ljóst væri að hjúkr-
unarfræðingar væru almennt
óánægðir með launakjör sín.
í þessu sambandi benti Auður á
að byrjunarlaun hjúkrunarfræð-
ings eftir fjögurra ára háskólanám
væru innan við 70 þúsund krónur
og væru sambærilegar stéttir, s.s.
matvælafræðingar og sjúkraþjálf-
arar, með 27 þúsund króna hærri
grunnlaun. Hún sagði að líftekjur
hjúkrunarfræðinga hefðu verið
reiknaðar 48 milljónir en verkfræð-
inga og viðskiptafræðinga 100
milljónir og hefðu síðamefndu
stéttimar sambærilega menntun
og hjúkrunarfræðingar.
Þrátt fyrir niðurstöður könnun-
arinnar sagði Auður að hjúkmnar-
fræðingar ætluðu ekki að rjúka í
uppsagnir heldur hugsa málið. Þá
sagði Auður að hjúkrunarfræðing-
ar á Landspítalanum ætluðu að
heyra í hjúkrunarfræðingum á hin-
um spítölunum. Hún sagði að
hjúkrunarfræðingar á Landspítal-
anum hefðu lægstu laun hjúkrun-
arfræðinga á landinu. Samningar
hjúkrunarfræðinga hafa verið
lausir í ár.
80% hjúkrunarfræðinga á
Landspítalanum eru tilbúin að
segja upp störfum til þess að
knýja á um bætt launakjör, sam-
kvæmt niðurstöðum könnunar
hjúkrunarfræðinga á spítalan-
3% af 13 ára nem-
um hafa reykt hass
oftar en 10 sinnum
3% nemenda í 8. bekk grunn-
skólans, þ.e. 13 ára börn, hafa
prófað hass oftar en tíu sinnum.
Þá neyta nær 12% unglinga á
aldrinum 18-20 ára áfengis oftar
en þrisvar í mánuði.
Þessar eru m.a., samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins, niður-
stöður umfangsmikillar könnunar,
sem Rannsóknarstofnun í uppeld-
is- og menntamálum er að vinna
úr. Könnunin náði til allra nem-
enda landsins á aldrinum 13-20
ára og voru alls 26 þúsund spum-
ingalistar sendir út.
Tæp 80% nemenda í 8. bekk
segjast aldrei hafa neytt áfengis,
en 42,1% nemenda í 9. og 10%bekk
höfðu sömu sögu að segja. í hópi
18-20 ára voru einungis 13% sem
aldrei höfðu bragðað áfengi.
Þegar könnuð var neysla ann-
arra vímuefna en áfengis kom í
ljós, að 95,5% nemenda í 8. bekk
höfðu aldrei reykt hass, 93% nem-
enda 9.-10. bekkjar ekki heldur,
en neyslan virðist algengari í fram-
haldsskólum. 16-18 ára höfðu
prófað hass í um 13% tilvika, en
á aldrinum 18-20 ára höfðu 18%
reykt hass. Mjög lágt hlutfall nem-
enda hafði hins vegar neytt örv-
andi vímuefna, eins og amfetam-
íns. Hæst var hlutfallið hjá 18-20
ára, en um 5% þeirra höfðu prófað
amfetamín.
Sjá nánar í frétt á miðopnu.
Kveikt í úti-
gangsmanni
TALIÐ er að kveikt hafi ver-
ið í útigangsmanni sem
fannst brunninn á baki og
með þriðja stigs brunasár á
mjöðm í Lækjargötu um kl.
13 í gærdag.
Lögreglunni barst tilkynning
um ölvaðan mann sem lá í skýli
SVR við Lækjargötu, og þegar
lögreglumenn komu á vettvang
kom í ljós að um var að ræða
einn af útigangsmönnum í
borginni. Maðurinn var fluttur
á slysadeild Borgarspítalans og
þaðan á bráðamóttöku. Rann-
sóknarlögregla ríkisins hefur
mál þetta nú til meðferðar.
Verðbréfaeign Seðlabanka tvöfaldaðíst í sumar og var um 4 milljarðar í ágúsflok
Verðbréf keypt til að koma
í veg- fyrir vaxtahækkun
BIRGÐIR Seðlabanka íslands af markaðsskráðum verðbréfum juk-
ust um rúman milljarð á tveimur mánuðum í sumar og hafa tæplega
tvöfaldast frá þvf í vor. í ágústlok átti Seðlabankinn 3.921 miljjón
króna í verðbréfum, aðallega í spariskírteinum ríkissjóðs, og sam-
kvæmt upplýsingum bankans breyttist staðan lítið í þeim efnum í
síðasta mánuði. I júnflok nam eign bankans i verðbréfum 2.756 millj-
ónum króna og i lok apríl í vor nam eign bankans 1.918 miljjónum
króna. Jóhannes Nordal seðlabankastjórí segir að eðlilegt hafi veríð
miðað við aðstæður að bankinn stuðlaði að þvi að vextir hækkuðu
ekki meira en þeir hefðu gert i sumar með kaupum á verðbréfum.
Þrátt fyrir kaup Seðlabankans
hefur raunávöxtun á eftirmarkaði
farið hækkandi í sumar eftir að
hafa farið lækkandi framan af ár-
inu. Hún var 8,13% á spariskírtein-
um að meðaltali í janúar og lækk-
aði í 6,93% að meðaltali í maí. Síð-
an hefur hún farið hækkandi og
var 7,10% í ágúst og hækkaði í
7,28% að meðaltali í september. Til
samanburðar var ávöxtunarkrafa á
húsbréfum á eftirmarkaðnum
7,15% í maí og hækkaði í 7,58%
að meðaltali í ágúst og 7,71% að
meðaltali í september.
Ef tekið er dæmi af spariskírtein-
um til fimm ára frá 1990 var ávöxt-
unarkrafa á þeim í ársbyijun 7,95%.
Vextimir lækkuðu og fóru í 6,60%
i lok apríl. Eftir það hefur ávöxtun-
arkrafan verið að síga upp á við
og var komin í 7,09% 23. septem-
ber, en hafði í mánuð þar áður ver-
ið 7,05%.
Jóhannes Nordal sagði að ákveð-
ið hefði verið í sumar að kaupa
verðbréf til að koma í veg fyrir að
vextir hækkuðu. Það hefði að vísu
ekki haft nægileg áhrif en hefði þó
vafalaust dregið úr þeirri vaxta-
hækkun sem hefði orðið í sumar.
Mjög lítið hefði verið keypt af verð-
bréfum síðastliðinn mánuð þannig
að vonandi væri að komast á jafn-
vægi að nýju.
Aðspurður hvort það væri nokk-
uð óeðlilegt að Seðlabankinn gripi
þannig inn í vaxtaþróun, sagði Jó-
hannes að það væri hlutverk seðla-
banka að gera það. Hann hlyti að
ákveða miðað við aðstæður hvort
hann teldi ástæðu til að hafa áhrif
á vexti með þessum hætti.
„Lausafjárstaða bankanna hefur
verið mjög góð á þessu tímabili og
mikill stöðugleiki rílqandi svo við
töldum að það væri fyllilega svig-
rúm til þessara aðgerða. Þetta er
ekki mjög stór fjárhæð og það hafa
hliðstæðar sveiflur áður orðið í
þessum efnum í samræmi við að-
stæður," sagði Jóhannes ennfrem-
ur.
Viðskipti með spariskírteini á
Verðbréfaþingi íslands námu 399
milljónum króna í ágúst samanborið
við 575 milljónir króna í júlí. Við-
skiptin í september námu 261 millj-
ón króna.