Morgunblaðið - 21.10.1992, Page 4
MORGUNBLÁÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. OKTÓBER 1992
Suðurbæjarlaug
Mósaikmynd
eftir Svein
Björnsson
UNNIÐ er að uppsetningu
mósaíkmyndar eftir Svein
Björnsson listmálara í innisund-
laug Suðurbæjarlaugar i Hafn-
arfirði. Mósaíkmyndin er 12,5
metrar að lengd og tveggja
metra há, samtals 25 fermetr-
ar. Hún er sett saman af 175
þúsund stykkjum.
Nauðsynlegt þótti að hafa verk-
ið í varanlegu efni við aðstæður
eins og ríkja á baðstað og var því
ákveðið að útfæra myndina í
mósaík. í fréttatilkynningu frá
Suðurbæjarlaug segir að til verks-
ins hafi verið fengin ein fremsta
vinnustofa Þýskalands á þessu
sviði, dr. H. Oidtmann, frá bænum
Linnich nærri Aachen.
Myndin er sett upp í tilefni
þess að 28. október nk. verða lið-
in þrjú ár frá því að sundlaugin
. Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Sveinn Björnsson listmálari við mósaikmyndina í Suðurbæjarlaug.
var tekin í notkun, en kostnaður
greiðist úr Listskreytingarsjóði
ríkisins og bæjarsjóði Hafnar-
íjarðar.
Verkið mun prýða vegg sem
er jafnlangur innilauginni og eru
þýskir sérfræðingar að vinna við
uppsetningu hennar. Oidtmann-
fýrirtækið hefur áður unnið að
uppsetningu listaverka á íslandi.
Árið 1958 setti það glermyndir
eftir Gerði Helgadóttur í glugga
Skálholtskirkju og árið 1962
steinda glugga í Kópavogskirkju,
einnig eftir forsögn Gerðar. Árið
1962 setti fyrirtækið einnig
myndir eftir Nínu Tryggvadóttur
í þijá glugga Þjóðminjasafnsins.
VEÐUR
VEÐURHORFim 1 DAG, 21. OKTÓBER
YFIRLIT: Milli Vestfjarða og Grænlands er 1000 mb lægð, sem þokast norð-
austur og grynnist, en við Labrador er vaxandi 1000 mb lægð, sem hreyfist
norðaustur.
SPA: Austan og breytileg ótt. Víða léttskýjað og þurrt. Þykknar upp síðdeg-
is, með vaxandi suðaustanótt vestanlands og fer að rigna undir kvöldið.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG: Suðlægar áttir, víða nokkuö hvasst. Rlgning um
mest allt land og hiti 3-8 stig í fyrstu en kólnar síðdegis.
HORFUR A FÖSTUDAG: Fremur hæg suðaustan eða breytileg átt. Skúrir
eða slydduél ó við og dreif um landið. Hiti nólægt frostmarki.
HORFUR Á LAUGARDAG: Norðaustlæg átt og kófnandi veður. Él um norð-
an og austanvert landiö en léttir til sunnanlands og vestan.
Nýlr veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.46, 12.46, 16.30, 19.30, 22.30.
Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
o
Heiðskírt
r -r r
r r
r r r
Rigning
.ö & -<á m
Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað
* r * * * *
* r * *
r * r * * *
Slydda Snjókoma
S/ $ V
Skúrír Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindðrin sýnir vindstefnu
og flaðrimar vindstyrk,
heH fjöður er 2 vindstig.
10° Hitastig
y súid
= Þoka
rtig-.
FÆRÐA VEGUM: (Kl.17.30ígær)
Þjóðvegir landsins eru allir ágætlega greiðfærir, en hálka er sumstaðar á
fjallvegum, einkum ó norðanveröum Vestfjörðum, Noröurlandi, Norð-Austur-
landi og Austfjörðum.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og í
grænnilínu 99-6315. Vegagerðin.
VEÐUR VÍÐA UM HEiM
kl. 12.00 ígæraðísl. tíma
Akureyri Reykjavík hlti 4 5 veður rigningogsúkl úrkomaígrennd
Bergen 10 léttskýjað
Helslnki 5 rigníng
Kaupmannahöfn 9 þokumóða
Narssarssuaq 0 úrkomefgrennd
Nuuk 1 alskýjað
Osló vantar
Stokkhólmur 6 alskýjað
Þórshöfn 6 rigníng
Algarve 19 léttskýjað
Amsterdam 11 léttskýjað
Barcelona 20 mistur
Berlín 10 léttskýjað
Chicago 3 mistur
Feneyjar 10 þokumóða
Frankfurt 11 háifskýjað
Glasgow 10 léttskýjað
Hamborg 11 léttskýjað
London 10 rigning
LosAngeles 18 þokumóða
Ldxemborg B skýjað
Madrfd 18 skýjað
Malaga 20 rigning
Mallorca 22 hálfskýjað
Montreal 2 skýjað
NewYork 3 heiðskírt
Ortando 15 léttskýjeð
París 12 skýjað
Madeira 21 skýjað
Róm 22 skýjað
Vín vantar
Washington 1 léttskýjað
Wlnnipeg 0 alskýjað
Utanríkisráðuneytið
Rætt við sendiherrann
en hann ekki ávíttur
JÚRÍJ Reshetov, sendiherra Rússlands, var kallaður í utanríkisráðu-
neytið i fyrradag til viðtals við Hörð Bjarnason siðameistara vegna
greinar, sem sendiherrann ritaði í Morgnnblaðið um mál Eðvalds Hin-
rikssonar. Talsmaður ráðuneytisins segir að rætt hafi verið við sendi-
herrann, en hann ekki ávíttur fyrir greinina.
„Ráðuneytið átti samtal um þetta
viðkvæma mál við sendiherrann. Það
var rætt hvört skynsamlegt væri að
sendiherrar kæmu með þessum hætti
inn í umræður hér á landi. Sendiherr-
ann var ekki ávíttur,“ sagði Bjarni
Vestmann, blaðafulltrúi utanríkis-
ráðuneytisins, í samtali við Morgun-
blaðið í gær.
Reshetov var kallaður í ráðuneytið
vegna greinar sinnar í Morgunblað-
inu á þriðjudag í síðustu viku, sem
hann skrifaði sem þjóðréttarfræðing-
ur, en ekki sendiherra. í utanríkis-
ráðuneytinu var engu að síður talið
að greinaskrifin jöðruðu við afskipti
af innanríkismálum.
Er haft var samband við rússneska
sendiráðið fengust þau svör að Res-
hetov hygðist ekki ræða málið við
blaðamenn og hefði orðið að sam-
komulagi milli hans og utanríkis-
ráðuneytisins að ekki yrði annað sagt
um það en fram kæmi í yfirlýsingu
ráðuneytisins.
Innkaupsverð gasolíu hækkar
Útlit er fyrir að lítr-
inn hækki um 90 aura
V
OLÍUFÉLÖGIN ákveða undir næstu mánaðamót hvort þörf verður
fyrir hækkun á verði gasolíu vegna hækkandi innkaupsverðs og hækk-
andi gengis bandaríkjadals. Kristján Bjarndal Ólafsson, fjármálastjóri
Olís, segir að miðað við stöðuna nú þyrfti að hækka gasolíulítrann um
90 aura en hreyfing væri á gengi og verði og erfitt að spá fyrir um
stöðuna undir mánaðamót þegar verðið kæmi til endurskoðunar.
Geir Magnússon forstjóri Olíufé-
lagsins hf. sagði að frá því að verð
á gasolíu hafi verið ákveðið um mán-
aðamótin ágúst og september hafi
heimsmarkaðsverð gasolíu og gengi
dollars hækkað. Hann sagði að stað-
an yrði metin undir næstu mánaðar-
mót og fyrr yrði ekki ljóst hvort
þörf væri á verðbreytingu. Hann
sagði að minna tilefni virtist vera til
hækkunar á bensíni.
Kristján Ólafsson sagði að miðað
við stöðuna á heimsmarkaðsverði og
gengi dollars væri þörf fyrir um 90
aura hækkun á útsöluverði gasolíu.
Hann sagði að dæmið yrði skoðað
um næstu mánaðarmót í ljósi þróun-
ar þangað til.
Verðbólga minni og
kaupmáttur meiri en
Siðustu 3 mán.
Siðustu 12mán.
ráð var fyrir gert
VERÐBÓLGA hefur verið tals-
vert minni í sumar en ráð var
fyrir gert við gerð kjarasamning-
anna í vor. Þar var miðað við að
framfærsluvísitalan yrði 162,7 í
október, en vísitalan sem gildir
nú er 161,4, sem er 0,8% betri
staða en áætlanir samninganna
sýndu.
Gylfí Arnbjömsson, hagfræðing-
ur Álþýðusambands íslands, segir
að innflutningsverálag sé enn lægra
en búist hafi verið við. Engin verð-
bólga sé innanlands og verðbólga í
umheiminum sé í kringum 3%. Það
ætti að skila sér sem 1-1,5% verð-
hækkun hér á landi en hafí ekki
gert það. Ef lækkun vörugjalds um
3% 1. október, sem sé metið til 0,3%
í verðlagi, skili sér inn í verðlag í
nóvember og desember ætti engin
verðhækkun að eiga sér stað fram
til áramóta. Ef það gangi eftir yrði
hækkun verðlags frá upphafí til
loka árs 0,8% og kaupmáttur ætti
þá að hækka innan ársins um 1,4%
og yrði í árslok svipaður og hann
var í september í fyrra þegar þjóð-
arsáttasamningarnir runnu sitt
skeið.
♦ ♦ ♦----
Verðbólgan
irnian við 1%
Lánskjaravisitala 3.237 gildir
fyrir nóvember, en það er 0,06%
hækkun frá þeirri vísitölu sem
gildir fyrir október. Jafngildir það
0,7% verðbólgu á ári. Ef litið er á
síðustu þijá mánuði er hækkun á
heilu ári 0,4%, síðustu sex mánuði
2,1% og siðustu 12 mánuði hefur
vísitalan hækkað um 1,8%.
Hagstofan hefur reiknað út launa-
vísitölu fyrir októbermánuð miðað
við meðallaun í september og reynd-
ist hún 0,1% hærri en í fyrra mán-
uði. Þá hefur Hagstofan einnig reikn-
að út vísitölu byggingarkostnaðar.
Reyndist hún 189,1 stig og hækkar
um 0,1% frá septembermánuði. Síð-
astliðna tólf mánuði hefur bygging-
arvísitalan hækkað um 1,0%.